Morgunblaðið - 17.10.2008, Side 10

Morgunblaðið - 17.10.2008, Side 10
10 FÖSTUDAGUR 17. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ Sorry fellow, þið verðið að fara í útrásina án handleiðslu minnar í þetta skipti, nú þarf ég að vera heima til að leiða og hugga þjóð mína eftir allt útstáelsið. Fyrr á árinu bar talsvert á kenn-ingum um að aðild Íra að Mynt- bandalagi Evrópu væri að kollsigla írskt efnahagslíf. Margir töldu að Seðlabanki Evrópu tæki ekkert tillit til sérstakra aðstæðna Íra við mótun peningastefnunnar.     Í gær birti Reut-ers-fréttastof- an viðtal við Bri- an Cowen, forsætisráðherra Írlands, sem sagði þar aðild landsins að Evr- ópusambandinu hafa bjargað Ír- landi frá sömu ör- lögum og Ísland tekst nú á við í efna- hagsmálum.     Í efnahagslegu tilliti væri Írland ímiklu verri stöðu ef landið hefði ekki verið aðili að Evrópusamband- inu og þannig notið góðs af aðgerð- um Seðlabanka Evrópu á undan- förnum vikum og mánuðum,“ sagði Cowen.     Aðgangurinn að Seðlabanka Evr-ópu er miklu sterkari stoð held- ur en seðlabanki Írlands eða Íslands. Það liggur í augum uppi,“ sagði for- sætisráðherrann sömuleiðis.     Ég vil ekki til þess hugsa að staðanhjá okkur væri eins og hjá þeim [Íslendingum], með okkar eigin myntkerfi,“ bætti Cowen við.     Líklega er forsætisráðherra Ír-lands nokkuð dómbær á þetta.     Það þýðir lítið núna að tala um aðÍslandi hefði farnazt betur ef það hefði verið í Evrópusambandinu og notað evru.     En það er kannski ástæða til aðskoða málið þegar leitað er leiða til lengri tíma til að hindra að saga síðustu vikna á Íslandi endurtaki sig. STAKSTEINAR Brian Cowen Smáþjóð í myntbandalagi                      ! " #$    %&'  (  )                       *(!  + ,- .  & / 0    + -                     !"" #"  #   "" #"  # $#"" #"  #   12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (   %  & '%      !    !  " " (     !  " " (       :  3'45 ;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@ ).? &#& #    #& # &# # #  # # # # #& # #% # # # #&#                       *$BC                     *! $$ B *! ) $ * " "$ "      + <2 <! <2 <! <2 ) *  ",  ( -".  / D!-            B  E" 2  !"    #$"   %     &  ' (  *   )  * * %    ('        +  , +  *   /      - .    . -)      /   ,#     ) 0   " 01""22 ""3   ",  ( SIGURÐUR Sverrisson hefur verið ráðinn í starf forstöðu- manns upplýs- inga- og kynning- armála hjá Landssambandi íslenskra útvegs- manna. Tók hann til starfa 1. októ- ber sl. Umsækj- endur um starfið voru 128. Sigurður er 51 árs gamall. Hann útskrifast nú í haust með MSc-gráðu í almannatengslum frá University of Stirling í Skotlandi. Hann hóf störf við blaðamennsku árið 1978 og hefur nánast allan sinn starfsferil unnið við fjölmiðlun og almannatengsl. „Mér líst mjög vel á starfið og þetta er spennandi áskorun fyrir mig,“ segir Sigurður. Hann er alinn upp í miklum útgerðarbæ, Akranesi, og hefur því kynnst útgerð og fisk- vinnslu. Hann sá um útgáfumál hjá Haraldi Böðvarssyni og co. á Akra- nesi um tíma, en hefur að öðru leyti ekki starfað á þessum vettvangi. Sig- urður segist vera í óðaönn að setja sig inn í starfið og skipulag innan LÍÚ. sisi@mbl.is Miðlar upp- lýsingum um útgerð Sigurður Sverrisson ráðinn til LÍÚ Sigurður Sverrisson Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is VIÐRÆÐUR milli Reykjavíkurborgar og SÁÁ um að SÁÁ opni og reki áfangaheimili fyrir áfeng- is- og