Morgunblaðið - 18.09.2008, Side 34

Morgunblaðið - 18.09.2008, Side 34
34 FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ Orð dagsins: Hver er sá, er mun gjöra yður illt, ef þér kappkostið það sem gott er? (1Pt. 3, 13.) Kunningi Víkverja mætti á leikhjá íþróttafélagi fyrir nokkru til að styðja við bakið á ungum syni sínum. Fleiri foreldrar voru á hlið- arlínunni og fór vel á með öllum áður en leikurinn hófst. Spjallað var um vetrarstarfið framundan, hvernig haga ætti fjáröflun og hvort senda ætti drengina út á land til æfinga- leikja. Þegar leikurinn hófst skiptu hins vegar nokkrir foreldranna um ham og hófu að kalla og hrópa – oft á sína eigin syni. „Lokaðu markinu, mað- ur!“ hrópaði einn á meðan annar gól- aði: „Ertu sofandi, drengur!“ Fleiri „leiðbeiningar“ í þessum dúr fengu að fjúka. „Út af með stelpurnar“ kallaði svo einn pabbinn og hristi höfuðið. „Það ætti að segja þessum strákum að ef þeir ætla að spila eins og stelpur þá eigi þeir bara betur heima í búningsklefanum að brjóta saman þvott en inni á velli.“ Nokkrir tóku undir þetta með hrossahlátri. Það er nefnilega það. Að spila eins og stelpa er auðvitað það alversta sem hægt er að segja við stráka. Að sögn þessa ágæta manns. Og að þvo þvott er auðvitað eina refsingin sem virkar. Foreldrar á hliðarlínunni geta verið alveg makalausir. x x x Víkverji nýtir sér þjónustuhundaleikskólans Voffaborgar reglulega. Hundur Víkverja hagar sér líkt og leikskólabarn þegar hann mætir í skólann á morgnana. Hann hleypur rogginn inn, heilsar glað- lega upp á „fóstrurnar“ og skokkar svo til leikfélaganna sem taka hon- um fagnandi. Í lok dags fær Víkverji svo skýrslu um hegðun hvutta í skól- anum. Borið hefur á því að hann sé eigingjarn á leikföng, enda einbirni og dekraður sem slíkur. Þá á hann það til að stelast til að stríða hinum á leikskólanum en veit upp á sig skömmina þegar upp kemst. Fyrir hefur komið að hvutti hafi verið sett- ur í skammarkrókinn þegar leik- urinn hefur gengið of langt. Þá talar Víkverji yfir hausamótunum á hon- um og voffi lofar bót og betrun. vík- verji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 ragur, 8 fen, 9 tekur, 10 háð, 11 byggja, 13 fiskar, 15 spaug, 18 sjaldgæft, 21 kjána, 22 fallegur, 23 skattur, 24 ísaumur. Lóðrétt | 2 melhryggur, 3 étast af ryði, 4 lag- vopn, 5 mergð, 6 reiðar, 7 skjótur, 12 afkomanda, 14 lengdareining, 15 hæfileiki, 16 ráfa, 17 undirnar, 18 margir, 19 vætlaði, 20 kögur. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 umbun, 4 hopar, 7 skott, 8 leður, 9 ask, 11 takt, 13 Erla, 14 ólétt, 15 fjöl, 17 akir, 20 til, 22 suddi, 23 jússa, 24 arðan, 25 ferli. Lóðrétt: 1 umsát, 2 brokk, 3 nota, 4 hólk, 5 púður, 6 rorra, 10 stéli, 12 tól, 13 eta, 15 fiska, 16 önduð, 18 kæs- ir, 19 róaði, 20 tign, 21 ljúf. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Vel melduð slemma. Norður ♠Á32 ♥9875 ♦94 ♣DG65 Vestur Austur ♠D976 ♠1085 ♥K6 ♥ÁDG10432 ♦G86 ♦10 ♣K1093 ♣87 Suður ♠KG4 ♥-- ♦ÁKD7532 ♣Á42 Suður spilar 6♦. Eykarmenn náðu góðri forystu í fyrstu lotu bikarúrslitaleiksins við Breka jarðverk. Spilið að ofan var einn sveifluvakinn, en þar komust Jón Baldursson og Þorlákur Jónsson í ágæta tígulslemmu, sem fór forg Austur á góðan sjölit í hjarta, en Júl- íus Sigurjónsson lét 2♥ duga, ef til vill í ljósi þess að hann var á hættu gegn utan hættu. Þorlákur gat þá sýnt tígulinn eðlilega á þriðja þrepi. Jón sagði 3♥ í leit að 3G, en Þorlákur sneri því upp í slemmuleit með 4♥ á móti. Sigurður Vilhjálmsson í vestur doblaði út á ♥K, doblið gekk til Þor- láks og hann redoblaði til að sýna fyrstu fyrirstöðu. Jón sagði 4♠ og Þorlákur 6♦. Tólf léttir slagir með því að vinna úr laufinu. