Morgunblaðið - 01.11.2008, Page 30

Morgunblaðið - 01.11.2008, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 2008 Einar Sigurðsson. Ólafur Þ. Stephensen. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Útlitsritstjóri: Árni Jörgensen. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Sú niðurstaðaí skoð-anakönnun Capacent Gallup að tæpur þriðj- ungur fólks hefur hugleitt að flytja til útlanda á að vera okkur öllum áhyggjuefni og stjórnvöld- um sérstök brýning í þá veru að nú ríður á að gripið verði til allra mögulegra ráðstafana til þess að koma í veg fyrir að hér verði einn allsherjar atgervisflótti, eða spekileki, eins og enska orð- takið Brain Drain hefur ver- ið íslenskað. Þessar upplýsingar komu fram hér í Morgunblaðinu í gær og ýmislegt í þeirri greiningu sem fylgdi frétt- inni er sérstakt áhyggjuefni. Það er stórkostlegt áhyggjuefni fyrir þjóðina alla að yfir helmingur að- spurðra á aldrinum 18 til 24 ára skuli hafa hugleitt brott- flutning og tæpur helmingur þeirra sem eru á aldrinum 25 til 35 ára. Það er ekki síður áhyggju- efni að yfir helmingur sér- fræðinga í einkageiranum íhugi brottflutning og tæp 35% þeirra sem eru háskóla- menntaðir. Vitanlega þýðir ekkert að fara á taugum eða leggjast í þunglyndi vegna nið- urstaðna í þessari könnun. Skoðanakönnun er aldrei neitt annað en vísbending um hvað gæti orðið, einmitt miðað við þá stund sem hún er framkvæmd. Engu að síður eiga þessar niðurstöður að vekja okkur öll til umhugsunar um hvað gæti orðið; hvers konar framtíð gæti blasað við ís- lensku þjóðinni. Viljum við ekki öll snúa bökum saman í því geysilega erfiða verkefni sem fram- undan er? Viljum við ekki öll koma í veg fyrir það að blómi íslenskrar æsku flýi land? Viljum við ekki öll gera það sem í okkar valdi stendur, til þess að tryggja að best menntaða fólkið okk- ar, konur og karlar, stelpur og strákar, fái tækifæri til þess að lifa og dafna áfram sem Íslendingar? Við eigum gríðarlegt verk fyrir höndum. Stjórnvöld bera mesta ábyrgð á því að hafa forystu um það upp- byggingarstarf á flestum ef ekki öllum sviðum þjóðlífs- ins, sem framundan er, á þann veg, að hér sitji ekki eftir miklu fámennari þjóð, miklu eldri þjóð, miklu verr menntuð þjóð, sem eigi ein- ungis kost á snautlegri framtíð, án unga fólksins, barnanna, ættingjanna, vin- anna. Forðumst slíkan þjóð- arvoða. Það þýðir ekkert að fara á taugum eða leggjast í þunglyndi } Forðumst þjóðarvoða Það var alltafljóst að hið ódýra Ísland myndi aðeins nýt- ast tímabundið sem aðdráttarafl fyrir ferða- menn. Nú má búast við því að sprenging verði í verðlagi á næstu vikum og mánuðum. Það sést best á stöðu geng- isvísitölunnar, sem komin er upp í 205, en var um mitt ár á milli 150 og 160 eins og fram kemur í fréttaskýringu Sigrúnar Ásmundsdóttur í Morgunblaðinu í gær. Þar líkir Finnur Árnason, for- stjóri Haga, verðlagsmálum á Íslandi við tifandi tíma- sprengju. Það er því nauðsynlegt fyrir neytendur og þau sam- tök, sem staðið hafa vörð um hagsmuni þeirra, að vera sérstaklega á verði. Þegar hefur verið tilkynnt um hækkun á mjólkur- afurðum og áfengi. Allur innfluttur varningur mun hækka verulega í verði. Ljóst er að munaðarvara verður ekki sérlega sölu- vænleg á næstunni, en al- menningur kemst ekki hjá því að kaupa í matinn. Það er því í vændum kaup- máttarskerðing, sem muna mun rækilega um. Greinilegt er að flest fyr- irtæki ætla að halda niðri verði og þau munu ekki geta annað en hleypt áhrifunum af falli krónunnar út í verð- lagið fyrr eða síðar. Hins vegar má taka dæmi af sveiflum olíuverðs á Ís- landi. Raunin hefur ávallt verið sú að neytendur hafa fyrr fundið fyrir því þegar olíuverð hefur hækkað