Morgunblaðið - 01.11.2008, Síða 28
28 Daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 2008
● Jakkar
● Úlpur
● Ullarkápur
● Dúnkápur
● Hattar
● Húfur
Mörkinni 6,
sími 588 5518.
Opið virka daga
frá kl. 10-18 og
laugardaga frá kl. 10-16
Opið á sunnudögum til jóla frá kl. 12-16
Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur
annaei@mbl.is
Flugfreyjubúningurinn á aðvera það sem er að gerastí dag en hann á þó líka aðfela í sér vísanir í söguna,“
segir Steinunn Sigurðardóttir fata-
hönnuður sem á heiðurinn af nýjum
einkennisfatnaði Icelandair.
Við hönnun búningsins nýtti hún
sér bæði sögu flugfélagsins og ís-
lenska náttúru. Þannig bera bæði
flugstjórar og flugþjónar bindi með
örfínu stuðlabergsmynstri, á meðan
textíláferð á skyrtum og kjólum
kvennanna er sótt í hraunið. „Við
tókum allt frá Íslandi,“ segir hún.
„Liturinn á búningunum er þannig
tekinn úr náttrökkrinu. Við völdum
einfaldlega lit himinsins eins og
hann verður fallegastur blár á Ís-
landi.“
Sagan spilar sömuleiðis mikilvægt
hlutverk í nýju búningunum, enda
fór Steinunn í gegnum alla bún-
ingasögu fyrirtækisins og kynnti sér
hvert tímabil fyrir sig. Slæðan er
þannig unnin upp úr gömlu Loft-
leiðamerki af erni. „Ég féll fyrir
erninum af því að hann er líka í
skjaldarmerkinu okkar,“ segir Stein-
unn sem notar liti flugfélagsins og
væng arnarins í munstur slæðunnar.
„Það sem ég er þó ánægðust með er
hugmyndin að jakkanum. Hann er
unninn út frá mynd af flugfreyju
sem tekin er á árunum í kringum
1960 og ég heillaðist algjörlega af.“
Þá hækkaði hún hattinn sem
fylgir flugfreyjubúningnum og hug-
myndina að slifsinu á skyrtum
kvennanna sótti hún í íslenska þjóð-
búninginn. „Mér finnst gott að horfa
til baka, enda skiptir máli að sagan
lifi áfram með okkur í nýrri mynd,“
segir Steinunn, sem þessa dagana er
stödd í Gautaborg við uppsetningu
sýningar á hönnun sinni sem opnuð
verður 4. nóvember, sama dag og
hún tekur á móti Torsten och Wanja
Söderberg-verðlaununum.
Morgunblaðið/Frikki
Íslenskur andi Vísanir í náttúru Íslands og sögu setja svip sinn á búningana. Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður á heiðurinn af nýjum einkennisfatnaði Icelandair.
Nýr búningur
með söguvísunum
Ljósmynd/Snorri Þorfinnsson
Fyrirmyndin Jakkinn sem Stefanía Borg flug-
freyja bar á sjöunda áratugnum er fyr-
irmyndin að nýja flugfreyjujakkanum.
Sláturgerð hefur gengið í endurnýjun lífdaga nú íhaust, enda slátrið góð leið til að drýgja matar-peningana. Ekki eru hins vegar allir á eitt sáttir
um hvernig slátrið bragðast best – heitt, kalt eða jafnvel
súrt.
Lesandi hafði samband við Morgunblaðið og kvartaði
yfir því að hvergi væri lengur hægt að fá súrsunarmysu.
Að sögn Jóns K. Baldurssonar, gæðastjóra hjá Mjólk-
ursamsölunni, er drykkjarmysa og súrsunarmysa einn
og sami hluturinn. „Súrsunarmysan var í raun sama
mysa og er á hinum fernunum,“ segir Jón.
Á árum áður voru leiðbeiningar um hvernig bera ætti
sig að við súrsun birtar aftan á mysufernunum. Jón lét
Morgunblaðinu góðfúslega þær upplýsingar í té, en
Mjólkursamsalan hefur hug á að bæta þessum upplýs-
ingum aftur á mysufernurnar innan skamms.
Súrsun:
Við súrsun er nauðsynlegt að hafa eftirfarandi í huga
1. Hráefnið þarf að vera vel soðið og kælt.
2. Æskileg ílát eru plastfata eða leirílát með loki. Nauð-
synlegt er að hreinlætis sé gætt í hvívetna.
3. Látið mysuna fljóta vel yfir matvælin.
4. Hafið blóðmör eða soðið rúgmjöl í lokuðum lérefts-
poka með í fötunni, því mun meira þeim mun betra.
Kolvetnainnihald mjölsins viðheldur súrnun.
5. Skiptið um mysu eftir 2-3 vikur og aftur eftir 5-6 vik-
ur.
6. Lágmarkstími súrsunar er 10 vikur við 6-8°C.
Að súrsa sitt eigið slátur
Slátrið Súrsa má sláturkeppina heimavið.
Í HNOTSKURN
Hvað gerist við súrsun?
»Hið lækkaða sýrustig kemur í veg fyrir vöxtóæskilegra gerla og eykur geymsluþolið.
»Maturinn fær einkennandi bragð.»Fæðan verður auðmeltari og næringargildiðeykst.
»Bætiefni mysunnar síast inn í súrsuðu mat-vælin. Súrmeti er því góð uppspretta bætiefna,
einkum kalks og B1- og B2-vítamína.
Upplýsingar frá Mjólkursamsölunni.
Flugfreyjur og flugmenn Icelandair munu nú á laug-
ardag klæðast nýjum einkennisbúningi sem Steinunn
Sigurðardóttir fatahönnuður hannaði fyrir flugfélagið.
„Við þekktum til hugmyndafræði Steinunnar og teng-
ingarinnar sem hún leggur upp úr við Ísland, náttúru
landsins og veðurfar,“ segir Rannveig Eir Einarsdóttir,
forstöðumaður farþegaþjónustu Icelandair. Nálgun
Steinunnar hafi verið í takt við þá vinnu sem unnin hef-
ur verið undanfarið við endurkynningu Icelandair, þar
sem lagt hefur verið upp með aukin Íslandstengsl.
„Að okkar mati er útkoman glæsileg,“ segir Rannveig
Eir og bætir við að starfsfólk sé almennt jákvætt í garð
nýju búninganna þó að vissulega séu alltaf misjafnar
skoðanir í jafnstórum hópi. Á milli 600 og 700 manns,
eða allir þeir sem klæðast einkennisbúningum hjá Ice-
landair, fá nýju búningana. „Við erum breiður hópur og
misjöfn í laginu. Steinunni hefur hins vegar tekist að
hanna búninga sem passa öllum og það hlýtur að vera
ein stærsta áskorun sem hönnuður tekst á við.“
Búningar fyrir alla
Slæðan Munstrið er unnið úr erninum sem
var í Loftleiðamerkinu.