Morgunblaðið - 30.09.2008, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 30.09.2008, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ Fallvaltir fjármálarisar FRÉTTASKÝRING Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is EIGN hluthafa Glitnis í bankanum hefur rýrnað um 88% miðað við kaupgengi ríkisins á sínum hlut í bankanum. Ríkið setur inn í bank- ann nýtt hlutafé að verðmæti um 85 milljarða króna og fær fyrir það 75% hlut í Glitni. Þýðir þetta að kaup- gengið er 1,91, en á föstudag var gengi hlutabréfa Glitnis 15,7. Mark- aðsvirði Glitnis fyrir inngrip ríkisins var 233,6 milljarðar króna, en er eft- ir inngripin 112 milljarðar, sem þýð- ir að markaðsvirði hlutafjár annarra hluthafa en ríkisins er nú um 28 milljarðar króna. Er þá miðað við áð- urnefnt kaupgengi ríkisins. Tuttugu stærstu hluthafar Glitnis eiga nú 17% í bankanum, en áttu fyr- ir tæp 69%. Markaðsvirði eign- arinnar hefur rýrnað um 142 millj- arða króna og er nú 19,4 milljarðar. Virðisrýrnun eldri hluthafa er því- þætt. Annars vegar þynnist hlutur þeirra um 75% eftir aðkomu ríkisins og hins vegar verður að horfa til þess að ríkið fær sinn hlut á gengi sem er töluvert undir markaðsgengi á föstu- dag og hefur það augljóslega áhrif á verðmæti eignar annarra hluthafa. Glitnir tapar 18,6 milljörðum Þrír stærstu hluthafar bankans fyrir inngrip ríkisins voru félög í eigu Stoða, áður FL Group. Sam- anlagt áttu félögin 29,35% í Glitni og var markaðsvirði bréfanna á föstu- dag um 68,6 milljarðar króna. Eftir inngripin eiga félögin þrjú 7,3% hlut í bankanum og er markaðsvirði eign- arhlutarins um 8,2 milljarðar. Hefur markaðsvirði eignar Stoða því rýrn- að um 60,4 milljarða króna. Þáttur International, félag Karls Wernerssonar, átti fyrir inngripin 5,6% í Glitni og var hluturinn 13 milljarða króna virði á föstudag. Nú á Þáttur 1,4% í bankanum og er 1,6 milljarða króna virði. Saxbygg, félag í eigu Nóatúnsfjölskyldunnar og Byggingarfélags Gunnars og Gylfa, átti fyrir aðkomu ríkissjóðs 5,0% í Glitni. Var hluturinn 11,7 milljarða króna virði, en er nú 1,4 milljarða króna virði nú. Salt Investments, félag Róberts Wessmans, átti fyrir 2,3% hlut, sem á föstudag var 5,4 milljarða króna virði. Eftir inngripin á Salt 0,6% í Glitni og er hluturinn 650 milljóna króna virði. Sund ehf., sem er í eigu Jóns Kristjánssonar, Gunnþórunnar Jónsdóttur og Gabríelu Jónsdóttur, átti fyrir 2% hlut í bankanum og var hann metinn á 4,8 milljarða. Hann er nú 0,5% af hlutafé bankans og 570 milljóna króna virði. Glitnir átti í sjálfum sér samtals 9% fyrir inngrip ríkisins. Voru hlutirnir á höndum GLB Hedge, safnskráningar bank- ans og Glitnis banka sjálfs. Voru hlutirnir 21 milljarðs króna virði á föstudag, en teljast í dag vera 2,5 milljarða króna virði. Er hlutur bankans í sjálfum sér nú 2,2%. Hluthafar tapa meira en 200 milljörðum  Eignarhlutur hluthafa rýrnar um 88% við aðkomu ríkissjóðs  FL Group tapar rúmum 60 milljörðum  Tap tveggja lífeyrissjóða nemur 6,7 milljörðum króna  Ríkið fékk 75% hlut á genginu 1,9                           )((+ ##)        !   "#$%  "%' )* $  & '()  ' '* + ,),-&' -.. ,) &'  % ' -. ,)/0%. 1! 2   %. 345 2  %. ),-& ' ) 5 %6  ! ,' 5 , 4 5  3.7. 3 2    %. 3 ' %. ) 5 %. !   %. ,   8-    2: 0    %. *  %. ,' 5 ; ' %.6 . )'<   8  ,2<& ' 2: 5 %. ,   %. 7 "=  >. ". ?. @. #. A. 9. B. C. >=. >>. >". >?. >@. >#. >A. >9. >B. >C. "=. & %  '%  &       &    +           >.CB#.A>@.C>C >.#"=.B@#.A9> BA".=>9.#?? B?>.A@C.=C> 9@@.=?#.=A# AAC.=??.>#> ?9=.===.=== ?#?."B#.9#A ?@#.@#?.A@= ?=@.>==.A"C ?==.=A=.#>@ "C9.A>@.="A "B@.>B=.>C@ "A=.@>"."9" "#?.9B@.#AC "=#.9A@.=## "==.BC?.@9B >CA.B"C.9@B >@".??A.@9# >?#.C#@.#@# >=."A?.BA#.??> >?6?@$ >=6""$ #69C$ #6#C$ #6==$ @6#=$ "6@C$ "6?9$ "6?"$ "6=@$ "6="$ "6==$ >6C>$ >69#$ >69>$ >6?B$ >6?#$ >6?"$ =6CA$ =6C>$ AB6C9$ ?>.>9@.>#@.""B "?.B99."99.=?# >?.#??.A9#."AB >?.=#A.BC=.9"C >>.AB>.?#=.#"> >=.#=?.B"=.@9> #.B=C.===.=== #.#@A.#BA.?AC #.@"?.A"".>@B @.99@.?9C.B9# @.9>=.C#=.=9= @.A9".#@=."=B @.@A>.A"C.=@A @.=BB.@9".A9= ?.CB@.@>9.9?? ?."?=.@C#.AA@ ?.>#@.="9.A=# ?.=C=.""9.=@@ "."?@.AB".A#B ".>?@.@BA.?#9 >A>.>@".AB#.AC9 ?6?$ "6A$ >6@$ >6@$ >6?$ >6>$ =6A$ =6A$ =6A$ =6#$ =6#$ =6#$ =6#$ =6@$ =6@$ =6?$ =6?$ =6?$ =6"$ =6"$ ($%"&$*'*$,&% )$*+,$)%($)"" #$+)"$&"#$&() #$,++$*)+$**% #$"&#$%+)$&+) #$)+&$",*$",+ +'%$&*&$&&& ++,$,'&$(+" +,&$*("$+,* ,%)$'),$,*, ,+,$(#"$&&* ,+&$%&"$*), ,(,$(',$"*, "'&$+#+$%)& "%*$#(&$#)* (*%$+,'$"*& (%*$"*($(#( (%&$*)%$)", )+*$#+#$'#' ),+$#(*$(+( #'$((%$#))$)*" 1)%$"(($),,$%)# 1)#$&#)$&&($%'# 1##$'&'$+("$)(+ 1##$"'&$&+($*"# 1#&$)%'$,**$",* 1'$)"($(+)$&#" 1,$###$')&$&&& 1"$**&$''+$&&, 1"$%%)$%*%$"'& 1"$)&#$","$)'& 1"$#",$+(+$&+# 1"$###$*(,$(*( 1($')+$)(($,+& 1($,'%$*,,$',& 1($,&+$)*%$+&, 1)$*")$*(+$#*" 1)$%%,$,""$)') 1)$%#'$(''$%'* 1#$'++$,)&$%(' 1#$*%*$("%$''" 1#"#$*&,$,+($"#( Þorsteinn Már Baldvinsson, Glitn- ir. 18, 6 milljarðar. Jón Kristjánsson, Sund. 4,2 millj- arðar. Róbert Wessman, Salt Invest. 4,8 milljarðar. Jón Þ. Jónsson, Saxbygg. 10,3 milljarðar. Jón Ásgeir Jóhann- esson, FL Group. 60 milljarðar. Karl Wernersson, Þáttur. 11,5 millj- arðar. ÞORSTEINN Már Baldvins- son, stjórn- arformaður Glitnis, er af- ar ósáttur við niðurstöðuna í gær og hann hefði óskað eftir að hún yrði önn- ur. „Mér ber að gæta hagsmuna hluthafa bankans og að sjálfsögðu þegar verður jafnmikil skerðing á eignum manna og gerðist á þessum sólarhring þá er ég að sjálfsögðu ekki sáttur þar sem ég er í ábyrgð fyrir hópi eigenda,“ sagði hann í viðtali við sjónvarp mbl.is í gærdag. Spurður um aðdragandann und- anfarna daga og vikur sagði Þor- steinn Már að um ákveðna lausa- fjárþurrð hefði verið að ræða. Í máli hans kom fram að yrði þess óskað að hann yrði áfram formaður stjórnar bankans þá myndi hann íhuga það. Afar ósáttur Þorsteinn Már Baldvinsson „ÞAÐ er eng- in ánægja í hluthafahópi