Morgunblaðið - 18.09.2008, Síða 2

Morgunblaðið - 18.09.2008, Síða 2
2 FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, ben@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Unu Sighvatsdóttur una@mbl.is „ENGINN vill bera neina ábyrgð, engin skýring fæst og ekki neitt. Mér finnst ótrúlegt hvernig komið er fram við mann í þessu kerfi,“ segir móðir í Hafnarfirði sem komst nýlega að því að lögheim- ili ólögráða sonar hennar hafði verið fært til Nor- egs að henni forspurðri. Barnsfaðirinn er íslenskur en búsettur í Noregi og gerðu foreldrarnir samkomulag um að piltur- inn, sem er 16 ára gamall, myndi dveljast hjá föð- ur sínum í nokkra mánuði í sumar. „Hann hefur greinilega eitthvað misskilið mig því hálfum mán- uði síðar segir hann mér að hann sé búinn að skrá barnið í skóla í Noregi í haust. Svo fæ ég pappíra frá sýslumanninum í Hafnarfirði um að meðlags- greiðslur til mín séu felldar niður þar sem sonur minn sé fluttur til Noregs.“ Að sögn konunnar var hennar samþykkis aldrei leitað þegar heimilisfang sonarins var fært úr landi, þrátt fyrir að hún hafi alla tíð farið með fullt forræði en faðirinn haft umgengnisrétt um jól og sumar. Hún segist furðu lostin yfir að breytingin hafi komist í gegn án hennar vitneskju. „Svo þegar ég fer að kanna málið bæði hjá Tryggingastofnun og Þjóðskrá benda menn bara hver á annan og gefa engin svör. Ég vil bara fá að vita hvort það sé hreinlega svona auðvelt að ræna börnunum og fara bara með þau úr landi?“ Hjá upplýsingaþjónustu Norrænu ráðherra- nefndarinnar fengust þær upplýsingar að reglur í Fluttur til Noregs án samþykkis móður  Lögheimili 16 ára gamals drengs var fært úr landi án vitneskju móður hans sem fer með fullt forræði  Móðirin er ósátt við að engin skýring fáist í kerfinu Noregi virtust vera lausari í reipunum en hér- lendis. „Almenna reglan á Íslandi er sú að ef um barn yngra en 18 ára er að ræða þá þarf samþykki frá báðum foreldrum eða þá staðfestingu frá sýslumanni eða öðrum á því að viðkomandi for- eldri sé með fullt forræði. Þetta er því eitthvað sem er gert í óþökk við kerfið hér,“ segir Alma Sigurðardóttir verkefnisstjóri. Á heimasíðu Skatteetaten, sem heldur utan um þjóðskrá í Noregi, segir hinsvegar í reglum að hver sem er yfir 18 ára aldri geti á netinu tilkynnt um flutning annars fjölskyldumeðlims á heimil- inu. Þaðan gæti verið komin sú gloppa í kerfinu sem gerir mögulegt að færa lögheimili ólögráða barns án vitneskju forræðisforeldris á Íslandi. Ekki fengust svör frá Þjóðskrá vegna málsins. Í HNOTSKURN »Á Íslandi hefur fjöl-skyldumeðlimur ekki heimild til að færa heimilis- fang barns án samþykkis for- ráðamanns. »Meðlagsgreiðslur fráTryggingastofnun falla niður ef barn er ekki lengur skráð á framfæri móttakanda og eins ef móttakandi og barn flytja frá Íslandi. »Móðirin þarf nú sjálf aðskrá son sinn inn í landið aftur en hann sneri aftur heim í ágúst. STOFNSKRÁ Styrktarsjóðs Wat- anabe, sem er nýr styrktarsjóður við Háskóla Íslands (HÍ), verður und- irrituð af stofnandanum Toshizo