fíkniefnasjúklinga ganga vel, að sögn Þór- arins Tyrfingssonar, yfirlæknis SÁÁ. Fyrir liggja samningsdrög sem byggjast á tilboði SÁÁ sem samtökin lögðu fram í kjölfar þess að ekkert varð af samningi borgarinnar og Heilsuverndarstöðv- arinnar um áfangaheimili í Norðlingaholti. Að sögn Þórarins hefur verið rætt um að opna heimili fyrir 20 manns, fólk sem hefur lokið við afeitrun eða meðferð og þarf aðstoð við að standa á eigin fótum, s.s. húsnæði, aðhlynningu, umönnun og hjálp á ýmsum sviðum. Heimilismönnum er ætlað að halda sig frá áfengi og vímuefnum meðan þeir dvelja þar. Hefji þeir neyslu á ný er þeim boð- ið að fara aftur í afeitrun eða meðferð. Heimilið er bæði fyrir konur og karla. „Við höfum tryggt okk- ur húsnæði og gætum byrjað að taka við fólki fljót- lega, jafnvel eftir nokkrar vikur,“ segir Þórarinn. Samtökin þurfi síðan um sex mánuði til að koma heimilinu í endanlegt horf. Þórarinn vill ekki, að svo komnu máli, segja hvar heimilið verður stað- sett. Einhverju sinni var rætt um Arnarholt á Kjalarnesi en að sögn Þórarins er það ekki til um- ræðu nú. Það húsnæði sé óhentugt og flókið að skera úr um eignarhald á húsinu. Meirihlutinn vill semja við SÁÁ Jórunn Frímannsdóttir, formaður velferðar- ráðs, segir að meirihluti ráðsins sé sammála um að leita samninga við SÁÁ. Hún segir að tilboð SÁÁ hafi verið hagstæðasta tilboðið og úrræðið sem þeir hafi boðið mjög gott. Mætti opna innan nokkurra vikna Borgin ræðir við SÁÁ um áfangaheimili fyrir áfengis- og eiturlyfjasjúklinga VEÐUR SIGMUND Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ FRÉTTIR FIMM pólskir karlmenn sem urðu fyrir fólskulegri árás í Keilufelli í mars sl. og mættu ekki fyrir dóm í fyrradag, eins og óskað hafði verið eftir, hafa ekki gefið ríkissaksóknara skýringu á því hvers vegna þeir komu ekki. Miðað við atburði og hversu óttaslegnir félagar þeirra tveir sem einnig urðu fyrir árásinni voru þegar þeir mættu í dómssal í fyrradag, er varla óvarlegt að álykta að ástæðan sé sú að þeir vilji forðast árásarmennina í lengstu lög. Kolbrún Sævarsdóttir, saksóknari hjá ríkissaksóknara, bendir á að þar sem mennirnir séu búsettir erlendis falli þeir ekki undir vitnaskyldu. Eft- ir sem áður gerir hún ekki ráð fyrir öðru en að kostnaður þeirra vegna fararinnar til Íslands verði greiddur fyrir þá. Verði sakfellt í málinu falli sá kostnaður á sakborningana. Kol- brún ætlar að reyna til þrautar að fá þá til landsins en til þess hefur hún aðeins 10 daga, því aðalmeðferðinni var frestað til 27. október nk. Ekki heimilisfangið Það veikir óneitanlega stöðu ákæruvaldsins ef Pólverjarnir fimm fást ekki til að bera vitni í málinu en saksóknari hefur bent á að til eru Ekki útséð um vitni frá Póllandi Morgunblaðið/Ómar Réttvísin Sakborningur gengur inn í dómssal héraðsdóms í fyrradag. upptökur af lögregluyfirheyrslum yfir mönnunum og það ætti að bæta stöðuna eitthvað. Alls urðu sjö fyrir árásinni. Tveir þeirra eru enn búsettir hér á landi og þegar þeir báru vitni í Héraðsdómi Reykjavíkur í fyrradag var augljóst að þeir voru mjög hræddir við sak- borninga og vildu fyrir alla muni forðast að mæta þeim eða vera í ná- munda við þá. Báðir voru ófúsir til að gefa upp heimilsföng sín, en þess er ávallt óskað í málum sem þessum. runarp@mbl.is  Saksóknari hefur tíu daga til stefnu  Fengju farareyri til og frá Póllandi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.