Morgunblaðið - 07.10.2008, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 07.10.2008, Qupperneq 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ / KRINGLUNNI/ ÁLFABAKKA PATHOLOGY kl. 8 - 10:20 B.i. 16 ára HAPPY GO LUCKY kl. 8 - 10:20 B.i. 12 ára WILD CHILD kl. 6 LEYFÐ JOURNEY TO THE C... kl. 8:103D LEYFÐ 3D - DIGITAL GEIMAPARNIR m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ SMART PEOPLE kl. 6 B.i. 12 ára DARK KNIGHT kl. 10:10 B.i. 12 ára TROPIC THUNDER kl. 8 - 10:20 B.i. 16 ára CHARLIE BARTLETT kl. 8 - 10:20 B.i. 12 ára DEATH RACE kl. 10:10 B.i. 16 ára STAR WARS: C. W. kl. 5:50 LEYFÐ WALL • E m/ísl. tali kl. 5:50 LEYFÐ PATHOLOGY kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 16 ára PATHOLOGY kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára LÚXUS VIP WILD CHILD kl. 5:50 - 8 - 10:10 LEYFÐ GEIMAPARNIR m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ JOURNEY TO THE C... kl. 5:50 3D LEYFÐ 3D - DIGITAL SVEITABRÚÐKAUP kl. 5:50 - 8 LEYFÐ SVEITABRÚÐKAUP kl. 5:50 LEYFÐ LÚXUS VIP SÝND Í ÁLFABAKKASÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI SÝND Í KRINGLUNNI SÝND Í KRINGLUNNI - S.V. MORGUNBLAÐIÐ SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI -BBC -HJ.,MBL JÁKVÆÐASTA MYND ÁRSINS MYND SEM ÞÚ VERÐUR AÐ SJÁ Sally Hawkins sem fékk Berlínabjörninn fyrir besta leik skapar hina eftirminnilegu Poppy sem sér heiminn alltaf jákvætt Mike Leigh leikstjóri Secrets & Lies og Veru Drakeer meistari í persónusköpun VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA HVERNIG MYNDI LÆKNANEMI FRAMKVÆMA HIÐ FULLKOMNA MORÐ!? ATH. STRANGLEGA BÖNNUÐ INNAN 16 ÁRA. EINHVER HROTTALEGASTA SPENNUMYND SÍÐARI ÁRA, Í ANDA HINNA MÖGNUÐU FLATLINERS -TOMMI - KVIKMYNDIR.ISS.V. - MORGUNBLAÐIÐ - S.V., MBL - Ó.H.T., RÁS 2 - 24 STUNDIR - B.S., FBL KVIKMYNDAHÁTÍÐIN RIFF bauð upp á ansi áhugaverða kvik- myndasýningu sl. helgi þar sem hljómsveitin Hjaltalín auk Ben Frost fluttu eigin tónlist við 88 ára gamla þögla kvikmynd. Myndin er jafnframt sú fyrsta sem tekin er upp hér á landi, nánar tiltekið á Keldum á Rangárvöllum, og skartar há- íslensku svarthvítu landslagi. Í prentuðum fjölmiðlum mátti lesa að tónlistarmenn höfðu úr ansi litlum tíma að moða til að semja tónlist við rúmar tvær klukkustundir af leiknu efni, og er þó aðeins um að ræða fyrri hluta kvikmyndarinnar. Þekkt er að tónsetning þögulla mynda get- ur tekið marga mánuði, jafnvel nokkur ár. Að lokinni mjög ýtarlegri lýsingu Jóns Ynga Jóhannssonar á tilurð og sögu myndarinnar hófst sýningin. Tónlistarflutningur var „lifandi“ og upptekinn í bland og var einskonar samansafn af hefðbundnu poppi, nú- tímatónlist, rokki og öðrum hljóðum. Kvikmyndin var þar að auki ekki tónsett með hefðbundnum hætti og persónur því t.a.m. ekki auðkenndar með ákveðnu hljóðfæri eða stefi, eins og við eigum að venjast. Nokk- ur stefjanna heyrðust reyndar end- urtekin undir ákveðnum kring- umstæðum, t.d. uppörvandi heimfararstef Ormars unga, en það virkaði ekki mjög kerfisbundið. Að- draganda hápunktanna var loks gert hærra undir höfði en hápunktunum sjálfum, þá ríkti þögnin ein. Þetta átti t.a.m. við í einu lokaatriði mynd- arinnar þegar Örlygur gengur til kirkju ásamt Ormari í brjálæðislegri hljóðhysteríu, og afhjúpar svo sann- leikann um illa innrættan son sinn, Ketil, í algerri þögn. Tónlist Hjaltalín hélt sérkennum sínum í samstarfi sínu með Ben Frost og voru fiðlan, fagottið, hið síáheyrilega píanó og gítarinn fram- arlega í tónlistarhrærigrautnum. Inn á milli heyrðust upptökur af meistaralegum strengjaútsetn- ingum, t.d. þegar Ormarr fékk útrás fyrir tilfinningar sínar á fiðluna. Þá heyrðust einnig viðeigandi valsa- og dægurlagarispur 3. áratugarins á fölsku