Morgunblaðið - 27.10.2008, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. OKTÓBER 2008
ENGIN MISKUNN.
BARA SÁRSAUKI!
MAGNAÐUR SPENNUTRYLLIR!
EMMA ROBERTS ER NÝJA STELPAN,
Í NÝJA SKÓLANUM ÞAR SEM NÝJU
REGLURNAR ERU TIL VANDRÆÐA!
EAGLE EYE kl. 8 - 10:20 B.i. 16 ára
WOMAN kl. 8 LEYFÐ
SEX DRIVE kl. 10:20 B.i. 12 ára
/ AKUREYRI / KEFLAVÍK
THE HOUSE BUNNY kl. 8 LEYFÐ
PINEAPPLE EXPRESS kl. 10:10 B.i. 16 ára
NIGHTS IN RODANTHE kl. 8 LEYFÐ
BURN AFTER READING kl. 10:10 B.i. 16 ára
/ SELFOSSI
EINHVER HROTTALEGASTA
SPENNUMYND SÍÐARI ÁRA,
Í ANDA HINNA MÖGNUÐU
FLATLINERS
EAGLE EYE kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára
DHARLIE BARTLETT kl. 8 B.i. 12 ára
RIGHTEOUS KILL kl. 10:10 B.i. 16 ára
SÝND Í ÁLFABAKKA
OG KRINGLUNNI
ATH. STRANGLEGA
BÖNNUÐ INNAN 16 ÁRA.
SÝND Í ÁLFABAKKA
FRÁ HÖFUNDI THE NOTEBOOK
KEMUR NIGHTS IN RODANTHE
RICHARD GERE
ÁSAMT DIANE LANE
FARA Á KOSTUM
Í ÞESSARI FALLEGU
ÁSTARSÖGU.
SÝND Á AKUREYRI SÝND Í KEFLAVÍKSÝND Á SELFOSSI
MYND SEM ALLAR
KONUR VERÐA AÐ SJÁ
FRÁ ÞEIM SEM FÆRÐU OKKUR LEGALLY BLONDE
SÝND Í ÁLFABAKKA OG SELFOSSI SÝND Í ALFABAKKA
SÝND Á SELFOSSI
KVIKMYND
Háskólabíó, Smárabíó, Borg-
arbíó
My Best Friend’s Girl
bmnnn
Leikstjóri: Howard Deutch. Leikarar:
Dane Cook, Kate Hudson, Jason Biggs,
Alec Baldwin. Bandaríkin. 101 mín.
2008.
ÞAÐ er stundum vandlifað á kvik-
myndamarkaðinum í Hollywood
eins og gamanmyndin My Best
Friend’s Girl með Kate Hudson,
Dane Cook og Jason Biggs sýnir.
Myndin er það sem Bandaríkja-
menn kalla stefnumótamynd. Hún
ætti að vera rómantísk og fyndin
þó að handritshöfundur vilji ef til
vill vera kaldhæðinn líka. Nú hefur
húmor síðustu ára frekar verið
gerður út á grófleika og kynferð-
islega hluti svo að My Best Fri-
end’s Girl reynir að vera á svip-
uðum slóðum og myndir eins og
American Pie, og Wedding Cras-
hers. Myndin á að vera rómantísk
eina mínútuna, gróf hina, og alltaf
rembist hún við að vera fyndin.
Málið er einfaldlega að þessi hræri-
grautur er illa matreiddur.
Dane Cook leikur Tank. Hann á
að vera sérfræðingur í því að vera
óaðlaðandi skíthæll við konur.
Karlmenn borga honum fyrir að
fara á stefnumót með fyrrverandi
kærustunni. Þá hagar Tank sér svo
illa að stúlkurnar eiga að snúa aft-
ur í fyrri sambönd. Þetta á sem
sagt að vera fyndið. Þetta er
grunnhyggin afstaða þar sem allar
konur eru frekar miklar rollur og
karlmenn eru plebbar. Ekki falleg
heimssýn það.
Anna Sveinbjarnardóttir
Plebbar og rollur í tilhugalífinu
Misheppnuð „Hún ætti að vera rómantísk og fyndin þó að handritshöf-
undur vilji ef til vill vera kaldhæðinn líka,“ segir m.a í dómnum.
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
PLATAN heitir líkt og hljómsveitin,
allfurðulegu nafni eða The Lost Gar-
den Of The Hooligans. The Viking
Giant Show byrjaði sem heimagrúsk
Heiðars fyrir fimm árum og studdist
hann þá við kassagítar og tölvu. Í
dag erum við hins vegar að tala um
fjögurra manna hljómsveit (þar sem
allir, utan Heiðar, eru sprenglærðir)
og hljómbústna plötu sem inniheldur
melódískar kántrí- og „folk“-skotnar
lagasmíðar prýddar beittum, hæðn-
islegum og mjög svo gagnrýnum
textum. Það hefur ýmislegt breyst á
umliðnum árum eða hvað Heiðar?
