Morgunblaðið - 01.11.2008, Síða 31

Morgunblaðið - 01.11.2008, Síða 31
31 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 2008 Ef þú þorir! Eggert Aron Sigurðarson fékk að kynnast aðgangshörku álftanna á Tjörninni í gær. Sú hálslanga heimtaði brauð og náði einum góðum bita. Kristinn Jón Magnússon | 31. október Stýrivextirnir lama at- vinnulífið og eyðileggja fjárhag fólksins Daginn eftir að Seðla- banki Íslands tilkynnti ákvörðun sína að hækka stýrivexti í 18% með blessun ríkisstjórn- arinnar, ákvað Seðla- banki Bandaríkjanna að lækka stýrivexti sína í 1%. Seðlabanki Bandaríkjanna gaf þá skýringu að þessi vaxtalækkun væri nauðsynleg til að örva framleiðslu og atvinnuskap- andi starfsemi. Með því að færa stýrivexti í 18% er gerð fálm- og krampakennd tilraun til að styrkja stöðu krónunnar. Enn á að leggja á þau mið að hafa stýrivexti í ofurhæðum til þess að geta pumpað upp krónuna. Stýrivaxtarugl Seðla- bankans er þó sennilega einn stærsti orsakavaldur þess efnahagsöngþveitis sem við erum lent í. Annar orsakavald- ur er skortur á erlendum gjaldeyri sem Seðlabankinn ber líka ábyrgð á og hugsaði ekki fyrir því í tíma að taka lán til að komist yrði hjá gjaldeyris- kreppu. ... Vandinn nú er að tryggja atvinnu fólksins og að hjól atvinnulífsins snú- ist. Með því að hækka stýrivextina í 18% þegar nauðsyn bar til að lækka þá niður í 5% eða enn lægra, var hrundið af stað hópuppsögnum um allt land. Nú bera ríkisstjórn og Seðla- banki alfarið ábyrgð á því að leggja enn upp í þessa ábyrgðarlausu vegferð til þess eins að reyna að láta krónuna hjarna við óháð því hvað líður atvinnu fólksins, framleiðslunni í landinu og skuldastöðu fólks og fyrirtækja. Þetta er ábyrgðarleysi. Meira: jonmagnusson.blog.is Kári Harðarson | 31. október Flytja eða vera kyrr? Ég flutti heim um alda- mótin eftir að hafa verið 11 ár erlendis – þá var De- code að ráða fólk og ég trúði að Ísland væri að verða eins og önnur lönd. Það var hægt að kaupa bjór og Toble- rone, og það var sjónvarp á fimmtudög- um. Það voru því mikil vonbrigði að sjá að hér höfðu stjórnmálin lítið breyst, hér ríktu karlar sem höfðu haldið hópinn síð- an í gaggó og höguðu sér eins og villi- kettir, veittu sjálfum sér ekki aðhald og skorti sjálfsgagnrýni enda vanir því að vera við völd sama hvað tautar og raular. Ísland verður að verða meira eins og önnur lönd og hætta að vera skrýtið fyr- irbæri í ballarhafi sem er útblásið af gortinu einu. Ég vil losna við leifarnar af sérviskunni hér. Ég vil virkt lýðræði þar sem menn geta misst embættið fyrir af- glöp í starfi. Ég vil ekki þurfa að fá laun og spara í platpeningum. Verðtrygging og kvóti, tollamúrar og fákeppni, þetta verður allt að fara. ... Meira: kari-hardarson.blog.is ÞRÁTT fyrir að að- eins sé tekið að létta á millibankamarkaði með lánsfé í kjölfar björgunar fjár- málakerfa þróaðra ríkja hafa neikvæðir hagvísar valdið falli á hlutabréfamörkuðum. Þrýstingur á nýmark- aðsríki, sem eitt sinn voru af mörgum talin hafa „aftengst“ öðrum löndum heims hefur aukist eftir því sem erlend lán eru innkölluð og eign- ir seldar. Ótti hefur gripið um sig meðal neytenda, fyrirtækja og ríkja um heim allan og í stað þess að tala um hófsama niðursveiflu er nú farið að tala um heimskreppu. Margir hafa misst kjarkinn og telja ekki hægt að stöðva kreppuna. Hvað gengur á? Voru aðgerðirnar sem gripið var til fyrir tveimur vik- um til þess að styðja fjármálakerfið einfaldlega rangar? Alls ekki. Aukn- ing lausafjár, endurfjármögnun banka og samhæfing innstæðutrygg- inga