píanói, oft með fiðlu, t.d. þeg- ar Örlygssynir athöfnuðu sig í Kaup- mannahöfn. Gæði innihalds myndarinnar voru nokkuð mikil þrátt fyrir gjör- breyttan tíðaranda í dag. Ólíklegt er að áhorfendur frumsýningarinnar árið 1920 hafi hlegið hátt þegar Ormarr strauk vömbina á pabba sín- um ótt og títt eða þegar gamall karl sturtaði neftóbaksdollu í nösina. Þetta kætti hinsvegar nútímamann- inn sl. helgi og uppskar hlátrasköll úr sal. Þá virðist dramatísk vinsun í atburðarás ekki hafa verið mikil þar sem sum atriði voru hreinlega óþörf og gerðu myndina allt að því lang- dregna, a.m.k. miðað við nútíma- staðla. Hjaltalín og Ben Frost náðu þó að spila ansi vel úr efniviðnum og mögnuðu oft upp atriði myndarinnar með eftirminnilegum hætti, t.a.m. með djöfulgangi og óhljóðum þegar Ketill steig fyrst upp í predik- unarstólinn. Það var samt eins og það vantaði aðeins upp á heildarsýn, heildarpæl- ingu frá upphafi til enda, og virkaði því tónlistin oft aðeins of tilvilj- unarkennd. Þetta hefði ekki verið nokkurt vandamál hefði myndin ekki verið eins löng og tempó mynd- arinnar ekki jafn „hæg“ og raunin var. Tónleikarnir voru þó stórlega vel heppnaðir miðað við þann stutta tíma sem hljómsveitin hafði til um- ráða. Sannreynist sem áður að með góðri samvinnu má færa fjöll úr stað, vonandi taka ráða- og fjár- málamenn þjóðarinnar sér það til fyrirmyndar. Mögnuð melódramatík TÓNLIST Bæjarbíó, Hafnarfirði Kvikmyndatónleikarbbbmn Kvikmyndatónleikar: Hjaltalín og Ben Frost fluttu frumsamda tónlist við 1. hluta Sögu Borgarættarinnar, danska kvikmynd byggða á samnefndri skáld- sögu Gunnars Gunnarssonar. Laugardag- inn 3. október 2008 kl. 20. Morgunblaðið/hag Blanda „Tónlistarflutningur var „lifandi“ og upptekinn í bland, og var einskonar samansafn af hefðbundnu poppi, nútímatónlist, rokki og öðrum hljóðum,“ segir Alexandra Kjeld meðal annars um kvikmyndatónleika Hjaltalín. Alexandra Kjeld ÞAÐ kom mörgum í opna skjöldu að Rick Astley skyldi komast á lista yfir þá sem koma til greina þegar besti tón- listarflytjandi fyrr og síðar verður valinn á verðlaunaaf- hendingu MTV sjónvarpsstöðv- arinnar í Evrópu í næsta mánuði. Astley átti nokkrum vin- sældum að fagna á níunda ára- tugnum, þá sérstaklega með lag- inu „Never Gonna Give You Up,“ en lítið hefur spurst til hans síð- ustu ár. Síðustu vikur og mánuði hefur kastljósið þó beinst aftur að Astley vegna brandara sem gengið hefur á netinu. Grínið gengur út á það að láta grunlaust fólk smella á hlekki sem leiða það á mynd- bandið að helsta slagara Astleys, en telja því trú um að eitthvað allt annað bíði handan við smellinn. Þar sem tilnefningar voru valdar með netkosningu hafa fjölmargir nýir aðdáendur Astleys á netinu fylkt liði um sinn mann og nú er bara að bíða og sjá hvort það skil- ar honum alla leið. Astley með- al þeirra allra bestu Rick Astley FYRIRSÆTAN og fjöllistakonan Paris Hilton seg- ist nú hafa snúið baki við því villta líferni sem hún stundaði áður og nú sé dæmigert kvöld hjá henni og kærastanum Benji Madden á þá leið að þau horfi saman á bíó- myndir og hún eldi fyrir þau mat. Hún sagði spjallþáttastjórnand- anum Ellen DeGeneres að ítalskur matur væri oftast á boðstólum því hún hefði verið alin upp við þess háttar matargerð. „Líf mitt hefur tekið algerum stakkaskiptum. Við förum ekki út á lífið nema í tengslum við vinnuna. Mér líður eins og ég sé orðin full- orðin. Þegar maður er einhleypur er þetta allt annað, þá vill maður bara fara út með vinkonunum og skemmta sér. En þegar maður verður ástfanginn sér maður engan tilgang með því lengur og vill bara vera heima hjá sér,“ sagði Hilton. Vill bara vera heima Paris Hilton

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.