Watanabe og Kristínu Ingólfsdóttur rektor í hátíðarsal Háskóla Íslands í dag. Stofnframlag Watanabe til sjóðsins er þrjár milljónir Banda- ríkjadala (um 276 milljónir íslenskra króna). Tilgangur Styrktarsjóðs Wat- anabe er að veita styrki til skipti- náms í Japan og á Íslandi, bæði nem- endum í grunnnámi og framhaldsnámi á háskólastigi, auk þess að stuðla að skiptum á vísinda- mönnum. Stjórnarmenn sjóðsins eru þrír. Rektor HÍ skipar formann stjórnar og Toshizo Watanabe og Geir H. Haarde skipa einn stjórn- armann hvor. Toshizo Watanabe nam við Brandeis-háskólann Bandaríkjunum og var sjálfur skiptinemi. Að loknu námi stofnaði hann Nikken-fyrir- tækið. Watanabe kynntist Íslandi á námsárum sínum. Hann var skóla- bróðir Geirs H. Haarde og tókst með þeim góð vinátta. Nýr styrktar- sjóður HÍ GENGI bréfa deCode Genetics hélt áfram að lækka í gær og var loka- gengið 0,42 dalir. Hefur hlutabréfa- verð deCode þá lækkað um 56,7% á einni viku. Hafa fjárfestar áhyggj- ur af lausafjárstöðu fyrirtækisins, sem er sögð viðkvæm. Er ekki ljóst hvernig félagið mun mæta fjár- mögnunarþörf sinni, en við núver- andi aðstæður á fjármálamörk- uðum mun það eflaust reynast þrautin þyngri. bjarni@mbl.is Vandræði hjá deCode FRÉTTASKÝRING Eftir Andra Karl andri@mbl.is ÍTREKAÐ hefur komið fyrir á und- anförnum mánuðum að Fangels- ismálastofnun hefur ekki getað tekið á móti gæsluvarðhaldsföngum í ein- angrun, þar sem allir einangr- unarklefar hafa verið í notkun. Hefur því verið gripið til þess neyðar- úrræðis að vista fanga í fanga- geymslum lögreglustöðva. Komi til fleiri gæsluvarðhaldsúrskurða, s.s. í dag má gera ráð fyrir að því úrræði verði beitt að nýju. Sautján einstaklingar sæta gæslu- varðhaldi um þessar mundir. Af þeim eru sjö í einangrun vegna rannsókn- arhagsmuna. Fangelsismálastofnun hefur yfir að ráða átta einangr- unarklefum, og voru þeir allir í notk- un í gær. Einangrunarklefarnir eru einnig notaðir til að refsa afplán- unarföngum sem brotið hafa af sér innan veggja fangelsisins, eða fylgj- ast sérstaklega með föngum sem taldir eru hættulegir sjálfum sér. Óheppilegt fyrirkomulag „Það hefur komið fyrir nokkrum sinnum á þessu ári,“ segir Erlendur Baldursson, afbrotafræðingur hjá Fangelsismálastofnun, spurður hvort komið hafi upp tilvik þar sem vísa hafi þurft gæsluvarðhalds- föngum frá. „En það geta auðvitað liðið margar vikur og mánuðir á milli.“ Erlendur segir að ef upp kæmi al- varlegt mál núna þar sem nokkrir þyrftu að sæta einangrun væri ekki hægt að verða við því. Hann segir erfitt að búa við þessar aðstæður en óljóst er hvenær nýtt gæslu- varðhaldsfangelsi verður tekið í notkun. Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins, segir fanga- geymslur lögreglunnar fyrst og fremst hannaðar með þarfir og notk- un lögreglu í huga. „Þetta er ekki fyrirkomulag sem er heppilegt en þetta eru aðstæður sem við búum við í dag. En við erum ekki með klefa fallna til afplánunar eða vistunar gæsluvarðhaldsfanga.