Morgunblaðið - 17.10.2008, Síða 16
16 FÖSTUDAGUR 17. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Birnu Önnu Björsndóttur
New York
bab@mbl.is
„Ég held að það skipti miklu máli
fyrir orðstír okkar, sem á svolítið
erfitt uppdráttar á alþjóðavett-
vangi núna, að við skilum þessu
verkefni af okkur með fullum
sóma. Og hvernig sem úrslitin
verða sýnum við það að við hlaup-
umst ekki undan merkjum þótt
móti blási.“ Þetta sagði Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir utanrík-
isráðherra í samtali við blaðamann
á skrifstofu fastanefndar Íslands
við SÞ í gærkvöldi, þá nýkomin af
fundi með fastafulltrúum Norður-
landanna við SÞ.
Möguleikar okkar ekki verri
þrátt fyrir efnahagslega ágjöf
Á fundinum sagðist Ingibjörg
Sólrún hafa þakkað norrænu fasta-
fulltrúunum fyrir stuðninginn og
þeirra „ómetanlega starf að fram-
boði okkar. Að hafa utanríkisþjón-
ustur hinna Norðurlandaþjóðanna
að starfa með okkur eykur veru-
lega okkar svigrúm og þau eru ein-
örð í starfi sínu og stuðningi,“
sagði Ingibjörg Sólrún.
– Hvernig metur þú möguleika
okkar?
„Ég tel að staðan sé í sjálfu sér
óbreytt. Við eigum góða möguleika
en það getur brugðið til beggja
vona þannig að þetta er bara
óvissuferðalag. Möguleikar okkar
eru ekkert verri þrátt fyrir þessa
efnahagslegu ágjöf sem við höfum
fengið. Þetta virkar í báðar áttir;
það eru einhverjir sem fyllast
óvissu gagnvart okkur og velta
fyrir sér hvort við séum í stakk bú-
in að standa við skuldbindingar
okkar, en á móti kemur að það eru
aðrar þjóðir sem fá kannski aukna
samstöðu með okkur. Ekki síst
þær sem telja sig hafa fundið fyrir
breska heimsveldinu á eigin
skinni, á árum og áratugum áður,
og sjá Breta nú koma fram við
okkur með þessum hætti þegar við
þurfum sem mest á samstöðu að
halda,“ sagði Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir í gærkvöldi.
„Skiptir máli að skila
þessu með fullum sóma“
Reuters
Öryggisráð Það ræðst í dag hvort Ísland tekur sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Niðurstöður atkvæða-
greiðslu innan ráðsins ættu að liggja fyrir seinni partinn. Kosningin er leynileg og gæti þurft tvær umferðir.
Atkvæðagreiðsla um sæti í öryggisráði SÞ fer fram í New York í dag
BRESKI kaupsýslumaðurinn Philip
Green er enn áhugasamur um að
kaupa skuldir Baugs Group. Segir
hann í samtali
við Reuters að
enn sé einhverri
vinnu ólokið en
hann er kominn
aftur til Lundúna
eftir að hafa
dvalið á Íslandi.
Þegar hann er
spurður hvort
rétt sé að hann
hafi hug á að
kaupa Baug að fullu en ekki bara
skuldir félagsins svaraði hann:
„Það er sami hluturinn.“ Viðræður
Green við íslensk stjórnvöld hafa
staðið yfir frá því á föstudag.
Skuldir Baugs nema yfir einum
milljarði punda.
lom@mbl.is
Hefur enn
áhuga á skuld-
um Baugs
Philip Green
ATKVÆÐAGREIÐSLAN í öryggisráði
SÞ hefst klukkan 10 að staðartíma í New
York í dag, kl. 14 að íslenskum tíma, og
má búast við úrslitum um tveimur til
þremur klukkutímum síðar. Valið stendur
á milli þriggja ríkja, Íslands, Austurríkis
og Tyrklands. Það eru fastafulltrúar að-
ildarríkjanna 192 sem greiða atkvæði og
velja þeir tvö ríki í fyrstu umferð.
Til að ná kjöri þarf ríki að hljóta tvo
þriðju hluta atkvæða og þar sem ríkin
þrjú þykja hafa frekar jafna stöðu er talið
líklegast að aðeins eitt þeirra nái kjöri í
fyrstu umferð. Þá fer fram önnur umferð
þar sem byrjað er frá grunni og kosið á
milli ríkjanna sem eftir sitja, sem verða
líklega bara tvö þótt sá möguleiki sé fyrir
hendi að þau verði þrjú, nái ekkert
ríkjanna tveimur þriðju hlutum atkvæða í
fyrstu umferð. Í næstu umferð þarf einnig
að hljóta tvo þriðju hluta atkvæða þótt
verið sé að kjósa milli tveggja ríkja og
þannig er mögulegt að kjósa þurfi aftur,
og jafnvel aftur, þar til niðurstaða næst.
