Morgunblaðið - 27.10.2008, Side 14
14 Fréttir ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. OKTÓBER 2008
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
ENDURKOMA Peters Mandelson, sem nýlega
tók við embætti ráðherra viðskiptamála í Bret-
landi, er þegar farin að valda ugg í Verkamanna-
flokknum og menn farnir að spá því að hann muni
hrökklast úr ráðherraembætti í þriðja sinn. Man-
delson, sem var í fimm ár utanríkisviðskipta-
fulltrúi í stjórn Evrópusambandsins í Brussel hef-
ur viðurkennt að hafa þegið boð í skemmtisnekkju
rússneska auðkýfingsins Oleg Deripaska.
Snekkja Deripaska var í höfn á grísku eynni
Korfu þegar Mandelson var gestur auðkýfingsins
í sumar, líklega yfir nótt en lengd dvalarinnar er
enn óljós og ýmsum sögum fer af því hve skrautleg
veisluhöldin hafi verið. Hann hefur orðið tvísaga
um málið, sagði fyrst að hann hefði hitt Deripaska
í fyrsta sinn árið 2006. En í bréfi til blaðsins Times
í gær viðurkenndi hann að kunningsskapurinn
hefði byrjað 2004. Mandelson harðneitar að hafa
tekið ákvarðanir í embætti sínu í Brussel sem hafi
gagnast Deripaska.
Deripaska er talinn ríkastur allra Rússa. Bresk-
ur dómari hefur lýst í smáatriðum tengslum Deri-
paska við Anton Malevskí, rússneskan mafíufor-
ingja. Sagt er að bróðir Malevskís eigi 10% hlut í
fyrirtæki Deripaska.
Íhaldsmenn eru einnig í vanda vegna sama
Deripaska. Komið hefur í ljós að George Osborne,
skuggafjármálaráðherra þeirra, hefur líka verið
gestur í snekkju Rússans. Fjármálamaðurinn Nat
Rotschild, fyrrverandi vinur Osborne, fullyrðir að
Osborne hafi beðið Deripaska um að leggja fram
50 þúsund pund í kosningasjóð Íhaldsflokksins.
Osborne harðneitar því.
Deripaska sagður veita vel
Breskir stjórnmálamenn í vanda vegna tengsla við rússneskan auðkýfing
með mafíutengsl Bauð Mandelson og Osborne um borð í snekkju sína
Peter
Mandelson
Oleg
Deripaska
George
Osborne
HEIMSMEISTARAKEPPNIN í dansi fyrir fólk í hjólastól fór fram í Minsk í
Hvíta-Rússlandi um helgina. Um 135 manns frá 17 löndum tóku þátt í
keppninni en hún fer fram annað hvert ár. Ljóst er að ef viljinn er fyrir
hendi er hægt að yfirvinna alla erfiðleika.
AP
Vilji og vel smurð hjól
FRÉTTASKÝRING
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
HVAÐ gerir fólk þegar það missir
trú á bönkunum? Vafalaust eru við-
brögðin nokkuð misjöfn eftir lönd-
um, reynsla þjóða af bönkum og
sparisjóðum er misjöfn. En víða á
Vesturlöndum hefur sala á traustum
peningaskápum aukist, fólk er farið
að hamstra gull. Traustið á gjald-
miðlum er að dvína.
Þjóðverjar urðu fyrir því fyrstu
árin eftir fyrri heimsstyrjöld að
sparifé þeirra brann upp í óðaverð-
bólgu. Minningin um þá skelfilegu
tíma, þegar fylla þurfti ferðatösku af
seðlum til að kaupa einn brauðhleif,
eru rótfastar í þjóðarsálinni.
Og enn var allt stokkað upp þegar
skipt var um gjaldmiðil 1948 í því
sem varð Vestur-Þýskaland, sá litli
sparnaður sem sumir áttu hvarf.
Í grein í International Herald
Tribune er sagt frá Gert Heinz, 68
ára gömlum skattaráðgjafa í
München. „Ég hef ekki gleymt sög-
unni,“ segir hann. „Þeir sem treysta
á pappírspeninga geta tapað öllu.
Við lærðum það af biturri reynslu
eftir tvær heimsstyrjaldir.“
Heinz hefur skipt drjúgum hluta
af sparifé sínu í gull og komið sér
upp sex mánaða birgðum af hrís-
grjónum, sykri, hveiti og sérstakri
gerð af mjólkurdufti sem sagt er að
geymist í hálfa öld. Hann er við öllu
búinn og byrjaði þegar fyrir 1992 að
kaupa jarðir og gullforða sem hann
geymir hjá fyrirtæki er sérhæfir síg
í slíkri varðveislu. Heinz segir að
einn af viðskiptavinum sínum hafi
falið vatnsþéttan poka, fullan af gulli
og silfri, á botni stöðuvatns. Hann
óttist að ríkisstjórnin muni grípa til
þess ráðs að banna almenningi að
eiga gull eða fara að skattleggja það
sérstaklega.
