Morgunblaðið - 17.10.2008, Page 20
Eftir Unu Sighvatsdóttur
una@mbl.is
Hljóðið er fínt í okkur einsog staðan er í dag, enauðvitað verða gjaldeyr-ismálin að fara að leys-
ast til lengri tíma litið,“ segir Svava
Johansen, forstjóri NTC hf. Sala
gengur enn vel hjá tískuverslunum
NTC þrátt fyrir að Íslendingar
haldi margir að sér höndum í inn-
kaupum.
Neytendur eru greinilega byrjað-
ir að spara við sig í óvissuástandinu
og sá sparnaður virðist fyrst koma
fram í húsgagna- og fataverslun. Í
þessum tveimur vöruflokkum hefur
veltuvísitalan ekki mælst jafnlág áð-
ur á föstu verðlagi, skv. smásölu-
vísitölu Rannsóknarseturs versl-
unarinnar. Velta í húsgagnaverslun
minnkaði um 21% á föstu verðlagi
miðað við september í fyrra, og í
fataverslun varð 17,5% samdráttur.
Verð á fötum hækkaði um 13% frá
því í ágúst.
Minna keypt á raðgreiðslum
Svava segir að í verslunum NTC
virðist sem minni verslun Íslendinga
jafnist að einhverju leyti út með
vaxandi kaupgleði erlendra ferða-
manna sem sækja ekki síst í lúxus-
vörurnar. Miðað við tölur frá Global
Refund hafi salan aukist um 140% í
september. „Við höfum fundið mjög
mikið fyrir útlendingum, þeir hafa
verið að versla í dýrari búðunum,
nýta sér að geta keypt fína merkja-
vöru á góðu verði.“ Hún nefnir jafn-
framt að stórir atburðir sem trekkja
útlendinga til landsins, eins og
Sjávarútvegssýningin í byrjun októ-
ber og nú Airways, skili sér mark-
visst inn í söluna og þar sé því mikið
sóknarfæri fyrir íslenska verslun.
Samantekt Seðlabankans yfir
kortaveltu í september sýnir að á
kreditkortum hefur hlutfall létt-
greiðslna og raðgreiðslna lækkað
talsvert miðað við sama tíma í fyrra,
sem bendir einmitt til að Íslending-
ar spari við sig kaup á stórum hlut-
um. Færri færslur eru á bæði debet-
og kreditkortum en á sama tíma í
fyrra, en heildarkortaveltan er samt
sem áður hærri. Rannsóknarsetur
verslunarinnar bendir líka á að
þrátt fyrir að neysla minnki verji
neytendur þó mun meira til mat-
arinnkaupa nú en áður, enda hækk-
aði verð á dagvöru um 20,5% á einu
ári, frá september í fyrra til septem-
ber á þessu ári.
Vakta tilboð og afslætti
Hjá NTC hefur markvisst verið
unnið að því síðasta hálfa árið að
takast á við rýrnandi kaupmátt að
sögn Svövu. „Við sáum alveg hvert
stefndi og gerðum ráðstafanir mjög
snemma í haust til að birgja okkur
upp fyrir jólin.“ Eins hafi verið
reynt að koma til móts við fólk með
auknum afslætti, tilboðum og mark-
aðstorgi. „Þótt við höfum þurft að
taka á okkur svakalegan skell í
gjaldeyrismun þurfum við samt að
gera þetta því við viljum auðvitað að
hjólin haldi áfram að snúast. Og það
er áberandi að sjá að fólk er mjög
vakandi yfir tilboðum núna.“
Ferðamennirnir vega upp á móti
Morgunblaðið/Ásdís
Tíska Íslendingar hafa lengi þótt tískumeðvitaðir og flottir í tauinu, enda kannski ekki vanir að spara fatakaupin.
Íslendingar virð-
ast fyrst byrja að
spara í húsgagna-
og fatakaupum
|föstudagur|17. 10. 2008| mbl.is
Leiðir þeirra Söru Tuusa frá Finnlandi og Lucas Do-wers og Lauren Slowik frá Bandaríkjunum lágu sam-an fyrir tilviljun á farfuglaheimilinu í Laugardal þar
sem þau hafa öll gist í vikunni. Þrátt fyrir að gistinætur séu
nú ódýrari en nokkru sinni fyrir erlenda ferðamenn segja
þau Ísland þó ekki beinlínis ódýrt fyrir unga námsmenn.
„Mig langaði að koma þrátt fyrir verðlagið og var búin að
safna í marga mánuði, en svo reyndist þetta vera svipað og
það er í New York,“ segir Lauren. „Ég væri alveg til í að
kaupa einhverja íslenska hönnun ef ég finn eitthvað flott.“
Þau segjast ekki hafa fundið fyrir því að Íslendingar væru
þungir á brún, þótt sumir sem þau hafi hitt í bænum hafi vís-
að í kreppuna sem afsökun fyrir að drekkja sorgum sínum í
bjór.
