Morgunblaðið - 13.09.2008, Side 33

Morgunblaðið - 13.09.2008, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 2008 33 FRUMVARP til laga um sjúkratrygg- ingar sem heilbrigð- isráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson lagði fram sl. vor varð að lögum á Alþingi mið- vikudaginn 10. sept- ember og því fagna ég. Við þriðju um- ræðu lögðu tveir þingmenn Vinstri grænna í heilbrigð- isnefnd þingsins, þær Þuríður Backman og Álfheiður Ingadóttir, fram nefndarálit og því fylgdu þrjú fylgi- skjöl, erindi Göran Dahlberg frá Svíþjóð og Allyson M. Pollock frá Bretlandi sem og greinargerð Rúnars Vilhjálmssonar, pró- fessors við HÍ. Þess ber að geta hér að fylgiskjölin öll voru ágætis lesning og þar var ýmsu hreyft sem vert er að skoða við innleiðingu nýrra laga. En það sem vakti mig sérstaklega til umhugsunar um fræðimennsku og vísindi eru viðhorf Allyson M. Pollack til skýrslu OECD er segir að óbreytt fyrirkomulag heilbrigð- isþjónustunnar og öldrun þjóð- arinnar kalli í framtíðinni á aukin útgjöld heilbrigðisþjónustunnar. Viðhorf Allyson M. Pollock til skýrslu OECD kristallast í svörum hennar er hún segir m.a.:  að skýrsla OECD sé ekki sér- lega rökrétt og vel unnin  að þetta með aldurssamsetningu samfélagsins og aukin útgjöld séu hrein og klár rökleysa að vera þurfi á varðbergi gagnvart því sem segir í skýrslu OECD  að skoða þurfi hverjar heimildir eru og heimildarmenn að gögnin í skýrslu OECD séu hlægileg. Satt best að segja er afar erfitt að flokka slík viðhorf undir fræði- mennsku og vísindi og ber að líta á sem persónulegar skoðanir sér- fræðingsins sem hafa allt annað vægi en fræðilegar rökstuddar full- yrðingar. Það sem vekur enn fremur at- hygli er að BSRB kostaði komu þessara tveggja sérfræðinga hing- að til lands sem og bæklingana tvo með erindunum þýddum yfir á ís- lensku og þar með fylgiskjöl þing- manna Vinstri grænna. Það er vissulega virðingarvert af hálfu BSRB að gefa félagsmönnum sín- um tækifæri til að hlýða á og ræða við sérfræðinga og taka síðan af- stöðu til frumvarpa er liggja fyrir Alþingi. En hefði þá ekki verið rétt að kalla til sérfræðinga með ólíka sýn til þess að gefa félagsmönnum BSRB enn betra tækifæri til að taka afstöðu til ólíkra sjónarmiða „óháðra“ sérfræðinga og taka síð- an afstöðu til frumvarpa er liggja fyrir Alþingi? Formaður BSRB Ögmundur Jónasson, sem jafn- framt er formaður þingflokks Vinstri grænna, hefur nefnt í tengslum við komu þessara tveggja sérfræðinga BSRB og erinda þeirra að Verslunarráð/Við- skiptaráð hafi flutt inn og kostað fyrirlesara til að koma sjón- armiðum sínum á framfæri. En á þessu tvennu er reginmunur því BSRB eru opinber félagasamtök og í þau greiða opinberir starfs- menn sín félagsgjöld sem þeim ber samkvæmt lögum og geta ekki annað en félagsmenn Viðskiptaráðs eru þar að eigin ósk og geta farið úr þeim samtökum þegar þeim hentar. Þetta veit formaður BSRB og formaður þingflokks Vinstri grænna Ögmundur Jónasson mætavel en kýs að líta framhjá. Það hefði að mínu mati verið heppilegra fyrir þingflokk Vinstri grænna að kosta sjálfur komu þessara tveggja sérfræðinga og þýðingu erinda þeirra til þess að nýta sér síðan í pólitískri umræðu á Alþingi máli sínu til stuðnings. Það hefði skorið á alla umræðu um óheppileg hagsmunatengsl þing- flokks Vinstri grænna og BSRB. Hagsmunatengsl þingflokks Vinstri grænna og BSRB? Ragnheiður Rík- harðsdóttir skrifar í tilefni