Valinn maður í hverju …
„Jú, jú, það er óhætt að segja
það,“ svarar Heiðar með óræðu
brosi.
„Annars líður mér hálfpartinn
eins og ég sé kominn á byrjunarreit.
Þetta er ólíkt því sem ég hef verið
þekktur fyrir og maður veit ekkert
hvernig fólk á eftir að taka í þetta.
Það er annars frábært að vera loks-
ins búinn að koma þessu út, þetta er
búið að vera ansi lengi í farvatninu.“
Heiðar segist hafa sest niður fyrir
um fimm árum einn inni í herbergi
með gítarinnar og þá hafi fæðst lög
sem hann vissi að myndu ekki passa
við rokksveit hans, Botnleðju.
„Ég var mikið að hlusta á Will
Oldham og Papa M á þessum tíma,
allt þetta jaðarkántrí og það hafði
áhrif.“
Heiðar fékk svo gamla skólafélaga
sína úr Flensborg, þá Inga, Andrés
Þór og Eystein til liðs við sig.
„Þetta eru vægast sagt fagmenn,“
segir Heiðar glettinn. „Þegar ég,
Raggi og Halli vorum að byrja að
Botnleðjast voru þeir fyrir löngu
orðnir fullþroska tónlistarmenn!“
Reiður eldri maður
Heiðar leyfði þessum vinum sín-
um að heyra prufuupptökur af lög-
unum sínum og þeir pikkuðu þau
upp eins og skot. Og hann er síst ein-
hver harðstjóri. „Ég er opinn fyrir
öllu og ég treysti strákunum til að
vinna með þetta og setja sín blæ-
brigði á lögin. Mér finnst það reynd-
ar algerlega nauðsynlegt þar sem
maður týnist í eigin tónlist og verður
ekki dómbær með tímanum. Þá
virka fjórir heilar betur en einn.“
Athygli vekur að textarnir eru
margir hverjir rammpólitískir, taka
á hlutum eins og Bandaríkjastjórn,
afhommun og stjórnarformönnum á
ofurlaunum (í laginu „Let’s Hear it
for the CEO’s (Hipp Hipp Hur-
rey)“).
Venjulega er það þannig að menn
eru ungir og reiðir og mýkjast svo
með aldrinum. Þessu er hins vegar
öfugt farið í tilfelli Heiðars.
„Ég hef aldrei verið meira með á
nótunum en nú,“ segir hann. „Og hef
fundið hjá mér þörf til að tala um
það sem er í gangi. Það er líka
skemmtilegt að semja svona texta,
texta sem segja eitthvað. Þetta hef-
ur verið nokkurs konar heimilisiðn-
aður hjá mér og konunni.“
Stutt í næsta skammt
Framundan er spilamennska auk
þess sem næsta plata er þegar farin
að skríða saman.
„Við erum meira en tilbúnir að
spila og erum opnir fyrir öllum til-
boðum. Hugurinn er þá þegar farinn
að reika að nýju efni og mig grunar
að það verði ekki langt í næstu
plötu.“
Pólitískur heimilisiðnaður
The Viking Giant Show, sem Heiðar úr Botnleðju leiðir, gefur út breiðskífu
Tónlistin er kántrískotin og textarnir rammpólitískir
Morgunblaðið/Frikki
Mótmælavíkingar Heiðar og félagar senda þeim sem það eiga skilið vel valdar pillur á nýútkominni plötu.
HEIÐAR læddi
út lögum með
The Viking Gi-
ant Show fyrir
margt löngu.
Áhorfendur á
tónleikum
geta margir
hverjir humm-
að með í lög-
unum „Party
At The White House“ og „The
Cure“. Og það getur Josh
Homme, driffjöðrin í bandarísku
eyðimerkursveitinni Queens Of
the Stone Age einnig. Hann kol-
féll fyrir fyrra laginu þegar hann
var á ferð um landið árið 2006
og er hann var á leið út á flug-
völl, búinn til brottfarar, átti
hann þá ósk heitasta að heyra
lagið í síðasta sinn. Hann
hringdi því í Matta, þáverandi
starfsmann X-sins, sem þá var í
loftinu og varð hann ljúfmann-
lega við bón þessa helsta riff-
vísindamanns samtímans.
Útrásarvíkingar?
Josh Homme