Morgunblaðið - 27.10.2008, Side 13

Morgunblaðið - 27.10.2008, Side 13
Fréttir 13INNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. OKTÓBER 2008 EFNAHAGSÁSTANDINU í landinu var mótmælt á tveimur útifundum í miðbæ Reykjavíkur í fyrra- dag, auk mótmæla víðar um landið. Fundirnir í Reykjavík voru boðaðir klukkan 15 og 16 vegna þess að ekki tókst samstaða meðal fundarboðenda. Hörður Torfason tónlistarmaður stóð fyrir mót- mælafundinum sem boðaður var við Alþingishúsið á Austurvelli kl. 15. Hann hefur tekið þátt í mót- mælunum í hálfan mánuð, fyrst með því að mæta á fund á Arnarhóli 10. október, þar sem spjótunum var sérstaklega beint að Davíð Oddssyni seðla- bankastjóra. Hörður segist hafa tekið þátt í fund- inum en áttað sig á því að þetta væri ekki rétt að- ferð, að beina mótmælunum gegn Davíð Oddssyni persónulega. Hann hvatti til þess að boðað yrði til fundar daginn eftir þar sem þess yrði krafist að stjórn Seðlabankans segði öll af sér og ríkisstjórnin einnig. Fólkið hittist á Austurvelli í sex daga og síðan var ákveðið að boða til stærri fundar laug- ardaginn 18. október. Sá fundur snerist einnig upp í mótmæli gegn Davíð Oddssyni. Hörður segist hafa verið ósáttur við það, hann hefði fengið ungt fólk til að auglýsa fundinn. Þá var ákveðið að boða til nýs fundar, laug- ardaginn 25. október kl. 15. Þegar leið á vikuna var farið að kynna kyndilgöngu og fólk hvatt til að koma saman á Austurvelli kl. 16. Hörður segir að fólkið sem stóð fyrir göngunni hafi neitað sam- vinnu og viljað fara eigin leiðir. Sjálfur hafi hann ekki getað breytt fundi sem tvö þúsund manns ákváðu. Mun fleiri mættu á kyndilgönguna sem Kolfinna Baldvinsdóttir boðaði til. Gengið var að Ráð- herrabústaðnum og haldnar mótmælaræður. Áherslan var á að rjúfa þögn ráðamanna. Ein- hverjir göngumenn brenndu fána Landsbankans og hrópuð voru vígorð gegn Davíð Oddssyni. Kolfinna kveðst ánægð með fundinn og þá athygli sem hann fékk, bæði innanlands og utan. Hún segir engan hafa einkarétt á mótmælum á Austurvelli og vill hvetja alla sem eru heima að hugsa um þessi mál að fara út og mótmæla. GEGN ÞÖGN RÁÐAMANNA Ekki tókst samstaða meðal mótmælenda sem efndu til tveggja funda í miðbænum með klukkustundar millibili Morgunblaðið/Frikki Mótmæli Fjöldi fólks mótmæli framan við Ráðherrabústaðinn við Tjarnargötu, hver undir sínu merki. Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is BÓTASJÓÐIR þriggja stærstu tryggingafélaganna standa vel að sögn forstjóra þeirra. Öll félögin breyttu fjárfestingarstefnu fyrir sjóðina fyrir um ári og færðu m.a. fjármuni úr hlutabréfum yfir í rík- isskuldabréf og á innlánsreikninga. Þeir prísa sig nú sæla fyrir þá ákvörðun. Sigurður Viðarsson, forstjóri Tryggingamiðstöðvarinnar, segir að tap félagsins vegna hruns bank- anna og annarra efnahagsþreng- inga undanfarið sé í lágmarki, þótt félagið hafi reyndar tapað ein- hverjum fjármunum eins og flestir aðrir. Bótasjóður félagsins sé afar sterkur og hafi litlu tapað. Ástæðan fyrir þessari sterku stöðu sé sú að undir lok síðasta árs hafi verið breytt um fjárfestingarstefnu, mjög hafi verið dregið úr vægi hlutabréfa en þess í stað lögð meiri áhersla á ríkistryggð skuldabréf. „Og það hefur alveg bjargað okkur. Staðan væri ekki glæsileg ef við værum með óbreytta stefnu. Staðan hefði verið mjög slæm, það er alveg ljóst,“ segir hann. Skuld við tjónþola Tryggingafélögum ber að leggja tiltekinn hluta af iðgjöldum í bóta- sjóð til að félagið geti örugglega greitt tjón viðskiptavina sinna. Þetta fé þarf að geyma og ávaxta með einhverjum hætti. Heitið bóta- sjóður er raunar úrelt því í lögum er nú talað um vátryggingaskuld, þ.e. skuld félagsins við tjónþola, en ekki bótasjóð. Eignir á móti tjónaskuld tryggðar Guðmundur Ö. Gunnarsson, for- stjóri Vátryggingafélags Íslands, vill fremur ræða um vátrygg- ingaskuld enda sé það réttara. Hann segir að vel hafi gengið að ávaxta þær eignir sem standa á móti vátryggingaskuld VÍS. Félagið hafi gripið til aðgerða í byrjun árs og fært umræddar eignir að mestu leyti yfir í ríkistryggða pappíra. „Eignir á móti tjónaskuldinni eru að fullu tryggðar og engin afföll verða á þeim, tjónþolar sem eiga inni bætur hjá félaginu geta verið öruggir um að fá sitt tjón bætt,“ segir Guðmundur. Sjóvá fjárfesti erlendis Samkvæmt upplýsingum frá Þór Sigfússyni, forstjóra Sjóvár, er vá- tryggingaskuld eða bótasjóðir fé- lagsins um 22 milljarðar króna. Þegar ljóst virtist að gengi krón- unnar hafði fjarlægast nokkuð jafn- vægisgengi sitt á síðasta ári hefði félagið aukið við eignir sínar er- lendis og selt eignir innanlands. Stærstu eignirnar erlendis séu fast- eignir sem leigðar eru traustum að- ilum í Evrópu, þar á meðal ríkj- unum sjálfum. Leigusamningar til 30 ára liggi þar að baki og tekju- flæðið sé gott. Samtals nemur vátryggingaskuld félaganna um 48 milljörðum króna.  