Morgunblaðið - 07.10.2008, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 2008 41
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
EIN FLOTTASTA ÆVITÝRAMYND ÁRSINS MEÐ
ÍSLENSKU LEIKKONUNNI ANÍTU BRIEM Í EINU
AF AÐALHLUTVERKUNUM.
/ SELFOSSI/ KEFLAVÍK/ AKUREYRI
BABYLON A.D. kl. 8 - 10 B.i. 16 ára
WILD CHILD kl. 8 LEYFÐ
CHARLIE BARTLETT kl. 10 B.i. 12 ára
ÍSLE
NSK
T TA
L
FRÁ MANNÖPUNUM
SEM FÆRÐU OKKUR
SHREK
FRÁBÆR FJÖLSKYLDUMYND
ÞAR SEM ALLIR SKEMMTA
SÉR KONUNGLEGA.
EMMA ROBERTS ER
NÝJA STELPAN, Í
NÝJA SKÓLANUM
ÞAR SEM NÝJU
REGLURNAR ERU
TIL VANDRÆÐA!
EIN BESTA MYND ÁRSINS!
SÝND Í ÁLFABAKKA
-DV
-S.V., MBL
SÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í KRINGLUNNI SÝND Í KEFLAVÍK
REYKJAVÍK ROTTERDAM kl. 8 - 10:10 B.i. 14 ára
PINEAPPLE EXPRESS kl. 8 B.i. 16 ára
MIRRORS kl. 10:20 B.i. 16 ára
KRINGLUNNI, AKUREYRI OG SELFOSSISÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
SÝND Í ÁLFABAKKA, 20% afsláttur af miðaverði sé greittmeð greiðslukorti Vildarklúbbs Glitnis
“AFRAKSTURINN ER MÖGNUÐ
MYND Í ALLT ÖÐRUM GÆÐAFLOKKI
EN NOKKUR ÍSLENSK SPENNUMYND
(EÐA ÞÁTTARÖÐ) HINGAÐTIL.”
-B.S., FRÉTTABLAÐIÐ
“MÖGNUÐ MYND SEM HELDUR
ÁHORFENDUM ALLANTÍMANN”
-S.M.E., MANNLÍF
“REYKJAVÍK ROTTERDAM ER ÁVÍSUN UPP Á
ÚRVALSSKEMMTUN”
-DÓRI DNA, DV
SÝND Í KEFLAVÍK OG SELFOSSI
SÝND Í KEFLAVÍK
REYKJAVÍK ROTTERDAM kl. 8 - 10:10 B.i. 14 ára
WILD CHILD kl. 10:10 LEYFÐ
HEAVY METAL IN BAGHDAD kl. 8 riff kvikmyndahátíð
ÞAÐ er merkilegt að Þjóðleik-
húsið skuli einmitt á þessu kvöldi,
þessari ögurstundu í lífi þjóð-
arinnar, frumsýna tilbrigði við eitt
af snilldarverkum Sjeikspírs, Mak-
beð; leikritið um Makbeð og lafði
Makbeð, sem notfæra sér upp-
lausn lénsskipulagsins í eigin
þágu, skirrast einskis til að kom-
ast til valda, koma á ógnarstjórn
þar sem allir lifa í ótta, martröð –
mest þó þau sjálf, níðingarnir sem
falla loks á eigin bragði í rústum
af landi, samfélagi.
Það er í nýrri „leikhúsrannsókn-
arstofu“ á Smíðaverkstæðinu sem
verkið er flutt. Ástæða er til að
lýsa ánægju yfir að loks hafi óskir
leikhússfólks gegnum áratugi um
slíka stofu ræst.
