Morgunblaðið - 05.10.2008, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 05.10.2008, Qupperneq 34
34 SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN TIL LEIGU - TIL LEIGU Reynihvammur 11 - Kópavogi 2ja herbergja, 60 fm. íbúð á jarðhæð í tvíbýli á þessum frábæra og eftirsótta stað í Kópavogi. Rólegt og gott hverfi. Sérinngangur og sérstæði. Allar nánari upplýsingar veitir Guðjón á Fasteignastofunni s:565 5522 FASTEIGNA- MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. - OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/. Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali. - Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali. ÞRASTARGATA Fallegt 125 fm einbýlishús á tveimur hæðum á þessum eftirsótta stað rétt við Háskóla Íslands.Eignin skiptist í and- dyri, hol, eldhús, samliggjandi stofu og borðstofu, sjónvarpshol, þrjú herbergi, fataherbergi og baðherbergi. Aukin loft- hæð í stofu og útgangur á sólpall. SKIPTI MÖGULEG Á MINNI ÍBÚÐ. Verð 45,0 millj. SKJÓLBRAUT – KÓPAVOGI Glæsilegt 322,8 fm einbýlishús með samþykktri 3ja herb. aukaíbúð á jarð- hæð á frábærum útsýnisstað í suður- hlíðum vestubæjar Kópavogs. Aðal- íbúðin skiptist m.a. í nýendurnýjað gestasalerni, eldhús með nýlegum með sérsmíðuðum innréttingum og eyju, stóra setustofu, borðstofu sem er opin við eldhús og með allt að 6 metra lofthæð, sjónvarpsstofu með útgangi á svalir, 4 stór herb. og flísalagt baðherb. Fallegt útsýni til suðurs. Ræktuð lóð með hellu- lögðum veröndum og skjólveggjum. Verðtilboð KLETTÁS – GARÐABÆ Glæsilegt 169 fm endaraðhús á þremur pöllum þ.m.t. 21 fm bílskúr. Húsið er af- ar vel innréttað með vönduðum innrétt- ingum úr hnotu og gólfefni eru afar vönduð.Mikil lofthæð er á 1. og 2. palli og innfelld lýsing í loftum. Glæsileg lóð fyrir framan hús, sólpallur með skjól- veggjum baka til og hellulagður pallur við hlið hússins. Gríðarlegt útsýni yfir Reykjanesið og til sjávar. Laust strax. Skipti möguleg á minni egin. Verð 55,0 millj. ANDARHVARF – KÓPAVOGI GLÆSILEG SÉRHÆÐ Glæsileg 5 herb. 134,3 fm neðri sérhæð í tveggja hæða húsi á góðum útsýnis- stað . Eignin er innréttuð á vandaðan og smekklegan hátt. Borðstofa opin við eldhús, rúmgóð stofa með útgangi á verönd til suðausturs, 3 rúmgóð her- bergi og fallegt baðherbergi, flíslagt í golf og veggi. 25,1 fm bílskúr. Verð 42,9 millj. STÝRIMANNASTÍGUR Glæsileg 106 fm íbúð á tveimur hæð- um, efri hæð og ris, með tvennum svöl- um til vesturs og norðurs í fallegu timb- urhúsi í gamla vesturbænum. Samliggj- andi stofur með rósettum og gifslistum í loftum, rúmgott eldhús, 3 herbergi og 2 baðherbergi. Sér geymsla/þvottaher- bergi í kjallara. Eign sem hefur verið mikið endurnýjuð á sl. árum. Verð 40,0 millj. Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033 SKIPTU VIÐ FAGMENN - ÞAÐ BORGAR SIG VESTURBRÚN - Í LAUGARÁSNUM Glæsilegt tveggja hæða einbýlishús á einhverjum eftirsótt- asta stað borgarinn- ar. Útsýni yfir borg- ina og út til Snæfellsness og víðar. Húsið er allt nýlega innréttað á glæsilegan hátt, lagnir, gluggar og gler endurnýjað o.fl. Góður bíl- skúr. Lóðin er mjög stór og býður upp á ýmsa möguleika. 8296 Síðumúla 21 • 108 Reykjavík • S . 588 9090 • fax 588 9095 www.eignamidlun. is • e ignamidlun@eignamidlun. is Sverr ir Kr ist insson, löggi ltur fasteignasal i Rituhólar - Glæsieign með útsýni á miðju höfuðborgarsvæðinu Stórglæsilegt einbýlishús á einstakri útsýnislóð neðan við götu sem liggur beint að einni vinsælustu útivistar- og nátturperlu borgarinnar, Elliðaárdalnum með ótal mörgum göngu- og skokkleiðum. Úsýnið er óviðjafnanlegt yfir Reykjavíkurborg og nágrannabyggðarlögin þar sem sjá má meðal annars Esjuna, Snæfellsjökul, Akrafjall og Skarðsheiði. Þá sjást ýmis kennileiti borgarinnar eins og Árbæjarsafn og Viðey. Húsið er 213 fm ásamt bílskúr en töluvert er um óskráð rými og því um mun fleiri fm að ræða. Arkitekt hússins er Hjörleifur Stefánsson og var húsið sýnt á sýningu Listasafns Reykjavíkur árið 2002 fyrir einstakan arkitektúr. Garðurinn fékk viðurkenningu Garðyrkjufélags Íslands árið 2008. Eign sem vert er að skoða. V. 95 m. ÞEGAR launasamn- ingar eru lausir, sér í lagi hjá því opinbera, er oft hamrað látlaust á krepputali. Að sjálf- sögðu er nauðsynlegt að talað sé af raunsæi og skynsamlega tekið á málum þegar efna- hagslægð kemur upp í þjóðfélaginu en sífellt niðurtal bætir þar ekki úr. Í efnahagslægð á það opinbera og sveitarfélög að ganga fram