Morgunblaðið - 27.10.2008, Qupperneq 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. OKTÓBER 2008
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt-
ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
ÁRIÐ 1940 var hart í ári hjá Norð-
mönnum og þá nutu þeir aðstoðar
Íslendinga. Meðal annars sendi fjöl-
skylda í Vestmannaeyjum fatapakka
til Noregs. Fyrir vikið gat norsk tán-
ingsstúlka fermst sómasamlega til
fara. Hún hefur ekki gleymt því og
þegar hún frétti af ástandinu hérna
hringdi hún í systur sendandans og
spurði hvort hún gæti á einhvern
hátt hjálpað þeim systrum. „Við
systir mín vorum orðlausar yfir
ræktarseminni,“ segir Kristín Þor-
steinsdóttir um boð Reidun Hellis-
nes, sem er um áttrætt og hefur ekki
verið í sambandi við systurnar í ára-
tugi.
Stúlkan hafði samband
Kristín segir að faðir sinn hafi
lært í Noregi og honum hafi alltaf
verið hlýtt til Norðmanna. Þegar á
hafi bjátað hjá þeim hafi hann viljað
hjálpa til.
„Hann sendi föt af mér og setti
bréf með nafni mínu og heimilisfangi
í vasann á einum jakkanum ef mót-
takandi vildi hafa samband,“ rifjar
Kristín upp. Hún segir að stúlkan,
sem hafi fengið jakkann, hafi haft
samband og þær hafi skipst á jóla-
kortum í nokkur ár. Systir sín hafi
síðan farið í nám í Noregi og tekið
við samskiptunum við konuna en
þau hafi síðan fallið niður.
„Fyrir nokkrum dögum hringdi
þessi kona í systur mína, sagði henni
að hún hefði aldrei gleymt fatasend-
ingunni, fötum sem hún hefði meðal
annars fermst í, og spurði hvort hún
gæti hjálpað okkur systrum eitt-
hvað, hvort það væri eitthvað sem
okkur vanhagaði um. Við komust við
vegna hugulseminnar en hún sýnir
hvað Norðmenn eru elskulegir. Okk-
ur vantaði að sjálfsögðu ekki neitt en
vináttan gleymist ekki hjá Norð-
mönnum.“
Vináttan gleymist ekki
Norsk kona vildi
hjálpa nú vegna
aðstoðar 1940
Vinur Reidun Hellisnes í æsku.
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
MIKILL snjór er víða á Norður- og Austurlandi
eftir stórhríðina sem þar gekk yfir um helgina.
Enn snjóaði á Austurlandi í gær. Akureyringar
voru að moka frá húsum sínum og bílum en þar
hafði víða skafið að. Sérfræðingar Siglingastofn-
unar munu í dag meta skemmdir í höfnum.
Björgunarsveitarmenn björguðu sama mann-
inum tvisvar af ófærum fjallvegum á Austur-
landi í gær, fyrst af Öxi og síðan af Hellisheiði, á
leið til Vopnafjarðar. Maðurinn var á fólksbíl.
Víkurskarð var opnað síðdegis í gær en þar
hefur vegurinn verið lokaður mestalla helgina
vegna veðurs og ófærðar. Björgunarsveitin
Garðar á Húsavík var kölluð til aðstoðar í gær-
morgun þegar koma þurfti tveimur sjúklingum
frá Húsavík á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Komust þeir yfir Víkurskarð með aðstoð snjó-
ruðningstækja.
Þungfært var á Grenivíkurvegi undir kvöld í
gær og ófært um Hólasand. Á Austurlandi var
þungfært og stórhríð í Vatnsskarði og snjór,
hálka og skafrenningur á öðrum vegum á Norð-
austurlandi. Ófært var um Öxi.
Áfram er spáð norðlægri átt í dag, 5 til 13
metrum á sekúndu og hvassast verður við aust-
urströndina, allt að 18 metrar. Él verður á stöku
stað norðaustan til, annars víða bjart.
„Mesta öldurót sem ég hef séð“
Skemmdir urðu í nokkrum höfnum á norð-
anverðu landinu í sjógangi í norðanáttinni um
helgina. „Þetta er mesta öldurót sem ég hef séð
síðan ég byrjaði í þessu starfi, eiginlegt hafrót,“
sagði Stefán Stefánsson, hafnarvörður við Húsa-
víkurhöfn í sextán ár.
Aldan gekk yfir nýlegan sjóvarnargarð, Böku-
garð, og gróf upp grjót og möl innan við. Stefán
segir að grjót hafi hreyfst til ofarlega í grjót-
varnargarðinum sem sýni hvað öldurnar hafi
verið miklar. Akstursleiðin fram á garðinn
grófst í sundur og vatnsleiðsla og grjót var um
allt hafnarsvæðið. Ekki er fært út á viðlegukant-
inn við Bökugarð en Stefán telur það ekki koma
að sök í bili þar sem ekki sé von á flutninga-
skipum.
Von er á sérfræðingum frá Siglingastofnun til
Húsavíkur í dag til að meta tjónið og athuga
hvað sé til úrbóta. Skemmdir urðu einnig í höfn-
um á Kópaskeri, í Fjallabyggð og á Gjögri.
