Morgunblaðið - 07.10.2008, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 2008 27
svo að því að fara heim til Reykja-
víkur aftur léstu mig hafa pening og
sagðir mér að fara að kaupa heil föt
en ekki föt sem héngju á nokkrum
spottum.
Börnin mín tala enn um það þegar
við fórum í sumarbústað við Apa-
vatn yfir páskana 2007 og þú og
Nóný frænka vöknuðuð fyrir allar
aldir og földuð lítil páskaegg úti í
skógi fyrir krakkana sem þau áttu
síðan að leita að, þetta var alveg
yndisleg og ógleymanleg ferð.
Elsku afi, þín verður sárt saknað
og það verður skrítið að hafa þig
ekki með í skötuveislunni okkar
núna um jólin. Guð geymi þig, afi
minn, og minningin um þig lifir í
hjarta mínu að eilífu.
Þitt barnabarn,
Rakel Dögg.
Elsku afi.
Við kveðjum þig með miklum
söknuði. Það er svo margt sem við
eigum þér að þakka. Þú vildir alltaf
leika við okkur í alls konar leikjum
þegar við vorum litlar og komum í
heimsókn. Þú varst alltaf að gera
eitthvað og aldrei varstu kyrr lengi.
Við þekktum fáa meiri bílakalla en
þig, þú varst oft í bílskúrnum að
dunda þér eitthvað við bílinn.
Það var alltaf staður fyrir okkur
hjá ykkur ömmu, við bjuggum t.d.
hjá ykkur í eitt ár þegar við vorum
að byggja húsið okkar, þá fóru þið
amma í herbergi niðri í kjallara en
létuð okkur hafa allt plássið á efri
hæðinni í Nökkvavoginum.
Við munum eftir mörgum afmæl-
um og jólum með þér, ein jólin
slökktir þú eldinn í kjólnum hennar
Maddýar þegar það kviknaði í hon-
um út frá kertaskreytingu og
brenndir þig á höndunum en þú
gerðir sem minnst úr því.
Það voru heldur ekki fáar ferðir
sem við öll fjölskyldan fórum saman
í bæði hérlendis og erlendis. Það
voru nokkrar hringferðir og sum-
arbústaðarferðir, en það er ótrúlegt
hvað það er hægt að troða mörgum í
einn pínulítinn sumarbústað ef vilj-
inn er fyrir hendi. Þú varst oft langt
á undan okkur hinum þegar við fór-
um eitthvað út að labba til að skoða
okkur um, þér lá svo mikið á, það er
gott að eiga góðar minningar og það
eigum við.
Takk fyrir að vera afi okkar, við
elskum þig.
Þínar,
Vera Ósk og Magnea Dís.
Afi okkar er dáinn, okkur þykir
vænt um hann.
Afi gaf okkur rakettur um ára-
mótin og flöskur til að fara með í
Sorpu, afi fór með okkur í sveitina.
Hann veiktist í ágúst og dó í sept-
ember.
Hann var langbesti afi í heimi og
við munum sakna hans
Bæ, besti afi í heimi. Við munum
sakna þín. Takk fyrir að vera góður
við okkur.
Í bljúgri bæn og þökk til þín,
sem þekkir mig og verkin mín.
Ég leita þín, Guð leiddu mig
og lýstu mér um ævistig.
Ég reika oft á rangri leið,
sú rétta virðist aldrei greið.
Ég geri margt, sem miður fer,
og man svo sjaldan eftir þér.
Sú ein er bæn í brjósti mér,
ég betur kunni þjóna þér,
því veit mér feta veginn þinn,
að verðir þú æ Drottinn minn.
(Pétur Þórarinsson.)
Hrafnhildur María Egilsdóttir,
Guðjón Þór Egilsson.
Elsku Sigurjón. Margar eru
minningarnar sem við eigum um þig
og þessa stundina eru þær mikils
virði. Mikill er missir fjölskyldunnar
og þeirra sem næstir honum stóðu
og þungbær er sorgin, en Drottinn
hefur kallað til sín öflugan liðsmann
sem hefur nú verið ætlað stærra
hlutverk í víðáttum handan okkar
heims.
