Morgunblaðið - 01.11.2008, Side 20
20 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 2008
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@mbl.is
COMMERZBANK hefur mótmælt því að Samson fái
áframhaldandi greiðslustöðvun og var málið tekið
fyrir í gær í héraðsdómi Reykjavíkur.
Héraðsdómur veitti Samson upphaflega greiðslu-
stöðvun til þriggja vikna og átti hún að renna út
síðastliðinn þriðjudag, þann 28. október.
Samson hafði farið fram á áframhaldandi
greiðslustöðvun en Commerzbank lagt fram mót-
mæli fyrir hönd sína og annarra banka sem höfðu
átt þátt í veitingu sambankalána til Samson. Félagið
fékk þriggja daga frest til að kynna sér mótmælin
og málið var síðan flutt í gær.
Ef fallist verður á kröfu Commerzbank þá mun
hvaða kröfuhafi sem er sem á kröfu í þrotabú Sam-
son geta krafist þess að félagið verði tekið til gjald-
þrotaskipta næsta mánuðinn frá því að niðurstaðan
liggur fyrir.
Úrskurðað verður í málinu næstkomandi þriðju-
dag.
Samson hefur verið í greiðslustöðvun frá 7. októ-
ber síðastliðnum en helsta eign félagsins hafði verið
rúmlega 40 prósent eignarhlutur í Landsbanka Ís-
lands.
Eigendur félagsins eru feðgarnir Björgólfur Guð-
mundsson og Björgólfur Thor Björgólfsson.
Þegar Landsbanki Íslands var tekinn yfir af ís-
lenska ríkinu varð eign Samson í bankanum að
engu. Ekki hafa fengist upplýsingar um hvaða fleiri
aðilar standa að mótmælunum með Commerzbank.
Commerzbank mótmælir
Morgunblaðið/Kristinn
Frá undirritun Samson keypti Landsbankann fyrir sex árum. Félagið er nú í greiðslustöðvun.
Áframhaldandi greiðslustöðvun Samson fyrir dómi
!
!"
# $
%&
" #()
$%&
! "##$
'()
*
+ * *
+ ,*
- .,*
/0- .,*
1 ,*
2* 3 . *4 5
#
6+
# - .,*
7 .8
,*
,*
9: 3; <%<*=,*
>,*
,
-(
+! ?
+9
39%
%@ ?
A,
,*
B
0;
,*
'
#. $
/0
C
?3
3C
2-
#,*
2 3.;
,*
123
B; .
#
&= ; # 7 . E))))
)FGFH
F))(E
'EG'
'
)E((FH('
)E((
'E)(
)I')
'I))
IFE
FI)
HEI()
GIE)
GI))
('I')
(G'I))
'I))
FI'
HFI
GIG)
)))I))
(HI))
')'I))
)I))
%0#
/; .
F
G
H
F
'
/; /
;
F)E))G
F)E))G
F)E))G
F)E))G
F)E))G
F)E))G
F)E))G
F)E))G
F)E))G
F)E))G
F)E))G
E)E))G
E)E))G
F)E))G
F))E))G
FE))G
F))E))G
E))E))G
HFE))G
&
&
&
&
&
&
&
ÞETTA HELST ...
● NOKKRIR aðilar hafa sýnt áhuga á
að kaupa hluta af þrotabúi danska
lággjaldaflugfélagsins Sterling, sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins,
en félagið varð gjaldþrota síðastlið-
inn miðvikudag.
Almar Örn Hilmarsson, fram-
kvæmdastjóri Sterling, sagðist í gær
ekkert geta tjáð sig um stöðu fyr-
irtækisins, þar sem það sé nú í
höndum skiptastjóra. Áætlað sé að
um 30-40 þúsund manns hafi orðið
strandaglópar víða um heim vegna
gjaldþrotsins. gretar@mbl.is
Áhugi á Sterling
Eftir Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@mbl.is
Í HOLLENSKA dagblaðinu Het
Financiele Dagblad [HFD] kemur
fram að fyrir íslenskum athafna-
menn hafi hrun íslenska banka-
kerfisins komið eins og þruma úr
heiðskíru lofti en hrun bankanna
skapi þó ný tækifæri.
