Morgunblaðið - 01.11.2008, Blaðsíða 1
L A U G A R D A G U R 1. N Ó V E M B E R 2 0 0 8
STOFNAÐ 1913
299. tölublað
96. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
Listhúsinu Laugardal
Reykjavík
Sími: 581 2233
Óseyri 2
Akureyri
Sími 461 1150 www.svefn.is
Ný sending af
SÆNGURVERASETTUM
mikið úrval
Leikhúsin
í landinu >> 47
Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur
kolbrun@mbl.is
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra
segir í viðtali við Morgunblaðið að það hafi skaðað
orðspor Íslendinga erlendis hvernig haldið hafi ver-
ið á umræðunni af hálfu Davíðs Oddssonar, for-
manns bankastjórnar Seðlabankans.
„Látum nú vera hvernig kaupin gerast á eyrinni
hér innanlands en þegar þetta er farið að hafa áhrif
utan landsteinanna í þeirri aðstöðu sem við erum í
núna þá er ábyrgðarhluti að láta málin halda áfram
í þessum farvegi,“ segir Ingibjörg Sólrún. Hún seg-
ir að ýmsar aðgerðir og yfirlýsingar stjórnar Seðla-
bankans á síðustu dögum og vikum orki mjög tví-
mælis. „Í þeirri viðkvæmu stöðu sem þjóðin er í
núna getur það ekki gengið til lengdar,“ segir hún.
Spurð hvort hún telji að stjórnarsamstarfið muni
halda út kjörtímabilið segir Ingibjörg Sólrún: „Það
væri fráleitt að spá einhverju öðru. Það væri eins og
að vera í hjónabandi og spá skilnaði. Það gerir mað-
ur ekki. Við erum í þessari ríkisstjórn af fullri al-
vöru til að vinna þau erfiðu verk sem framundan
eru. Við ætlum ekkert að flýja af hólmi.“
Ingibjörg segir brýnt að umræða um Evrópumál
sé sett á dagskrá af þunga. „Ef við tækjum þá
ákvörðun fljótlega að sækja um Evrópusambands-
aðild myndi það strax hafa áhrif á atvinnulífið hér
heima, markaðina og stöðu okkar gagnvart öðrum
löndum, því þá vita allir hvert við erum að stefna og
geta farið að gera áætlanir með hliðsjón af því.
Væntingar gagnvart Íslandi myndu breytast og það
í sjálfu sér hefði samstundis jákvæð áhrif. Síðustu
vikur þegar sumir gamlir vinir hafa ekki reynst
okkur vel höfum við fengið skýr skilaboð víða að um
að aðildarviðræður Íslands gætu gengið hratt og að
við ættum mörg stuðningsríki ef að því kæmi“
Davíð skaðar orðsporið
Ábyrgðarhluti að láta mál halda áfram í sama farvegi, segir Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir Viðræður við ESB gætu gengið hratt Fráleitt að spá stjórnarslitum
Ég hamra járnið | 24
ÞEIR voru ekki árennilegir krakkarnir í Háteigs-
skóla þegar þeir héldu upp á hrekkjavökuna í gær
og klæddu sig í óhugnanlega búninga. Vinsældir
hrekkjavöku virðast fara vaxandi á Íslandi, sum-
um, sem ekki kæra sig um erlenda hátíðisdaga, til
mikillar armæðu. Varla kemur þó að sök þótt
börnin fái tilefni til að nota oftar leikræna krafta í
litríkum búningum og ekkert gefur til kynna að
öskudegi standi ógn af hrekkjavökunni.
Hrekkjavökuhátíð var haldin í Háteigsskóla
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skrímsl og forynjur á stjá
LESBÓK
„Enginn veitti þeim sérstaka at-
hygli inni á staðnum og heldur ekki
þegar þau fóru út saman rúmri
klukkustund síðar og heim til hans
eftir fáförnum götum. Þá var lyfið
tekið að virka.“
Fyrsti kafli Myrkár, nýrrar
glæpasögu eftir Arnald Indriðason,
er birtur í Lesbók en bókin kemur
út í dag kl. 16. Hún fjallar um morð
í Þingholtunum.
Myrká eftir
Arnald Indriðason
Það er auðvelt að hafa samúð með
George W. Bush í nýrri mynd Oli-
vers Stone um forsetann sem nefn-
ist einfaldlega W.
Björn Þór Vilhjálmsson fjallar
um mynd Stone í Lesbók en myndin
verður frumsýnd hér á landi á
föstudaginn kemur, 7. nóvember.
Auðvelt að hafa
samúð með Bush
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir utan-
ríkisráðherra
gekkst undir
aðra aðgerð á
höfði í gær. Í við-
tali við Morg-
unblaðið segir
Ingibjörg Sólrún
um aðgerðina:
„Æxlið sem er í
fjórða vökvahólfi
heilans hefur takmarkað vökva-
flæði um hann. Það þarf að laga
með því að gera smágat til að liðka
fyrir þessu flæði. Eftir þá aðgerð
verð ég væntanlega laus allra mála.
Það er allavega engin ástæða til að
ætla annað.“
Væntanlega
laus allra mála
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
AUKABLAÐ UM JÓLAHLAÐBORÐ
NOTALEG SAMVERA
OG BROSANDI ANDLIT
UNGSVEITIN RETRO STEFSON
Litríkur hræringur
á́ fyrstu plötunni