af samþykkt laga um sjúkra- tryggingar »Það hefði skorið á alla umræðu um óheppi- leg hagsmunatengsl þingflokks Vinstri grænna og BSRB. Ragnheiður Ríkharðsdóttir Höfundur er alþingismaður. BÆJARYFIRVÖLD í Kópavogi hafa í við- tölum og skrifum fundið það upp að tortryggni sé höfð að leiðarljósi þegar íbúar taka hönd- um saman og stofna íbúasamtök til að standa vörð um gildandi deiliskipulag hverfa sinna. Bæjaryfirvöld hljóta að taka frumkvæði íbúa með opnum örmum í stað þess að gefa í skyn að pólitískir flokkadrættir ráði þar för. Bæjaryfirvöld hljóta einnig að sjá nýjan vettvang til samráðs við íbúa og geta talað til sem flestra ef ekki allra íbúa í viðkomandi hverfum eða bæjarhlutum Kópavogs. Í grein sem birtist í dagblaðinu 24stundum vegna skipulagsmála á Kársnesi og rituð er af bæjarstjóra Kópavogs, Gunnari I. Birgissyni, hinn 25. júlí er að finna skilgreiningu á íbúasamráði og hlutverki bæj- arstjórnar. Þar stendur: „Skipulags- valdið er í höndum bæjarstjórnar og þar með ábyrgðin. Því nær hugtakið íbúasamráð betur yfir það að gera íbúum kleift að hafa áhrif á stefnu- mótun og ákvarðanir í skipulags- málum. Slík tilhögun greiðir fyrir sátt um stefnu og framkvæmdir og eykur þar með skilvirkni. Forsenda fyrir því að almenningur myndi sér skynsamlega skoðun á nýjum áform- um um skipulag á Kársnesi er að hugmyndirnar séu rækilega kynntar. Jafnframt er íbúum auðveldað að koma á framfæri ábendingum og at- hugasemdum. Þannig geta þeir haft áhrif á mótun umhverfis síns.“ Með stofnun Íbúasamtaka Linda- hverfis er slegið smiðshöggið á vett- vang fyrir íbúasamráð gagngert til að hafa áhrif á þær hugmyndir sem settar hafa verið fram um aðal- og deiliskipulag á Glaðheimasvæði og Skógarlind Lindir IV. af hálfu bæj- aryfirvalda. Slíkur vettvangur er kjörinn til að tryggja rækilegar kynningar á hugmyndum bæjaryf- irvalda og þeirra sem vilja byggja á þeim svæðum sem kynnt eru. Skipulagsvaldið er í höndum bæj- aryfirvalda eins og þau eru mönnuð hverju sinni. Þegar íbúar vilja koma á framfæri vinsamlegum at- hugasemdum, ábendingum og áskor- unum um hverfi sín þá á það vera hægt án þess velja þurfi vini með hægri eða vinstri hendi. Ef við skipt- um út „Kársnesi“ í tilvitnunni hér að ofan má allt eins setja nöfn annarra hverfa inn í textann og líta svo á að til okkar allra sé ritað. Það finnst mér og geri ráð fyrir að ykkur sem þetta lesið finnist hið sama. Það er nú samt svo að allt er breytingum háð og tím- inn einn leiðir í ljós um það hver kembir hærur sínar á sama stað og síðast. Mér þykir rétt að setja ályktanir stofn- fundar Íbúasamtaka Lindahverfis frá 4. september 2008 hér inn til að koma í veg fyrir misskilning eða að eitthvað hafi misfar- ist. Ályktanir og áskor- anir þessar voru ein- róma samþykktar af fundarmönnum. 1. Fundurinn ítrekar allar fyrri áskoranir íbúafundar Linda- hverfis frá 28. ágúst 2008 til bæjaryf- irvalda, ráða og nefnda og þakkar skjót viðbrögð yfirvalda. 2. Fundurinn skorar á bæjaryf- irvöld að kynna með ítarlegri hætti, meðal annars á íbúafundi, hug- myndir þær er bæjaryfirvöld hafa um þróun skipulags í þeim hverfum sem liggja að Reykjanesbraut. Þess er óskað að þetta verði framkvæmt sem fyrst. 3. Fundurinn skorar á bæjaryf- irvöld að láta framkvæma án tafar fyrirhugaðar mælingar á hljóð- mengun, loftmengun og umferð á Reykjanesbraut og nærliggjandi stofnbrautum og kynna niðurstöður fyrir íbúum Lindahverfis og annarra nærliggjandi hverfa. 