Morgunblaðið - 07.10.2008, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 2008 13
FRÉTTASKÝRING
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
N
eyðarlögin sem sett
voru í gærkvöldi
rúma gríðarlegar
valdheimildir handa
fjármálaráðherra,
Fjármálaeftirliti og Íbúðalánasjóði
um íhlutanir í starfsemi fjármála-
fyrirtækja. Orð Geirs H. Haarde
forsætisráðherra í ávarpi til þjóð-
arinnar í gær, þess efnis að inn-
stæður Íslendinga og sér-
eignasparnaður í íslensku
bönkunum öllum sé tryggur, bendir
til þess að lögunum sé m.a. ætlað
að veita heimild til að skilja á milli
erlendrar starfsemi bankanna og
innlendrar, og skilja þannig er-
lenda lánveitendur og vogunarsjóði
eftir með stóran hluta vandans,
sem þeir tóku þátt í að skapa.
Í fyrsta kafla laganna eru fjár-
málaráðherra fengnar víðtækar
heimildir. Þeim má hann beita við
„sérstakar og mjög óvenjulegar að-
stæður á fjármálamarkaði,“ þ.e.
þegar líkur eru á því að fjármála-
fyrirtæki geti ekki staðið við skuld-
bindingar sínar, líklegt er að aft-
urkalla megi starfsleyfi þess eða
líkur standa til að það geti ekki
uppfyllt kröfur um lágmarks eigið
fé og að úrræði Fjármálaeftirlitsins
séu ekki líkleg til þess að takmarka
tjón eða hættu á tjóni á fjár-
málamarkaði. Heimildunum má
fjármálaráðherra einnig beita ef
fjármálafyrirtæki er komið í, eða er
á leið í greiðslustöðvun, nauð-
arsamninga eða gjaldþrot.
Í fyrstu grein fær fjármálaráð-
herra heimild við sérstakar að-
stæður, fyrir hönd ríkissjóðs, til
þess að reiða fram fjármagn til að
stofna nýtt fjármálafyrirtæki, yf-
irtaka það eða yfirtaka þrotabú
þess í heild eða að hluta. Veigamik-
il ákvæði gildandi laga eru tekin úr
sambandi þegar fjármálaráðherra
notar slíka heimild. Í fyrsta lagi
gilda þá ekki ákvæði laga um fjár-
málafyrirtæki, hvað varðar heimild
ríkisins til að eignast virkan eign-
arhlut í fjármálafyrirtæki. Í grein-
argerð með lögunum segir að ís-
lenska ríkið uppfylli óumdeilanlega
skilyrði laganna til þess að eignast
slíkan virkan eignarhlut. Þess
vegna mun ríkið ekki þurfa að leita
samþykkis FME fyrir því fyr-
irfram.
Í öðru lagi gilda ákvæði laga um
verðbréfaviðskipti um yfirtöku-
skyldu og lýsingar ekki. Sam-
kvæmt gildandi lögum skal sá sem
eignast a.m.k. 40% atkvæðisréttar í
skráðu hlutafélagi, eða öðlast rétt
til þess að tilnefna eða setja af
meirihluta stjórnar í því, gera öðr-
um hluthöfum félagsins tilboð inn-
an fjögurra vikna, um að kaupa
hluti þeirra í félaginu. Ríkissjóður
þarf sem sagt ekki að kaupa af-
gang hlutafjárins út, eftir að það
kaupir ráðandi hlut, enda í raun að
vinna að hagsmunum hluthafanna
með inngripi sínu.
Í þriðja lagi gilda ekki ákvæði
laga um réttarstöðu starfsmanna
við aðilaskipti að fyrirtækjum. Ef
ríkið yfirtekur banka fær það með
öðrum orðum svigrúm til að hag-
ræða í rekstri og yfirtekur ekki
skyldur samkvæmt eldri ráðning-
arsamningum. Það getur lækkað
laun og afnumið tekjutengdar
greiðslur til starfsmanna.
Nýtt hlutafélag sem fjár-
málaráðherra stofnar hefur engan
lágmarksfjölda hluthafa, það gæti
t.d. verið ríkissjóður einn. Slíkt
hlutafélag hefur starfsleyfi sem við-
skiptabanki. Í greinargerð kemur
fram að FME geti flutt nafn fjár-
málafyrirtækis sem líður undir lok
á nýtt félag sem sett yrði á lagg-
irnar.