“ Jóhann R. Benediktsson, lög- reglustjóri á Suðurnesjum, tekur í sama streng. „Þetta er ekki gott fyrir neinn. Þetta þýðir aukinn kostnað og þessar aðstæður sem við höfum eru slæmar fyrir þá sem lenda í þessu.“ Jóhann tekur þó fram að þetta hafi ekki verið algengt. „Þetta kemur ein- stöku sinnum fyrir en því miður hef- ur þetta ítrekað komið fyrir á síðustu mánuðum.“ Fimm inn, fjórir út Oftar hefur verið fullt í einangr- unarklefum á þessu ári en því síð- asta, en eðli málsins samkvæmt skip- ast veður skjótt í lofti þegar kemur að úrskurðum gæsluvarðhalds. „Það koma kannski fimm inn í dag, fjórir út á morgun, þannig að þetta er mjög misjafnt,“ segir Erlendur. Í ár hafa mest verið hátt í þrjátíu ein- staklingar í gæsluvarðhaldi. Fjöldi gæsluvarðhaldsdaga á lög- reglustöðvum var 157 á síðasta ári en 46 árið 2006 og 12 árið 2005. Það sem af er þessu ári eru það 75 dagar. Oftar fullt í ár en í fyrra  Óvenjumargir sæta einangrun í gæsluvarðhaldi og eru allir klefar í notkun  Undanfarna mánuði hefur ítrekað þurft að notast við fangaklefa lögreglu Frumathugun vegna stækkunar fangelsisins Litla-Hrauns og einn- ig vegna nýs skammtíma- og gæsluvarðhaldsfangelsis ætti að vera lokið í næsta mánuði. Erfitt er þó um að spá hver næstu skref verða. Hvað varðar nýtt fangelsi á höfuðborgarsvæðinu mun það rísa í tengslum við nýjar höfuðstöðvar lögreglu. Úr dómsmálaráðu- neytinu fengust þau svör að unnið væri að því í samvinnu við lög- reglustjórann á höfuðborgar- svæðinu að skipuleggja sameig- inlega nýja lögreglustöð og gæslu- og skammtímavistunarfangelsi. Áður verður hins vegar ráðist í stækkun á Litla-Hrauni og gert ráð fyrir allt að þrjátíu nýjum klefum. Ekki er hægt að nefna neinar dag- setningar í þessum efnum. Ekki hægt nefna neinar dagsetningar SUND og aftur sund er málið hjá tólf grænlensk- um krökkum sem eru nú í vikuheimsókn á Íslandi. Þau fara í sundtíma tvisvar á dag í íþrótta- miðstöðinni í Versölum í Kópavogi og þess á milli eru þau í kennslustundum hjá jafnöldrum sínum í Vatnsendaskóla. Komin er áralöng hefð fyrir því að bjóða grænlenskum skólabörnum á sund- námskeið á Íslandi. Krakkarnir í Vatnsendaskóla hafa tekið vel á móti gestunum, segir Guðrún Soffía Jónasdóttir skólastjóri. Og sundnemend- urnir sjálfir eru afar ánægðir með heimsóknina og íslensku gestgjafana sína í Vatnsendaskóla. Efnileg grænlensk ungmenni í sundinu RANNSÓKN lögreglunnar á höf- uðborgarsvæðinu á tveimur elds- voðum í Hafnarfirði fyrr á árinu er lokið. Um var að ræða bíl sem brann nærri Hvaleyrarvatni og hesthús við Sörlaskeið sem varð sömuleiðis eldi að bráð en um milljónatjón var að ræða. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni þykir ljóst að tveir karlar áttu þar hlut að máli en fullvíst er talið að eldur hafi kviknað af þeirra völdum í báðum tilvikum. Mennirnir, annar um tvítugt en hinn hálfþrítugur, voru færðir til yfirheyrslu í fyrradag og játuðu þeir hlutdeild sína sem og að hafa áður stolið bílnum sem um ræðir. Játuðu íkveikju í Hafnarfirði

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.