Morgunblaðið - 01.11.2008, Page 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 2008
Hornsófar
Tungusófar
Svefnsófar
Sófasett
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16
ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA
Smíðum sófa eftir þínum þörfum
Yfir 200 teg
undir
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
GEIR H. Haarde, forsætisráðherra,
sagði á aðalfundi Landssambands
íslenskra útgerðarmanna í gær, að
tap útgerðarfélaga vegna fram-
virkra gengissamninga stæði nú í
25-30 milljörðum króna. Þessa stöðu
yrði að leysa og um það stæðu við-
ræður milli bankanna, hagsmuna-
ðila í sjávarútvegi og stjórnvalda.
Allir afleiðusamningar sem bank-
arnir gerðu urðu eftir í þrotabúum
gömlu bankanna, þ.m.t. framvirkir
gengissamningar útgerðarfélaga.
Tryggðu sig gegn styrkingu
Í ræðu Geirs kom fram að út-
gerðarfélög hefðu á undanförnum
árum gert töluvert af því að verja
sjóðsstreymi sitt með því að selja
tekjur sínar framvirkt til að tryggja
sig gegn tapi ef gengi krónunnar
styrktist. „Nú hefur hið gagnstæða
gerst og gengið hefur veikst gífur-
lega,“ sagði Geir. Við þetta hefði
myndast mikið tap á þessum fram-
virku samningum sem nú gæti num-
ið 25-30 milljörðum í heild. „Þessa
stöðu þarf að leysa. Og um það hafa
verið viðræður milli bankanna,
hagsmunaaðila í sjávarútvegi og
stjórnvalda en endanlegar ákvarð-
anir liggja ekki fyrir frekar en í
mörgum öðrum brýnum úrslausn-
arefnum sem tengjast hruni bank-
anna.“
Aðspurður hvaða möguleikar
væru til staðar til að leysa úr vand-
anum, sagðist Geir ekki geta fullyrt
um það. Verið væri að fara yfir mál-
ið. Vandinn væri mikill þó hann
væri misjafn eftir fyrirtækjum.
Gera má ráð fyrir að fyrirtæki í
öðrum atvinnugreinum hafi einnig
gert framvirka gengissamninga og
standi frammi fyrir slíku. Það er
eitt af atriðunum sem hljóta að
koma til skoðunar, að það sé ekki
mismunað hvað þetta varðar, sagði
Geir þegar hann var spurður hvort
eitt yrði látið gilda fyrir útvegsfyr-
irtæki en annað fyrir fyrirtæki í
öðrum atvinnugreinum.
Velsæld vegna útgerðar
Í ræðu sinni í gær minnti Geir á
að Íslendingar hefðu komist til vel-
sældar á síðustu öld á grundvelli
sjávarútvegs. Ekki hefðu þó allir
gert sér grein fyrir hinni gríðarlegu
þýðingu hans. „Þjóðarbúið stólar á
sjávarútveginn í þeirri uppbyggingu
sem nú blasir við og það er ljóst að
vægi greinarinnar mun aukast
verulegu að nýju, frá því sem það
var á síðustu misserum,“ sagði
hann.
UNNIÐ er við ýmsar stórfram-
kvæmdir á höfuðborgarsvæðinu og
Suðurnesjum, þrátt fyrir aðsteðjandi
erfiðleika í efnahagslífinu.
Uppsteypu lýkur í byrjun 2009
Íslenskir aðalverktakar (ÍAV)
vinna að smíði tónlistar- og ráðstefnu-
hússins við Reykjavíkurhöfn. Sigurð-
ur R. Ragnarsson, framkvæmdastjóri
Austurhafnarverkefnisins hjá ÍAV,
sagði að nú ynnu á svæðinu um 200
manns. Sumir af þeim eru erlendir
starfsmenn sem eru á leið heim á
næstunni, mest vegna efnahags-
ástandsins hér. Næturvinnu við húsið
var hætt í september sl. Stefnt er að
því að ljúka uppsteypu hússins í upp-
hafi næsta árs. Þá á að taka við vinna
við ytra byrði hússins.
Stefán Hermannsson, fram-
kvæmdastjóri Austurhafnar-TR,
sagði að ÍAV hefðu verið beðnir um að
hægja aðeins á framkvæmdum. Það
var gert vegna viðræðna við Portus
hf., sem hefur annast byggingu húss-
ins í einkaframkvæmd. Rætt er um að
Austurhöfn-TR taki við samningnum
við ÍAV af Portus hf. og haldi verkinu
áfram. Íslenska ríkið á 54% í Austur-
höfn-TR og Reykjavíkurborg 46%.
Stefán reiknaði með að viðræðunum
lyki á næstu vikum.
Við nýbyggingu Háskólans í
Reykjavík við Hlíðarfót starfa nú 180-
200 manns, að sögn Brynjars Brjáns-
sonar, staðarstjóra Ístaks. Eignar-
haldsfélagið Fasteign annast bygg-
ingu hússins, fjármögnun og
eignarhald.
Bergur Hauksson, framkvæmda-
stjóri Fasteignar, sagði að fram-
kvæmdum yrði haldið áfram sam-
kvæmt áætlun. Hann sagði að þegar
kæmi fram á vorið hæfist vinna innan-
húss og við frágang. Þá er reiknað
með að þeim fjölgi sem vinna við
bygginguna. Talið er að starfsmenn
við byggingu Háskólans í Reykjavík
geti þá orðið nálægt 300 talsins.
Norðurál í Helguvík
Nú vinna 80-100 manns við bygg-
ingu nýs álvers Norðuráls í Helguvík.
