Morgunblaðið - 05.10.2008, Side 39

Morgunblaðið - 05.10.2008, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 2008 39 ✝ Jón Andréssonfæddist 12. júlí 1964. Hann lést 8. september síðastlið- inn. Foreldrar hans eru Ásbjörg Jóns- dóttir, f. 1933 og Andrés Hjörleifur Grímólfsson, f. 1938. Foreldrar Ás- bjargar voru Sess- elja Stefánsdóttir, d. 25.5.1971 og Jón Einarsson, d. 26.2.1978. Móðir Andrésar er Þuríð- ur Björnsdóttir, en faðir hans, Grímólfur Andrés- son, er látinn. Hálfsystur Jóns eru: 1) Hjördís Björg Andrésdóttir, f. 1963, maki Sverr- ir Hermannsson, börn Hjördísar eru þrjú. 2) Arndís Björk Andrésdóttir, f. 1970, búsett er- lendis, börn Arndís- ar eru fjögur. Útför Jóns fór fram frá Landa- kirkju í Vesta- mannaeyjum 19. september. Dimmt er í heimi og döpur er stund, dagsverkið er á enda. Svona er lífið, lokuð öll sund, en lausnarinn kraft mun mér senda. Áfram skal haldið á ævinnar braut, alvaldur Drottinn oss kenndi. Lagt er oss öllum líkn við þraut, líf vort í Drottins hendi. Ég kveðja vil, vinur, í kærleik og þökk, víst áttum við samfylgd of skamma. Styrki mig Drottinn mín sála er klökk, þín sorgmædda elskandi mamma. Elsku Nonni minn. Hversu mjög ég sakna þín og á eftir að gera það svo lengi sem ég lifi. Við fylgdumst að og bjuggum lengst af saman, í mörg ár hjá ömmu og afa á Höfðabrekku. En þegar við fórum þaðan var eins og margt breyttist og lífið varð þér erfiðara og okkur báðum. Á meðan heilsan leyfði stundaðir þú sjóinn og vannst síðar í landi við fiskvinnu. Og sem unglingur hafðir þú mikinn áhuga á mótorhjólum og áttir margar ánægjustundir í skúrn- um bak við Höfðabrekku þar sem strákahópur safnaðist gjarnan sam- an í kringum þig. Og seinni árin átti fótboltinn hug þinn allan, sérstak- lega enski boltinn. Þá sátuð þið Óli, frændi þinn, saman og horfðuð á leikina. Þú misstir mikið þegar Óli féll frá síðastliðið vor og eftir það varð þér lífið oft óbærilegt. Mikið bað ég og þráði betri líðan fyrir þig, elsku Nonni minn, en það gekk ekki upp. Og þrátt fyrir við- leitni ýmissa til að hjálpa þér, var oft eins og leiðin væri lokuð. Hugur þinn stefndi til Reykjavíkur því að þar vonaðist þú til að eignast betra líf og hljóta meiri þjónustu. En nú er erf- iðleikunum lokið og gott að vita að: Drottinn vakir, Drottinn vakir daga og nætur yfir þér. Blíðlynd eins og besta móðir ber hann þig í faðmi sér. Allir þótt þér aðrir bregðist, aldrei hann á burtu fer. Drottinn elskar, – Drottinn vakir daga og nætur yfir þér. (Sigurður Kristófer Pétursson.) Minnig þín lifir í huga mér, elsku drengurinn minn. Þín mamma Ásbjörg. Mig langar til að minnast vinar míns, Jóns Andréssonar, nokkrum orðum. Vissi af honum í Vestmanna- eyjum sem dreng og unglingi, en kynntist honum ekki fyrr en hann var orðinn fullorðinn maður og þá sjúklingur. Oft leið honum mjög illa og sárt að geta ekki komið honum meira til hjálpar. Móðir hans, Ásbjörg, stóð við hlið hans og var hans stoð og stytta og athvarf eftir því sem hægt var. Líf Jóns og hennar var mjög samofið og þjáningar hans urðu raunir hennar. En þrátt fyrir slæma líðan og stundum vonbrigði var áberandi þáttur í skaphöfn Jóns að hann talaði aldrei illa um aðra og kenndi ekki öðrum um. En nú eru þrautir að baki og hvíldin ljúf uns lífgjafinn vekur til lífsins á ný. En föðurland okkar er á himni og frá himni væntum við frelsarans, Drottins Jesú Krists. Hann mun breyta veikum og forgengilegum líkama okkar svo að hann fái sömu mynd og dýrðarlíkami hans því hann hefur kraftinn til að leggja allt undir sig. (Fl 3:20-21) Ó, þegar Jesú auglit fæ að sjá, ósk mín og vonir rætast Guði hjá, sem lítið barn mig leiðir hann við hlið og lofar mig að skilja aldrei við. Ó, þegar fæ ég heyrt hans hlýju raust, hjá honum dvelja má ég endalaust. Ó, þegar sjálfur segir Jesús mér, sorgir hvers vegna oft mig beygðu hér. (Elínborg Guðmundsdóttir.) Ása mín, sorg þín er mikil, en með Jesú er framtíðin björt. Hann hefur líka sent þér Ínu þínu til að aðstoða þig, styrkja og gleðja. Blessun hans er oft nær en við hyggjum. Þín Lilja. Það er komið að leiðarlokum. Mildur blærinn frá Heimaey á haust- degi fylgir minningunum um góðan dreng, sem átti vonir og þrár. Þú reyndir þitt besta en það var þér of- raun. Þú hvílir nú í faðmi Heimaeyj- ar og bíður þess dags er Kristur kemur í skýjum himins. Hann sem forðum sagði: „Komið til mín, allir þér sem erfiði hafið og þungar byrðar, og ég mun veita yður hvíld.“ (Matt. 11:28) Mætti máttugur Guð gefa að við öll verðum tilbúin á þeim degi. Ekki viljum vér, bræður, láta yður vera ókunnugt um þá, sem sofnaðir eru, til þess að þér séuð ekki hryggir eins og hinir, sem ekki hafa von. Því að ef vér trúum því að Jesús sé dáinn og upprisinn, þá mun Guð fyrir Jesú leiða ásamt honum fram þá, sem sofnaðir eru. Því að það segjum vér yður, og það er orð Drottins, að vér, sem verðum eftir á lífi við komu Drottins, munum alls ekki fyrri verða en hinir sofnuðu. Því að sjálfur Drott- inn mun stíga niður af himni með kalli, með höfuðengils raust og með básúnu Guðs, og þeir, sem dánir eru í trú á Krist, munu fyrst upp rísa. Síðan munum vér, sem eftir lifum, verða ásamt þeim hrifnir burt í skýjum til fundar við Drottin í loftinu. Og síðan munum vér vera með Drottni alla tíma. Uppörvið því hver annan með þessum orðum. (1Þ 4:13-18) Getum við ekki sameiginlega tekið undir með sálmaskáldinu er hann segir: Ó, þegar ég við æðri og fegri sól allt fæ að sjá, er húm og skuggi fól. Ljóst mér þá verður, leitt að hafði sá, leiðina vel er þekkti byrjun frá. (E.G.) Elsku Ása mín, við sendum þér hlýjar kveðjur samúðar. Felum þig í umsjá Guðs. Blessuð sé minning látins vinar. Edith, Lilja og Karl. Jón Andrésson ✝ Elisabet AnnaGunnlaugsson Lorman fæddist í Þýskalandi 17. október 1923. Hún andaðist í Reykjavík 15. sept- ember síðastliðinn. Hún var dóttir hjónanna Gustavs Lormans, sjómanns í Mitteland-Schiff, f. 4. desember 1858, d. 1943, og konu hans Elisabeth Magda- leine Lorman, fædd Krüger, f. 12. maí 1876, d. 1946. Elísabet giftist Magnúsi Gunn- laugssyni, bónda í Stúfholti í Holtum, árið 1950. Saman áttu þau tvö börn, Sigurlaugu, f. 25. október 1955, og son, f. 3. október 1957, d. 24. nóv- ember 1957. Magn- ús lést 13. ágúst 1975. Útför Elísabetar fór fram í kyrrþey. Það var árið 1949, rétt eftir að síð- ari heimsstyrjöld lauk, að ung og umkomulítil kona, Elisabeth Anna Lorman, kom frá borginni Lübeck austur að tvíbýlinu Stúfholti í Holt- um. Þar bjó ungur og duglegur bóndi, Magnús Gunnlaugsson, ókvæntur og barnlaus. Elísabet kom hingað í hópi ungra, þýskra kvenna úr hungri og fátækt. Þýsku stúlkurn- ar dreifðust á bæi víða á landinu og áttu margar eftir að setjast hér að. Elísabet sýndi brátt afburða hæfi- leika sem húshaldari í Stúfholti. Hún var glæsileg kona, fremur dökk yf- irlitum, há og spengileg, með fallega andlitsdrætti. Tvö ólík tungumál hindra ekki fal- legt samband elskenda. Þau ungi bóndinn og Elísabet urðu fljótt ást- fangin og giftust árið 1950. Ég minn- ist þess hversu fallegt það hjóna- band var. Magnús bar konu sína á höndum sér, broshýr og mildur eins og hann var. Þeim Magnúsi og Elísabetu varð tveggja barna