Önnur grein er sett til þess að
ríkissjóður geti tryggt sparisjóða-
starfsemi í landinu, t.d. ef eigið fé
sparisjóða rýrnar niður fyrir
hættumörk. Hún á við um alla
sparisjóði, líka þá sem hefur verið
breytt í hlutafélög. Í greininni fær
fjármálaráðherra heimild, fyrir
hönd ríkissjóðs, til að leggja spari-
sjóði til fjárhæð sem nemur allt að
20% af bókfærðu eigin fé hans.
Þetta verður hægt að gera án að-
komu stofnfjáreigendafundar, ef
stjórn viðkomandi sparisjóðs sam-
þykkir það.
Greinina má túlka þannig að
kaup ríkissjóðs á stofnfé eða
hlutafé í sparisjóðum skuli ekki
fara fram á neinu yfir- eða und-
irverði. Sé bókfært eigið fé sjóðs
t.a.m. átta milljarðar og ríkissjóður
leggi því til tvo milljarða, verður
ríkissjóður eigandi 20% stofnfjár
eða hlutafjár, eftir atvikum.
Þriðja grein breytir 6. tölul. 1.
mgr. 9. gr. laga um fjármálafyr-
irtæki. Lagagreinin var svona:
,,Fjármálaeftirlitið getur aft-
urkallað starfsleyfi fjármálafyr-
irtækis í heild eða að hluta, hafi
verið kveðinn upp úrskurður um
slit fyrirtækisins.“ Með neyðarlög-
unum verður nóg að ráðstafanir
FME á grundvelli laga um fjár-
málafyrirtæki hafi ekki skilað ár-
angri. Þá getur stofnunin aft-
urkallað starfsleyfi þess.
Fjórða grein afnemur m.a. þörf á
samþykki FME fyrir framsali eða
aukningu stofnfjár í sparisjóði, ef
um er að ræða aðkomu ríkissjóðs
að sparisjóði.
Fimmta grein bætir nýrri grein
við lög um fjármálafyrirtæki. Nýja
greinin fjallar um ráðstafanir Fjár-
málaeftirlitsins við „sérstakar að-
stæður“ sem skilgreindar voru hér
að framan. Greinin þarf í raun ekki
mikilla skýringa við, FME er nán-
ast fengið alræðisvald í slíkum til-
fellum. „Óskertar heimildir til ráð-
stöfunar réttindum og skyldum“
eins og það er orðað í frumvarpinu.
M.a. eru starfsmenn þess und-
anþegnir skaðabótaskyldu vegna
ákvarðana og framkvæmda sam-
kvæmt greininni. Þessar ákvarð-
anir og framkvæmdir eru líka und-
anskildar fjórða til sjöunda kafla
stjórnsýslulaganna. Þeir kaflar
fjalla m.a. um andmælarétt, birt-
ingu ákvörðunar, rökstuðning
ákvörðunar og stjórnsýslukærur.
Samkvæmt greininni fær FME eft-
irtalin völd:
1. Að boða til hluthafafundar eða
fundar stofnfjáreigenda, óháð
ákvæðum hlutafélagalaga eða sam-
þykktum fjármálafyrirtækis.
2. Að taka yfir vald hluthafa-
fundar eða fundar stofnfjáreigenda
í því skyni að taka ákvarðanir um
nauðsynlegar aðgerðir, takmarka
ákvörðunarvald stjórnar, víkja
stjórn frá að hluta til eða í heild,
taka yfir eignir, réttindi og skyldur
fjármálafyrirtækis í heild eða að
hluta eða ráðstafa slíku fyrirtæki í
heild eða að hluta, meðal annars
með samruna þess við annað fyr-
irtæki. Þá gilda ekki mikilvæg
ákvæði laga um verðbréfaviðskipti
né laga um fjármálafyrirtæki.
Verði samruni niðurstaðan gilda
ákvæði samkeppnislaga og sam-
runaákvæði laga um fjármálafyr-
irtæki ekki um samrunann.
3. Að skipa fimm manna skila-
nefnd í fyrirtæki þar sem FME
hefur vikið stjórninni frá. Skila-
nefndin hefur þá umsjón með öllum
eignum þess og annast reksturinn.