Lucas, sem kom hingað vegna Airwaves, kannast ekki við
að Ísland sé mikið til umræðu í hans heimahögum, en að sögn
Söru eru Kaupþing og Glitnir á allra vörum í Helsinki og
New York-búar virðast líka hafa óljósa hugmynd um hvað er
að gerast: „Mamma og pabbi sendu mér sms og höfðu áhyggj-
ur af því hvort það væri í lagi með mig í ástandinu,“ segir
Lauren hlæjandi. „Ég sendi þeim til baka og sagði þeim að
róa sig, hér væri hvorki borgarastyrjöld né brennandi hús.“
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Engin borgarastyrjöld
eða brennandi hús
Íversluninni Nostrum Design við Skólavörðustíg 1 er seld-ur íslenskur kvenfatnaður og heimilislínur. Þær HuldaHallgrímsdóttir, Sigrún Jónsdóttir og Arna Vignisdóttir,
hönnuðir og eigendur búðarinnar, segjast hafa fundið fyrir
því að kaupgleðin hafi dvínað hjá Íslendingum, sérstaklega í
síðustu viku. „Kúnnarnir okkar virðast hafa samviskubit og
afsaka sig með því að segja: „Á maður ekki bara að drífa sig í
að eyða þessum peningum hvort eð er?“ á meðan þeir versla.“
Þær segja verslunina vinsæla meðal útlendinga sem séu
tæpur helmingur kúnnahópsins, en meirihluti þeirra sem
kaupi hjá þeim sé þó Íslendingar. „Ein kona sagði þegar hún
var að máta hérna: „Æ veistu, ég hef ekki lyst á þessu núna,“
og það lýsir ástandinu ágætlega, fólk hefur einhvern veginn
ekki lyst á því að vera að kaupa.“
Nostrum-konur hanna og framleiða allar sínar vörur sjálf-
ar svo gjaldeyrisskortur landsins hefur ekki komið niður á
þeim ennþá, þær eru með lager fram að jólum. „Eflaust eru
margir verr staddir með það en við, en auðvitað erum við háð-
ar efniviðnum að utan og þurfum á því að halda fyrr eða síð-
ar.“ Þær segjast þó vera jákvæðar, enda þýði ekkert annað.
„Við bíðum bara eftir Færeyingunum og gerum allt klárt fyr-
ir þá!“
Bíðum bara eftir
Færeyingunum
Ég er nú reyndar ekki búin að kaupa mér neitt ennþá,nema þessa húfu jú,“ sagði Nikki Johnson og benti áprjónahúfuna á höfði sér, þegar blaðamaður vatt sér
upp að henni á Austurvelli og spurði hvort Ísland væri nýja
verslunarparadísin.
„Það hjálpar vissulega til að krónan skuli hafa fallið svona,
við áttum von á því að allt yrði miklu dýrara, en núna er verðið
svona svipað því sem það er á Englandi.“ Nikki kom til Íslands
í fyrsta skipti á þriðjudagskvöldið í vikulangt frí sem hún bók-
aði fyrir um tveimur mánuðum. Vegna hagstæðara gengis
segist hún líklega munu velja aðra veitingastaði til að borða á
en hún hefði annars gert og kannski leyfa sér meiri lúxus hér.
Hún segir dramatískar fréttir úr íslensku efnahagslífi og
kuldaleg samskipti milli sinna þjóðhöfðingja og okkar ekki
hafa breytt sinni afstöðu né þeirra sem hún þekkir til Íslands.
„Flestir voru afbrýðisamir þegar ég sagðist vera að fara til Ís-
lands, ef ég á að segja þér eins og er. Reyndar gerðu sumir
grín að þessu og sögðu við mig: „Og náðu peningunum okkar
til baka í leiðinni!“ en það risti nú grunnt,“ segir Nikki og
hlær. „Ég held að Bretar séu ekkert minna áhugasamir um Ís-
land en áður. Allavega þekki ég fullt af fólki sem langar til að
koma hingað og aðra sem hafa komið og fundist það frábært.“
Náðu peningunum
okkar til baka!
daglegtlíf
Í Þjóðhagsspá sem birt var 2. októ-
ber var áætlað að verðbólga myndi
aukast í 11,5% að meðaltali á
þessu ári, en drægist saman í
5,7% að meðaltali á næsta ári.
Á miðvikudag spáði hagfræð-
ingur frá Danske Bank því hins-
vegar að verðbólgan á Íslandi yrði
allt að 75% á næstunni. Þorsteinn
Þorgeirsson, skrifstofustjóri á
efnahagsskrifstofu fjármálaráðu-
neytisins segir þá spá ekki raun-
sæja. „Ég tel þá spá fráleita. Bæði
teljum við að launaþróun verði
hófleg á næsta ári, að fasteigna-
verð verði ekki verðbólguvaldandi
heldur dragi frekar úr verðbólgu
og gengið hefur þegar lækkað
þannig að áhrifin af því munu fara
í gegnum kerfið á komandi ári.
Þannig að ég tel að það séu engar
forsendur fyrir svona mikill verð-
bólgu, 50–75% eru alveg út af
kortinu.“
Þorsteinn segir að nú sé unnið
að því að endurskoða spána frá 1.
október í ljósi breyttra aðstæðna.
Skv. nýjustu tölum Hagstofunnar
er verðbólga 14%. Næstu verð-
bólgutölur verða birtar 27. okt.
50–75% verðbólguspá út af kortinu
:<
:>
@<
@>
=<
=>
-*
E
,
$J
K
J. =>>B . =>>A
9 $*.
9 &J '
$
$ . 8 + . 8 1 + *
+,-.G
+/0-1G
+.-1G
+,/-2G
5*
L
G
$' M( E HH H, ##