„Bankahrunið hefur ekki haft
áhrif á okkar starfsemi,“ segir
Jón Sigurðsson, forstjóri stoð-
tækjaframleiðandans Össurar, í
samtali við blaðið, en 1700 manns
starfa hjá fyrirtækinu um allan
heim, þar af 230 á Íslandi. Einnig
er rætt við Hörð Arnarson, for-
stjóra Marels, og hann tekur í
svipaðan streng, ekki sé ástæða
til svartsýni.
Hafa mætt mótlæti áður
„Fyrirtæki í matvælaiðnaði
hafa gengið í gegnum mikla erf-
iðleika og samdrátt áður. Kúa-
riðu, díoxíneitraðar sjávarafurðir,
fuglaflensu og nú bankakreppu.
Og við munum standa hana af
okkur einnig,“ er haft eftir Herði,
en Marel er markaðsleiðandi í
framleiðslu á tækjum fyrir kjúk-
lingaslátrun og fiskvinnslu. Hörð-
ur bætir við að fólk hætti ekki að
matast í kreppu. Því sé staða fyr-
irtækja í matvælaiðnaði ekki jafn
veik og annarra fyrirtækja.
Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs-
ins, segist í samtali við HFD sjá
mikil tækifæri fyrir íslensk fram-
leiðslufyrirtæki. Hann segir jafn-
framt að þegar mörg störf glatist í
bankaheiminum skapist önnur ný
störf í öðrum geirum. Gylfi Arn-
björnsson, framkvæmdastjóri ASÍ,
segir næstu mánuði verða mjög
erfiða í íslensku efnahagslífi en
segist jafnframt sannfærður um að
þjóðin muni rífa sig upp úr lægð-
inni.
Ný tækifæri með bankahruni
● REKSTUR
verslanakeðj-
unnar House of
Fraser (HoF) og
leikfangaversl-
ananna undir
merkjum Ham-
leys, sem Baugur
á stóra hluti í, hef-
ur gengið vel á
þessu ári að sögn
Gunnars Sigurðssonar, forstjóra
Baugs. Hann segir að þær hafi ekki
fundið mikið fyrir erfiðleikunum í ís-
lensku efnahagslífi, enda í litlum við-
skiptum við íslenska banka.
gretar@mbl.is
Erfiðleikarnir snerta
lítið HoF og Hamleys
● EIGNIR þeirra sem áttu í Skamm-
tímasjóði Kaupþings rýrnuðu um 25
prósent ef miðað er við stöðu sjóðs-
ins 3. október síðastliðinn. Það var
síðasti dagurinn sem viðskipti í
sjóðnum áttu sér stað.
Sjóðnum hefur verið slitið í kjölfar-
ið og miðast slitin við 19. nóvember
næstkomandi.
Þeir sem áttu hlutdeild í sjóðnum
fá allt greitt út í einu og upphæðin
verður lögð inn á innlánsreikning hjá
nýja Kaupþingi. Sjóðnum var lokað
6. október síðastliðinn.
thordur@mbl.is
Fjórðungs rýrnun í
Skammtímasjóðnum
FRÉTTASKÝRING
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@mbl.is
ÞEIR sem áttu í peningamarkaðs-
sjóði Kaupþings fengu í gær greitt
sem nemur 85,3 prósent af eignum
sjóðsins miðað við stöðu hans 3. októ-
ber, sem var síðasti dagurinn sem
viðskipti í sjóðnum fóru fram. Sjóðs-
félagarnir tapa því tæpum 15 pró-
sentum af eign sinni í sjóðnum. Upp-
hæðin verður greidd út í heild sinni
inn á innlánsreikning í Nýja Kaup-
þingi. Í kjölfarið hefur verið ákveðið
að slíta sjóðnum. Þar með hafa allir
bankarnir sem ríkið tók yfir greitt út
úr peningamarkaðssjóðum sínum.
Mikil óvissa hefur ríkt á meðal
þeirra tugþúsunda Íslendinga sem
áttu fjármuni í peningamarkaðssjóð-
um bankanna þriggja sem ríkið hef-
ur tekið yfir eftir að lokað var fyrir
viðskipti í þeim þann 6. október.