Hörmungar lifa í vitund þjóðar
„Sagan skiptir máli,“ segir Toni
Pierenkemper, prófessor í hagsögu
við Kölnarháskóla. „Hörmungar
greypast inn í sameiginlega vitund
þjóðar og lifa oft áfram inn í næstu
kynslóðir.“
Bandaríkjamenn eru að einu leyti
öðruvísi staddir en flestir Evrópu-
menn: vestra er mun algengara að
fólk kaupi hlutabréf. Meira en helm-
ingur Bandaríkjamanna á slík bréf
en hlutfallið í Þýskalandi er aðeins
13%. Í Frakklandi er það 24% og
jafnvel í Bretlandi er það aðeins um
20%. Evrópumenn hafa fremur
varðveitt sparifé sitt í bönkum og
sparisjóðum og nú flytja margir
Þjóðverjar óttaslegnir sinn sparnað
yfir í einhverja af hinum nær 500
sparisjóðum landsins í opinberri
eigu.
Felur gullið í stöðuvatni
Þjóðverjar eru margir tortryggnir á fjármálakerfið enda lifa minningar um
óðaverðbólgu og hrun eftir heimsstyrjaldirnar tvær enn í þjóðarvitundinni
IMF, Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn,
hefur ákveðið að veita Úkraínu 16,5
milljarða dala lán til að efla traust á
efnahagslífinu í landinu, styrkja
efnahagslegar stoðir og tryggja
stöðugleikann. Alþjóðlega fjár-
málakreppan hefur leikið Úkraínu
grátt, þjóðin hefur treyst mjög á út-
flutning stáls og annarra hálfunn-
inna iðnaðarvara en verðið á þeim
hefur lækkað mikið að undanförnu.
Skuldatryggingaálag ríkissjóðs í
landinu hefur snarhækkað síðustu
vikurnar og margir óttast að landið
sé á leið í sams konar vanda og Ís-
land. Gjaldmiðillinn, hryvna, hefur
hrunið í verði.
Ungverjaland, Pakistan og
Hvíta-Rússland eiga einnig í við-
ræðum við IMF um aðstoð í fjár-
málakreppunni. kjon@mbl.is
IMF aðstoð-
ar Úkraínu
með láni
Fá 16,5 milljarða
dollara frá sjóðnum
LEIÐTOGI Ka-
dimaflokksins í
Ísrael, Tzipi
Livni utanríkis-
ráðherra, hefur
gefið upp á bát-
inn tilraunir sín-
ar til að mynda
nýja samsteypu-
stjórn og mælir
með nýjum kosn-
ingum.
Livni tók nýlega við leiðtogaemb-
ættinu er Ehud Olmert, starfandi
forsætisráðherra, varð að segja af
sér vegna ásakana um spillingu.
kjon@mbl.is
Livni vill
kosningar
Tzipi
Livni
TÍMAMÓT urðu í lífi Palestínu-
manna í gær en þá léku þeir í fyrsta
sinn knattspyrnulandsleik á heima-
velli. Keppt var við lið Jórdaníu á
eina vellinum á Vesturbakkanum
sem talinn var duga. Alþjóðaknatt-
spyrnusambandið, FIFA, tók þátt í
að lagfæra völlinn fyrir fjórar millj-
ónir dollara.
Vináttulandsleikurinn fór 1-1.
Lið Palestínumanna er neðarlega á
heimslistanum, númer 180 af alls
207. En fyrir aðeins tveim árum var
staðan betri, þá var liðið númer
115.
Leikmenn Palestínu komu frá
bæði Vesturbakkanum, Gaza og
einn frá Chile. Fimm þeirra voru
frá Gaza en fyrirliðinn, sem er líka
frá Gaza, fékk ekki leyfi hjá Ísrael-
um til að koma og keppa.
kjon@mbl.is
Fótbolti á
Vesturbakka
BRETAR sem áttu innistæður á
Icesave-reikningum Landsbankans í
Bretlandi fá væntanlega greitt innan
tíu daga. Talsmaður tryggingasjóðs
innlána í Bretlandi, FSCS, tjáði The
Guardian að reynt yrði að hraða af-
greiðslunni og miðað væri við að
uppgjöri yrði lokið fyrir 1. desem-
ber.
Þar með er endi bundinn á þriggja
vikna óvissu bresku sparifjáreigend-
anna. Rúmlega 300 þúsund Icesave-
reikningar voru stofnaðir hjá Lands-
bankanum í Bretlandi og nema inni-
stæður á þeim fjórum milljörðum
punda eða sem svarar rúmlega 750
milljörðum íslenskra króna. Breskir
sparifjáreigendur fá innistæður sín-
ar greiddar að fullu, ásamt vöxtum,
að sögn FSCS. kjon@mbl.is
Fá Icesave-
innistæður
Hvers vegna hamstrar fólk nú
víða um heim gull?
Gull hækkar ávallt í verði þegar
kreppir að í efnahagsmálum. Svo
mikill er atgangurinn núna að margir
gullsalar í Þýskalandi hafa lokað í bili
heimasíðum sínum, þeir eiga ekki
meiri birgðir. Flestir kaupa gull-
stangir eða myntir, aðrir kaupa
reyndar demanta sem halda líka
verðgildi sínu.
Hvað veldur því að skyndilega
grípur um sig ótti á mörkuðum?
Oft hefur slík hjarðhvöt gripið um sig
án þess að skynsamleg skýring hafi
fundist á því, allir reyna samtímis að
sleppa við tap sem þeir óttast að sé í
aðsigi, t.d. vegna gengishruns. Þetta
gerðist í Mexíkó á síðasta áratug. Á
nokkrum dögum streymdu tugmillj-
arðar dollara úr landi. Bandaríkin
veittu Mexíkó geysistórt skyndilán.
S&S