held- ur þegar það hefur lækkað. Neytendasamtökin og Al- þýðusamband Íslands bera því ríka ábyrgð og sömuleið- is fjölmiðlar. En neytendur verða einnig að fylgjast með sjálfir. Hækkanirnar munu koma niður á almenningi. Ef hækkanir eru úr hófi fram eiga neytendur ekki að láta þær yfir sig ganga mögl- unarlaust, heldur láta í sér heyra, helst í gegnum gjallarhorn. Vænta má spreng- ingar í verðlagi }Neytendavaktin aldrei brýnni Þ egar ég var lítil var ekkert sjónvarp á fimmtudögum og við systkinin fengum kóka kóla bara á tyllidög- um. Pabbi minn sagði mér sögur af því hvernig hann fékk aldrei appelsínur nema á jólunum. „Bara appelsínur á jólunum pabbi!“ hrópaði ég og varð um- svifalaust vellauðug: Aumingja fólkið í gamla daga. Þegar mamma og pabbi lyftu sér upp og við systkinin vorum ein heima var ýmislegt gert til að hafa það huggulegt. Kók og kex og jafnvel terta og búgles-snakk var í uppáhaldi. Elsti bróðir minn var skiptastjóri. Það var hans ábyrgð að allir fengju úthlutað jafnt. Drjúgur tími var tekinn í að hella í glösin enda kóka kóla takmörkuð auðlind eins og appelsínur einu sinni. Með augað í pung var skeggrætt hvort nokkurs staðar væri meira í einu glasi en öðru. Yngsta systkinið fékk fyrst að velja glas en skiptastjórinn síðastur. Þetta var okkar hugmynd um sanngirni. Nú er ráð að íhuga gamla tíma og nýja. Hvað segja rætur okkar um sanngirni, „mennina í brúnni“, „klettinn í hafinu“ eins og málgagnið Morgunblaðið lýsti ráðherra svo skemmtilega? Þær segja okkur m.a. þetta: Það var menningarleg venja að skipstjórahlutur væri tvöfaldur hásetahlutur. Réttlætiskrafa þjóðarsálarinnar og áratuga barátta kynslóðanna bergmálaðist m.a. í frægu þingmáli Stefáns Jónssonar þar sem hann lagði til að engin laun í landinu væru hærri en tvöföld verkamannalaun. Stefán Jónsson skrifaði stórskemmtilegar bækur á sinni tíð og lýsti af innsæi og kímni fjölbreyttu og áhugaverðu íslensku mannlífi þótt fáar væru kókflöskurnar. Ein bók Stef- áns hét Að breyta fjalli. Hvernig breytum við fjalli? Kannski með því að dusta rykið af rétt- lætiskenndinni. „Skipstjórar þjóðarskúturnnar“ og sam- verkamenn þeirra „í stafni“ eiga leik. Þarna standa þau saman á sinni sömu snekkju sem þau kalla sama bátinn okkar allra á meðan fjölmargir Íslendingar úti á miðju hafi halda í lítinn drumb, búin að missa vinnuna og skuld- ug upp fyrir haus, búið að ræna þau ævistarf- inu og ævisparnaðinum og fleiru til. 18% stýri- vextir IMF reyna nú að hrifsa jafnvel drumbinn líka. Um hve mikið ætla þau í stafn- inum að lækka sín eigin laun, svona fyrst þau sjá ekki sóma sinn í að segja af sér? Hvað finnst forset- anum sanngjarnt fyrir sjálfan sig, ráðherrum, banka- stjórum, útvarpsstjóra, ráðuneytisstjórum, sendiherrum, þingmönnum, forstöðumönnum, ríkisstarfsmönnum: tvö- föld laun, fimmföld, sjöföld, fimmtánföld? Og hvernig eft- irlaun? Á Íslandi Sjálfstæðisflokksins hefur ekki skort kóka kóla en sanngirnin hefur verið uppurin, jarðvegur hennar mengaður og glasið tæmt. Ný fjöll mannkynssögunnar fæddust aldrei af sjálfu sér, þau fæddust af andófi. Í dag er mótmælaganga frá Hlemmi kl. 14 og útifundur við Austurvöll kl. 15. Mætum. liljagretars@gmail.com Guðfríður Lilja Grétarsdóttir Pistill Að breyta fjalli 2x1 Framleiðslan dýrari og álverðið lægra FRÉTTASKÝRING Eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is Á lfyrirtæki víða um heim hafa verið að draga sam- an seglin að undanförnu vegna þeirra hamfara- tíma sem einkenna hrá- vörumarkaði. Álverum hefur verið lokað, nýjum verkefnum frestað og hagrætt þar sem er svigrúm til. Málmar hafa fallið gríðarlega í verði samhliða verðfalli á olíu. Stál hefur fallið um meira en 