Morgunblaðið - 27.10.2008, Page 40
MÁNUDAGUR 27. OKTÓBER 301. DAGUR ÁRSINS 2008
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 250 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1700
ÞETTA HELST»
Launalækkun
Emmessís hf. stóð frammi fyrir
því að þurfa að segja fólki upp vegna
efnahagsástandsins en stjórnendur í
samvinnu við starfsmenn komu í veg
fyrir það með því að taka á sig 10%
launalækkun tímabundið í fjóra
mánuði. Þeir lægst launuðu hjá
fyrirtækinu þurfa þó ekki að taka á
sig skerðingu. Á móti fá starfsmenn-
irnir fimm frídaga sem stjórnendur
velja. » Forsíða
Bjargað tvisvar
Björgunarsveitarmenn björguðu
sama manninum tvisvar af ófærum
fjallvegum á Austurlandi í gær, fyrst
af Öxi og síðan af Hellisheiði. Stór-
hríð gekk yfir Austurland um
helgina og var fólk varað við að vera
á fjallvegum en maðurinn var á
fólksbíl á leið til Vopnafjarðar.
Skemmdir urðu í nokkrum höfnum á
norðanverðu landinu í sjógangi í
norðanáttinni. » 2
Hrun og hópuppsagnir
„Ég sé fyrir mér algjört hrun í
byggingariðnaði,“ segir Gunnar Þor-
láksson, annar eigenda Bygginga-
félags Gylfa og Gunnars, og telur
ljóst að allt stefni í hópuppsagnir í
byggingariðnaðinum. Finnbjörn
Hermannsson, formaður Samiðnar,
telur að um 400 manns í byggingar-
iðnaði missi vinnuna um mánaða-
mótin. » 4
SKOÐANIR»
Ljósvakinn: Skrýtnar manneskjur
Staksteinar: Styðja flokk en ekki
stjórn
Forystugrein: Ábyrgðin á Icesave
UMRÆÐAN»
Má ég borga hærri skatta?
Íslendingar, tökum á vandanum
Stöndum vörð um lífsgæði
fatlaðs fólks
Höfum áður staðið af okku áföll
Heimili sniðið að fjórfætlingum
Bóndarósir
Ferfaldur munur á verði
FASTEIGNIR»
Heitast -1° C | Kaldast -6° C
Norðlæg átt, yfirleitt
á bilinu 5-13 m/s en
allt að 18 við austur-
ströndina. Stöku él
norðaustan til. »10
My best Friend’s
girl fær eina og hálfa
stjörnu enda ófyndin
og grunnhyggin
mynd að mati gagn-
rýnenda. » 37
KVIKMYNDIR»
Grunnhygg-
ið gamanmál
DÓMUR»
Motion Boys eru sykur-
húðaðir töffarar. » 36
Ný plata AC/DC,
Black Ice, ber með
sér dásamlega ein-
föld og rokkandi riff
og sveitin hefur ekk-
ert breyst. » 35
TÓNLIST»
AC/DC
breytist ekki
FÓLK»
Flugan fór á Ný dönsk og
Gljúfrastein. » 32
TÓNLIST»
Blindfold heldur friðar-
tónleika í London. » 34
Menning
VEÐUR»
1. Ísland færðist skrefi nær EM
2. Landsbanka lokað í Smáralind
3. Jolie og Pitt fóru öfugt að
4. Þingmenn stýri ekki sjóðum
Borgarleikhúsinu
Fýsn
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson
sisi@mbl.is
BÆJARSTJÓRN Hafnarfjarðar hefur gefið
Stjörnuskoðunarfélagi Seltjarnarness vilyrði fyrir
lóð undir stjörnuathugunarstöð í Krýsuvík. Þar
hyggst félagið reisa hús og 13 metra háan turn
með hvolfþaki. Alls verða byggingarnar 1.650 fer-
metrar. Kostnaður við framkvæmdina er áætlaður
25-30 milljónir króna.
Núverandi aðsetur félagsins er Valhúsaskóli á
Seltjarnarnesi. Grétar Örn Ómarsson, ritari fé-
lagsins, segir að þessi staðsetning henti ekki leng-
ur. Ljósmengun er helsti óvinur stjörnuskoðara
og hún hefur aukist mjög að undanförnu í ná-
grenni skólans. Flóðlýstur knattspyrnuvöllur var
nýlega tekinn í notkun og einnig líkamsræktar-
stöð World Class, með tilheyrandi ljósagangi.
