Morgunblaðið - 30.09.2008, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 30.09.2008, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Unu Sighvatsdóttur una@mbl.is „ÉG kann ekki við að fólk sé með myndavélar sem ná langt út fyrir þeirra eigin lóð, það er beinlínis hægt að nota þetta í undirheima- starfsemi,“ segir íbúi í Reykjavík. Hann komst nýlega að því að ná- granni hans neðar í götunni er með kröftuga eftirlitsmyndavél á húsi sínu sem hefur burði til að fylgjast með talsvert meiru en bara ferðum á þeirri lóð. Þegar leikfangi var stolið úr garði þriðju grannanna bönkuðu þau upp á hjá manninum með mynd- ir sem fengist höfðu úr myndavélinni og þóttu sýna að þar hefðu börn mannsins verið á ferðinni. Í ljós kom að svo var reyndar ekki, en maðurinn kann afar illa við að vita af því að nágranninn hafi þannig í raun völd til að fylgjast með lífsmunstri allra í götunni, ekki síst ef upptökunum er í ofanálag deilt með öðrum. „Myndin sem mér var sýnd náði algjörlega út á götu og nánast alveg heim að dyrum hjá okkur. Mér finnst þetta ekki eðlilegt og benti þeim á að ég vildi ekki búa í umhverfi þar sem hægt er að fylgj- ast með öllum mínum ferðum.“ Hjá Persónuvernd fengust þær upplýsingar að fólki væri almennt heimilt að setja upp öryggiskerfi með myndavélum heima hjá sér, en hins vegar þyrfti að gæta meðalhófs. Þannig þyrfti að taka mið af frið- helgi einkalífsins og beina ekki myndavélum að heimilum annarra. Fjölmörg mál út af rafrænni vökt- un koma inn á borð til Persónu- verndar á ári hverju en fæst þeirra eru vegna gæslu við heimahús. Al- menna reglan er sú að ekki megi vinna með eða afhenda þriðja aðila upptökurnar án samþykkis þess sem myndin er af, nema lögreglu ef grun- ur leikur á refsiverðu athæfi. Þá gildir sú regla um örygg- ismyndavélar í heimahúsi eins og annars staðar að upptökum ber að eyða innan 90 daga nema lög heimili annað. Persónuvernd hefur heimild til að stöðva rafræna vöktun sem brýtur þessar reglur en meta þarf aðstæður í hverju tilfelli fyrir sig að sögn lögfræðings hjá Persónuvernd. Má nota í misjöfnum tilgangi Maðurinn sem blaðamaður ræddi við segist ætla að leita réttar síns hjá Persónuvernd þar sem hann geti ekki sætt sig við hvernig myndavél nágrannans sé notuð. „Það er í raun hægt að kortleggja mig gjörsamlega með þessu og ég kæri mig ekki um það. Ég er ekki viss um að fólk sé meðvitað um þetta eða geri sér grein fyrir hættunni sem getur fylgt svona myndavélum. Því þótt það sé kannski ólíklegt að nágrannarnir séu í raun eitthvað að fylgjast með manni þá veit maður samt aldrei og eitt slíkt tilfelli er nóg til að geta valdið manni skaða.“ Morgunblaðið/Golli Stóri bróðir? Rafræn vöktun á opinberum vettvangi hefur rutt sér til rúms síðustu ár en færri eiga því að venjast að nágranninn vakti alla götuna. Nútíma nágrannanjósnir?  Íbúa í Reykjavík var brugðið þegar hann komst að því að eftirlitsmyndavél ná- grannans náði heim að dyrum hjá honum  Notkun myndavéla sífellt almennari ALÞINGI Íslendinga, 136. löggjaf- arþingið, verður sett á morgun, miðvikudag. Þingsetningin hefst með guðs- þjónustu í Dómkirkjunni kl. 13.30, þar sem Anna Sigríður Pálsdóttir prestur við Dómkirkjuna predikar. Sjálf þingsetningin hefst klukkan rúmlega 14 með ræðu Ólafs Ragn- ars Grímssonar, forseta Íslands. Að því búnu tekur Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis, við stjórn fund- arins og minnist látins þingmanns, Jósefs Þorgeirssonar. Að loknu kaffihléi verður fundi framhaldið og fjárlagafrumvarpinu útbýtt. Fyrsta umræða um fjárlaga- frumvarpið verður á föstudag. Á fimmtudagskvöld flytur Geir H. Haarde forsætisráðherra stefnu- ræðu sína og í framhaldinu verða umræður um hana. sisi@mbl.is Alþingi sett á morgun Morgunblaðið/Kristinn