4. Að takmarka eða banna ráð-
stöfun fjármuna og eigna fjármála-
fyrirtækis.
5. Að taka í sínar vörslur eignir
fjármálafyrirtækis, láta meta verð-
mæti þeirra og ráðstafa þeim til
greiðslu áfallinna krafna eftir því
sem þörf krefur.
6. Að rifta sölu eigna sem átt
hefur sér stað allt að mánuði áður
en FME greip inn í.
7. Að krefjast þess að fjármála-
fyrirtæki sæki um greiðslustöðvun
eða leiti heimildar til nauðasamn-
inga.
Sjötta grein mælir fyrir um að
við gjaldþrotaskipti fjármálafyr-
irtækis verði innstæður sparifjár-
eigenda forgangskröfur.
Sjöunda grein veitir FME sömu
valdheimildir og fimmta grein, þeg-
ar eftirlitsskyldur aðili, annar en
fjármálafyrirtæki lendir í sér-
stökum erfiðleikum. Undir þetta
ákvæði gætu fallið t.d. lífeyr-
issjóðir.
Áttunda grein bætir inn í lög um
tryggingarsjóð innstæðueigenda og
fjárfesta. Í aðalatriðum veitir það
honum rétt til að greiða innstæður
fólks alltaf út í íslenskum krónum.
Auk þess fær sjóðurinn að skulda-
jafna innstæðum og skuldum við-
komandi einstaklings í viðkomandi
banka. Maður sem átti 10 milljón
króna innstæðu og skuldaði 20
milljónir endar því með 10 milljón
króna skuld. Greinin bætir því
einnig inn í lögin um trygging-
arsjóð að innstæður verð-
bréfasjóða, fjárfestingarsjóða, fag-
fjárfestasjóða, lífeyrissjóða og
annarra sjóða um sameiginlega
fjárfestingu skuli ekki vera und-
anskildar tryggingu sjóðsins.
Rétt eins og sjötta grein gerir
innstæður að forgangskröfum í
þrotabú yfirtekur tryggingarsjóður
innstæðueigenda þær kröfur í búið
ef hann borgar út innstæður fólks.
Samkvæmt níundu grein verða
þær kröfur sjóðsins því jafn-
réttháar og kröfur almennings til
innstæðna sinna.
Tíunda grein breytir lögum um
húsnæðismál. Þar er íbúðalánasjóði
fengið það hlutverk að kaupa upp
íbúðalán banka og sparisjóða. Í ell-
eftu grein bætist það við að skuld-
ari hefur ekkert að segja um hvort
ÍLS kaupir lánið hans af viðkom-
andi banka. Í tólftu grein fær fé-
lagsmálaráðherra vald til að setja
reglugerð um þessi kaup ÍLS á
íbúðalánum bankanna. Þrettánda
grein rýmkar heimildir ÍLS til
þess að veita skuldbreytingarlán
og fresta greiðslum lántakenda.
Fjórtánda grein flýtir gildistöku
laganna. Þau voru samþykkt
klukkan 23:20 í gærkvöldi og birt á
vefnum skömmu síðar. Þá tóku þau
strax gildi, en venjulega taka lög
gildi daginn eftir útgáfudag Stjórn-
artíðinda þar sem þau eru birt.
Mjög víðtækar valdheimildir
Alþingi sam-
þykkti lög um
fjármálamarkað
Morgunblaðið/Golli
Frumvarp Öllum var ljós alvarleiki þess máls sem rætt var á Alþingi í gær.
Steingrímur J. Sigfússon og Geir H. Haarde forsætisráðherra tóku til máls.
Eftir Björgvin Guðmundsson og Þorbjörn Þórðarson
„Í ÞESSU umhverfi hefur
maður áhyggjur,“ sagði
Sigurður Einarsson,
stjórnarformaður Kaup-
þings, eftir stjórnarfund
bankans í gærkvöldi.
Aðspurður hvers vegna
aðstæður breytast svona
hratt núna segir Sigurður
að það ríki mikil tauga-
veiklun á mörkuðum.
