Morgunblaðið - 05.10.2008, Qupperneq 38
38 SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Birgir Valde-marsson fæddist
á Akureyri 27. apríl
1941. Hann andaðist
á Sjúkrahúsinu á
Akureyri 22. sept-
ember síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
hjónin Þórmunda
Guðný Guðmunds-
dóttir, f. 1.9. 1905,
d. 26.3. 1967 og
Valdemar Jónasson,
f. 29.8. 1905, d.
11.11. 1972. Systk-
ini Birgis eru Sverr-
ir, f. 1929 og Kristín, f. 1930, d.
1992.
Eiginkona Birgis er Kolbrún
Theódórsdóttir, f. 10. júlí 1945.
Börn þeirra eru þrjú: Björgvin, f.
1964, kvæntur Gunnhildi Einars-
dóttur, þau eiga Láru Jónu, Einar
Birgi og Hákon Þór;
Þóra Guðný, f. 1967,
hún á tvö börn, Evu
og Elvar; og Harpa,
f. 1973.
Birgir ólst upp í
innbænum á Akur-
eyri, gekk í Barna-
skóla Akureyrar og
Gagnfræðaskólann,
fór síðan í Iðnskól-
ann á Akureyri og
lauk prófi í rafvéla-
virkjun. Þá nam
hann vélstjórn við
Verkmenntaskól-
ann á Akureyri. Birgir starfaði
hjá Rafsegli á Akureyri og í Slipp-
stöðinni um skeið en lengst af
stundaði hann sjómennsku og var
vélstjóri á togurum Útgerðar-
félags Akureyringa.
Útför Birgis fór fram í kyrrþey.
Svili minn og vinur til margra ára
Birgir Valdimarsson er látinn. Kynni
okkar hófust fyrir alvöru þegar við
Sóley fluttum til Akureyrar snemma á
áttunda áratugnum. Þá vorum við
Birgir um tíma báðir að vinna í Slippn-
um. Biggi og Kolla tóku okkur opnum
örmum og hjálpuðu okkur í hvívetna
að aðlagast nýjum heimkynnum.
Þá heyrði ég í fyrsta skipti ýmis orð
sem mér voru áður ókunn, flest vel
þekkt meðal norðanmanna eins og
„punktera“ en Birgir átti sér sína eig-
in orðabók t.d. átti hann til að segja
um fólk að viðkomandi væri „per-
sóna“. Snemma á þessum tíma til-
kynnti hann mér að ég væri „per-
sóna“ og með tímanum skildi ég það
svo að þetta væri sérstakt hrós frá
Bigga um fólk sem honum þótti eitt-
hvað spunnið í, og mat ég þessa um-
sögn mikils.
Annað orðatiltæki sem gjarnan var
haft við þegar til stóð að fara á ball,
var hvort KEA-skórnir væru ekki til-
tækir því Birgir hafði mikla ánægju af
dansi.
Um svipað leyti og við flytjum suð-
ur fer Birgir til Spánar ásamt fleirum
að sækja nýjan Kaldbak fyrir ÚA og á
þessu skipi var Biggi vélstjóri í 30 ár,
sem verður að teljast alveg einstakt,
en segir líka ýmislegt um trúmennsku
og skyldurækni Birgis sem líka var
einstök. Eftir að við fluttum suður
hélst samband okkar við Bigga og
Kollu með ágætum gagnkvæmum
heimsóknum, þó að Biggi léti þess
stundum getið hvað það virtist vera
miklu lengra norður heldur en suður.
Að heimsækja þau í Einholtið og síðar
í Huldugilið var alltaf sérlega ánægju-
legt, móttökurnar höfðinglegar og
ávallt veislumatur á borðum. Heimili
þeirra hjóna hefur alla tíð verið sér-
lega fallegt enda þau samhent í snyrti-
mennskunni. Eftir að þau fluttu í
Huldugilið og fengu stærri lóð og bíl-
skúrinn naut Biggi sín þó að hann ætti
til að fjasa smávegis yfir garðslætti og
slíku þá sá ég ekki betur en hann væri
þar á heimavelli eins og hvar svo sem
hann ákvað að taka til hendinni. Í bíl-
skúrnum var allt í röð og reglu, hver
hlutur á sínum stað og flísalagt bíl-
skúrsgólfið ávallt spegilgljáandi.
Stór hluti af samskiptum okkar var
að ferðast saman til sólarlanda og eru
þessar ferðir sérlega minnisstæðar.
Birgir skipulagði ferðir sínar vel,
kynnti sér ýmislegt um áfangastað-
inn, enda var stundum eins og hann
hefði komið áður á þessa staði.