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Sem bardagamaður dýrahringsins verðurðu alltaf jafn hissa þegar þú ert í værukæru skapi. Núna nennirðu bara ekki að slást – það kemur seinna. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þú verður sífellt uppteknari. Þú get- ur ekki lengur reitt þig á léleg kerfi eða ónáðað vini. Annað hvort er að bíta á jaxl- inn eða breyta einhverju. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þú hefur svo mikla orku að þú verður að eyða hluta hennar í líkams- æfingar. Frami þinn er ráðgáta sem þarfnast lausnar. Svörin koma þegar þú einbeitir þér að öðru. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þér er umhugað um fjölskyldu og börn. Þú ert reiðubúinn til að færa fórnir til að geta kennt öðrum. En þú verður líka að vita að leiðsögninni er fylgt. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Þú ert í miklum framkvæmdaham. Þú hefur svo margar góðar hugmyndir núna að þú gætir auðveldlega slegið í gegn með einni þeirra. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Samskipti þín við þína allra nán- ustu þarfnast mikilla tilfinningagáfna þessa dagana. Sem betur fer hefurðu nóg af þeim. Það er líka hlustað á þig. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þú getur aðstoðað þegar missætti kemur upp. Þú ert snillingur þegar kom- ast þarf að samkomulagi, því þú sérð hvað hver og einn hefur fram að færa. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þú hefur verið í sigurskapi frá því þú fórst fram úr. Hvort sem þú vilt vinna leik eða hjarta ertu mjög einbeittur. Þú trúir því að það muni verða öllum til góðs. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Fólk virðist verða drama- tískara í návist þinni. Ástvinir setja á svið þvílíkar uppákomur! Þú einn skilur þeirra innri gaman- og harmleikjaleikara. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þú gerir þér sífellt betur grein fyrir því að tilverur í öðrum víddum hafa áhrif á líf þitt. Á hljóðum stundum sérðu greinilega það sem þú sást ekki áður. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þér hefur tekist að verða hluti af aðstæðum sem þig dreymdi mikið um að komast í. Og nú pælirðu í því hvers vegna þú hélst að þetta yrði frábært. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þú ert reynslunni ríkari, snöggur og vitur. Haltu augunum opnum og vertu í viðbragðsstöðu. Þú færð tækifæri til að rubba af hlut sem sumir eru ár að klára. Stjörnuspá Holiday Mathis 18. september 1939 Skömmtun hófst á brauði, korni, kaffi og sykri, skömmu eftir upphaf síðari heimsstyrj- aldarinnar. Mánaðarskammt- ur af kaffi var 250 grömm á mann. 18. september 1968 Portúgalska knattspyrnuliðið Benfica keppti við Val á Laug- ardalsvellinum í Reykjavík. Áhorfendur voru 18.243, en það var vallarmet. Leiknum lauk með jafntefli, ekkert mark var skorað. Meðal leik- manna Benfica var hinn heimsfrægi Eusebio. 18. september 1977 Sprenging varð í flugelda- verksmiðju á Akranesi. Tveir menn létust. Skemmdir urðu á tuttugu nálægum húsum. 18. september 1977 Jón L. Árnason, 16 ára menntaskólanemi, varð heims- meistari sveina í skák. Hann tapaði aðeins fyrir Garry Kasparov sem lenti í þriðja sæti. Jón varð stórmeistari ár- ið 1986. 