auðið. Sigurlaug dótt- ir þeirra var með Downs-heilkenni og þroskahömluð. Sigurlaugu var hampað alla tíð og naut umhyggju foreldra sinna. Síðar flutti hún á vist- heimili og býr nú í Vesturbrún 17. Síðara barnið var drengur, sem lést mánaðargamall. Elísabet hafði eign- ast dreng í Þýskalandi áður en hún kom hingað til lands, hún leitaði hans en fann aldrei. Líf Elísabetar var ýmsum annmörkum háð. Hún náði ekki valdi á tungumálinu og kaus að halda sig til hlés frá öðrum en fjöl- skyldu sinni. Án efa kom hún úr stríðinu með særða sál. Ættingja og vini hafði hún séð falla í stríðinu. Þau Magnús og Elísabet bjuggu í Stúf- holti allt þar til Magnús lést 1975. El- ísabet brá þá búi og flutti til Reykja- víkur. Með þessum orðum sendi ég Elísabetu kveðju mína og þakka henni viðkynninguna, hún var góð. Ég sendi Sigurlaugu líka samúðar- kveðju. Þau Elísabet og Magnús, þau miklu fyrirmyndarhjón, eru mikill harmdauði. Sóley E. Fjeldsted. Elísabet Anna Gunnlaugsson Þegar ég kveð hann pabba minn hinstu kveðju koma fyrst og fremst upp í hugann ljúfar minningar. Það hefir þurft sterk bein fyrir 70 árum að taka sig upp frá sínu föð- urlandi um tvítugt og setjast að í fjar- lægu landi. Tengslunum við uppruna sinn hélt hann þó alla tíð og til dæmis var jólamaturinn ávallt með dönsku sniði, danski fáninn hafður á jóla- trénu og mynd af drottningunni á vegg. Skaplyndi pabba var afar ljúft og ekki minnist ég þess að hafa verið Mangor Harry Mikkelsen ✝ Mangor HarryMikkelsen fædd- ist í Skagen í Dan- mörku 11. nóvem- ber 1918. Hann lést á Kirkjuhvoli, dval- arheimili fyrir aldr- aða á Hvolsvelli, 15. september síðastlið- inn og var jarðsung- inn frá Selfoss- kirkju 23. septem- ber. skammaður í uppeld- inu, þótt þess hefði ef til vill verið þörf á stundum. Dugnaður einkenndi hann, ásamt þeim eig- inleika að standa alltaf við þau loforð sem gef- in voru. Þá vildi hann aldrei skulda neinum neitt og þar voru þau mamma samstiga. Hann var mikil fé- lagsvera og átti gott með að umgangast fólk. Pabbi var mikill ræktunarmaður og taldi nauðsynlegt að vera þar sjálfum sér nógur. Þá veittu ferðalögin erlendis með sínum nánustu honum mikla gleði. Við leiðarlok vil ég nota tækifærið og færa starfsfólki Dvalarheimilisins á Kirkjuhvoli á Hvolsvelli alúðar- þakkir fyrir umönnun síðustu ára. Þá sendum við Ástu Magnúsdóttur sér- stakar þakkir fyrir umhyggju hennar og vinsemd. Blessuð sé minning pabba. Kristján. ✝ Okkar innilegustu þakkir til þeirra fjölmörgu sem sýndu okkur samúð og vinarhug við fráfall og útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar og afa, JÓHANNESAR PÁLS JÓNSSONAR frá Sæbóli, Herjólfsgötu 40, Hafnarfirði. Alúðarþakkir færum við Karlakórnum Þröstum og fyrrum samstarfsmönnum hans úr lögreglunni í Hafnarfirði sem heiðruðu minningu hans við útförina. Guð blessi ykkur öll. Sólveig Björgvinsdóttir, Björg Jóhannesdóttir, Sigurður Skagfjörð Steingrímsson, Signý Jóhannesdóttir, Magnús Ingi Óskarsson, Sif Jóhannesdóttir, Ingólfur Arnarson og afabörnin. ✝ Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför bróður okkar, mágs og frænda, ÍSLEIFS H. GUÐMUNDSSONAR, Háaleitisbraut 123, Reykjavík, sem jarðsunginn var frá Bústaðakirkju föstudaginn 19. september. Jón Guðmundsson, Renate Gudmundsson, Gunnar B. Guðmundsson, Guðmundur Chr. Jónsson, Juliane Gudmundsson. ✝ Kæru vinir, innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar móður minnar og tengda- móður, GUÐRÚNAR SIGURÐARDÓTTUR, Kirkjubraut 6, Höfn í Hornafirði. Agnes og Guðbjartur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.