FIMM yfirlögregluþjónar á Norð- urlandi óttast að fagleg umræða um stefnumótun og framtíð- arskipulag lögreglunnar verði und- ir í því umróti og umræðum sem verið hafa undanfarna daga. Þeir lýsa yfir stuðningi við dóms- málaráðherra og kalla eftir því að víðtæk sátt náist um framtíð- arskipan lögreglunnar. „Við, eins og aðrir, höfum mis- jafnar skoðanir á ýmsum útfærslum á skipulagi lögreglunnar og höfum bæði komið þeim á framfæri við ráðherrann og skilað inn at- hugasemdum vegna undirbúnings- vinnu að frumvarpi um þessi mál. En þrátt fyrir misjafnar skoðanir og áherslur, sem kannski fara ekki alltaf saman við skoðanir eða áherslur dómsmálaráðherra, þá treystum við honum öðrum betur til að koma þessu máli í höfn svo að skipulag lögreglunnar verði eins gott og mögulegt er til framtíðar litið,“ segir í yfirlýsingu yfirlög- regluþjónanna á Sauðárkróki, Blönduósi, Akureyri og Húsavík. Sátt náist um löggæsluna Má hver sem er koma sér upp ör- yggismyndavél? Já í rauninni, en en hún verður að fara fram í yfirlýstum, skýrum og málefnalegum tilgangi skv. lögum og má ekki vera leynileg nema með lagaheimild eða úrskurði dómara. Hver er meðalhófsreglan? Í reglum nr. 837/2006 segir að gæta skuli þess við rafræna vöktun að ganga ekki lengra en brýna nauðsyn ber til miðað við tilgang. Virða skuli einkalífsrétt annarra og forðast alla óþarfa íhlutun í einkalíf þeirra. Hvar má eiga von á að mynda- vélar fylgist með manni? Eftirlitsmyndavélum hefur víða verið komið upp í verslunum, líkamsrækt- arstöðvum, á vinnustöðum auk auð- vitað miðborgar- og umferðareftirlits lögreglunnar. Þá geta einstaklingar fest kaup á ýmsum gerðum örygg- ismyndavéla fyrir heimahús og fer notkun þeirra vaxandi. Leiki grunur á misnotkun þeirra má senda ábend- ingu á Persónuvernd. S&S Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur ylfa@mbl.is STUNDUM getur góðlátlegt grín farið öðruvísi en lagt var upp með. Því fékk Sandra Kristín Júlíusdóttir, nemandi í 10. bekk í Smáraskóla og helgarstarfsmaður í Hagkaupum í Garðabæ, að kynnast seinni- part sunnudagsins sl. Sandra var við störf í versluninni að fylla á í kæliborðinu þegar hún þurfti að sækja matvöru í frystiklef- ann á lagernum. Vinkonur Söndru, sem einnig vinna í Hagkaupum, ákváðu að stríða henni og lokuðu dyrunum að klefanum á eftir henni. Við það slokknaði á rauðu ljósi fyrir ofan kælidyrnar, sem er til merkis um að dyrnar séu opnar, svo myrkt varð í klef- anum. Svo illa vildi hins vegar til að hurðin festist og vinkonur Söndru gátu ekki opn- að dyrnar aftur. Hitastigið í klefanum var um -19°C. Sandra brá þó skjótt við og ýtti á neyðarhnapp sem kveikir sérstakt ljós í klefanum og stöðvar kælinguna. Miður sín eftir atvikið „Þær reyndu að opna en voru hræddar við að segja frá þessu því þá yrðu þær skammaðar þar sem það má ekki vera að grínast svona. Þær voru búnar að reyna í korter þeg- ar þær sóttu annan til að hjálpa,“ segir Sandra. Enn tókst ekki að opna dyrnar að klefanum svo 25 mínútum eftir að Sandra lokaðist inni var hringt í slökkvi- liðið. Það mætti skömmu síðar og náði að opna. „Þeir skoðuðu mig og sögðu að það væri allt í lagi með mig,“ segir Sandra en bætir við að hún hafi verið langt fram á kvöld að jafna sig. Hún segir vinkonur sínar miður sín eft- ir uppákomuna, sem hefði getað farið illa. „Ég get ekki lýst því hvað þeim leið illa.“ Með kuldahroll langt fram á kvöld  Góðlátlegur hrekkur milli vina breyttist í fúlustu alvöru þegar ung stúlka læstist inni í frysti- klefa þar sem hitastigið er -19°C  Slökkviliðið var kallað til og bjargaði henni út hálftíma síðar Morgunblaðið/G.Rúnar Óhrædd Sandra var ekki hrædd í kælinum því vinkonur hennar fyrir utan róuðu hana.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.