18. september 1993 Landslið Íslands í handknatt- leik, skipað leikmönnum 21 árs og yngri, varð í þriðja sæti á heimsmeistaramóti í Egyptalandi. Meðal leikmanna voru Ólafur Stefánsson og Sig- fús Sigurðsson. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist … Ólafur Þ. Hall- grímsson sókn- arprestur á Mæli- felli í Skagafirði er sjötugur í dag, 18. september. Hann verður með opið hús á heimili sínu, laugardag- inn 4. október næstkomandi frá kl. 16. 70 ára „ÉG hef alltaf verið mikið afmælisbarn og er byrj- uð að minna fólk á það í vikunni á undan að þessi dagur sé nú í vændum,“ segir Guðrún Edda Guð- mundsdóttir laganemi sem fagnar 25 ára afmæli sínu í dag. Guðrún Edda ólst upp í Hafnarfirði og Þingholt- unum en bjó einnig um fjögurra ára skeið í Sviss ásamt foreldrum sínum og talar því þýsku. Hún lauk stúdenstprófi frá Verslunarskóla Íslands 2003 og stundar nú meistaranám í lögfræði við Háskóla Íslands. Utan námsins hefur Guðrún Edda alltaf verið virk í félagsmálum og var m.a. skemmtanastjóri Orators, félags laganema, auk þess að sitja í stjórn enda segir hún nauðsynlegt að líta stundum upp úr bókunum. „Ég fer líka stundum á hestbak og skíði og reyni að ferðast reglu- lega til útlanda. Er einmitt nýkomin frá New York þar sem ég heim- sótti vinkonu mína og fór líka til Sviss í ágúst. En annars finnst mér skemmtilegast að vera bara með fjölskyldu og vinum.“ Í þeirra félagsskap ætlar Guðrún Edda einmitt að að halda upp á af- mælið í dag. Ætlunin er að hafa opið hús fyrir vini og vandamenn í eftirmiðdaginn en fara auk þess út að borða bæði í hádegi og að kvöldi og njóta þess að vera stjarna dagsins. „Ég er alveg á því að fólk eigi að fá að eiga þennan dag og býst að sjálfsögðu við því að allir hringi og sendi kveðjur,“ segir Guðrún Edda og hlær. una@mbl.is Guðrún Edda Guðmundsdóttir er 25 ára í dag Bíður eftir afmæliskveðjum dagbók Í dag er fimmtudagur 18. september, 262. dagur ársins 2008 Reykjavík Emilíana Guðrún fæddist 1. maí kl. 1.52. Hún var 12 merkur og 50 cm löng. Foreldrar hennar eru Anton Gylfi Pálsson og Hanna Andrésdóttir. Reykjavík Helen Silfá fædd- ist 16. júní kl. 14.11. Hún vó 3.340 g og var 49 cm löng. Foreldrar hennar eru Hildur Erla Björgvinsdóttir og Snorri Gunnar Steinsson. Nýirborgarar Sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3- reit birtist tölurnar 1-9. Það verð- ur að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Lausn síðustu Sudoki. www.sudoku.com © Puzzles by Pappocom Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 c6 2. d4 d5 3. Rc3 dxe4 4. Rxe4 Bf5 5. Rg3 Bg6 6. h4 h6 7. Rf3 Rd7 8. h5 Bh7 9. Bd3 Bxd3 10. Dxd3 e6 11. Bf4 Da5+ 12. Bd2 Dc7 13. O–O–O Rgf6 14. Re4 Rxe4 15. Dxe4 O–O–O 16. g3 Bd6 17. c4 Rf6 18. De2 c5 19. Bc3 cxd4 20. Rxd4 a6 21. Kb1 Hd7 22. Rb3 Dc6 23. Bxf6 gxf6 24. c5 Be7 25. Hxd7 Dxd7 Staðan kom upp í áskorendaflokki Skákþings Íslands sem lauk fyrir skömmu í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur í Faxafeni 12. Þórir Bene- diktsson (1887) hafði hvítt gegn Jó- hanni H. Ragnarssyni (2157). 26. c6! Dd5 svartur hefði einnig staðið illa að vígi eftir 26… bxc6 27. Ra5. 27. Hd1 Df5+ 28. Ka1 b5 29. De3 Hd8 30. Hxd8+ Bxd8 31. Da7 Bc7 32. Da8+ og svartur gafst upp. Hvítur á leik. ;)Nýbakaðir foreldrar?Sendið mynd af nýja ríkisborgaranum ásamtupplýsingum um fæðingarstað og stund,þyngd, lengd og nöfn nýbakaðra foreldra,á netfangið barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.