Morgunblaðið - 05.10.2008, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 05.10.2008, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 2008 17 » Ég heiti á Alþingi að taka nú for-ystu í þessum efnum, veita 1. desem- ber þá virðingu sem honum ber og gera það í tæka tíð fyrir aldarafmæli fullveld- isins 2018. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ís- lands, í ræðu sinni við setningu Alþing- is. » Gamlir peningakarlar skilja alls ekkert í þessu starfsvali mínu, þeim finnst þetta ekki vera fyrir karlmenn. Baldvin Már Baldvinsson, starfs- maður til þriggja ára á leikskólanum Sólhlíð. » Ólsarar hafa efni á að aka um á flottum bílum og því ættu þeir að eiga kost á að fá flottar íbúðir líka. Páll Harðarson, eigandi bygging- arfyrirtækisins Nesbyggðar, sem er að ljúka byggingu 10 íbúða í Ólafsvík. » Greenspan var guð [AlanGreenspan, fyrrverandi seðla- bankastjóri Bandaríkjanna]. Áhættu- sækni fjárfesta sótti því í sig veðrið. Allt virtist þetta vera of gott til að vera satt. Þorvarður Tjörvi Ólafsson, hagfræð- ingur á hagfræðisviði Seðlabanka Ís- lands, m.a. um aðdraganda fjár- málakreppunnar. » Ég kann ekki við að fólk sé meðmyndavélar sem ná langt út fyrir þess eigin lóð, það er beinlínis hægt að nota þetta í undirheimastarfsemi. Íbúi í Reykjavík, sem komst að því að ná- granni hans er með kröftuga eftirlitsvél á húsi sínu sem nær myndum af götunni og nánast alveg að dyrunum hjá honum. » […] og ég er persónulega mjögósáttur við að þurfa að taka 84 millj- arða af gjaldeyrisforða landsmanna og verja honum með þessum hætti. Geir H. Haarde forsætisráðherra, eftir að samkonulag náðist um að ríkissjóður legði Glitni banka til hlutafjárframlag og eignaðist þar með 75% hlut í Glitni. » Þetta er fjandsamleg leið semSeðlabankinn valdi að fara. Það er hreinlega verið að stela af hluthöfum. Þetta er opinbert rán. Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórn- arformaður Baugs og aðaleigandi Glitnis. » Það er bæði krefjandi og skemmti-legt verkefni að koma svona dorm- andi risa aftur í fremstu röð. Leifur Garðarsson, nýráðinn þjálfari knattspyrnuliðs Víkings. » Ég get eingöngu sagt við hluthafa ídag, ég bið ykkur afsökunar vegna þess að stærri mistök hef ég ekki gert lengi. Þorsteinn Már Baldvinsson stjórn- arformaður Glitnis um beiðni Glitnis um lán hjá Seðlabankanum sem leiddi til yf- irtöku ríkisins á bankanum. » Við vitum jafnlítið og almenningurhvað er að gerast og fólk sér að það er verið að leika sér að fjöregginu þeirra. Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. 650 starfsmönnum fjármálafyrirtækja hefur verið sagt upp á árinu. » Þessi þróun er hálfuggvænleg fyrirokkur öll, það er ekki eins og launin séu vísitölutengd hjá fólki. Gunnar Ingi Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri Hagkaupa reiknar með verðhækkunum á næstunni. » Það er nánast allt að hækka, með ör-fáum undantekningum. Henný Hinz, hagfræðingur ASÍ. » Dyrnar verða læstar þar til kominner hvítur reykur. Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri grænna lýsir hugmyndum sínum um allsherjar samráðsfund verkalýðs- félaga, atvinnurekenda og forystumanna stjórnmála- og fjármálalífs. » Maður er alltaf að reyna að nálgasteitthvað sem maður á erfitt með að orða þegar maður beitir fyrir sig listformi. Kristín Eiríksdóttir listakona og ljóð- skáld. » Við Íslendingar gefumst ekki uppþótt á móti blási og við munum ekki örvænta eða leggja árar í bát í þeim stórsjó sem þjóðarskútan siglir nú í gegn- um. Geir H. Haarde forsætisráðherra í stefnu- ræðu sinni á Alþingi. » Atburðir síðustu daga kalla á endur-skoðun á leikreglum fjármálakerf- isins. Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráð- herra. Ummæli vikunnar Kreppa „Nýju harðindin“ núna minna Time á kreppuna miklu. Bandarísk stjórnmál Eftir Oddnýju Helgadóttur Washington er um margtdásamleg borg, en húner líka eymdarhola,“sagði Jan við mig og vin minn, þar sem við sátum á bar á Capitol Hill. Jan er vingjarnlegur maður á sextugsaldri, sem vinnur við að skipuleggja ferðir slökkviliðs- og sjúkrabíla. „Áður en næsta vaktin mín verður hálfnuð mun ég, ef að lík- um lætur, hafa sent út bíla til að bregðast við nokkrum hnífstungum og a.m.k. einni skotárás,“ bætti hann við og hristi höfuðið. „Tölum frekar um hafnabolta.“ Á fáum stöðum í Bandaríkjunum er jafndjúp misskipting og í Wash- ington. Flestir íbúar borgarinnar eru svartir, en í miðborginni, sem er hin glæsilegasta, sér maður fátt svart fólk. Þar hafa stofnanir ríkisvaldsins, alþjóðastofnanir á borð við Alþjóða- gjaldeyrissjóðinn og Alþjóðabankann og fjöldi stórfyrirtækja aðsetur. Borgin er miðpunktur valda í Banda- ríkjunum. Fari maður út fyrir miðborgina er myndin önnur. Undanfarna daga hef ég búið á gistiheimili í suðurhluta borgarinnar, þar sem flestir íbúar eru svartir, og fátæktin blasir við. Stundum er sagt að í Washington gæti áhrifa kreppu ekki, en í þessum hluta borgarinnar fara þau ekki milli mála. Fjöldi íbúa atvinnulaus og á húsum getur að líta skilti þar sem til- kynnt er um nauðungarsölur. Obama er að koma! Síðustu vikur hafa stjórnvöld í Washington reynt að koma sér sam- an um aðgerðir til að bregðast við fjármálakreppunni. Á þriðjudag og miðvikudag sat ég í þinghúsinu og fylgdist með umræðum um þessi mál í öldungadeild Bandaríkjaþings. Laust fyrir klukkan fimm á mið- vikudag var tilkynnt að Barack Obama myndi, innan fárra mínútna, halda ræðu á þinginu. Það var athyglisvert að fylgjast með viðbrögðum fólks. Á meðal áhorfenda á þingpöllum varð uppi fótur og fit. Taugaveikluð eldri kona, sem hefur þann starfa að halda reglu á pöllunum (og er óþarflega sam- viskusöm – ég var skömmuð fjórum sinnum, fyrir að krossleggja fætur, halla mér fram, halda á penna og leggja frá mér bækling), vissi ekki í hvorn fótinn hún átti að stíga. Blaða- menn fylltu bása, sem eru fráteknir fyrir þá. Menntaskólanemar, sem færa þingmönnum vatn og sendast með skjöl fyrir þá, sitja venjulega hoknir og geispandi innst í þingsaln- um, án þess að nokkur skipti sér af þeim. Nú réttu þeir úr sér, settust í beina röð og löguðu nafnspjöldin sín. Stuttu síðar gekk Obama í salinn, örlítið lágvaxnari og gráhærðari en hann virðist í sjónvarpi. Hann kom til að ávarpa öld- ungadeildina, áður en þingmenn greiddu atkvæði um hvort veita ætti 700 milljarða dala inn í bandaríska hagkerfið til að sporna gegn lausa- fjárskorti og reyna að afstýra enn dýpri kreppu. Af illri nauðsyn Obama lagði áherslu á að þetta væri ekki aðgerð sem nokkur vildi grípa til, en hún væri engu að síður nauðsynleg. Hann benti á að fyrr í vikunni, þegar fulltrúadeildin felldi svipaða tillögu, hefðu bandarísk hlutabréf fallið um 700 stig og meira en trilljón (þúsund milljarðar) dala töpuðust. Hann sagðist skilja reiði al- mennings yfir að skattfé væri notað til að halda hagkerfinu gangandi þegar farið væri að sverfa að á Wall Street. Nú þyrfti fólk þó að átta sig á að allir væru á sama báti, og yrði ekki gripið til aðgerða stæðu Banda- ríkjamenn, og heimurinn allur, frammi fyrir hörmulegum afleið- ingum. Obama fór umfram úthlutaðan ræðutíma og bað forseta þingsins um nokkrar aukamínútur til að ljúka ræðunni. Þegar