Stóru tryggingafélögin breyttu fjárfestingarstefnu sinni fyrir um ári  Færðu fjármuni úr hlutabréf- um í ríkistryggð skuldabréf  Staðan hefði verið allt önnur og verri ef þetta hefði ekki verið gert Bótasjóðir stóðust storminn Morgunblaðið/Ómar Eftir Örn Þórarinsson Siglufjörður | Undanfarnar vikur hefur verið unnið að dýpkun í Siglufjarðarhöfn. Þetta er við svo- kallaða Óskarsbryggju og út af henni. Áformað er að fjarlægja um 54 þúsund rúmmetra af efni og á eftir verði um níu metra dýpi að sögn Sigurðar Sigurðssonar hafn- arvarðar. Efninu er mokað upp með dýpkunarskipinu Gretti og síðan flutt til hafs á flutningapramma. Auk þessa er unnið að niðurrifi á gömlu löndunarbryggju SR. Hún er að mestu úr timbri en steyptir stöplar undir henni og hefur gengið á ýmsu við að ná þeim upp. Þegar niðurrifinu er lokið verður einnig dýpkað þar sem bryggjan var. Það er Ístak ehf. sem vinnur verkið. Miklar fram- kvæmdir við höfnina Morgunblaðið/Örn Þórarinsson Dýpkun Dýpkunarskipið Grettir vinnur að dýpkun í höfninni. MÁLÞING um átaksverkefni í Rangárvallasýslu og Vestur-Skafta- fellssýslu verður haldið miðviku- dagskvöldið 29. október nk. undir Eyjafjöllum. Rædd verður að- koma Landbún- aðarháskólans á Hvanneyri og fleiri stofnana að frekari þátttöku í sýsl- unum með aðaláherslu á korn- og jarðrækt. Málþingið hefst á býlinu Þorvaldseyri með inngangi og hress- ingu kl. 19. Kl. 19.30 verður nýja kornverksmiðjan í Drangshlíð skoð- uð og síðan hefst málþingið í Skógum um kl. 20. Hagsmunaaðilar og áhugamenn í sýslunum standa að málþinginu með þátttöku sveitar- stjórna Rangárþings ytra, Rangár- þings eystra, Mýrdalshrepps og Skaftárhrepps. Framsögur á málþinginu hafa Ágúst Sigurðsson, rektor Landbún- aðarháskóla Íslands á Hvanneyri, Ólafur Eggertsson, bóndi á Þor- valdseyri, Áslaug Helgadóttir pró- fessor og Sveinn Runólfsson land- græðslustjóri. Stjórnandi málþingsins í Skógum verður Árni Johnsen alþingismaður. Hugmyndin með málþinginu er að skerpa línur í atvinnumöguleikum þessara tveggja sýslna, efla og styrkja innlenda sýn og framleiðslu. Áhugamenn nær og fjær eru hvattir til að mæta en allir eru velkomnir á Skógamálþingið. Atvinnulíf á Suður- landi eflt Árni Johnsen Málþing í Skógum á miðvikudagskvöld STJÓRN kjördæmisráðs Samfylk- ingarinnar í Norðvesturkjördæmi krefst uppgjörs við efnahags- og peningamálastefnuna undanfarna áratugi, segir í ályktun frá stjórn- inni. „Ljóst er að forsendur fyrir stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 27. maí 2007 eru gjörbreyttar og sá tími, sem þá virtist vera til um- þóttunar um aðildarviðræður við ESB er liðinn, þær viðræður þurfa stjórnvöld að hefja strax. Ísland hef- ur leitað aðstoðar alþjóðasamfélags- ins en það þarf líka að gera róttækar breytingar á stjórn efnahagsmála, bæði á hinum pólitíska vettvangi og innan stjórnkerfisins, með upp- stokkun embætta og stórefldu eft- irliti í viðskiptalífinu,“ segir meðal annars í ályktuninni, sem stjórnin samþykkti á fundi um helgina. Viðræður hefjist strax Hallgerður er 15 ára Í FRÉTT um hinn nýja Íslands- meistara í skák kvenna, Hallgerði Helgu Þorsteinsdóttur, í laug- ardagsblaðinu, misritaðist aldur hennar. Hallgerður er 15 ára en ekki 17, eins og stóð í frétt og skákþætti. Í þessu ljósi er árangur hennar enn glæsilegri en ella. Beðist er velvirð- ingar á þessum mistökum. Röng launatafla Í töflu um laun nokkurra starfs- manna hins opinbera, sem birtist á bls. 6 í föstudagsblaðinu, var rangt farið með laun forsætisráðherra. Hann hefur 1.098.208 krónur í mán- arlaun en ekki 1,6 milljónir eins og stóð. Er beðist velvirðingar á þessu. LEIÐRÉTT

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.