Morgunblaðið - 30.09.2008, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 30.09.2008, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 2008 51 LAGADEILD HÁSKÓLANS Í REYKJAVÍK Hádegisfundur – 9. september kl. 12:00–13:15 Doha Round and Regionalism J. H. Mathis, prófessor við University of Amsterdam og yfirmaður EU International Trade Law Programme Ráðstefna – 11.–13. september Nordic visual artist copyright conference Myndstef í samstarfi við lagadeild Háskólans í Reykjavík Vísindavaka RANNÍS – 26. september kl. 16:30–22:00 • Lögfræðiþjónusta Lögréttu kynnir starf sitt í Alþjóðahúsi • Kynning á rannsóknarverkefnum lagadeildar HR Hádegisfundur – 30. september kl. 12:00–13:00 Vernd gagnvart eftirliti í raunheimi og netheimi. (Beskyttelsen mod overvågning I den fysiske og elektroniske verden) Inger Marie Sunde fræðimaður hjá Center for Retsinformatik við Oslóarháskóla og fyrrverandi saksóknari Ráðstefna – 2. október kl.09:00–17:00 Norrænn bótaréttur vegna vinnuslysa – Nordisk kompensasjonsrett ved arbeidsskader Fjöldi norrænna fyrirlesara, m.a. Erik Fjeldstad og Morten Kjelland, lögmenn hjá TrygVesta, Eva Lindell-Frantz, lektor við Háskólann í Lundi, Agneta Nilsson frá Försäkringskassan, Guðmundur Sigurðsson og Ragnhildur Helgadóttir, prófessorar við lagadeild Háskólans í Reykjavík Hádegisfundur – 10. október kl. 12:00–13:00 Judicial activism and European integration in 2008 Alastair Sutton, prófessor við lagadeild HR og lögmaður hjáWhite & Case Brussel Alþjóðleg ráðstefna – nóvember Réttarheimildir í upphafi nýrrar aldar Í tilefni af 100 ára afmæli lagakennslu á Íslandi Hádegisfundur – 2. desember kl. 12:00–13:15 Ábyrgð hluthafa „þar á meðal móðurfélaga“ m.a. í ljósi dómaframkvæmdar Áslaug Björgvinsdóttir, dósent við lagadeild HR www.hr.is FRÆÐAFUNDIR OG RÁÐSTEFNUR LAGADEILDAR HR HAUSTIÐ 2008 LUKKU-Láki var harðsnúinn kú- reki og hetja á sléttum vestursins þótt höfundarnir væru franskrar ættar. Þessar teiknimyndasögur voru fyndnar og fjörugar og lengi vel þýddar af hreinni snilld af Lofti Guðmundssyni, sem gerði að verkum að þær voru ekki síður vinsælar hjá pöbbunum en börn- unum. Í dag eru Lukku-Láka- sögurnar hálfklassískar og Frans- menn eru að koma með eina og eina teiknimynd um kappann, sem að þessu sinni fæst við hina grimmvitlausu Dalton-bræður – sem voru ómissandi kapítuli í myndasögunum. Í upphafi mynd- arinnar fylgir kempan Lukku-Láki þeim óráðsíumönnum Dalton- bræðrum í fangelsi í New York. Ekki tekst betur til en svo að bræður sleppa og ræna banka og koma fengnum fyrir í tjaldvagni. Morguninn eftir sjá þeir sér til skelfingar að hann er einn af vagnalest sem er í þann veginn að leggja í hann þvert yfir meg- inlandið. Og hver skyldi eiga að ábyrgjast að koma lestinni til Kali- forníu annar en erkifjandinn Láki. Eins og bækurnar eru myndirnar um Lukku-Láka líflegt grín, eink- um ætlað tryggum lesendum bók- anna. Yngri áhorfendurnir fá mest út úr þeirri upplifun og var auð- heyrt að smáfólkið skemmti sér konunglega. Pabbarnir ættu frek- ar að dusta rykið af slitnum sögu- bókunum, þær eru örugglega ein- hvers staðar vel geymdar. Líflegur Láki „Eins og bækurnar eru myndirnar um Lukku Láka líflegt grín, einkum ætlað tryggum lesendum bókanna.“ Með Láka yfir Ameríku KVIKMYND Laugarásbíó, Smárabíó, Borg- arbíó Akureyri Teiknimynd. Leikstjóri: Olivier Jean– Marie. Íslensk raddsetning. 105 mín. Frakklamd 2007. Lukku-Láki og Dalton-bræður – Tous à l’O- uest: Une aventure de Lucky Luke bbbnn Sæbjörn Valdimarsson Eftir Ásgeir Ingvarsson asgeiri@mbl.is INDVERSKA tískuvikan, India Couture Week fór fram í Mumbai fyrr í mán- uðinum. Í Mumbai safnast á einn stað stór hluti af auði Indlands: þar braska verðbréfasalar á Bombay Stock Exc- hange og indverski kvikmyndaiðn- aðurinn, Bollywood, er þar með sín- ar bækistöðvar. Það er ekki að furða að í slíku umhverfi þrífist blómlegur tískuiðnaður og þegar myndirnar sem berast gegnum fréttaveiturnar eru skoðaðar sést að margt spennandi er að gerast í fatahönnun í Mumbai. Vitaskuld eru hefðbundin indversk áhrif mjög sterk, og jafnvel á köflum yfirþyrmandi, en þær eru líka ófáar flíkurnar sem gætu vel keppt við það fínasta frá París og Mílanó. Reuters Litagleði Í þessari samsetningu Manish Malhotra er skeytt saman látlausu undirlagi við íburðarmikið ytra lag. Ekki svo galin tíska á Indlandi Reuters Reffilegur Vijender Kumar brons- verðlaunahafi í hnefaleikum á síðustu Ólympíuleikum sýnir hönnun Rohit Bal.Áberandi Það hefur kannski farið fullmikið efni í erm- arnar á þessum kjól eftir Rohit Bal, en gæti þó gengið upp við rétt tilefni. Reuters Prinsessa Hann þykir kannski fullhá- tíðlegur eða efnislítill, en það má samt hafa gaman af þessum fatnaði hönn- uðarins Pallavi Jaikishan.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.