Landsbankinn reið á vaðið á
þriðjudag og tilkynnti greiðslur úr
öllum verðbréfa- og fjárfestingasjóð-
um sínum. Þeir sem áttu í peninga-
markaðssjóði bankans í íslenskum
krónum fengu greitt út sem nemur
68,8 prósentum af eignum hans. Það
þýðir að þeir hafa tapað um þriðjungi
þeirrar eignar sem þeir áttu í sjóðn-
um áður en honum var lokað. Af við-
skiptavinum í peningamarkaðssjóð-
um bankanna þriggja sem ríkið
hefur yfirtekið tapa viðskiptavinir
Landsbankans því mest.
Glitnir keypti út skuldir Stoða
Glitnir tilkynnti greiðslur úr sín-
um peningamarkaðssjóði, Sjóði 9, á
fimmtudag. Samanlögð rýrnun eigna
þeirra sem áttu í sjóðnum frá 29.
september, þegar honum var fyrst
lokað, var tæplega 21 prósent. Þann
dag var töluvert af skuldabréfum frá
Stoðum, áður FL Group, í sjóðnum
en Stoðir eru í greiðslustöðvun. Þeg-
ar Sjóður 9 var opnaður aftur til
skamms tíma þann 1. október hafði
Glitnir keypt öll bréf Stoða út úr hon-
um. Þann 30. júní síðastliðinn skuld-
uðu Stoðir Sjóði 9 18,4 milljarða
króna. Það eru síðustu opinberu upp-
lýsingar sem liggja fyrir um sam-
setningu sjóðsins. Glitnir hefur ekki
viljað upplýsa hvert útgreiðsluhlut-
fallið hefði verið ef Stoðabréfin hefðu
ekki verið keypt út.
Landsbankinn rýrnaði mest
Peningamarkaðssjóður Kaupþings rýrnaði um 15 prósent Allir sjóðir stóru
bankanna hafa tilkynnt um útgreiðsluhlutfall Sjóður Landsbanka rýrnaði mest
4-(
*
*%
2%
+
3526 5
- 7 38 J; ;/;A
< !*<E
.
3=
90-2
/0
:
;
BJÖRGVIN G. Sigurðsson, við-
skiptaráðherra, segir í grein í Við-
skiptablaðinu í gær að mikilvægt sé
að hleypt verði af
stokkunum alls-
herjar rannsókn á
tildrögum þess að
fjármálakerfi Ís-
lendinga hrundi.
Í fyrsta lagi
þurfi að fara fram
ítarleg rannsókn
á því hvort gild-
andi lög og reglur
hafi verið brotin.
Slík rannsókn sé á forræði Fjár-
málaeftirlitsins og eftir atvikum lög-
reglu. Þess ber að geta að Valtýr
Sigurðsson, ríkissaksóknari, hefur
þegar fengið Boga Nilsson, fyrrver-
andi ríkissaksóknara, til að stýra
þeirri athugun í nánu samstarfi við
FME, Samkeppniseftirlitið og skatt-
rannsóknarstjóra.
Björgvin nefnir einnig að fara
þurfi fram heildarskoðun á gildandi
lagaumhverfi um fjármálakerfið og
einnig þurfi að fara fram ítarleg
heildarúttekt á orsökum og aðdrag-
anda hrunsins á forræði Alþingis,
enda þurfi að efla þinglega rannsókn
tiltekinna mála.
thorbjorn@mbl.is
Björgvin
G. Sigurðsson
Rannsókn-
argleði
Vill þrenns konar
úttektir á bönkunum
● Ekki er enn ljóst hvort Reykjavík-
urborg tókst að losa 4,1 milljarð
króna sem hún átti í peningamark-
aðssjóðum Landsbankans. Borgin
hafði óskað eftir því að fjármunirnir
yrðu færðir yfir í ríkistryggð verðbréf
í vikunni áður en sjóðirnir lokuðu en
Landsbankinn bæði staðfesti og
neitaði því að slík aðgerð hefði farið
fram. Borgin hefur óskað eftir því að
staðið verði við staðfestingu þess
efnis að fjármunirnir hafi verið los-
aðir úr sjóðunum. Birgir Björn Sig-
urjónsson, fjármálastjóri Reykjavík-
ur, segir að skilanefnd bankans hafi
komið þeim skilaboðum til borg-
arinnar í vikunni að hún þyrfti lengri
tíma til að fara yfir málið.
thordur@mbl.is
Enn óljóst hvort borg-
in átti í sjóðunum