Morgunblaðið - 05.10.2008, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 2008 21
Eftir Ingu Rún Sigurðardóttur
ingarun@mbl.is
ÞAU tískuhús sem nærri alltaf er
hægt að stóla á að komi fram með
eitthvað fallegt og spennandi eru
Chanel og Yves Saint Laurent.
Hönnuðir fatalínanna eru enda
stór nöfn í tískuheiminum, Karl
Lagerfeld og Stefano Pilati. Lag-
erfeld hefur verið mun lengur við
stjórnvölinn hjá Chanel en Pi-
lati hjá YSL en sá síðarnefndi
hefur þó þegar getið sér gott
orð fyrir hönnun sína. Hann
þykir sýna gamla meistaranum,
sem lést í sumar, tilhlýðilega
virðingu en á sama tíma skapa
eitthvað nýtt og vera leiðandi í
tískuheiminum.
Sýningar Chanel og YSL á vor-
og sumartískunni 2009 þóttu
heppnast vel en tískuvikunni í
París lýkur í dag.
Lagerfeld endurbyggði fram-
hlið höfðuðstöðva tískuhússins við
Rue Cambon fyrir sýninguna sem
fram fór í hinni tilkomumiklu
höll Grand Palais. Hann merkti
meira að segja einhverjar af
handtöskunum með heim-
ilisfanginu svo enginn villist
nú á leið sinni í verslunina.
Fyrir þá sem eru að velta fyrir
sér í hverju þeir eigi að fjárfesta á
þessum óvissutímum er vel hægt að
mæla með sígildri Chanel-dragt en
þær halda verðgildi sínu vel.
Stefano Pilati sagðist í samtali við
Style.com hafa viljað skapa einfalda
línu að þessu sinni, sem væri um leið „kven-
leg og djörf. Mér fannst vera við hæfi að lyfta
andanum aðeins upp“.
Útkoman var skemmtileg blanda af aust-
rænum áhrifum og nútímalegum línum.
Upp-
lífgandi
tíska
YSL Austrænt og
nútímalegt.
YSL Fortíðarbragur á förðun.
Chanel Klassískur
Karl Lagerfeld.
Chanel Dragtin er
sígild.
Chanel
Rokkaður
strand-
klæðnaður.