Morgunblaðið - 30.09.2008, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 2008 21
ERLENT
ASÍS - Asíusetur Íslands og Íslensk-indverska
viðskiptaráðið efna til morgunverðarfundar
í Hátíðarsal Aðalbyggingar Háskóla Íslands,
föstudaginn 3. október, kl. 8-10
„Viðskipti á Indlandi -
Menning, umhverfi og nýmarkaður"
Frummælendur:
Satendar Kumar, sendiráði Indlands á Íslandi
Stig Toft Hansen, Norrænu Asíustofnuninni - NIAS
Dagfinnur Sveinbjörnsson, stjórnmálafræðingur
Mirja Juntunen, Nordic Centre in India (NCI)
Kristín Ingólfsdóttir, Háskólarektor, setur fundinn
Fundargjald með léttum morgunverði er 1000 kr.
FRÉTTASKÝRING
Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur
jmv@mbl.is
SÖGULEG kosningaúrslit urðu í
þýska sambandsríkinu Bæjaralandi
um helgina. Enginn flokkur hefur
beðið viðlíka afhroð í kosningum frá
árinu 1950; kristilega sósíalsam-
bandið (CSU) missti í fyrsta skipti
frá árinu 1962 hreinan meirihluta
sinn í sambandsríkinu. „Svartur
dagur, sársaukafullur dagur,“ var
haft eftir Erwin Huber, leiðtoga
CSU, á sunnudag þegar línur niður-
staðna tóku að skýrast.
CSU, sem er systurflokkur CDU,
flokks Angelu Merkel kanslara,
náði 43,4% fylgi í kosningunum og
er það 17% fylgishrap frá því í síð-
ustu kosningum árið 2003.
Jafnaðarmannaflokkurinn (SPD)
hlaut einnig sína verstu útreið í
kosningum í Bæjaralandi hingað til
og hlaut 18,6% atkvæða. Frjáls-
lyndir (FDP) hlutu 8,0%, græn-
ingjar 9,4% og flokkur frjálsra kjós-
enda 10,2% og taka því allir sæti á
þingi sambandsríkisins.
Framhald á hryllingnum?
Samkvæmt upplýsingum Der
Spiegel hefur forysta frjálslyndra
(FDP) lýst sig reiðubúna til sam-
starfs með CSU, það sé þeirra að
bjóða til viðræðna. Framkvæmda-
stjóri FDP segir frjálslynda hins-
vegar ekki reiðubúna til að starfa í
samsteypustjórn með SPD og minni
flokkunum. Jafnaðarmenn hafa
hinsvegar varað frjálslynda við því
að ganga til samstarfs við CSU.
„Það má ekki verða framhald á
hryllingnum,“ sagði varaformaður
SPD í Bæjaralandi. Jafnaðarmenn
vilji hefja viðræður við alla flokka
þingsins og eygja möguleika fjög-
urra flokka samstarfi við FDP,
græningja og Flokk frjálsra kjós-
enda.
Úrslitin þykja stórtíðindi í Þýska-
landi þar sem CSU hefur í áratugi
verið sem hluti af ímynd Bæjara-
lands, rétt eins og leðurbuxur, bjór,
bláhvítur fáni eða BMW. Aldrei áð-
ur hafa þýskir fjölmiðlar skrifað af
jafn mikilli hörku um veikleika og
mistök CSU og í nýafstaðinni kosn-
ingabaráttu.
Þetta er gert að umtalsefni í ný-
legri fréttaskýringu í bæverska
dagblaðinu Süddeutsche Zeitung.
Þar er hinsvegar bent á að ekki sé
verið að jarða CSU, flokkurinn
standi hlutfallslega betur en flestir
systurflokkar hans (CDU) í öðrum
sambandslöndum Þýskalands. Kjós-
endur séu nú hinsvegar að kveðja
dýrðarljóma CSU, sérstöðu flokks-
ins, yfirburði og almætti. CSU sé nú
orðinn „venjulegur flokkur.“
Veikir ekki stöðuna?
Ástæður þess að kjósendur í Bæj-
aralandi sneru sér í auknum mæli
til minni flokka eru margvíslegar.
Umdeildar ákvarðanir í mennta-
málum, reykingabann og sam-
göngumál hafa verið nefnd til sög-
unnar.
Sú kjölfesta sem CDU hafði í
miklu og tryggu fylgi systurflokks-
ins í Bæjaralandi er nú horfin og
þykir líklegt að það geri kosninga-
baráttuna fyrir þýsku þingkosning-
arnar á næsta ári enn harðari.
„Markmiðin náðust ekki og við
munum að sjálfsögðu ræða ástæður
þess,“ voru viðbrögð Angelu Merkel
við niðurstöðum kosninganna. Hún
sagðist þó ekki álykta sem svo að
niðurstöðurnar myndu veikja stöðu
kristilegra demókrata í samsteypu-
stjórninni á landsvísu.
