Morgunblaðið - 30.09.2008, Blaðsíða 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Stefán EinarStefánsson
fæddist á Suðureyri
við Súgandafjörð 13.
október 1931. Hann
andaðist á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu í
Neskaupstað mánu-
daginn 22. sept-
ember síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Þóra Þórðardóttir, f.
á Fossi í Vopnafirði
27. ágúst 1904, d. 27.
júlí 1932 og Stefán
Ágúst Stefánsson, f.
á Sænautaseli á Jökuldal í N-Múl. 6.
ágúst 1886, d. 6. jan. 1973. Bróðir
Stefáns Einars var Sigurður, f. 20.
sept. 1925, d. 24. mai 2007 kvæntur
Dýrleif Kristjánsdóttur, f. 23. maí
1930. Stefán Einar missti móður
Guðný, f. 31.3. 1957, maki Per Ole
Skarstad, f. 1957, d. 1982, Þuríður,
f. 28.7. 1960, maki Björn Krist-
jánsson, f. 1956, Aldís, f. 31.5. 1963,
maki Rúnar Gunnarsson, f. 1957 og
Þóra Stefanía, f. 24.12. 1965, maki
Karl Gunnar Eggertsson, f. 1962.
Barnabörnin eru fimmtán og
barnabarnabörnin 11.
Stefán Einar starfaði sem raf-
verktaki í Reykhólasveit og í Döl-
unum frá árinu 1961. Fluttu þau
hjón til Búðardals árið 1964. Ásamt
því að starfa sem rafverktaki rak
hann verslun með eiginkonu sinni
til ársins 2003 er þau hjónin létu af
störfum og fluttu á heimaslóðir
Ásu, Neskaupstað. Stefán Einar
var mjög virkur í öllu félagslífi í
Búðardal og virkur í kórstarfi alla
tíð. Stefán Einar og Ása reistu sér
sælureit í landi Foss í Hofsárdal,
þar dvöldu þau öll sumur og eitt af
hann áhugamálum var trjárækt og
í landi þeirra hjóna er kominn heil-
mikill skógarreitur.
Útför Stefáns Einars fer fram frá
Norðfjarðarkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 14.
sína barnungur og
var alinn upp hjá
móðurömmu sinni á
Fossi í Hofsárdal í N-
Múl., Bergljótu Gests-
dóttur, f. 3. okt. 1872,
d. 22. apríl 1968.
Stefán Einar
kvæntist 25. desem-
ber 1954 Ásu Stef-
ánsdóttur, f. 14. nóv.
1935. Foreldrar henn-
ar voru Stefán Eiríks-
son, f. á Krossanesi
við Reyðarfjörð 20.
júlí 1905, d. 14. ágúst
1978 og Guðný Guðnadóttir, frá
Vindheimi í Norðfirði, f. 27. des.
1908, d. 14. ágúst 1999. Stefán Ein-
ar og Ása eignuðust fimm dætur,
þær eru: Bergþóra, f. 10.11. 1954,
maki Elmar Halldórsson, f. 1956,
Með sorg í hjarta kveðjum við þig,
elsku pabbi, um leið viljum við þakka
þér það veganesti sem þú gafst okk-
ur út í lífið.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Minning þín lifir í hjörtum okkar.
Bergþóra, Guðný, Þurý,
Aldís og Þóra.
Elsku besti afi, takk fyrir allar
góðu stundirnar sem við áttum sam-
an. Við eigum aldrei eftir að gleyma
hvað það var gaman að koma í Búð-
ardal og heimsækja ykkur ömmu.
Þið tókuð alltaf svo vel á móti okkur.
Þú varst heimsins besti afi. Þín verð-
ur sárt saknað og við viljum minnast
þín með hluta úr fallegu ljóði.
Stundin líður, tíminn tekur,
toll af öllu hér,
sviplegt brotthvarf söknuð vekur
sorg í hjarta mér.
Þó veitir yl í veröld kaldri
vermir ætíð mig,
að hafa þó á unga aldri
eignast vin sem þig.
Þú varst ljós á villuvegi,
viti á minni leið,
þú varst skin á dökkum degi,
dagleið þín var greið.
Þú barst tryggð í traustri hendi,
tárin straukst af kinn.
