Morgunblaðið - 01.11.2008, Síða 29
Daglegt líf 29ÚR BÆJARLÍFINU
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 2008
Engan bilbug er að finna á íbúum
Langanesbyggðar, hvorki á Þórs-
höfn né Bakkafirði, þrátt fyrir
slæmt útlit í efnahagsmálum þjóð-
arinnar. Þar er næg atvinna og
töluverðar framkvæmdir í gangi
og enn ekki fullmannað í öll störf.
Að sögn Björns Ingimarssonar,
sveitarstjóra Langanesbyggðar,
stendur rekstur sveitarfélagsins
ágætlega og lítið um lántökur.
Fjölgað hefur í sveitarfélaginu á
þessu ári og eru íbúar nú kringum
520 alls.
Á Þórshöfn er nú allt íbúðar-
húsnæði fullnýtt, utan íbúð sem
haldið er til hlés ef tónlistarkenn-
ari kemur á staðinn. Þetta skólaár
hefur enn ekki fengist kennari við
tónlistarskólann svo dyrum er
haldið opnum ef einhver álitlegur
gefur sig fram í starfið. Einnig er
auglýst eftir íþrótta- og æskulýðs-
fulltrúa í sveitarfélagið. Miklar
endurbætur hafa staðið yfir á hús-
næði grunnskólans og eru enn í
gangi, einnig er fyrirhuguð meiri
breyting á húsakosti skólans með
því að nýta hluta félagsheimilisins
í þágu hans en það er við hliðina á
skólanum.
Gatnagerðarframkvæmdir hafa
staðið yfir í allt haust og verktak-
ar vinna þar við jarðvegs- og
lagnavinnu en það er nokkuð stórt
verk á mælikvarða lítils sveitarfé-
lags. Næsta sumar verður svo lagt
slitlag á göturnar svo að þeirri
vinnu lokinni eiga allar íbúðar-
götur að vera lagðar bundnu slit-
lagi. Hagstæð fjármögnun liggur
fyrir vegna verksins, að sögn
sveitarstjóra.
Við höfnina er líka unnið að
endurbótum því á næstunni verð-
ur rekið niður nýtt 100 metra stál-
þil við hafskipabryggju og þekjan
steypt næsta sumar. Umferð um
höfnina hefur stóraukist enda má
segja að metvertíð hafi verið hér í
sumar.
Það eru ekki bara opinberir aðilar
sem horfa fram á við í byggð-
arlaginu heldur einnig ein-
staklingar. Nýir aðilar hafa tekið
við rekstri Söluskálans N1 á Þórs-
höfn en það eru hjónin Sóley
Indriðadóttir og Örvar Guðmunds-
son. Þau taka formlega við nú um
mánaðamótin og ætla að breyta
nokkuð frá því rekstrarfyr-
irkomulagi sem verið hefur. Aftur
verður opnað fyrir matsölu og sett
upp grill, einnig ætla þau að útbúa
notalegan krók eða bása, þar sem
áður var alveg opið rými. „Við
ætlum líka að reyna að koma á
smákaffihúsastemningu með góðu
kaffi og viljum hafa þetta heim-
ilislegt svo gott sé að droppa inn
til að borða eða bara fá sér einn
kaffibolla,“ sagði Sóley bjartsýn
og önnum kafin við undirbúning
og breytingar.
Að sögn Sóleyjar er búist við að
þrjú stöðugildi þurfi yfir vetr-
artímann en öllu meira yfir há-
sumarið, líkt og fyrri reynsla hef-
ur sýnt. Í söluskálanum verður
einnig hefðbundinn lager N1 skál-
anna, svo sem algengar olíu- og
bílavörur.
ÞÓRSHÖFN
Líney Sigurðardóttir fréttaritari
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Aðstoð Sóley Indriðadóttir með hjálparmann, soninn Arnar Örvarsson.
Limrubloggarinn JónaGuðmundsdóttir fagnaði
jákvæðum fréttum sem bárust frá
Noregi, þar sem Veigar Páll
Gunnarsson skoraði þrennu í sigri
Stabæk, sem varð norskur meistari.
Að við séum flestöllum feigari
er fráleitt, því við erum seigari
en langflestir halda
á landinu kalda
það ljóslega sannast á Veigari.