beðið er um fram- lengingu svarar þingforseti því venjulega að það sé „leyft án and- mæla“. Við Obama sagði hann hins vegar; „þingmaðurinn má tala eins lengi og hann vill“, og bæði þing- menn og áhorfendur skelltu upp úr. Þegar Obama lauk máli sínu klöppuðu þingmennirnir honum lof í lófa. Taugaveiklaða umsjónarkonan gerði sitt ýtrasta til að koma í veg fyrir að áhorfendur á þingpöllum gerðu slíkt hið sama. Þingmenn demókrata hópuðust í kringum Obama – allir gleiðbrosandi – og tóku í höndina á honum, föðmuðu hann og klöppuðu honum á bakið. Allir nema Claire McCaskill frá Mis- souri; hún og Obama kýldu saman hnúunum og hlógu svo. Þegar Obama hafði heilsað sam- starfsmönnum sínum gekk hann á röð menntaskólanemanna og tók í höndina á þeim. Einn þingmannanna settist á milli tveggja nema og heils- aði Obama aftur. Þetta vakti mikla kátínu og forseti þingsins reyndi af veikum mætti að koma á reglu. Það tókst ekki fyrr en Obama yfirgaf þingsalinn. Seinna, klukkan níu um kvöldið, var greitt atkvæði um tillöguna. Það sýnir vigt hennar að allir öld- ungadeildarþingmenn, að frátöldum Ted Kennedy sem liggur þungt hald- inn með krabbamein í heila, mættu til leiks. Obama hafði ekki greitt at- kvæði á þinginu síðan í júlí og McCa- in ekki síðan í apríl, en þeir gerðu sér báðir ferð til Washington til að taka þátt í þessari atkvæðagreiðslu. Í um- ræðum um þetta mál sögðu nokkrir þingmenn þetta mikilvægastu at- kvæðagreiðslu sem þeir hefðu tekið þátt í. Kay Bailey Hutchison, repú- blikani frá Texas, sagði að á fimmtán ára þingferli hefði hún aldrei tekið þátt í jafnöflugu þverpólitísku starfi og undirbúningi tillögunnar. Það er dálítið skoplegt að fylgjast með atkvæðagreiðslu í öldungadeild- inni. Hún er líkust kokteilboði – án áfengis þó. Þingmenn standa í hóp- um og spjalla og ganga inn og út úr salnum. Sumir eru vandræðalegir og vita ekki við hvern þeir eiga að tala. Á meðan eru þingmennirnir lesnir upp og þegar nafn þeirra er kallað gefa þeir bendingu sem gefur til kynna hvort þeir eru fylgjandi eða mótfallnir tillögunni sem kosið er um. Þannig var kosið um tvær til- lögur á miðvikudaginn. Á pöllunum fylgdist fólk spennt með samskiptum stjórnmálamann- anna. Obama og Hillary Clinton spjölluðu nokkuð lengi og hún virtist reyta af sér brandara, a.m.k. hló Obama mikið. Þá gekk Obama yfir til Johns McCains og tók í höndina á honum, en McCain tók honum fá- lega. Við afgreiðslu aðaltillögunnar sett- ust þingmennirnir niður og greiddu atkvæði úr sæti sínu. Það er gert í atkvæðagreiðslum sem þykja sér- staklega mikilvægar. Tillagan var samþykkt með 75 atkvæðum gegn 24. Báðir forsetaframbjóðendur greiddu atkvæði með henni. Obama-borgarar Að atkvæðagreiðslunni lokinni gengum við vinur minn yfir á nær- liggjandi skyndibitastað og fengum okkur að borða. Þar var annars kon- ar atkvæðagreiðsla í gangi. Stað- urinn bauð upp á bæði Obama- og McCain-borgara, og skilti á hurðinni sýndi stöðuna. Obamaborgararnir höfðu betur – 32 atkvæði gegn 9. Í dásamlegu eymdarholunni Reuters Mættur Barack Obama kemur til þings til að greiða atkvæði um 700 millj- arða dala björgunaraðgerð ríkisins til að sporna við fjármálakreppunni. Opnum eftir sumarlokun Full búð af nýjum glæsilegum vörum M b l1 05 29 26 Opið frá kl. 13-18 grunnskóli - framhaldsskóli - háskóli NÁMSAÐSTOÐ íslenska - stærðfræði - enska - danska franska - eðlisfræði - efnafræði - tölfræði þýska - spænska - lestur - stafsetning o.fl. greining á lestrarerfiðleikum Nemendaþjónustan sf. Sími 557 9233 • www.namsadstod.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.