Þessi fyrsta tilraun er nokkurs
konar hraðferð gegnum atburða-
rás Makbeðs. Sumu hefur verið
hent út, öðru hnikað; margt virðist
vera m.a. undir áhrifum tékkneska
leikhúsfræðingsins Jan Kott en sá
sagði (1964) til dæmis: „Allir í
þessu leikriti eru gegnblautir af
blóði; fórnarlömb jafnt sem morð-
ingjar. Allur heimurinn er þakinn
blóði. Blóðið í Makbeð er ekki
bara myndlíking; það er raunveru-
legt blóð sem flýtur úr þeim
myrtu; það skilur eftir merki sitt
á höndum og andlitum.“ Sami
maður fullyrti einnig að það væri
einungis eitt þema í Makbeð:
Morð. Og morðið er þungamiðja
þessarar sýningar þar sem bæði
áhorfendur og leikendur sitja eða
standa utan um hrátt leikrýmið
sem lýst er upp af ljósaperum
pyntingaklefa og eltiljósum fang-
elsa eða hverfur í myrkur þeirrar
nætur sem leggst yfir flestar sen-
ur Makbeðs fullt af martrað-
arhljóðum stundum einungis and-
ardrætti; búningar eru í
hefðbundnum póstmódernískum
stíl – við vitum ekki hvaðan eða
hvaða fólk þetta er. Það er hraði í
sýningunni, sem leyfir ekki að
horft sé á orsakir fyrir athöfnum,
togstreitu, margræði persóna, eða
kafað sé ofan í samband Makbeðs
og lafði Makbeð (og ansi er þáttur
hennar gerður lítfjörlegur hjá
strákunum). Þess vegna gríp ég
ekki hvað er verið að sýna mér
með ýmsum sniðugum lausnum í
anda bíósins og öllum þessum
morðum og blóði. Kannski er held-
ur ekki verið að sýna mér neitt;
kannski skipti ég áhorfandinn ekki
nokkru máli frekar en texti Sjeik-
spírs, aðalmáli skiptir sennilega
heiðarleg tilraun leikarans til að
sýna að hann geti tekið að sér öll
hlutverkin í leikhúsvinnunni. Það
er vafalaust ódýrara fyrir leik-
húsið og skemmtilegra um stund-
arsakir fyrir leikarann. En hætt
er við að þegar leikritahöfund-
urinn, leikstjórinn og leik-
myndateiknarinn liggja allir dauð-
ir í valnum, samhygð ólíkra þátta
leikhússamfélagsins hverfi, verði
leikhúsið hvorki lýðræðislegra né
betra – eða hvernig fór fyrir hin-
um sjálfhverfa Makbeð?
Í miðri sláturtíð
LEIKLIST
Þjóðleikhús
Eftir William Shakespeare. Þýðing: Matt-
hías Jochumsson. Leikstjórn og leik-
mynd: Stefán Hallur Stefánsson, Vignir
Rafn Valþórsson. Dramatúrg Karl Þor-
bergsson, Tobias Munthe. Tónlist og
hljóðmynd: Albert Finnbogason. Bún-
ingar: Judith Amalia Jóhannsdóttir. Lýs-
ing : Hanne Kayhko, Stefán Hallur Stef-
ánsson. Leikarar: Baldur Trausti
Hreinsson, Edda Björg Eyjólfsdóttir, Elma
Lísa Gunnarsdóttir, Jörundur Ragn-
arsson, Ólafur Egill Egilsson, Pattra
Sriya, Rúnar Freyr Gíslason, Sigurður
Hrannar Hjaltason, Stefán Hallur Stef-
ánsson, Valur Freyr Einarsson, Vigdís
Hrefna Pálsdóttir, Vignir Rafn Valþórs-
son. Smíðaverkstæðið, 5.október 2008
kl. 20.00
Makbeð
Morgunblaðið/Golli
Blóðbað „Blóðið í Makbeð er ekki bara myndlíking; það er raunverulegt blóð sem flýtur úr þeim myrtu…“
María Kristjánsdóttir
ÞAÐ koma svo afskaplega
áhugaverðir hlutir frá Japan og
alltaf dettur þeim eitthvað nýtt
og skemmtilegt í hug.
Í síðustu viku fór fram í Tókýó
tískuhátíð tileinkuð goth, lólítu
og pönk-tískustraumunum og má
líklega ganga svo langt að full-
yrða að hvergi í heiminum megi
finna aðra eins blöndu.
Tískuveislan er með réttu
nefnd upp á ensku Individual
Fashion Expo, sem á íslensku
gæti útlagst sem Tískusýning
hins persónulega smekks, en við-
burðurinn var nú haldinn í sjötta
sinn. asgeiri@mbl.is
Breskt pönk Aðskorin föt og
breski þjóðfáninn mynduðu mót-
vægi við rjómatertustílinn á Ló-
lítunum japönsku.
Dúkkulísa Lólítustíllinn finnst
nær eingöngu í Japan og sækir í
barnafatnað rokkókó og viktórí-
anska tímabilsins.
Kríli Það er ekki óalgengt í Lól-
ítu-stílnum að nota tuskubangsa
og önnur leikföng til skrauts.
Pönk-krútt-
in taka yfir
Tókýó
Lólítur Sýningargestir voru ekki síður skrautlega klæddir.