Haraldur N. Kristmarsson í
Hafnarfirði orti í anda ljóðsins
„Hudson Bay“ eftir Stein Steinarr:
Ég safnaði aurunum sjálfur
svoleiðis var það í „den“
en þeir hirtu þá alla af mér
auranna menn.
Ég sparaði, söng og sagði
sæt verða ellinnar spor
svo komu sjóðirnir sælu
með sífellt vor.
Ykist þá sparnaður allur
enginn mun þurfa að þjást
ríkur mun ríkari verða
rosagróði nást
En misjafnt er mannanna vitið
og munduð er svipan af heift
fórnað heimilishögum
halda að allt sé leyft
Landið á hausnum hrapar
helvítis kannske til
hverjum er það að kenna.
„kann ei skil“.
VÍSNAHORN pebl@mbl.is
Af Veigari og aurum
Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur
annaei@mbl.is
Hönnun snýst um hreyf-ingu hjá hinum hol-lenska Max Barenbrug,hönnuði Bugabo-
svefnkerrunnar, sem á und-
anförnum árum hefur orðið að sann-
kölluðu stöðutákni hjá velmegandi
foreldrum. Enda ófáar Hollywood-
stjörnurnar látið sjá sig með krílin í
slíkum vagni.
„Bugaboo er ekki vörumerki fyrir
börn, það er vörumerki fyrir for-
eldra,“ segir Barenbrug sem var
staddur hér á landi fyrir skemmstu.
Hann segir hreyfanlegar vörur sem
sem flestir þurfa að nota vera lyk-
ilorðið sem framleiðsla fyrirtækisins
byggir á. „Við viljum að þetta séu
hlutir sem sjást oft á götum úti og
sem auðvelda fólki verkefnin sem
það fæst við í hinu daglega lífi. Þann-
ig gæti Bugaboo allt eins farið að
framleiða reiðhjól eða göngugrind.“
Reiðhjól var raunar annað af loka-
verkefnum Barenbrugs í hönn-
unarnáminu – hitt var frumgerð
barnavagnsins, sem góður markaður
hefur sýnt sig vera fyrir.
„Það kaupa allir foreldrar kerru
og Bugaboo hitti einfaldlega í mark.
Þarna var komin kerra sem var ný-
stárleg og sportleg í útliti. Hún var
hvorki skreytt smábarnamyndum né
á neinn hátt kvenleg og því held ég
að mörgum körlum hafi fundist að
þarna væri loksins komin kerra sem
þeir gætu látið sjá sig með.“
Bugaboo er ekki með ódýrari
svefnvögnum. „Við höfum sagt að
hann sé fínn en ekki þannig að hann
sé utan seilingar.“ Blaðamanni leik-
ur því forvitni á að vita hvort hann
óttist ekki að efnahagskreppan hafi
áhrif á vinsældirnar. „Ég hef séð
mikla lægð á mörkuðum áður og í
hvert einasta skipti veltum við því
fyrir okkur hvort þetta myndi hafa
áhrif á fyrirtækið. Hingað til hefur
það ekki gerst þó að ég geti svo sem
ekki spáð fram í tímann. Það virðist
engu að síður vera svo að þegar að
kreppir þá lætur fólk sparneytnina
síst bitna á börnunum.“
Hannað fyrir foreldrana
Morgunblaðið/Kristinn
Max Barenbrug Segir fólk síst láta sparnaðinn bitna á börnum sínum.
„SKÖPUNARGLEÐI felst í því að
sleppa fram af sér beislinu og
halda sér ekki of fast í það sem
maður þekkir,“ segir Barenbrug.
„Sköpunarferlið er heldur ekki
svo dýrt.“ Sjálfur segist hann
mæla með að framleiðslufyr-
irtæki hafi að staðaldri hönnuði
á sínum snærum, veiti þeim
veigamikið hlutverk og séu í
stöðugu sambandi við þá.
„Framleiðsluhliðin er sá hluti
þar sem farið er að eyða pen-
ingum af alvöru. Hönnunin ætti
því ekki að vera eitthvað sem
menn hugsa um eftir á, eða líta
einfaldlega á sem næstu fram-
leiðslueiningu. Heldur á að
hlusta á hönnuðina, því þeir
hafa oft einhverju við að bæta
og góð hönnun, eða varan, er jú
það sem allt snýst um.“
Hönnuðir með í öllu ferlinu