í þörf verkefni þar sem mannafla er þörf, en ekki þegar mikil þensla er almennt í þjóðfélaginu. Þar má t.d. nefna innri Sunda- braut með vegtengingu upp á Kjalarnes sem er nauðsynleg og fljótgerð framkvæmd að hluta, þótt ytri göng/brú komi síðar með tengingu við nefndar stofnbrautir. Miklar efnahagslægðir eru hér óþarfar ef rétt er að málum staðið hverju sinni, en ekki tjaldað til einnar nætur eins og oft vill verða þegar vel gengur í þjóðfélaginu og ævintýramennska og glannaskapur jafnvel látið ráða för í hinum ýmsu viðskiptum. Það dapurlega við þetta t.d. er varðar erlend viðskipti að undanförnu, þá hafa aðilar verið þar á ferð sem hafa gefið sig fram sem sér- fræðinga öðrum fremri í alþjóðlegum viðskiptum og þeim við hlið starfað há- menntaðir aðilar í bókhaldi og fjár- málum, en útkoman verið hrein ævintýra- mennska og klúður í mörgum til- fellum, sem almenningur verður síðan að blæða fyrir að hluta með óðaverðbólgu, okurvöxtum og at- vinnuleysi. Jafnvel erum við Íslendingar ekki í stakk búnir að lesa úr rekstrarskýrslum erlendra fyr- irtækja og félaga eða þá að ábyrgðarleysi hafi verið látið ráða för? Verða þessir ágætu og kraft- miklu fjármálamenn sem þeyst hafa fram á viðskiptavöllinn ekki að ráða sér betri ráðgjafa og gæta betur að alþjóðlegu starfsumhverfi í framtíðinni svo betur megi fara í slíkum viðskiptum? Að sjálfsögðu erum við ekki laus við erlend áhrif í okkar fjár- málaumhverfi en þau þurfa ekki að vera eins mikil og nú er vegna rangra fjárfestinga og fleiri þátta. Þekkt og stöndug fyrirtæki hér á landi til langs tíma hafa hrunið og önnur eru á fallandi fæti vegna ævintýramennsku í viðskiptum. Ljóst má vera að skapa þarf meira aðhald í viðskiptaumhverfi okkar og eftirlitsstofnanir að vera mun virkari. Hvað skyldi lánsfé til margra fyrirtækja/félaga á und- anförnum árum hafa verið í raun fyrirfram óendurkræft? Hvað eru mörg gjaldþrot rannsökuð með til- liti til þessa? Bankar og hin ýmsu rekstr- arform hafa farið sér allt of geyst á undanförnum árum, reksturinn einkennst af ofurlaunum, kaup- réttarsamningum og fyrirhyggju- leysi ríkt í mörgum tilfellum. Að sjálfsögðu hefðu margir ein- staklingar einnig mátt fara sér hægar og af meiri fyrirhyggju, því margir standa nú uppi í mun verri stöðu en áður hefur þekkst t.d. vegna mikilla hækkana á íbúðar- húsnæði á undanförnum árum, hárra vaxta og verðbólgu. Hver ætlar að taka þetta fólk upp á sína arma og bjarga því út úr þeim ógöngum sem það er margt hvað komið í. Lág laun hjá mörgum innan þessa hóps hafa vart skapað þann vanda sem nú ríkir í þjóð- félaginu. Þarfar ríkisstofnanir verða ekki reknar eingöngu með byggingu glæsibygginga, þótt gott húsnæði hjá því opinbera sé nauðsynlegt eins og hjá öðrum fyrirtækjum, þar innandyra þarf jafnframt að vera mannauður til faglegra verka á viðunandi launum. Lág laun hjá mörgum starfs- hópum hér í þjóðfélaginu skapa ekki velferð hér á landi, þvert á móti. Slíkt kallar á ýmis vandamál síðar, langt umfram þær háværu raddir gegn greiðslu viðunandi launa fyrir viss störf, því þá fari verðbólgan á mikið skrið og þjóð- félagið á hliðina. Stjórnmálamenn þurfa margir hverjir að horfa meira fram á veg- inn og vera víðsýnni, hugsa ekki eingöngu um vinsældir líðandi stundar og eigin hag, heldur til framtíðar fyrir land og þjóð, annað er hálfgert kák til skammvinnra vinsælda og vart til eftirbreytni fyrir þá sem vilja og eiga erindi í stjórnmál. Ég benti á það í grein fyrir nokkru að huga þyrfti að fram- angreindum þáttum svo landið stæði ekki uppi þegar fram sækti með halloka fyrirtæki, láglauna- stéttir og atvinnuleysi þ.e. þeir betur settu, menn og fyrirtæki myndu jafnvel hverfa úr landi með rekstur og fjármagn ef allt þetta frjálsræði væri látið standa hömlu- laust, þ.e. án skilyrða til þess starfsumhverfis sem þeim hefur verið skapað hér af stjórnvöldum. Við búum hér í gjöfulu landi sem getur gefið landi og þjóð mik- inn arð ef rétt er að málum staðið, þ.e. bjarta framtíð til lands og sjávar sem og í erlendum við- skiptum ef fyrirhyggja er höfð í fyrirrúmi. Framtíðarsýn og fyrir- hyggja í stað krepputals og glundroða í fjármálum Ómar G. Jónsson skrifar um efna- hagsmál »Miklar efnahags- lægðir eru hér óþarfar ef rétt er að málum staðið hverju sinni, en ekki tjaldað til einnar nætur eins og oft vill verða ... Ómar G. Jónsson Höfundur er fulltrúi og áhugamaður um bætt efnahagsástand.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.