Í fyrradag sagði Sig-
urður í yfirlýsingu til MarketWatch.com að
bankinn hefði laust fé til að standa við skuld-
bindingar sínar til næstu 360 daga. Í gær sagði
hann að Kaupþing hefði fengið stórt lán hjá
Seðlabanka Íslands til að mæta skuldbind-
ingum. Spurður hvort ekkert sé að marka
svona yfirlýsingar sagði hann: „Jú, jú. En það
er hins vegar þannig að þá erum við að taka
inn alls konar línur og alls konar laust fé. En
svo verður alveg rosaleg breyting á að-
stæðum.“
Er þá verið að loka á lánalínur íslensku
bankana?
„Já. Það er verið að loka línum á alla banka.
Ekki bara þá íslensku. Millibankamarkaður er
ekki til í dag, sem var meginstoðin í allri
bankastarfsemi bara fyrir sex til tólf mán-
uðum,“ sagði Sigurður.
Lán bankanna gjaldfellt í Evrópu
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins
hætti Seðlabanki Evrópu við að gjaldfella stór
lán Landsbanka Íslands og Kaupþings á
sunnudagskvöld. Var lán Landsbankans að
upphæð 500 milljónir evra og Kaupþings 800
milljónir evra. Það varð meðal annars til þess
að forsætisráðherra varð bjartsýnni á að staða
íslensku bankanna myndi batna. Hins vegar
fór allt á versta veg í gærmorgun eins og Sig-
urður staðfestir við Morgunblaðið.
„Nú mun það koma í ljós hverjar afleiðing-
arnar verða. Ég vil ekki tjá mig um það,“ sagði
hann aðspurður um áhrifin af samþykkt Al-
þingis á nýjum neyðarlögum um fjár-
málamarkaðinn.
Mistök að yfirtaka Glitni
Sigurður sagði að ef ríkið hefði ekki keypt
Glitni um síðustu helgi hefðu bankarnir ekki
fengið lækkun á lánshæfismati og aðstæður
hefðu því orðið allt aðrar. Hann sagðist þeirrar
skoðunar að það væri mjög varhugavert að
ríkið eignaðist 75% hlut í Glitni og sagðist vona
að það yrði ekki niðurstaðan á endanum. Þetta
kom meðal annars fram í viðtali við Kastljósið í
gær og ítrekaði hann orð sín í samtali við
Morgunblaðið. Aðgerðin væri afturkræf.
„Þetta er dýrasta lausn fyrir almenning í
landinu sem hægt er að hugsa sér,“ sagði Sig-
urður. „Miklar líkur eru á því að þegar þessir
84 milljarðar verða settir inn í bankann þá
verði þeir einfaldlega tapaðir.“
Lokað á lán til bankanna
Stjórnarformaður Kaupþings segir yfirtökuna á Glitni dýrustu lausnina
fyrir almenning Seðlabanki Evrópu gjaldfelldi lán íslensku bankanna
Sigurður
Einarsson
SIGURÐUR Einarsson, stjórnarformaður
Kaupþings, staðfesti í gærkvöldi að Kaupþing
hefði fengið lán hjá Seðlabankanum. Hann
sagði í samtali við Morgunblaðið að „engin
ástæða“ væri til að gefa upp hversu hátt lánið
væri. Í Kastljósi Sjónvarpsins sagði Sigurður að
lánið væri veitt gegn veði í mjög traustum eign-
um. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins
eru þessar eignir bréf í danska bankanum FIH,
sem er dótturfélag Kaupþings.
Athygli vakti að í þeirri útgáfu frumvarps
ríkisstjórnarinnar sem dreift var á Alþingi og
til fjölmiðla í gær var sérstakt bráðabirgða-
ákvæði til tveggja ára um að Seðlabanka Ís-
lands væri heimilt að eiga hlutabréf í danska
FIH bankanum. Skýrt var frá því að Seðlabank-
inn hefði veitt Kaupþingi lán gegn veði í danska
bankanum og því þyrfti að skjóta styrkari stoð-
um undir heimildir Seðlabankans til að eiga
hlut í honum ef Kaupþing gæti ekki staðið við
skuldbindingar sínar vegna lánsins. Í nýrri út-
gáfu frumvarpsins, sem var síðar dreift, hafði
þetta ákvæði hins vegar verið tekið út. Á blaða-
mannafundi gaf forsætisráðherra engar skýr-
ingar á því. thorbjorn@mbl.is / halla@mbl.is
Seðlabanki lánar
Kaupþingi gegn
veði í FIH