Skemmdir í höfnum norðanlands metnar í dag
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Mokað frá húsinu Mikill snjór er á Akureyri og skafið hefur að húsum og bílum. Ásgrímur Ágústsson mokaði í gær frá húsi sínu við Aðalstræti.
Björguðu sama manninum
tvisvar af ófærum fjallvegum
FLUG til Grímseyjar féll niður
á föstudag. Jóhannes Henn-
ingsson útgerðarmaður átti
von á gestum frá Akureyri í
fertugsafmælið sitt en greip
til þess ráðs að fresta afmæl-
inu í sólarhring og hélt upp á
það í gærkvöldi í staðinn.
Það er óvenjulegt að Gríms-
eyjarferjan Sæfari skuli held-
ur ekki hafa siglt á föstudag.
„Það var snarvitlaust veður,
haugabrim og ekki möguleiki að þjónustu neitt
skip hérna,“ sagði Garðar Ólason, oddviti Gríms-
eyjarhrepps, í gær þegar hann var að búa sig í
afmælisveislu Jóhannesar. Hann sagði að það
gerði lítið til þótt ferðin hefði fallið niður. Ekki
biði neinn fiskur enda hefði verið bræla að und-
anförnu. Hann hældi skipverjum fyrir að hafa
siglt fyrr í vikunni við afar erfiðar aðstæður til
að ná í fisk sem þurfti að koma í land.
Afmælisveislunni
frestað um sólarhring
Garðar
Ólason
HEKLA hefur
opnað vefsvæði
fyrir sölu á bílum
til útlanda. „Eins
og gefur að skilja
er ekki mikil sala
innanlands í
augnablikinu,“
segir Sverrir
Hauksson, fram-
kvæmdastjóri
bílasviðs Heklu.
Sverrir segir að Hekla hafi opnað
vefsvæðið www.nordiccarsale.is,
eftir að rætt hafi verið um að fella
niður eða lækka vörugjöld eða virð-
isaukaskatt á útfluttum bifreiðum,
en þúsundir bifreiða eru „fastar“
hér á landi á að því er virðist dauð-
um markaði. „Bílgreinasambandið
hefur lagt áherslu á þetta en eftir
minni bestu vitund eru þessi áform
enn ókláruð í fjármálaráðuneyt-
inu,“ segir Sverrir.
Útfærslan liggur ekki fyrir. Ann-
aðhvort verða vörugjöld lækkuð
eða virðisaukaskattur. Sverrir seg-
ir að opnun vefjarins hafi verið lið-
ur í því að undirbúa fyrirtækið und-
ir aukna sölu til útlanda, ef þessar
hugmyndir verða að veruleika.
Hann segist skynja mikinn áhuga
erlendis. Hann nefnir sem dæmi að
blaðamaður sænska dagblaðsins
Dagens Industry hafi haft samband
við sig og frétt á vefútgáfu blaðsins
hafi birst í kjölfarið. „Það fóru allt í
einu að hrynja inn fyrirspurnir frá
Svíþjóð. […] Meðan gengisskrán-
ingin er eins og hún er þá er mjög
hagstætt fyrir útlendinga að kaupa
bíla hér á landi,“ bætir hann við.
thorbjorn@mbl.is
Undirbúa
bílasölu út
Hekla skynjar auk-
inn áhuga erlendis
Sverrir
Hauksson
LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæð-
inu handtók í gær einn karlmann
sem grunaður er um þátttöku í al-
varlegri líkamsárás í húsi við
Hverfisgötu í Reykjavík í fyrra-
kvöld.
Fjórir eða fimm grímuklæddir
menn réðust inn í íbúðina á laug-
ardagskvöld og börðu fjóra íbúa
með stálrörum og hafnaboltakylf-
um. Þegar lögreglan kom á staðinn
voru árásarmennirnir á bak og
burt. Tveir hinna særðu voru fluttir
á slysadeild með höfuðáverka. Hin-
ir vildu ekki þiggja læknisaðstoð
þrátt fyrir að tennur hefðu verið
brotnar í þeim og skurði og áverka
á baki. Mennirnir eru af erlendu
þjóðerni, og voru yfirheyrðir með
aðstoð túlks. steinthor@mbl.is
Einn handtek-
inn vegna
líkamsárásar
UM 53.200 manns höfðu í gær-
kvöldi undirritað ávarp Íslendinga
til bresku ríkisstjórnarinnar.
Eftir að Gordon Brown, forsætis-
ráðherra Bretlands, beitti hryðju-
verkalögum gegn Íslendingum
fóru einstaklingar af stað og
sömdu yfirlýsinguna „Íslendingar
eru ekki hryðjuverkamenn“. Þar
er þess farið á leit við bresku þjóð-
ina að hún standi með Íslendingum
í þeirri viðleitni að binda enda á
diplómatískar erjur milli ríkis-
stjórna landanna til þess að hægt
verði að koma í veg fyrir frekara
efnahagslegt tjón. Fólk er hvatt til
að bæta nafni sínu við undirskrifta-
lista á vefnum (www.indefence.is)
sé það sammála inntaki yfirlýsing-
arinnar.
Yfir 53 þúsund
undirskriftir