Morgunblaðið - 17.10.2008, Síða 19

Morgunblaðið - 17.10.2008, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. OKTÓBER 2008 19 VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF ÞETTA HELST ... ● ÚRVALSVÍSITALAN í Kauphöllinni á Íslandi lækkaði um 2,2% í gær og er lokagildi hennar 644 stig. Viðskipti með hlutabréf námu um 34 millj- ónum króna, mest með bréf Öss- urar, eða fyrir um 16 milljónir. Mest lækkun varð á bréfum Atorku, eða um 75,3%. Þá lækkuðu bréf Alfesca um 11,1% og Bakkavarar um 10,9%. gretar@mbl.is Lækkun í Kauphöll ● SEÐLABANKI Ungverjalands (MNB) hefur sam- ið við Seðlabanka Evrópu (ECB), fyrstur seðla- banka utan evru- svæðisins, um 5 milljarða evra lánsheimild. Á vef FT segir að Ungverjaland hafi leitað til Evrópubankans eftir mikinn óróa á fjármálamörkuðum sem hafi leitt til hruns á gengi ung- verskrar fórintu og hlutabréfa. Ung- verjaland hefur hafið viðræður við Al- þjóðagjaldeyrissjóðinn sem snúast um að koma jafnvægi á gjaldeyr- ismarkaðinn. camilla@mbl.is Evrópubanki lánar Ungverjalandi Evra 5 milljarðar til Ungverjalands ● 365 MEDIA, móðurfélag danska dagblaðsins Nyhedsavisen, hefur verið lýst gjaldþrota í skiptarétti í Danmörku. Útgáfu blaðsins var, sem kunnugt er, hætt í september en félagið var þó ekki gjaldþrota. Á vef bus- iness.dk segir að fyrrverandi for- stjóri 365 Media, Morten Nielsen, hafi bent á, eftir endalok blaðsins, að Morten Lund, aðalhluthafinn, hefði átt eftir að greiða félaginu stofnfé. Það hafi gefið kröfuhöfum og fyrrverandi starfsfólki von um að fá kröfur sínar greiddar, en gjald- þrotið hafi nú gert þær vonir að engu. camilla@mbl.is 365 Media úrskurðað gjaldþrota í Danmörku Exista að mestu fjármagnað úti Eignarhaldsfélagið Exista á ekki mikið af beinum eignum í Bretlandi annað en höfuðstöðvar í London og hlut í bresku íþróttavöruverslunar- keðjunni JJB-sports, en nokkur óvissa er um framtíð Exista. Félagið er að langstærstum hluta fjármagn- að með lántökum hjá erlendum bönkum þó einhver útistandandi lán séu hjá íslensku bönkunum, sam- kvæmt upplýsingum frá félaginu. Í síðustu viku voru hlutir í Sampo, Storebrand og Bakkavör seldir. Geta gengið á eignirnar í Bretlandi Margir hafa sýnt áhuga á skuldum Baugs við íslenska banka Morgunblaðið/Golli House of Fraser Meðal fjölmargra eigna Baugs í Bretlandi. Ef félagið stendur ekki við skuldbindingar geta eignir þess runnið til íslenskra banka. Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is FJÖLMARGIR hafa sýnt áhuga á því að kaupa skuldir Baugs við ís- lensku bankana. Skuldirnar eru sagðar um einn milljarður sterlings- punda eða í kringum tvö hundruð milljarðar króna. Skilanefndir bankanna hafa þegar átt viðræður breska kaupsýslu- manninn Philip Green, og fjárfest- ingarsjóðirnir TPG, Alchemy og Permira hafa sýnt áuga á skuldun- um. Skuldirnar eru tryggðar með veðum í eignum félagsins hér heima og í Bretlandi. Baugur á fjölmörg fyrirtæki í