Krýsuvík þykir einkar hentug til stjörnuskoð-
unar, að sögn Grétars. Svæðið hafi upp á allt að
bjóða: fyrsta flokks myrkur á mælikvarða kröfu-
harðra stjarnvísindamanna, ágætis samgöngur og
möguleika á heitu vatni í gegnum Krýsuvíkur-
skóla. Og síðast en ekki síst, óskert útsýni til suð-
urs án ljósamengunar um ókomna framtíð.
Félagið hefur stofnað söfnunarreikning vegna
framkvæmdarinnar og einnig verður leitað eftir
styrkjum. Netfang félagsins er www.astro.is.
Stjörnuskin í Krýsuvík
Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness hyggst reisa fullkomna skoðunarstöð
Krýsuvík er talin bjóða upp á fyrsta flokks myrkur til að skoða stjörnur
Útlit Hönnun stöðvarinnar í Krýsuvík er ekki lok-
ið en þessi stöð er m.a. fyrirmynd að henni.
Í HNOTSKURN
»Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarnessvar stofnað í mars 1976. Það er eina fé-
lag áhugamanna um stjörnuskoðun og
stjörnufræði hér á landi.
»Félagar eru nú um 200 talsins. Búastmá við því að þeim fjölgi umtalsvert ef
fullkomin aðstaða verður byggð upp í
Krýsuvík. Félagið heldur námskeið til að
efla áhugann á stjörnuskoðun. Námskeið
verður á Akureyri í næsta mánuði.
Á ÞESSUM síð-
ustu og verstu
tímum er vissara
að fara vel með
eyrinn. Því var
það gleðiefni
fyrir blaðamann
að komast að því
að hann getur
lagt nýjum bíl
sínum frítt í stæði Reykjavíkur-
borgar 90 mínútur í senn. Ekki
hafði hann hugmynd um að slíkt
væri í boði en glöggur fjölskyldu-
meðlimur slæddist inn á vefsíðu
Bílgreinasambandsins þar sem er
listi yfir þá bíla sem uppfylla kröf-
ur borgarinnar um ókeypis bíla-
stæði.
Visthæfir bílar eru skilgreindir
eftir eldsneytiseyðslu og eldsneyt-
isgerð, þau skilyrði sem bensínbíll
þarf t.d. að uppfylla til að lenda á
þeim lista er að eyðsla í blönduðum
akstri sé 5,0L/100km eða minna og
CO2 útblástur mest 120 g/km.
Það eina sem blaðamaður þarf
að gera núna er að nálgast sér-
staka bílastæðaskífu hjá næsta
bílaumboði. Skífan er sett í fram-
rúðu bifreiðarinnar og skal vísir
hennar stilltur á þann tíma sem
lagt er. Stöðumælaverðir geta þá
séð hvað bifreiðinni hefur verið
lagt lengi. Svo er bara að snúa skíf-
unni aftur eftir 90 mínútur ef
bæjarferðinni er ekki lokið. Sá
hængur er hins vegar á að ekki er
ókeypis í bílastæðahús né í stæði
sem er lokað með hliði.
Blaðamaður ætlar nú að fara að
hanga meira niðri í miðbæ enda
sér fyrir endann á smápeninga-
veseninu. ingveldur@mbl.is
Auratal
ÞRESTIR eru bersýnilega bráð-
greindir. Vegna mikilla snjóalaga
og hríðar á Akureyri var erfitt að
finna æti en nokkrir „bræður“ í
Glerárhverfi á Akureyri gripu til
þess ráðs að næla sér í reyniber úr
fallegum kransi sem handlagin
húsmóðir útbjó á dögunum og
hengdi á útihurðina á heimili sínu.
Þeir voru varir um sig og flugu
jafnan á brott um leið og einhver
átti leið hjá – en voru líklega að-
eins of gráðugir í þetta skipti
þannig að ljósmyndarinn náði að
munda vélina. Annar stendur á
öðrum fæti en hinn virðist sýna
honum stoltur hversu fallegu beri
hann náði af kransinum.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
ALVEG ÆSTIR Í BERIN