Þegar þau Biggi og Kolla komu við
hjá okkur á leið sinni heim frá Te-
nerife í maí í vor datt engum hug að
þar hefði Biggi farið sína síðustu sól-
arlandaferð enda haft á orði að þang-
að þyrftum við endilega að fara með
þeim. Við komum svo í heimsókn í
Huldugilið nú í lok júlí og þá var Birg-
ir nýkominn úr mótorhjólaferð til
Húsavíkur, virtist hress og bar sig vel
þrátt fyrir harðsperrur eftir hjóla-
túrinn. Núna nokkrum vikum síðar er
Birgir, vinur og félagi til fjölda ára,
allur. Hann var einhver vandaðasti og
traustasti maður sem ég hef kynnst
um dagana og skilur eftir sig skarð
sem ekki verður fyllt.
Elsku Kolla, börnin og barnabörn-
in, við Sóley vottum ykkur okkar inni-
legustu samúð og óskum þess að guð
veiti ykkur styrk á þessari erfiðu
stundu.
Helgi Guðmundsson.
Birgir Valdemarsson
✝ GuðmundurGuðmundsson
fæddist í Reykja-
vík 31. mars 1938.
Hann lést á Land-
spítalanum við
Hringbraut 14. sept-
ember sl.
Foreldrar Guð-
mundar voru Marta
Þorleifsdóttir, f. í
Hafnarfirði 22.1.
1901, d. 30.11. 1987,
og Guðmundur Guð-
mundsson múrari, f.
á Eyrarbakka 6.11.
1892, d. 16.9. 1966.
Systkini Guðmundar eru: Ás-
geir Guðmundsson, f. 1920 (lát-
inn), maki María Ingimundar-
dóttir, f. 1923 (látin), Halldóra
Guðmundsdóttir, f. 1921 (látin),
maki 1 Hákon Guðmundsson, f.
1918 (látinn), maki 2 Stefán Stein-
grímsson, f. 1912 (látinn), Helga
Guðmundsdóttir, f. 1923 (látin),
Dómhildur Ástríður Guðmunds-
dóttir, f. 1924, maki Árni S. Valdi-
marsson, f. 1923 (látinn), Guð-
mundur Valdimar Guðmundsson,
f. 1925 (látinn), Hjördís Guð-
mundsdóttir, f. 1927, maki Jón
Jónsson, f. 1924, Svanhildur Guð-
mundsdóttir, f. 1928, maki Pétur
Eiríksson, f. 1931, Haraldur Guð-
mundsson, f. 1930
(látinn), maki Erla
Sigrún Sigurðar-
dóttir, f. 1929, Þor-
leifur Guðmunds-
son, f. 1931, maki
Erla Björg Jóns-
dóttir, f. 1932,
Sigurbjörg Guð-
mundsdóttir, f.
1934, maki Jóhann-
es Ágústsson, f. 1935
(látinn), Guðrún
Guðmundsdóttir, f.
1936, maki Páll
Skúli Halldórsson, f.
1932 (látinn), Hrafnhildur Guð-
mundsdóttir Norðdahl, f. 1939,
maki Kjartan Norðdahl, f. 1940.
Guðmundur hlaut hefðbundna
skólagöngu þess tíma. Hann veikt-
ist af ólæknandi sjúkdómi á ung-
lingsaldri sem hann glímdi við allt
sitt líf og hamlaði honum að taka
þátt í mörgu því sem lífið hefur
upp á að bjóða. Hann bjó allt sitt líf
í húsi foreldra sinna við Baldurs-
götu og naut góðrar umönnunar
móður sinnar og Helgu systur
sinnar meðan þeirra naut við en
eftir lát Helgu hefur Guðrún systir
hans annast hann í veikindum
hans.
Guðmundur var jarðaður í kyrr-
þey 24. september sl.
Þegar ég frétti af andláti Guð-
mundar ömmubróður míns langaði
mig að skrifa um hann nokkur orð og í
leiðinni rifja upp kynni mín af honum.
Guðmundur bjó á Baldursgötunni hjá
langömmu minni Mörtu og Helgu
dóttur hennar. Sem barn var ég oft hjá
þeim og vorum ég og Guðmundur vin-
ir. Hann sat oftar en ekki inni í her-
berginu sínu, við skrifborðið og horfði
út um gluggann. Stundum fékk ég að
fara inn til hans og sat ég þá á rúm-
stokknum. Lyktin í loftinu var blanda
af filterslausum Camel og Old Spice.
Guðmundur átti nóg af eldspýtum og
dunduðum við okkur við að mynda hús
og kastala úr þeim. Við spiluðum líka á
spil. Þess á milli hvíldi Guðmundur sig
eða fór út í port að fá sér ferskt loft.
Stundum fór Guðmundur í vinnuna
og þá keyrðum við Helga hann og sótt-
um. Það var ekki fyrr en ég varð eldri
að mér var gerð grein fyrir veikindum
Guðmundar og þegar ég hélt að hann
færi í vinnuna þá var hann að fara á
sjúkrahús. Í barnslegri einlægni minni
var hann bara venjulegur maður sem
var vinur minn.
Þótt líf Guðmundar hafi verið fá-
brotið og hann farið á mis við margt
sem við flest fáum að njóta á lífsleið-
inni þá sáu nánustu ættingjar hans um
að gera honum lífið eins bærilegt og
unnt var. Hann ólst upp á barnmörgu,
glaðværu heimili, systkini hans og
þeirra afkomendur eru samrýnd fjöl-
skylda og meðal þeirra var hann ávallt
velkominn.