Við sem eftir lifum fáum það erf-
iða verkefni að glíma við sorgina og
sætta okkur við orðinn hlut, en
minningin um þennan góða mann
lifir í hjörtum okkar alla tíð.
„Einstakur“ er orð
sem notað er þegar lýsa á
því sem engu öðru er líkt,
faðmlagi
eða sólarlagi
eða manni sem veitir ástúð
með brosi eða vinsemd.
„Einstakur“ lýsir fólki
sem stjórnast af rödd síns hjarta
og hefur í huga hjörtu annarra.
„Einstakur“ á við þá
sem eru dáðir og dýrmætir
og hverra skarð verður aldrei fyllt.
„Einstakur“ er orð sem best lýsir þér.
(Terri Fernandez.)
Við og fjölskyldur okkar viljum
votta Lillý, Sirrý, Guðjóni, Kötu,
Ingu, Nóný og öllum ættingjum
dýpstu samúð okkar.
Jónína Jóhannesdóttir og Sigrún
Heiða Pétursdóttir.
Síminn hringir á laugardags-
morgni. Hressileg rödd segir: Eruð
þið ekki vöknuð og búin að laga
kaffið? Ég er á leiðinni. Auðvitað er
stokkið upp og kaffið lagað, stírurn-
ar nuddaðar úr augunum og blöðin
rifin úr lúgunni.
Siggi mættur, hress að vanda. Bú-
inn að fara í morgungönguna, keyra
á bílasölurnar og jafnvel þvo bílinn
líka á meðan aðrir sváfu. Síðan er
sest niður með kaffibollann og rætt
um menn og málefni, bíla og fót-
bolta. Svo er hann rokinn – aldrei
stoppað of lengi.
Það voru skemmtilegir tímar þeg-
ar við hittumst í útilegum ásamt
fleiri fjölskyldumeðlimum. Ófáir
morgnarnir sem við vöknuðum við
að verið var að hrista stögin og slá í
potta fyrir utan fellihýsið. Morgun-
ræsið hjá Sigga bróður á sínum
stað.
Við bræðurnir vorum báðir dug-
legir við að skipta um bíla og yf-
irleitt var það fyrsta verk okkar að
heimsækja hvor annan þegar nýr
bíll hafði verið keyptur. Síðustu
kvöldin sem við gátum rætt saman á
spítalanum fóru í umræður um nýj-
ustu bílakaupin, áhuginn var enn
fyrir hendi þótt fárveikur væri. Það
var aðdáunarvert að sjá og heyra
hann helsjúkan gera grín að spít-
aladvölinni og létta þannig ástvinum
þessar erfiðu stundir.
Þegar Siggi kom í morgunkaffi
rétt áður en við fjölskyldan skrupp-
um í sumarfrí í lok júlí grunaði eng-
an að þar færi ekki fullfrískur mað-
ur. Viku síðar var hann kominn inn
á spítala og ekki varð við neitt ráðið.
Stríðið var stutt en snarpt.
Við bræðurnir drekkum ekki
saman fleiri kaffibolla við eldhús-
borðið en minningarnar verða okkur
sem eftir sitjum dýrmætar.
Hvíl í friði, kæri bróðir.
Jón Ingi og fjölskylda.
Elsku Siggi minn. Það er erfitt að
skrifa minningargrein um þig því ég
vildi hafa þig svo miklu lengur hjá
okkur. Við vorum í sumar að tala um
að þú kæmir til mín um jólin og
værir hér hjá okkur í Skopun. Þú
þekktir svo vel til hér eftir að þú
bjóst hér úti í 1 ár og mikið var þá
gaman að hafa þig hér í nágrenninu.
Þú varst alltaf svo hress og
skemmtilegur, prakkari en þó róleg-
ur og kurteis. Þú varst vinnusamur
og vildir allt fyrir mig og mína fjöl-
skyldu gera. Þú gafst mér einu sinni
íslenska fánann og sagðir að ég yrði
að eiga fána þar sem ég byggi svo
langt frá landinu. Fáninn er alltaf
dreginn að húni hjá okkur 17. júní.