í þróuðum ríkjum voru allt rétt- ar og nauðsynlegar aðgerðir. Þær voru hins vegar einungis fyrsta skrefið af mörgum sem þarf að stíga. Lækkun eignaverðs og óvissa um hvað gerist næsta hafa eyðilagt traust neytenda og fyrirtækja í þró- uðum ríkjum. Neysla dregst saman og fyrirtæki draga úr fjárfestingum. Fjármálakreppan hefur valdið því að eftirspurn dregst hratt saman, það sem hagfræðingar kalla keynesíska niðursveiflu. Eina leiðin til þess að endurlífga traust er að beita efnahagsaðgerðum til þess að auka eftirspurn og við- halda framleiðslu. Nota má peninga- málastefnuna til þessa í löndum þar sem vextir eru háir en hætt er við því að áhrifin verði takmörkuð vegna lánaþurrðarinnar. Þess vegna verða ríkisfjármálin að leika aðalhlutverk. Aukin útgjöld hins opinbera eru ávallt varhugaverð þar sem þau auka skuldir og auka seinni tíma áhættu en miðað við stöðuna vegur ávinning- urinn upp á móti kostnaðinum í lönd- um sem ekki eru of skuldug. Nýmarkaðsríki búa við fleiri vandamál. Ekki einungis þurfa þau að berjast við horfur á samdrætti í útflutningi og vænt- ingum, þau eru einnig nýjustu fórnarlömb fjár- málakreppu sem hófst í Bandaríkjunum, fór til Evrópu og hefur nú ætt inn fyrir landamæri þessara ríkja. Erlendir bankar draga úr lánveitingum. Erlendir fjárfestar færa fé sitt heim í áður óþekktu magni. Það er kaldhæðnislegt að að- gerðirnar sem gripið er til í þróuðum ríkjum gera það vænlegra að færa peninga heim, sem gerir nýmarkaðsríkjum erfiðara um vik. Til þess að styðja við fjármálakerfi sín og heildareftirspurn þurfa ný- markaðsríkin að vera reiðubúin til þess að grípa til svipaðra aðgerða og þróuðu ríkin hafa gert. En hin ný- fengna auðlegð margra þessara ríkja byggist á aðgengi að fjármagni er- lendis og skyndileg stöðvun fjár- magnsflæðis er alvarlegt áfall og veldur erfiðleikum sem þessi ríki geta ekki leyst úr sjálf. Þróuðu ríkin þurfa því að vera reiðubúin til þess að sjá fyrir því fjár- magn sem þarf og það í mjög miklu magni. Valkosturinn eru horfur á miklum vanskilum lána, auknum af- skiptum af bankarekstri og vernd- arstefnu – niðurstaða sem gæti heft þessi lönd og heimshagkerfið sem heild um margra ára skeið. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur efni á að leggja til allt að 250 millj- arða Bandaríkjadala og við höfum sett af stað ferli innan sjóðsins sem mun gera okkur kleift að útvega úr- ræði skjótt og takmarka skilyrði við aðgerðastefnu þá sem þróuð hefur verið. Auk þess vinnur sjóðurinn að því að koma upp nýrri lausafjárlínu fyrir nýmarkaðsríki sem náð hafa góðum árangri og beitt hafa heil- brigðri stefnu. Þetta ætti að auka á traust fjár- festa en í ljósi þess magns af fé sem þörf er á ég hvet einnig ríkisstjórnir og seðlabanka til þess að veita fjár- magn samhliða viðbragðsáætlun IMF. Ég er einnig sannfærður um þörfina á því að finna leiðir til þess að virkja ríki með stóra varaforða. Sjóðurinn mun sinna sínu hlutverki en allra þessara aðgerða er þörf til þess að efla trúverðugleika sam- hæfðra aðgerða gegn kreppunni. Við verðum einnig að hugsa fram í tímann, sérstaklega hvað varðar fátæk lönd Afríku. Vegna takmark- aðrar þátttöku þessara ríkja á al- þjóðlegum fjármálamörkuðum hafa þau, hingað til, verið í skjóli fyrir storminum en það er sennilega skammgóður vermir. Mörg fátæk ríki munu verða fyrir barðinu á lækkun hrávöruverðs. Önnur, með- al þeirra þau lönd sem voru að verða hin nýja framlínusveit ný- markaðanna, gætu þurft að horfa upp á erlendar fjármagnslindir sín- ar þorna upp. Þessi