Unnið er í jarðvinnu og við að steypa
undirstöður. Ágúst Hafberg, fram-
kvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá
Norðuráli, sagði að framkvæmdin
hefði gengið eftir áætlun. Hann átti
ekki von á því að starfsmönnum við
verkið fjölgaði í bráð því ekki yrði haf-
ist handa við nýja verkþætti á næst-
unni. Nú er verið að fara yfir verkið í
heild með tilliti til kostnaðar og fjár-
mögnunar. Ágúst sagði verið væri að
leita tækifæra til að lækka kostnað.
Hann benti m.a. á að hráefni hefði
mikið lækkað í verði. T.d. hefði stál
lækkað um 70-75% frá því í júlí. Það
og ýmislegt annað geti gefið tækifæri.
gudni@mbl.is
Vinnu er haldið áfram við ýmsar stórframkvæmdir á Faxaflóasvæðinu
Halda
áfram að
byggja
Morgunblaðið/RAX
Áfram er haldið Að smíði tónlistar- og ráðstefnuhússins við Reykjavíkurhöfn vinna nú um 200 manns.
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
ÞEGAR vel er að gáð má finna ljósa
punkta í íslensku atvinnulífi nú um
stundir, þótt heildarmyndin sé vissu-
lega dökk. Allir starfsmenn stoð-
tækjaframleiðandans Össurar hf. á
Íslandi fengu í gær launauppbót.
Uppbótin var 100.000 krónur á
mann, en um 250 manns starfa hjá
fyrirtækinu hér á landi.
Góð afkoma Össurar
Jón Sigurðsson forstjóri segir
starfsfólkið hafa staðið saman í
gegnum þykkt og þunnt. „Við þurf-
um á þeirra óskiptu athygli að halda í
framtíðinni. Auðvitað er ekki glæsi-
leg staða framundan hjá mörgum
fjölskyldum í landinu.“ Því hafi verið
talið rétt að láta fé af hendi rakna.
Össur skilaði góðri afkomu á
þriðja ársfjórðungi. Hagnaður tíma-
bilsins var 13,7 milljónir Bandaríkja-
dala, en var 2,2 milljónir á sama
tímabili 2007. Það jafngildir ríflega
1,6 milljarða króna hagnaði á síðustu
mánuðum. Sala nam 269,9 milljónum
Bandaríkjadala og jókst um 8% frá
sama tímabili 2007.
Kraftur kvenna að aukast
Þá eru umsvif bankans Auðar
Capital að aukast hægt og rólega.
Fyrirtækið er líklega eitt fárra sem
stendur í því að fjölga starfsfólki og
ráða til sín.
„Smátt og smátt höfum við verið
að bæta við okkur fólki. Við fáum
stöðugt nýja viðskiptavini. Þrátt fyr-
ir allt er góður gangur hjá okkur,“
segir Kristín Pétursdóttir fram-
kvæmdastjóri. Hún segir að sem
stendur séu ein til tvær stöður lausar
hjá bankanum, en að undanförnu
hafi verið ráðið bæði í framlínu fyr-
irtækisins og stoðdeildir. Mikið
framboð sé á hæfu fólki sem sækist
eftir störfum hjá bankanum.
Enn ljósglætur
í atvinnulífinu
100.000 króna launauppbót hjá Össuri
Auður Capital bætir við sig fólki
Í HNOTSKURN
»Össur hf. framleiðir stoð-tæki og ýmsar vörur á
heilbrigðissviði. Fyrirtækið er
leiðandi á því sviði.
»Auður Capital er bankimeð áhættumeðvitaða
stefnu og tekur tillit til mann-
lífs og umhverfis.
»Hrina hópuppsagna stóðyfir í vikunni sem leið.
Ljóst er að margir verða um
hituna þegar störf losna á
næstunni.
Í RÆÐU sinni í gær sagði Geir H. Haarde að undanfarið hefðu þær raddir
gerst háværari en áður, sem segðu að nýta ætti tækifærið til að breyta
reglum um úthlutun veiðiheimilda. Vísaði hann með þessu til hugmynda
um að nýta ætti þá stöðu sem nú er komin upp að útgerðir skulda nú bönk-
um í eigu ríkisins háar fjárhæðir. Geir sagði að því hefði verið haldið fram
að kalla ætti veiðiheimildir inn, eins og menn orðuðu það og úthluta upp á
nýtt með gjörbreyttu sniði. „Þetta er fullkomlega óábyrgt tal. Eða finnst
mönnum ekki nóg um ástandið þó ekki bættist við að undirstöðuatvinnu-
vegi þjóðarinnar væri teflt í tvísýnu. Það þarf ekki að orðlengja það að
þetta kemur ekki til greina. Ekki frekar en að þegar þorskkvótinn verður
aukinn á nýjan leik þá verði þeim aflaheimildum ráðstafað með einhverjum
öðrum hætti en hingað til. Þeir sem urðu fyrir barðinu á þeim niðurskurði
eiga að njóta ávaxtanna þegar þar að kemur,“ sagði Geir H. Haarde.
„Fullkomlega óábyrgt tal“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fundur Geir H. Haarde forsætisráðherra, Björgólfur Jóhannsson, fráfarandi stjórnarformaður LÍU, og Friðrik J.
Arngrímsson framkvæmdastjóri á aðalfundi LÍÚ í gær. Geir sagði tal um breytingar á kvótakerfinu óábyrgt.
Tapa á gengisvörnum
Útgerðin í landinu stendur frammi fyrir 25-30 milljarða
tapi á framvirkum gengissamningum Verður að leysa