Tryggð þín sést vel á því að nær alla
starfsævi þína vannstu hjá Síman-
um.
Elsku bróðir, ég mun sakna þín
svo mikið. Þó fjarlægðin væri mikil
á milli okkar áttum við margar góð-
ar stundir saman bæði heima og hjá
okkur í Færeyjum. Þér fannst svo
gaman að hafa fengið litla frænku
hér í Færeyjum á afmælisdaginn
þinn og ber hún nafn móður okkar.
Krakkarnir mínir, Ebbe og ég eig-
um svo góðar minningar um þig og
við viljum þakka þér fyrir allt og
biðja Guð um að styrkja börnin þín
og fjölskyldur.
Núna líður þér vel Siggi minn,
kominn í betri heim og laus við alla
verki. Þú óskaðir þess að fá að hvíla
hjá pabba og mömmu í Fossvogs-
kirkjugarði svo núna eruð þið öll
saman, vinurinn minn. Ég bið Guð
að lýsa þér leið kæri bróðir og ást-
arþakkir fyrir allt. Endurfundirnir
verða sælir. Þér þótti svo vænt um
þennan sálm sem ég enda þetta
með. Hvíl þú í friði elsku bróðir,
mágur og frændi. Blessuð sé minn-
ing þín.
Sofanda sýndu þá
sólstigans braut
upp í þitt eilífa
alföðurskaut.
Hljómi svo harpan mín:
Hærra, minn Guð, til þín,
hærra til þín.
(Matthías Jochumsson)
Þín systir,
Kristín Inga og fjölskylda.
Við viljum minnast Sigurjóns
Ingimarssonar símsmiðs og síðar
eftirlitsmanns hjá jarðsímadeild
Símans.
Við yngri kynslóð símamanna á
jarðsímadeildinni kynntumst Sigur-
jóni er hann fluttist til Reykjavíkur.
Hann hafði verið búsettur á
Hvammstanga og unnið þar og á
Blönudósi við viðgerðir og nýlagnir
ásamt ýmsu öðru er til féll hjá
Landssíma Íslands, áður hafði hann
unnið hjá bilanadeild, 05 hjá sama
fyrirtæki í Reykjavík. Við kynnt-
umst strax glaðlyndum og lífsglöð-
um manni sem sjaldan gat verið
kyrr. Þurfti alltaf að hafa nóg fyrir
stafni og verkefni til að leysa. Enda
kom það á daginn þegar stóru verk-
efnin, við endurnýjun gatnakerfis
borgarinnar og lagningu breiðbands
símans byrjuðu, þá sá Sigurjón um
samskipti við verktaka og veitur
borgarinnar af miklum dugnaði og
myndarskap. Það var eftir því tekið
hve vel hann leysti flókin og vanda-
söm verkefni sem fylgdu þessum
verkum.
Það var gaman að vinna með Sig-
urjóni. Við strákarnir gátum alltaf
leitað til hann með vandamál og og
hann liðsinnti og aðstoðaði okkur á
sinn glaðværa hátt. Við viljum
þakka þér, Sigurjón, fyrir þau ár
sem þú varst með okkur.
Eiginkonu og fjölskyldu Sigur-
jóns vottum við samúð okkar.
Sigurgeir Ólafsson,
Sigurður Lúther Björgvinsson,
símamenn.
Gættu þess vin, yfir moldunum mínum
að maðurinn ræður ei næturstað sínum.
Og þegar þú hryggur úr garðinum gengur
ég geng þér við hlið þó ég sjáist ei lengur.
En þegar þú strýkur burt tregafull tárin
þá teldu í huganum yndisleg árin.
Sem kallinu gegndi ég kátur og glaður
það kæti þig líka, minn samferðamaður
( James Mc Nulty.)
Þökkum innilega samstarf liðinna
ára.