4. Þess er krafist að ekki verði gerðar frekari breytingar á gildandi aðal- og deiliskipulagi fyrr en mæl- ingar þær, sem tilgreindar eru hér að ofan, hafa farið fram, þær kynntar íbúum og hlutaðeigandi yfirvöldum, sem og spár um aukna hljóðmengun, loftmengun og umferð tengda fyr- irhuguðum breytingum á skipulagi. 5. Þess er krafist að gerðir verði útreikningar á skuggavarpi fyrirhug- aðs turns í Skógarlind 2 á Melalind og Núpalind og þeir kynntir íbúum hverfisins og að þeir verði lagðir til grundvallar ákvörðun bæjaryf- irvalda. Ég vil líka nota tækifærið hér til þess að þakka bæjayfirvöldum það frumkvæði nú að vinna að bækl- ingagerð til okkar íbúa Lindahverfis. Betra er seint en aldrei þar sem stutt er í 22. september en þá rennur út- frestur til að skila inn til bæjaryf- irvalda athugasemdum um svonefnt Glaðheimasvæði. Þetta framtak er bæjaryfirvöldum til sóma og sýnir að bæjaryfirvöld vilja vel til vina og set- ur stefnuna inn framtíðina. Við sem að samtökunum stöndum hlökkum til að eiga góða og upp- byggjandi fundi með bæjaryf- irvöldum og hvetjum alla íbúa til hins sama. Við viljum virkja íbúalýðræðið vel og er máttur samtaka mikill. Íbúasamtök Lindahverfis hafa skýrt markmið: Upplýst umræða íbúa Lindahverfis án flokkadrátta eða misvísandi handabanda. Með vin- semd og þakklæti. Þarf að velja vini með hægri eða vinstri hendi? Sigurður Þór Sig- urðsson fjallar um skipulagsmál í Kópavogi » Bæjaryfirvöld í Kópavogi ættu að taka frumkvæði íbúa að stofnun samtaka með opnum örmum í stað þess að gefa í skyn að flokkadrættir ráði þar för. Sigurður Þór Sigurðsson Höfundur er viðskiptafræðingur MBA og einn af forsvarsmönnum Íbúasamtaka Lindahverfis. Glæsilegt 192,3 fm. enda-raðhús, þar af 28 fm. bílskúr, gróinn garður og 56 fm sólpall- ur. Húsið er á tveimur hæðum og vandað hefur verið til innréttinga og frágangs. Gólf eru öll með vönduðu eikarparketi. Rúmgóð stofa/borðstofa, með stórum glggum og tvöfaldri hurð, þaðan er útgengt á sólverönd. Þrjú svefnherbergi. Eldhús er með vand- aðri innréttingu. Flísalögð baðherbergi eru á báðum hæðum. Bílskúr með, þriggja fasa rafmagnstengli. Skjólgóður garður og sólpallur, lagnir fyrir heitan pott. Andrés sími 893 0011 sýnir OPIÐ HÚS Í DAG KL. 15 OG 16 GVENDARGEISLI 118 Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Munið Mastercard ferðaávísunina Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. Heimsferðir bjóða nú ótrúlegt tilboð á 3ja nátta ferð til Kraká þann 17. eða 20. október. Borgin er ein best varðveitta borg Póllands og er stór hluti hennar á minjaskrá UNESCO. Kraká er afar lífleg og skemmtileg borg sem heillar alla sem þangað koma. Fjöldi veitingahúsa, bara, skemmtistaða og verslana er í borginni, ekki síst í kringum stóra markaðstorgið, Rynek Glówny, sem er nafli Kraká. Bjóðum frábært sértilboð á Hotel Chopin ***. Ath. aðeins örfá herbergi í boði á þessum kjörum. Verð frá kr. 49.990 Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli í 3 nætur á Hotel Chopin*** með morgunverði, 17.-20. okt.. Aukagjald fyrir einbýli kr. 14.000. Verð frá kr. 39.990 Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli í 3 nætur á Hotel Chopin*** með morgunverði, 20.-23. okt.. Aukagjald fyrir einbýli kr. 14.000. M b l1 04 63 61 Þriggja nátta ferð Kraká Síðustu sætin í október! frá kr. 39.990

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.