Bretlandi, þar á meðal verslunarskeðjuna Iceland, verslun- arkeðjuna House of Fraser og leik- fangaverslanir undir merkjum Ham- leys. Ef ekki fæst viðunandi verð fyrir skuldir félagsins við íslenska banka og vanskil verða munu bankarnir fara dómstólaleiðina og geta því næst fullnustað dóminn í Bretlandi á grundvelli Lugano-samningsins um fullnustu dóma, sem báðar þjóðirnar hafa skuldbundið sig til þess að fylgja. Veðsettar eignir Baugs í Bretlandi verða því aðfararhæfar. Í HNOTSKURN »Í máli Jóns Ólafssonargegn Hannesi Hólmsteini í Bretlandi var ákvæðum Lugano-samningsins beitt til þess að fullnusta dóminn hér. »Það veltur á skilmálumlánasamninganna og ákvæðum um varnarþing hvar Baugi verður stefnt ef vanefndir verða á samn- ingum. Eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@mbl.is „ÍSLENDINGAR verða að fá erlendan gjaldeyri. Ef ástandið hér á landi batnar ekki á allra næstu dögum, kannski á einni viku eða svo, þá er heppi- legast að leita eftir láni frá Alþjóðagjaldeyris- sjóðnum (IMF).“ Þetta segir Jesper Rangvid, pró- fessor við Viðskiptaháskólann í Kaupmannahöfn og gestaprófessor við Háskólann í Reykjavík. Hann segir að lán sem Seðlabanka Íslands stend- ur til boða frá norrænum seðlabönkum dugi ekki. Og hann mælir ekki með láni frá Rússum. Lán frá IMF sé því í raun eina leiðin sem dugi til, úr því sem komið er. Rangvid hefur fylgst með stöðu efnahagsmála á Íslandi í nokkurn tíma en sérsvið hans er alþjóða- fjármál. Hann segir að hafa verði í huga að Ísland sé ekki eitt á báti því það sé fjármálakreppa um allan heim. Þó liggi ljóst fyrir að ástandið hér sé með versta móti sem stafi af því að skuldir ís- lensku bankanna hafi verið gríðarlegar. Fróðlegt að sjá skilyrðin „Það er ekki skemmtileg að þurfa að leita til Al- þjóðagjaldeyrissjóðsins eftir aðstoð. Sjóðurinn var hins vegar stofnaður á sínum tíma einmitt til að aðstoða ríki við aðstæður eins og þær sem eru hér á landi um þessar mundir. Og því fylgja skilyrði. Sjóðurinn mun gera kröfur um aðgerðir sem skila árangri og það yrði fróðlegt að sjá hverjar þær yrðu. Hann hefur verið gagnrýndur fyrir að gera of stífar kröfur, en það er ljóst að árangur verður að nást,“ segir Jesper Rangvid. Ná verður árangri Danskur prófessor segir að lán Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins sé heppilegast til að auka gjaldeyrisforðann Morgunblaðið/Kristinn Kröfur Jesper Rangvid segir fróðlegt að sjá hvaða kröfur IMF myndi gera um árangur. GREIÐSLUR til og frá Íslandi hafa ekki verið með eðlilegum hætti að undan- förnu. Seðla- bankinn vinnur að því að ráða bót á því. Í gær greindi bankinn frá því að tekin hefði verið upp tímabundin hjáleið í greiðslu- miðlun gagnvart útlöndum með því að beina greiðslum bankastofnana til og frá Íslandi um eigin reikning og reikninga erlendra samstarfs- aðila Seðlabankans. Segir í tilkynningunni að þessi aðferð hafi þegar reynst vel gagn- vart Danmörku og vonir standi