Morgunblaðið - 27.10.2008, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 2 7. O K T Ó B E R 2 0 0 8
STOFNAÐ 1913
294. tölublað
96. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
DAGLEGTLÍF
HINAR TÍU TÝPUR
Í FÉSBÓKINNI
ERLENDAR FRÉTTIR
Þjóðverjar hamstra
gull sem aldrei fyrr
Leikhúsin
í landinu >> 33
LÍFIÐ í sveitinni gengur sinn vanagang þrátt fyrir erfiðleika í efnahags-
málum þjóðarinnar. Ljúka þarf sláturtíðinni, rýja féð og koma því á hús og
velja hrúta, svo nokkuð sé nefnt. Hjónin í Mýrdal í Kolbeinsstaðahreppi,
Gísli Þórðarson og Áslaug Guðbrandsdóttir, sögðu að ástandið hefði lengi
verið erfitt í sauðfjárræktinni og það gæti ekki annað en lagast. | 6
Lífið gengur sinn vanagang
Morgunblaðið/RAX
ÚTGERÐARMENN taka því fagnandi að Íslend-
ingum skuli eftir margra ára málaleitan vera
boðið að taka þátt í fundi í lok mánaðarins um
stjórnun makrílveiða. „Þó að okkur sé boðið að
taka þátt í þessum fundi sem áheyrnarfulltrúum
lítum við á okkur sem fullgilda þátttakendur á
svona fundum,“ segir Friðrik J. Arngrímsson,
framkvæmdastjóri LÍÚ. „Aðalmálið er að taka
þátt í samningaviðræðum um stjórnun og skipt-
ingu á þessum stofni. Þetta er jákvætt fyrsta
skref,“ sagði Friðrik. Íslendingar hafa veitt um
112 þúsund tonn af makríl í ár og má áætla að
verðmæti aflans sé um sex milljarðar króna. | 18
Boðið að makrílborðinu
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
STARFSMENN og eigendur Emm-
essíss hf. hafa samþykkt að taka á
sig 10% launalækkun í fjóra mánuði
til að ekki þurfi að koma til upp-
sagna. Lægst launaða fólkið heldur
þó sínu.
Hrafn Hauksson, fjármálastjóri
Emessíss, segir að stjórnendur fyr-
irtækisins hafi staðið frammi fyrir
því að þurfa að segja upp fólki vegna
efnahagsástandsins. Núna væri hins
vegar slæmur tími til að missa fólk
vegna mikils álags á næstunni auk
þess sem ekkert sparaðist meðan
fólk væri á launum í uppsagnarfresti.
Því hafi komið upp sú hugmynd að
lækka launin tímabundið og hafi
starfsfólk tekið vel í það.
Frídagar og drifkraftur
Hjá Emmessís starfa 35 manns og
taka hátt í 30 manns á sig lækkunina.
Hrafn segir að fyrirtækið reyni að
koma til móts við þessa ákvörðun
starfsmannanna með því að bjóða
þeim fimm frídaga aukalega á tíma-
bilinu. Fólkið geti ekki valið sjálft
hvenær það taki þessa daga, heldur
sé það ákvörðun stjórnenda með
hliðsjón af verkefnastöðunni, en bú-
ast megi við miklu álagi um jól og
áramót.
Hrafn segir að mikil deyfð ríki í
þjóðfélaginu og óvissa um hvort fólk
haldi vinnu sinni þegar nálgist mán-
aðamót auki á ótta þess. Ákvörðun-
inni hafi því fylgt ákveðinn drifkraft-
ur hjá starfsmönnum Emmessíss.
„Það var eins og vítamínsprauta inn í
fyrirtækið þegar fólkið fann að við
hugsuðum svona,“ segir hann.
„Óvissan dregur fólk niður en með
þessu höfum við útrýmt henni eins
og við getum.“
Taka á sig
10% launa-
lækkun
Starfsmenn Emmessíss koma í veg fyrir
uppsagnir og óvissu um vinnu útrýmt
Í HNOTSKURN
» Vilhjálmur Egilsson,framkvæmdastjóri Sam-
taka atvinnulífsins, segir að
SA hafi heyrt að stjórnendur
og hærra launað starfsfólk
hafi tekið á sig launalækkanir
til að halda rekstri gangandi í
erfiðu árferði.
» Lykilatriði er að kjara-samningar séu virtir, að
sögn Vilhjálms.
JÖKLAR
landsins hafa
rýrnað umtals-
vert í sumar.
Þetta er nið-
urstaðan af ár-
legum mælingum
Jöklarannsókna-
félags Íslands.
Að sögn Odds
Sigurðssonar jarðfræðings hefur
þessi þróun staðið allt frá árinu
1995. Jöklar hafa hopað öll árin síð-
an þá og rýrnun þeirra hefur verið
meiri og hraðari eftir því sem árin
líða. Stærstu jöklarnir hafa hopað
um 50-100 metra á ári. Undan jökl-
unum kemur landsvæði sem mann-
legt auga hefur ekki séð síðan um
siðaskipti 1550. Setlög hafa leitt í
ljós að blómlegar sveitir hafa farið
undir jökul þegar harðindatímar
gengu í garð. » 11
Jöklar landsins halda
áfram að rýrna
MIKILL sam-
dráttur er fram-
undan í bygging-
ariðnaðinum og
búist við fjölda
uppsagna. Finn-
björn A. Her-
mannsson, for-
maður Samiðnar,
óttast að fjögur
hundruð manns missi vinnuna um
mánaðamótin.
„Ég sé fyrir mér algert hrun,“
segir Gunnar Þorláksson, annar
eigenda Byggingafélags Gylfa og
Gunnars. „Þetta er skelfilegt gagn-
vart öllu því vinnandi fólki, sem fær
bréf um mánaðamótin.“ » 4
Óttast algert hrun
í byggingariðnaðinum
NÝTT hringtorg, hið fyrsta sinn-
ar tegundar hér á landi, verður
opnað fyrir umferð í lok nóvember.
Hringtorgið er á mótum Reykjanes-
brautar og Arnarnesvegar.
Framkvæmdir hafa gengið eins
og í lygasögu og verður umferð
hleypt á hringtorgið hálfu ári fyrr
en áformað var.
Vegagerðin hefur ákveðið að
verðlauna verktakana fyrir vel
unnið verk. Verktakafyrirtækin
Suðurverk og Skrauta fá 35 millj-
ónir króna í flýtifé. Kemur þessi
greiðsla til viðbótar þeim 670 millj-
ónum sem verktakarnir fá greitt
fyrir að vinna verkið. » 8
Verktakar verðlaunaðir
með 35 milljónum
Veigar Páll Gunnarsson skoraði
þrennu í 6:2-sigri Stabæk í gær
þegar liðið tryggði sér norska
meistaratitilinn. Pálmi Rafn Pálma-
son skoraði eitt marka Stabæk.
ÍÞRÓTTIR
Veigar og Pálmi
Noregsmeistarar
Íslenska kvennalandsliðið er einu
skrefi frá því að komast í úr-
slitakeppni EM eftir jafntefli gegn
Írum ytra. Síðari leikurinn er á
fimmtudag á Laugardalsvelli.
Einu skrefi frá
EM í Finnlandi
Grindvíkingurinn Páll Axel Vil-
bergsson ætlar sér stóra hluti með
liði sínu í vetur. Landsliðsmaðurinn
byrjaði að æfa eins og maður fyrir
þremur árum.
Páll Axel stelst á
æfingar í vinnunni