Sendum börnum hins látna og
fjölskyldum þeirra okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur.
F.h. fyrrum samstarfsfólks Pósts
og síma, Hvammstanga,
Ögn Magna Magnúsdóttir.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
INGIBJÖRG ANTONÍUSDÓTTIR,
Borgarlandi 5,
Djúpavogi,
lést á hjúkrunarheimilinu Hornafirði laugardaginn
4. október.
Útförin fer fram frá Djúpavogskirkju laugardaginn
11. október kl. 14.00.
Jarðsett verður í Beruneskirkjugarði.
Hanna Antonía Guðmundsdóttir,
Hjálmar Guðmundsson,
Hreinn Guðmundsson,
Birgir Guðmundsson, Anna Sigrún Gunnlaugsdóttir,
Stefán Guðmundsson, Gústa Þórlaug Svavarsdóttir,
Jónína Guðmundsdóttir, Jón Karlsson,
Kristján S. Guðmundsson, Elva Sigurðardóttir,
Karl E. Guðmundsson, Þórlaug Másdóttir,
Guðmundur I. Guðmundsson, Oddný Dóra Stefánsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma, lang-
amma og langalangamma,
SIGRÍÐUR E. G. BIERING,
Árskógum 2,
lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ laugardaginn
4. október.
Útförin fer fram frá Seljakirkju fimmtudaginn
16. október kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á minning-
arsjóð Skógarbæjar.
Helga E. Biering, Sveinn B. Pedersen,
Moritz W. Biering, Sidsel Eriksen,
Guðrún Biering, Hrafn Björnsson,
Bertha Biering,
Louise Biering,
ömmubörn, langömmubörn og
langalangömmubörn.
✝
Okkar ástkæra
ÞÓRDÍS SIGURÐARDÓTTIR
ljósmóðir,
Merki,
Borgarfirði eystra,
lést fimmtudaginn 2. október á Sjúkrahúsinu
Egilsstöðum.
Útför hennar fer fram frá Egilsstaðakirkju
föstudaginn 10. október kl. 12.00.
Kveðjustund verður í Bakkagerðiskirkju kl. 14.30
og jarðsett í Bakkagerðiskirkjugarði.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á
Sjúkrahúsið Egilsstöðum.
Unnar Heimir Sigursteinsson, Sigurborg Sigurðardóttir,
Jón Þór Sigursteinsson, Svava Herdís Jónsdóttir,
Einar Sigurður Sigursteinsson, Sigrún Birna Grímsdóttir,
Grétar Smári Sigursteinsson, Gunnhildur Imsland,
ömmu- og langömmubörn.
✝
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
GUÐNÝ SVEINBJÖRG SIGURÐARDÓTTIR
frá Miðhúsum, Eiðaþinghá,
Kirkjustíg 8,
Eskifirði,
andaðist laugardaginn 4. október.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Guðný Sigríður Hallgrímsdóttir, Sigmar Hjartarson,
Kristrún Hallgrímsdóttir, Hjörleifur Alfreðsson,
Soffía Hallgrímsdóttir,
Ólafur Hallgrímsson, Vilma Lillý Peña de Hallgrímsd.,
Brynjólfur Einar Sigmarsson og Sigríður Sigmarsdóttir,
Birna Þorbjörg Hjörleifsdóttir,
Lilja Íris Friðjónsdóttir og Perla Ósk Friðjónsdóttir,
Sara Ósk Ólafsdóttir og Ísabella Sif Ólafsdóttir.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug
vegna andláts og útfarar okkar ástkæra
ELÍSAR KJARAN FRIÐFINNSSONAR.
Innilegt þakklæti til starfsfólks Caritas Ísland og
dvalarheimilisins Tjarnar á Þingeyri.
Aðstandendur.
MOSAIK Hamarshöfða 4 - 110 Reykjavík
sími 587 1960 - www.mosaik.is
Legsteinar og fylgihlutir
Vönduð vinna og frágangur
Yfir 40 ára reynsla
Sendum myndalista