til að það sama eigi við um önnur lönd innan tíðar. Er tekið fram að hnökrar hafi verið á greiðslum milli Íslands og allra landa. Erfiðust sé staðan þó gagnvart breskum að- ilum. Sérfræðingar á fjármálamark- aði, sem blaðamaður ræddi við, sögðust vona að þessar aðgerðir skiluðu tilætluðum árangri. Óvissa sé þó enn mikil og of snemmt að fullyrða nokkuð þar um. Öðru útboði lokið Seðlabankinn tilkynnti einnig í gær um niðurstöður annars útboðs bankans á gjaldeyri. Niðurstaðan svarar til þess að gengisvísitalan sé 200,4 stig. Í Morgunkorni Glitnis segir að vænta megi þess að gengi krónunnar verði lágt þar til fram- boð gjaldeyris eykst. gretar@mbl.is Liðkað fyrir gjaldeyris- viðskiptum   " ! #$ %  &  ' ! #$(')*+',  - .                         ! "  # $%&'( $   ) *+ ,-+ . /          01    %    %2,   ,3 1  (4 - 5  *   !" # $ 6 1    6    *-   %                              5*   7. * 8   ! $ : ;<= ;= <>> ? :?: <@A ) :=A @:= ? ;A: <>> ) ; :B; ?;< ) ) ?C >>< :>> ) ) ) @ @B> ?<C ;@> AB; ) ) ) ) :D>> ) :DC> ) >DC< ?:D>> ) B>D>> ) ) A=D?> ) ) ) ?<CD<> ) ) ) ) ) <D@> ) ) ) ) ?:D;> ) B=D>> ) ) A<D>> ) ??>>D>> ?<<D>> ?C>D>> ) ) ) ?>D<> ) ,- *  ? = < ) ? = ) < ) ) ?: ) ) ) ?> = ) ) ) ) E  * * ?C ?> =>>A ?C ?> =>>A ?C ?> =>>A @ ?> =>>A ?C ?> =>>A ?C ?> =>>A ) ?C ?> =>>A @ ?> =>>A @ ?> =>>A ?C ?> =>>A B ?> =>>A ?< ?> =>>A ?< ?> =>>A ?C ?> =>>A ?C ?> =>>A @ C =>>A A ?> =>>A ?: ?> =>>A B @ =>>A '#F '#F      G G '#F ) F    G G E 0 H  (      G G ,7$ E     G G '#F *?< '#F !:>     G G ● ÞÝSKA ríkisstjórnin lækkaði í gær hagvaxtarspá sína fyrir árið 2009 um eitt prósentustig. Fyrri spá var 1,2% hagvöxtur en hefur nú verið lækkuð niður í 0,2%. Á vef Financial Times segir að ný spá sé svipuð og spár stærstu hag- fræðistofnana landsins frá því á þriðjudag. FT segir spána reka síð- asta naglann í líkkistu þeirra áforma stjórnvalda að koma jafnvægi á rík- issjóð árið 2011 eftir björgunar- aðgerðir á fjármálamörkuðum. Stjórnin hefur lofað 500 milljörðum evra til aðgerðanna. camilla@mbl.is Lægri hagvaxtarspá í Þýskalandi HLUTABRÉFAVÍSITÖLUR á mörkuðum í Asíu og Evrópu lækk- uðu í gær. Japanska Nikkei-vísitalan féll mest, eða um 11.4%. Í kjölfarið féllu evrópskar vísitöl- ur. Breska FTSE 100 vísitalan féll- um 5,35%, Cac 40 í Frakklandi lækk- aði um 5,9% og Dax-vísitalan í Þýskalandi lækkaði um 4,9%. Dagurinn í gær hófst með mikilli rússibanareið á hlutabréfamörkuð- um í Bandaríkjunum. Dow Jones- vísitalan hækkaði og lækkaði á víxl eins og Nasdaq- og S&P-vísitölurn- ar. Má segja að dagurinn hafi ein- kennst af miklum sveiflum. Jákvæð áhrif höfðu horfur í atvinnumálum og verðbólgu á meðan samdráttur í iðnaði og bág afkoma fyrirtækja dró vísitölurnar niður. camilla@mbl.is Sveiflukenndur dagur á hlutabréfamörkuðum Japanska Nikkei lækkaði mest og aðrar fylgdu í kjölfarið Sveiflur Vísitölur féllu vegna ótíðinda af iðnaði og lykilfyrirtækjum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.