70 prósent í verði á innan við þremur mánuðum. Álið hefur einnig fallið mikið í verði eftir að það náði hámarki í júlí. Stað- greiðsluverð á alþjóðamörkuðum er nú um 1.900 dollarar tonnið en var rúmlega 3.300 dollarar þegar það fór hæst. Framleiðslan dýr Frá því samið var um orkusölu frá Kárahnjúkavirkjun til álvers Alcoa Fjarðaáls á Reyðarfirði, sem var í febrúar 2003, hefur framleiðslukostn- aður í álframleiðslu hækkað mikið. Samkvæmt upplýsingum frá CRU Group í London, stærsta markaðs- greinendafyrirtækis heims á sviði málmiðnaðar, er meðaltalsfram- leiðslukostnaður á tonn af áli nú um 1.600 dollarar. Eins og greint hefur verið frá í Morgunblaðinu miðaðist 11,9 prósent lágmarksarðsemiskrafa vegna raf- magnssölu frá Kárahnjúkavirkjun til álversins á Reyðarfirði við það að ál- verðið væri um 1.550 dollarar. Á þeim tíma sem gengið var frá samningum var framleiðslukostnaður á áltonnið að meðaltali um 1.000 dollarar, sam- kvæmt upplýsingum frá CRU. Við þær aðstæður sem nú hafa skapast, þegar heimsmarkaðsverð lækkar hratt en framleiðslukostnaður að sama skapi ekki eins mikið, komast álfyrirtækin í þær aðstæður að skila minni arðsemi en rekstraráætlanir gerðu ráð fyrir. Þjóðarbúið á töluvert undir Íslenska ríkið, sem á Landsvirkjun að öllu leyti, á töluvert undir því að arðsemi af álframleiðslu sé viðunandi. Orkusölusamningar eru tengdir verði á áli. Álverin á Íslandi eru að mörgu leyti betur varin fyrir þeim hamför- um sem nú eiga sér stað á hrá- vörumörkuðum heldur en önnur, að sögn viðmælenda Morgunblaðsins. Þar ræður miklu að sveiflur í rekstri eru jafnari en víðast hvar, meðal ann- ars þegar kemur að raforkukaupum. Víða erlendis, sérstaklega í álver- um sem hafa starfað lengi, eru orku- innkaupin með öðrum hætti. Í nýlegri fréttaskýringu í bandaríska dag- blaðinu New York Times var því haldið fram að „sársaukamörk“ hvað álverð varðaði fyrir álframleiðslufyr- irtæki væru um 2.000 dollarar og því væru þau mörg uggandi vegna verðþróunarinnar. Einn af þeim þátt- um sem vega þungt í því að takast á við lækkandi afurðaverð er hagkvæm stærð. Lítil álver eiga erfiðara með að takast á við erfið rekstrarskilyrði heldur en þau sem stærri eru. Þá skiptir nýr tækjabúnaður einnig miklu máli, þar sem framþróun í tækjabúnaði hefur aukið hagkvæmni við daglegan rekstur. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins fylgjast forsvarsmenn ál- veranna þriggja hér, á Grund- artanga, í Straumsvík og Reyðarfirði, náið með stöðu mála á alþjóðamörk- uðum með mögulegar hagræðing- araðgerðir í huga. Engar ákvarðanir liggja þó fyrir enn. Morgunblaðið/RAX Álver Rio Tinto Alcan Unnið er að stækkun álversins innan þess ramma sem heimilt er samkvæmt skipulagi í Hafnarfjarðarbæ. Ljóst þykir að álfyrirtæki þurfa mörg hver að hagræða í rekstri til að mæta breyttu rekstrarumhverfi. Tekjur opinberra orkufyrirtækja af sölu á rafmagni til álvera eru um- talsverðar. Samtals eru seldar um 8.000 gígavattstundir af rafmagni til álvera á ári. Til samanburðar nota heimilin um átta hundruð. Tekjur á ári af þessari sölu skipta tugum milljarða. Í fyrra var upplýst um það í fjölmiðlum að Orkuveita Reykjavíkur reiknaði með því að selja hverja kílóvattstund af raf- magni á 2,1 krónu til Norðuráls vegna fyrirhugaðs álvers í Helgu- vík. Sé litið til þess verðs sem við- miðunarverðs skilar raforkusala tæplega sautján milljörðum í þjóð- arbúið á ári. Til fjörutíu ára skilar salan tæplega 700 milljörðum, út frá þessu verði. Þó nálganir af þessu tagi gefi ekki nákvæmar upp- lýsingar um ágóðann af raforkusöl- unni, þá er ljóst að hann er umtals- verður. MIKLAR TEKJUR ››

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.