Guðmundur tók örlögum sínum af
æðruleysi, kvartaði aldrei og var
þakklátur fyrir þá ástúð og umhyggju
sem honum var sýnd. Eftir að hafa bú-
ið með Helgu systur sinni alla sína ævi
fór hann einu og hálfu ári á eftir henni.
Eftir lifir minning um vin sem situr við
skrifborð sitt á Baldursgötunni, reykir
filterslausan Camel og horfir út um
gluggann.
Samúðarkveðjur sendi ég systkin-
um Guðmundar og öðrum aðstand-
endum.
Kristrún Helga Bernhöft.
Guðmundur
Guðmundsson
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
RAGNHEIÐUR K. ÞORKELSDÓTTIR,
Sléttuvegi 19,
Reykjavík,
sem andaðist á Landspítalanum við Hringbraut
föstudaginn 26. september, verður jarðsungin frá
Háteigskirkju mánudaginn 6. október og hefst
athöfnin kl. 13.00.
Þorkell Helgason, Björg R. Sigurðardóttir,
Hrafnhildur Helgadóttir, Sigurður Geirmundarson,
Sigfús Jón Helgason, Sólrún Sigurðardóttir,
Helga Helgadóttir, Júlíus Jónasson,
ömmubörn og langömmubörn.
✝
Okkar elskulegi,
HERMÓÐUR SIGURÐSSON
setjari,
sem lést á Landspítala, Landakoti laugardaginn 27.
september, verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju
í Hafnarfirði þriðjudaginn 7. október kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á minning-
arsjóð Félags aðstandenda Alzheimerssjúkra,
www.alzheimer.is.
Inga Huld Hermóðsdóttir, Jóhannes Kristinn Kristinsson,
Daði Þór Hermóðsson,
Hávarr Hermóðsson,
Bergljót Hermóðsdóttir,
barnabörn,
systkini og aðrir aðstandendur.
✝
Maðurinn minn,
INGVALDUR VALGARÐUR HOLM EINARSSON,
andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðurlands,
Ljósheimum Selfossi.
Útför hans fer fram frá Selfosskirkju þriðjudaginn
7. október kl. 13.30.
Helga Símonardóttir,
Hallgrímur Jón Ingvaldsson, Kristbjörg Gunnarsdóttir,
Einar Rafn Ingvaldsson, Katrín Jónína Gunnarsdóttir,
Símon Grétar Ingvaldsson, Hrafnhildur Scheving,
Héðinn Smári Ingvaldsson, Bjarney Ragnarsdóttir,
Fanney Ósk Ingvaldsdóttir, Geir Ómar Kristinsson,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
stjúpfaðir, afi og langafi,
ÁSGEIR SVERRISSON
hljómlistarmaður,
Prestastíg 11,
Reykjavík,
andaðist á líknardeild Landspítalans Landakoti,
laugardaginn 27. september.
Útförin fer fram frá Langholtskirkju þriðjudaginn
7. október kl. 13.00.
Sigríður Maggý Magnúsdóttir,
Margrét Ásgeirsdóttir, Marteinn Másson,
Ásgeir Ásgeirsson, Vilborg Lofts,
Guðmundur Baldvinsson, Helga Haraldsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, bróðir, afi og
langafi,
SIGURJÓN INGIMARSSON,
Víkurási 2,
Reykjavík,
sem lést á deild 11E á Landspítalanum við Hring-
braut fimmtudaginn 25. september, verður jarð-
sunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 7. október
kl. 15.00.
Jónína Þóra Sigurjónsdóttir, Sveinn F. Sveinsson,
Ingibjörg T. Sigurjónsdóttir, Salmann Tamimi,
Katrín Sigurjónsdóttir, Sölvi Guðbjartsson,
V. Lilly Sigurjónsdóttir, Páll Jóhannesson,
Guðjón Þór Kristjánsson, Steinunn Guðmundsdóttir,
Sigurósk G. Kristjánsdóttir, Egill Jón Kristjánsson,
systkini, barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
KRISTINN ÁSGRÍMUR EYFJÖRÐ
ANTONSSON,
Stafnaseli 4,
Reykjavík,
lést sunnudaginn 28. september á
krabbameinsdeild 11E.
Útför hans fer fram frá Seljakirkju mánudaginn 6. október kl. 13.00.
Hjördís Hjörleifsdóttir,
Agnes Eyfjörð Kristinsdóttir, Elías Örn Óskarsson,
Ástþóra Kristinsdóttir, Magnús Eiríksson,
Anton Ásgrímur Kristinsson, Helga Sveinsdóttir,
Hjörleifur Kristinsson,
Kristinn Ásgrímur Kristinsson, Hrund Grétarsdóttir,
Hulda Sjöfn Kristinsdóttir, Jón Ólafur Jóhannesson,
barnabörn, fjölskyldur og barnabarnabörn.