Hrun einveldisins
Tæplega hálfrar aldar einveldi CSU í Bæjaralandi er nú lokið
eftir að flokkurinn missti mikið fylgi í kosningum um helgina
Reuters
Svekktur Erwin Huber, leiðtogi CSU, er óánægður með úrslitin. Flokks-
forystan tilkynnti þó í gær að hún hygðist ekki segja af sér í bráð.
Í HNOTSKURN
»CDU missti nýlega 12 pró-sentustiga fylgi í kosning-
um í Hessen og jafnframt
hreinan meirihluta í kosning-
um í Hamborg.
»Kosið verður í Thüringenog Saarlandi á næsta ári.
Í báðum sambandsríkjunum
hefur CDU hreinan meirihluta
en miðað við gengi í undan-
örnum kosningum má búast
við fylgishruni.
PAKISTANSKAR stúlkur í borginni Multan sýna hendur sínar sem
skreyttar hafa verið með henna-litum í tilefni Eid al-Fitr-hátíðar múslíma
sem senn gengur í garð. Hátíðin markar lok föstumánaðarins ramadan og
stendur í þrjá daga með tilheyrandi veisluhöldum og bænahaldi.
AP
Henna á höndum
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
FULLTRÚADEILD Bandaríkja-
þings hafnaði í gær óvænt áætlun
stjórnar George W. Bush forseta um
að nota 700 milljarða dala til að
bjarga fjármálakerfi landsins með
ríkisaðstoð. 228 þingmenn sögðu nei
en 205 sögðu já. Búist er við að aftur
verði greidd atkvæði um tillöguna
sem fyrst en áður verði reynt að
sníða af henni þá vankanta sem
margir þingmenn sjá á henni.
Bush lét í ljós mikil vonbrigði með
niðurstöðuna á þingi. „Við settum
fram mikla áætlun vegna þess að
vandinn er mikill,“ sagði hann og hét
því að halda áfram að leita leiða til að
tryggja efnahag þjóðarinnar.
Harðir andstæðingar frumvarps-
ins úr röðum repúblikana og demó-
kratar, sem ekki hlýddu flokksfor-
ustunni, greiddu atkvæði gegn
frumvarpinu. Þegar ljóst þótti að
meirihluti þingmanna myndi vera á
móti var atkvæðagreiðslan stöðvuð í
40 mínútur og stjórnendur þing-
flokkanna reyndu að fá þingmenn til
að breyta atkvæði sínu. En það bar
ekki árangur. Bush forseti og leið-
togar beggja flokka á Bandaríkja-
þingi höfðu hvatt eindregið til þess
að áætlunin yrði samþykkt þrátt fyr-
ir mikla andstöðu meðal bandarísks
almennings í könnunum.
Báðir forsetaframbjóðendurnir,
Barack Obama og John McCain,
styðja áætlunina og telja hana óhjá-
kvæmilega til að bjarga efnahag
landsins. Meðan á atkvæðagreiðsl-
unni stóð bárust fréttir af því inn í
þingsalinn að hlutabréfavísitölur
væru í frjálsu falli. En það hafði eng-
in áhrif á andstæðingana.
Björgunaráætlun
felld í fulltrúadeildinni
Búist við breytingum og að tillagan verði borin upp á ný
BRESKI súkkulaðiframleiðandinn
Cadbury hefur innkallað 11 súkku-
laðitegundir framleiddar í Peking,
að því segir á fréttavef breska dag-
blaðsins Times.
Sú ákvörðun er tekin í ljósi me-
lamíneitrunar í þurrmjólk sem upp-
víst varð um í Kína og hefur orðið
a.m.k. fjórum börnum að bana og
valdið veikindum tugþúsunda.
Niðurstöður rannsókna á súkku-
laðinu sem um ræðir höfðu vakið
áhyggjur Cadbury og voru vörurnar
því innkallaðar, en þær voru til sölu á
meginlandi Kína, Taívan, Hong
Kong og Ástralíu.
„Niðurstöðurnar hafa valdið efa-
semdum um fjölda vörutegunda okk-
ar sem framleiddar eru í Kína,“ sagði
í yfirlýsingu frá fyrirtækinu.
Talsmenn Cadbury sögðu í síðustu
viku að þær kínversku verksmiðjur
sem fyrirtækið fengi mjólk frá til
framleiðslunnar hefðu sætt rann-
sókn og að ekkert melamín hefði
fundist.
Æ fleiri kínverskar mjólkurvörur
hafa verið fjarlægðar úr hillum
verslana víða um heim. Yfirmenn
Sanlu, framleiðanda eitruðu þurr-
mjólkurinnar, hafa verið handteknir
og þykir ólíklegt að fyrirtækið haldi
áfram starfsemi. jmv@mbl.is
Cadbury innkallar súkkulaði