Morgunblaðið - 07.10.2008, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 07.10.2008, Qupperneq 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF Morgunblaðið/hag Landsbankinn Icesave, sem er innlánsreikningur bankans í Bretlandi, var lokaður tímabundið í gær vegna tæknilegra erfiðleika. kemur fram að vefur Icesave hafi glímt við tæknilega erfiðleika sem starfsmenn vefsins hafi síðan unnið bug á. The Times Online hefur eftir talskonu Icesave að erfiðleikar hafi verið með vefinn í gærmorgun en þeir eigi nú að vera komnir í lag. Talskonan bætti því við að 5 millj- arða punda innistæður um 200 þús- und breskra sparifjáreigenda séu tryggðar með samspili breskra og íslenskra innlánstryggingakerfa. thorbjorn@mbl.is / mbl.is FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ ákvað í gær að stöðva tímabundið viðskipti með alla fjármálagerninga sem gefnir eru út af Glitni, Kaupþingi, Landsbankanum, Exista, Straumi og SPRON. Ákvörðunin var tekin þar sem það var mat Fjármálaeft- irlitsins að jafnræði fjárfesta yrði ekki tryggt með öðrum hætti. Sparifjáreigendur sem ætluðu að taka fjármuni út af Icesave, bresk- um innlánsreikningi Landsbank- ans, gátu það ekki í gærmorgun. Í tilkynningu á vefsvæði Icesave Viðskipti stöðvuð og Icesave lokaður ÞETTA HELST ... ● LOKAÐ var fyrir viðskipti með hlutabréf í fjármálafyrirtækjum í Kauphöllinni á Íslandi í gær og setti það sitt mark á viðskiptin. Heildar- viðskipti námu 41,6 milljörðum króna. Þar af voru viðskipti með skuldabréf fyrir 40,3 milljarða en við- skipti með hlutabréf voru einungis fyrir um 1,2 milljarða króna. Úrvalsvísitalan lækkaði um 2,1% og er lokagildi hennar 3.060 stig. Mest viðskipti voru með hlutabréf Össurar, eða fyrir um 332 milljarða. Mest lækkun varð á hlutabréfum Atl- antic Petroleum, en þau lækkuðu um 22,1%. Þá lækkuðu bréf Bakka- varar um 13,2% og bréf Føroya banka um 6,7%. Ekkert félag hækk- aði í verði í Kauphöllinni í gær. gretar@mbl.is Lítil viðskipti í Kauphöllinni á Íslandi ● VEFÚTGÁFA breska dagblaðsins Times fjallaði í gærkvöldi um að nokkur hræðsla hefði gripið um sig í Bretlandi vegna þeirra vandræða sem íslensku bankarnir væru nú í. Bankarnir hefðu lánað mikið til þekktra breskra verslanakeðja og því væru margir óttaslegnir yfir því að hrun þeirra gæti leitt til brunaútsölu á breskum félögum. Heimildarmenn Times í Lundúnum sögðu að Baugur hefði átt viðræður um sölu einhverra eigna og hefði óskað eftir lánum gegn veðum í öðrum. Þar kom einnig fram að nokkur hundruð störf í fjármálahverfinu í Lundúnum væru háð íslensku bönk- unum. Singer & Friedlander bank- inn, dótturfélag Kaupþings, væri óformlega boðinn til sölu um þessar mundir og Teather & Greenwood verðbréfafyrirtækið, sem Lands- bankinn seldi nýlega til Straums, yrði líklega selt að nýju til nýrra fjárfesta. thorbjorn@mbl.is Hræðsla í Bretlandi vegna bankanna ● Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, IMF, hefur sent hóp, svokallað Fact- Finding-Team, til Íslands. Dow Jon- es-fréttaveitan segir talsmann sjóðs- ins hafa staðfest þetta í gær. Hann hafi ekki viljað tjá sig frekar um til- gang ferðarinnar. Hún er sögð farin í kjölfar þess að íslensk stjórnvöld leiti leiða til að bjarga efnahag Íslands. Í skýrslu framkvæmdastjórnar Alþjóðagjald- eyrissjóðsins frá því í september er tekið fram að íslenskt hagkerfi standi á erfiðum tímamótum vegna gífurlegrar þenslu undanfarin ár. Þá hafi alþjóðleg fjárhagsleg ókyrrð reynst Íslandi erfið. camilla@mbl.is Nefnd IMF komin ● MÁNUDAGUR 29. september. Tilkynnt er að ríkið kaupi 75% hlut í Glitni fyrir 600 milljónir evra. Þriðj- ungur gjaldeyrisvaraforða Seðlabank- ans verður nýttur til að fjármagna kaupin. Stoðir, einn stærstu hluthafa í Glitni, tilkynna um greiðslustöðvun í kjölfar fregnanna af þjóðnýtingu bankans. Ríkissjóður stefnir ekki að því að eiga hlut sinn í bankanum til langframa. Til- gangur með aðgerðinni sagður að tryggja stöðugleika í fjármálakerfinu hér á landi. Átta viðburðaríkir dagar í íslensku viðskiptalífi – frá þjóðnýtingu ● ÞRIÐJUDAGUR 30. september. Viðbrögð við þjóðnýtingu Glitnis koma í ljós. Jón Ásgeir Jóhannesson kallar að- gerðina bankarán um hábjartan dag. Hann segir Baug ekki standa höllum fæti þrátt fyrir greiðslustöðvun Stoða. Lokað er fyrir viðskipti í þremur skulda- bréfasjóðum Glitnis. Þorsteinn Már Baldvinsson, stjórn- arformaður Glitnis, gagnrýnir einnig kaupin. Úrvalsvísitalan féll um tæp 17% og réð þar mestu lækkun Glitnis. Láns- hæfismat ríkissjóðs auk allra bankanna er lækkað. Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is ERLENDAR eignir viðskiptabank- anna þriggja og Straums námu tæp- um 10.000 milljörðum króna um mitt ár miðað við upplýsingar í hálfsárs- uppgjörum bankanna. Eðlilega eru erlendar eignir mestar hjá Kaup- þingi og nema um 4.500 milljörðum króna. Erlendar eignir Glitnis eru um 2.620 milljarðar, erlendar eignir Landsbankans um 2.240 milljarðar og erlendar eignir Straums um 630 milljarðar króna. Eru þær um 65% af heildareignum bankanna fjög- urra, en hæst er hlutfallið hjá Kaup- þingi og Glitni, 68%, en lægst hjá Landsbankanum, 56%. Heildareignir bankanna fjögurra á Norðurlöndum nema um 3.600 milljörðum. Eignir á Bretlandi og Ír- landi nema um 2.300 milljörðum. Breytt staða Í júnílok var gengisvísitala krón- unnar 160,4 stig og má því gera ráð fyrir að erlendar eignir bankanna hafi hækkað við veikingu krónunnar, en gengisvísitalan endaði gærdaginn í 207,2 stigum. Er það 29,2% veiking á gengi krónunnar. Mjög er mismunandi hvernig rekstrartekjur bankanna dreifast landfræðilega, en erlendar rekstrar- tekjur Straums eru um 64% heildar- rekstrartekna. Þetta hlutfall er 50% hjá Glitni, 41% hjá Kaupþingi og 33% hjá Landsbankanum. Athuga ber að staðan hefur að sjálfsögðu breyst mikið frá 30. júní síðastliðnum. Helst ber þar að nefna samkomulag um kaup Straums á stórum hluta erlendra eigna Lands- bankans. Greiddi Straumur fyrir það 380 milljónir evra, andvirði um 55,4 milljarða króna á þávirði. Á kortinu sem hér fylgir eru þessar eignir merktar Straumi. Miklar eignir í útlöndum Í HNOTSKURN »Erlendar eignir bankannanámu 9.987 milljörðum króna um mitt ár. »Eiga bankarnir fjórirstarfsstöðvar, banka og fjármálafyrirtæki um allan heim. »Mestar eignir bankannaeru á Norðurlöndum og á Bretlandseyjum.  Stærstur hluti eigna á Norðurlöndum  Erlendar eignir 65% heildareigna      34056 78990: ; <=990 :; >?90 :; 6706 6=0:; 3=470: ; ;:@A= 9 0BC :D=45E= .D00:; E7E== 69F <F::0:;  %/  G/ 0, H2 3  9I% .  @  HF 5 <    J 2  , ;  60:; @2 J  2 404 2  : C*   2  0 C-  2  ; *5 ' *-5 2  ;  6 * * 2  /  (*  40 7 -5@ D>  2  4B 7 -5,  B 0 - D>  2 E7 0  : ( ( G7H I  G ( H ( 0C- J 0 - D>  ( 2- ' 2  - 7 -5,  (  - 7 -5,  L 7 -,,  B- :8IG7 - 5@ H 0 - D>  7 -5,  0-* -  MG0 -- H 0  : ( ( G7H 7 -5@ D>  ( 75  J 7 -5,  ( 75  J (  75 J 0  * ( ;    G0 - - H ( 75  J . *  ( ( 75  J N**( O* ' G0 - H K     L    0 ,   :MN 3:;=6 9F: 2 5 O* 5* * 7 -5, 1P * ( 75  J .  - 9:; 2  D0  * ;% ;   %& 7 -5,   7 -5,  -  2  D0  * D@C D@C      D@C L3C      ;M  : , O      <7 ;C      D@C8*' D@C1+         ● MIÐVIKUDAGUR 1. október. Gengisvísitalan rýfur 200 stiga múrinn. Kaupmáttur rýrnar jafnt og þétt. Fjár- lögin eru kynnt á Alþingi og er gert ráð fyrir 57 milljarða króna halla á rekstri ríkissjóðs. Straumur kaupir erlenda starfsemi Landsbankans. Sjóðir Glitnis opnaðir á ný. Kaupþing gagnrýnir Seðlabankann fyrir aðgerðaleysi í gjaldeyrismálum. Glitnir sendir frá sér afkomuviðvörun vegna 71% gengislækkunar á gengi bréfa í bankanum. Velta á skuldabréfa- markaði eykst. ● FIMMTUDAGUR 2. október. Krónan í frjálsu falli. Verulega hægir á gjaldeyrisviðskiptum með íslensku krónuna. Bankarnir hamstra það sem þeir eiga af gjaldeyri. Seðlabankinn tvöfaldar útgáfu inn- stæðubréfa til að reyna að styrkja gengi krónunnar. Geir H. Haarde flytur stefnuræðu sína á Alþingi og segir Glitniskaup ekki marka endapunkt í hremmingum sem steðji að íslensku bankakerfi. Aðgerða stjórnvalda er beðið með óþreyju. ● FÖSTUDAGUR 3. október. Þorsteinn Már Baldvinsson, stjórnar- formaður Glitnis, segist styðja kaup ríkisins á bankanum og hvetur hluthafa til að gera slíkt hið sama. Sáralítil velta er á millibankamark- aði. Gylfi Magnússon, dósent við Háskóla Íslands, segir að íslensku bankarnir og fjöldi fyrirtækja séu í reynd gjaldþrota. Mikil óvissa ríkir á meðal almenn- ings og örtröð er í bankaútibúum. Geir H. Haarde segir ríkið tryggja sparifjáreigendur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.