Þér ég mínar þakkir sendi,
þú varst afi minn.
(Hákon Aðalsteinsson.)
Ástar- og saknaðarkveðja,
Birna Dögg , Einar Örn,
Magdalena Ósk
og Alexandra Elfa.
Kæri Einar afi.
Ég sit heima og horfi á myndir af
þér og trúi því varla enn að þú sért
farinn. Maður vill trúa því að lífið
eigi ekki eftir að breytast, að þeir
nánustu eigi aldrei eftir að hverfa
frá manni, en að sjálfsögðu þekkir
maður samt sannleikann. Þær
stundir sem ég átti í Búðardal hjá
þér og ömmu eru mér ómetanlegar.
Ég fékk þar tækifæri á að vera í
kringum ykkur og mér leið alltaf vel
hjá ykkur. Ég hef alla mína ævi litið
upp til þín og borið mikla virðingu
fyrir þér. Þú varst svo sterkur ein-
staklingur og verndaðir fjölskyld-
una.
Þið amma hafið kennt mér margt
um hvernig manneskja ég vil vera.
Þið voruð fyrirmyndir mínar að
margvíslegum hlutum í lífinu. Einna
dýrmætast þótti mér að ég sá í aug-
um þínum og í hegðun þinni hversu
ástfanginn þú varst af ömmu og
barst mikla virðingu fyrir henni. Þið
voruð heppin að finna hvort annað.
Þín verður sárt saknað, ekki bara
af mér heldur af öllum í fjölskyld-
unni og þeim sem voru svo heppnir
að kynnast þér.
Ég elska þig afi og mun ávallt
minnast þín.
Ása Dröfn Björnsdóttir
og fjölskylda.
Stefán Einar
Stefánsson
Á dimmum kvöldum
daga tel,
og dreymir þá um Höfðasel.
Annars staðar ekki veit,
yndislegri sælureit.
Orti Stefnir Þorfinnsson til Erlu í
veikindum hennar í ágúst 2008.
Við trúum því ekki enn elsku amma
að þú sért horfin úr lífi okkar og að við
munum aldrei fá að sjá þig aftur með-
an við lifum. Við munum aldrei aftur
sjá fallegu mildu augun þín, ástríka
Erla Einarsdóttir
✝ Erla Ein-arsdóttir fædd-
ist í Vík í Mýrdal 4.
mars 1930. Hún lést
á sjúkradeild Heil-
brigðisstofnunar
Skagafjarðar
fimmtudaginn 11.
september síðastlið-
inn og fór útför
hennar fram frá
Sauðárkrókskirkju
20. september.
brosið né finna hlýjuna
í faðmlaginu þínu og
kossi á kinnina. Við
fáum aldrei aftur að sjá
þig sitja brosandi og
fallega með elsku afa í
sólinni úti í sumarbú-
stað, breiðandi út
faðminn til að bjóða
okkur velkomin í sælu-
reitinn ykkar. Þú varst
kletturinn sem stóð
sem fastast við bakið á
okkur og varst alltaf til
staðar fyrir okkur,
bæði í gleði og sorg. Þú
kenndir okkur allt í senn, trú, von,
kærleika og virðingu fyrir öllu sem lif-
ir og við vitum að söknuðurinn og
sorgin yfir að missa þig eru svona
óendanlega djúp núna vegna gleðinn-
ar og kærleikans sem við höfum feng-
ið að njóta með þér. Við erum þakklát
fyrir tímann sem við fengum með þér
og allar gleðistundirnar með ykkur
afa á Hólaveginum og í sumarbú-
staðnum ykkar, Höfðaseli. Það vitum
við sem þekktum þig að það má leita
vel og lengi til að finna manneskju
sem jafnast á við þig hvað varðar trú,
heiðarleika og umhyggju fyrir fjöl-
skyldu sinni, vinum og samferða-
mönnum. Það sem þú gafst okkur í
veganesti fyrir lífið mun aldrei glatast
þótt þú sért horfin frá okkur heldur
fylgja okkur gegnum lífið með ljós-
geislum minninganna um elsku Erlu
ömmu. Við trúum því að þú sért nú á
góðum stað í faðmi fjölskyldu og vina
sem farnir voru á undan þér. Við trú-
um því líka að þú vakir yfir okkur eins
og þú gerðir meðan þú lifðir, bara á
annan hátt. Eins og litlu langömmu-
stúlkurnar segja: „Amma fór til Guðs
og breyttist í engil og nú passar hún
okkur alltaf.“ Stór og mikil sál skilur
eftir sig stórt og mikið tómarúm sem
við munum reyna eftir bestu getu að
fylla upp í með öllum góðu minning-
unum um þig elsku amma. Takk fyrir
lífið þitt, styrkinn þinn og kærleikann
þinn. Takk fyrir allt. Við biðjum Guð
að blessa afa og styrkja hann í sorg
sinni. Við viljum að lokum senda okk-
ar bestu þakkir til séra Sigríðar
Gunnarsdóttur, sóknarprests á Sauð-
árkróki, fyrir alla hlýjuna og stuðn-
inginn og enda á uppáhaldsbæninni
hennar Erlu ömmu, en hún er eftir
Gísla á Uppsölum.