Að baki er þrotlaus vinna starfsfólks ut-
anríkisþjónustu landanna þriggja sem
haldið hafa tvíhliða fundi með fastafull-
trúm og leiðtogum allra aðildarríkjanna
og reynt að afla framboðum sínum stuðn-
ings. Ríki gefa fyrirheit um hvernig þau
muni verja atkvæði sínu og á þeim grund-
velli er hægt að reikna nokkurn veginn út
við hve mörgum atkvæðum megi búast.
Leynileg kosning
Það er þó tvennt sem gerir stöðuna í eðli
sínu óútreiknanlega, annars vegar sú
staðreynd að kosningin er leynileg og
þannig geta fastafulltrúarnir í raun kosið
eins og þeim sýnist, og hins vegar hafa
ríki í sumum tilfellum lofað öllum þremur
ríkjum stuðningi og þá er ljóst að þau
munu bregðast einu þeirra loforða.
Þarf tvo þriðju
hluta atkvæða
Eftir Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@mbl.is
ÞAU innlán sem safnað var á Ice-
save-reikninga Landsbankans í Bret-
landi voru nýtt til fjármögnunar
Landsbankans í heild, m.a. til fjár-
mögnunar lánastarfsemi í Bretlandi
og dótturfélaga víða um Evrópu.
Hollenski bankinn ING Direct
hafði verið leiðandi á breska innlána-
markaðinum með netreikninga sína
og voru þeir fyrirmyndin að Icesave.
Stofnun Icesave í október 2006 var
mikilvægt skref til að breyta sam-
setningu fjármögnunar Landsbank-
ans, að því er fram kemur í yfirlýs-
ingu frá bankanum. Í yfirlýsingunni
segir að innlán með þessum hætti
hafi verið hagstæðasta fjármögnun-
arleið fyrir íslenskan banka á þeim
tíma er skuldatryggingarálag var
hátt og aðgengi að erlendu lánsfé
takmarkað.
Gerðu breytingar í mars
Halldór J. Kristjánsson, fyrrver-
andi bankastjóri Landsbankans, seg-
ir að breytingar hafi verið gerðar á
reikningunum í mars á þessu ári þeg-
ar fyrst fór að bera á neikvæðri um-
ræðu um reikningana. „Við fórum að
ráðum fjármáleftirlitsins í Bretlandi.
Við einbeittum okkur að því að taka
innlán til lengri tíma sem voru örugg-
ari innlán, hækkuðum ekki innláns-
vextina á óbundnum innlánum, og
drógumst verulega aftur úr í sam-
keppninni, hvað þau varðar.“
Eins og fram hefur komið gerði
breska fjármálaeftirlitið [FSA] kröfu
um að Landsbankinn færði eignir frá
móðurfélaginu til Heritable-bankans
svo honum yrði gert kleift að færa
Icesave-reikningana þangað, en það
hefði þýtt að engar kröfur frá bresk-
um sparifjáreigendum hefðu lent á
Tryggingarsjóði innistæðueigenda á
Íslandi við þrot bankans.
Ekki náðist samkomulag um fyr-
irkomulag eignatilfærslna.
Icesave var „hagstæðasta
leiðin á þeim tíma“
Engin veruleg bankaáhlaup síðan 1929 og umræða um tryggingar eftir því
Í HNOTSKURN
»Árangur Icesave í Bret-landi var framar vonum.
Af þeim sökum sótti Lands-
bankinn sjálfur um tilfærslur í
breskt dótturfyrirtæki fyrr á
þessu ári.
»Við stofnun Icesave hafðibankastofnun ekki orðið
fyrir áhlaupi í hinum vestræna
heimi síðan 1929 og öll um-
ræða um tryggingar eftir því,
segir í tilkynningu frá LÍ.
500 KR Fimmhundruð króna Gildir til 23. okt 2008inneign á föndurvörur
Office1 er með mikið úrval af föndurvörum.
Límmiðar, karton í mörgum litum, glimmer-
lím, kreppupappír og svo margt fleira.
Skeifan 550-4110, Smáralind 550-4140, Hafnarfjörður 550-4120, Selfoss 550-4190, Vestmannaeyjar 550-4180, Egilsstaðir 550-4160, Akureyri 550-4150, Ísafjörður 550-4170
Fjölskyldan saman
að föndra!
Gerist ekki betra.