félagsins þeg- ar svona eignaupptaka á sér stað,“ segir Björn Ingi Sveinsson, framkvæmda- stjóri fjárfestingarfélagsins Sax- bygg ehf. Kvaðst hann geta tekið undir þau orð Þorsteins Más Bald- vinssonar, stjórnarformanns Glitn- is, í fjölmiðlum að menn væru hund- fúlir vegna þessarar niðurstöðu en vildi að öðru leyti lítið tjá sig um málið á þessu stigi á meðan menn væru að ná áttum. Saxbygg Invest er dótturfélag Saxbygg ehf. og á 5% í Glitni. Það er í sameiginlegri eigu Saxhóls, sem er í eigu Nóa- túnsfjölskyldunnar, og verktaka- fyrirtækisins Bygg. Björn Ingi Sveinsson Eignaupptaka Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is „VISSULEGA hefur þetta áhrif á stöðu sjóðsins,“ segir Árni Guð- mundsson, framkvæmdastjóri Gild- is-lífeyrissjóðs, spurður hvort kaup ríkisins á 75% hlut í Glitni hafi ekki rýrt stöðu sjóðsins, en sjóðurinn á rúm 1,3% í bankanum og er sextándi stærsti hluthafi hans. Erfitt að átta sig á umfanginu Árni segist fyrst hafa frétt af kaupum ríkisins í gegnum fjölmiðla í gærmorgun. Hann segist ekki geta sagt til um það á þessari stundu hvert tap sjóðsins er vegna kaup- anna. „Tapið veltur á því hvaða for- sendur menn gefa sér. Við eigum 1,3% sem við höfum keypt á ýmsu gengi og síðan vitum við ekki hvert gengið verður eftir nokkra daga. Það er því erfitt að átta sig á um- fangi tapsins á þessum tímapunkti,“ segir Árni. „Ég verð að játa að ég er mjög hissa á þessu verðmati, ég veit ekki hvernig þeir finna þetta út. Þetta kom virkilega á óvart,“ segir hann um það verð sem ríkissjóður greiðir fyrir hlutinn. Spurður hvort hann telji að réttur smærri hluthafa sé fótum troðinn segist hann ekki tilbú- inn að tjá sig um það. Árni segir að lífeyrissjóðurinn muni fara yfir stöðuna næstu daga og bíða átekta. Hann segir rekstur sjóðsins ekki í hættu. „Auðvitað er þetta áfall fyrir okkur og aðra fjár- festa í Glitni, en ef einhver kemst í gegnum þetta þá eru það lífeyr- issjóðirnir.“ „Þetta eru veruleg vonbrigði,“ segir Haukur Hafsteinsson, fram- kvæmdastjóri Lífeyrissjóðs starfs- manna ríkisins [LSR], en sjóðurinn átti 2,18% í Glitni og var tíundi stærsti hluthafinn. Haukur segir kaup ríkisins hafa komið sér veru- lega á óvart. „Við vissum að lausa- fjárskortur hrjáði bankann en bjuggumst aldrei við þessum að- gerðum. Ég hef þó engar forsendur til að meta hvort þetta var eina úr- ræðið sem kom til greina.“ Hann segir verðið vera töluvert lágt. LSR átti fjóra milljarða að markaðsvirði í bankanum en tap sjóðsins liggur ekki fyrir. Hann seg- ir stöðu sjóðsins þó sterka. „Auðvit- að er það samt súrt að horfa upp á svona mikla rýrnun á eignarhlut sjóðsins.“ Haukur segir samt erfitt að benda á sökudólg þegar hann er spurður um ábyrgð stjórnenda. „Ég held að enginn hafi séð svona mikla lausafjárkreppu fyrir.“ „Ég er mjög hissa á þessu verðmati“ Morgunblaðið/Frikki

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.