Þegar raunir þjaka mig
þróttur andans dvínar
þegar ég á aðeins þig
einn með sorgir mínar.
Gef mér kærleik, gef mér trú,
gef mér skilning hér og nú.
Ljúfi drottinn lýstu mér,
svo lífsins veg ég finni
láttu ætíð ljós frá þér
ljóma í sálu minni.
Erla Einarsdóttir og fjölskylda,
Ísak Einarsson og fjölskylda,
Rannveig Einarsdóttir.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
GUÐRÍÐUR PETERSEN,
Hraunvangi 1,
Hafnarfirði,
sem lést á líknardeild Landspítala Landakoti
fimmtudaginn 18. september, verður jarðsungin frá
Víðistaðakirkju fimmtudaginn 2. október kl. 13.00.
Elín Jóhannsdóttir, Tryggvi Ólafsson,
Bryndís Petersen, Leifur Jónsson,
Jóhann Petersen,
Pétur Jakob Petersen, Auður Héðinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
SVAVAR FANNDAL TORFASON
meistari í rafvélavirkjun,
Grenilundi 12,
Garðabæ,
lést á Landspítalanum sunnudaginn
28. september.
Sólbjört Gestsdóttir,
Hólmfríður Fanndal Svavarsdóttir,
Ingólfur Arnarson, Sigríður Guðjónsdóttir,
Guðrún Björg Sigurbjörnsdóttir,
Jóhanna Rósa Arnardóttir, Jón Vilhjálmsson
og fjölskyldur.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og
langalangafi,
SNORRI SIGFÚSSON
útgerðarmaður og síldarsaltandi,
áður til heimilis að Gránufélagsgötu 48,
Akureyri,
andaðist á dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri,
föstudaginn 26. september.
Útförin verður auglýst síðar.
Brynjólfur Snorrason, Jóhanna Júlíusdóttir,
Ásgerður Snorradóttir, Ingvi Þórðarson,
Guðlaug Snorradóttir,
Halldór Gunnarsson,
afabörn, langafabörn og langalangafabörn.
✝
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eigin-
manns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa,
STEFÁNS JÚLÍUSSONAR
bónda,
Breiðabóli,
Svalbarðsströnd.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
dvalarheimilisins Hlíðar, Akureyri.
Ásta Sigurjónsdóttir,
börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegt þakklæti til þeirra fjölmörgu sem sýndu
okkur samúð, hluttekningu og hlýhug við andlát og
útför eiginkonu, móður, tengdamóður og ömmu,
STEFANÍU MARGRÉTAR FRIÐRIKSDÓTTUR,
Flókagötu 64,
Reykjavík,
sem lést á Droplaugarstöðum fimmtudaginn
11. september.
Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Droplaugarstaða fyrir góða umönnun
og ljúft viðmót.
Í Guðsfriði,
Bergur Thorberg,
Rúnar Bergsson, Dögg Árnadóttir,
Bergur Rúnarsson,
Björn Rúnarsson.
✝
Ástkær eiginmaður minn, sonur og bróðir,
INDRIÐI PÁLL ÓLAFSSON,
Rjúpnasölum 12,
Kópavogi,
andaðist á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
fimmtudaginn 25. september.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju mánudaginn
6. október kl. 13.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Edda Guðrún Ármannsdóttir.