lönd munu einnig þurfa á aðstoð alþjóða- samfélagsins að halda. Lánveit- ingar frá IMF og alþjóðlegum þró- unarbönkum, auk þróunaraðstoðar í því magni sem hún þegar eru, munu reynast nauðsynlegar til þess að afstýra nýjum mannlegum harmleikjum. Dýnamík óttans gæti orðið skelfi- leg en þessa dýnamík má rjúfa. Hver svo sem vandamálin eru í fjár- málakerfinu eru tækni-, framleiðni- og félagslegar framfarir liðinna ára – hin raunverulegu aðalatriðið – ósvikinn vitnisburður um mátt hnattvæðingarinnar sem afls hins góða. Það er ef til vill of seint að af- stýra niðursveiflu í þróuðum ríkjum og hægagangi í nýmarkaðsríkjum og fátækum ríkjum en það er ekki of seint að afstýra heimskreppu. Eftir Dominique Strauss-Kahn »Eina leiðin til þess að endurlífga traust er að beita efnahags- aðgerðum til þess að auka eftirspurn og við- halda framleiðslu. Nota má peningamálastefn- una til þessa í löndum þar sem vextir eru háir en hætt er við því að áhrifin verði takmörkuð vegna lánaþurrðarinn- ar. Höfundur er framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, IMF. Copyright: Project Syndicate, 2008. Að standa andspænis óttanum Dominique Strauss- Kahn BLOG.IS Í FRÉTTUM ríkisútvarpsins sl. miðvikudagskvöld kom fram að aukin harka væri að færast í inn- heimtuaðgerðir. Var staðfest dæmi um að innheimtufyrirtækið INTRUM JUSTICA hefði boðið viðskiptavinum sínum að „stytta í ferlinu“, þ.e. að kröfur sem ekki væru greiddar á tilskildum tíma færu umsvifalaust í innheimtu með tilheyrandi kostnaði og að lokaviðvörun yrði gefin út eftir aðeins fjóra daga. Venjan mun hafa verið sú að gefinn er 20 daga umþóttunartími til að semja um eða greiða skuldina áður en til innheimtuaðgerða kemur. Það er undarlegt að þegar skuldir heim- ila og fyrirtækja vaxa lóðbeint upp í loftið með vaxandi verð- bólgu, gengisfalli og stýrivaxta- hækkun skuli tökin hert á skuld- settum einstaklingum. Það er þvert á yfirlýsingar ríkisstjórnar um að hinir nýju ríkisbankar muni leggja sig fram um að minnka höggið sem skipbrot efna- hagsstefnunnar hefur valdið en því miður þá er þetta ekki eina þversögnin í orði og æði stjórn- arherranna. Hitt er líka eftirtekt- arvert og ástæða til að spyrja um það hver tók ákvörðun um að láta þjónustufulltrúa INTRUM hringja í viðskiptavini sína og boða hertar innheimtuaðgerðir? Hér er spurt um hverjir eru eig- endur INTRUM? Ef svarið er að það sé ríkisbankinn Landsbanki Íslands, þá þarf fjármálaráðherra að svara því hvar ákvörðun um hertar innheimtuaðgerðir var tek- in. Í bankaráðinu? Í skilanefnd- inni? Í viðskiptaráðuneytinu? Í fjármálaeftirlitinu? Í fjár- málaráðuneytinu? Álfheiður Ingadóttir Hver á INTRUM? Höfundur er þingmaður VG. Guðmundur Löve | 31. október Orðið gjaldeyrir er tímaskekkja Að mega ekki anda að sér sama lofti og aðrir: Vel- komin í raunveruleika ís- lensku krónunnar Hvers vegna er íslenskt atvinnulíf lokað bak við múra gjaldmiðils sem hefur ekki kallað neitt nema kostnað og óhagræði yfir þjóðina? Það er sama hvort litið er til óheyri- legs herkostnaðar Seðlabankans í að halda uppi gengi krónunnar með gríð- arháu vaxtastigi svo fyrirtækjum og al- menningi blæðir út á altari erlendra jöklabréfaeigenda, eða til þeirrar stað- reynda að sjávarútvegurinn skuli yfirhöf- uð þurfa að verja sig gegn sveiflum krón- unnar með framvirkum samningum. Enginn nema ríkisstjórnarflokkarnir geta tekið af skarið um hvert stefna skuli til framtíðar. Slökkvistarf dagsins í dag mun ekki bera árangur ef það er ekki drepið í neistanum sem kveikti bálið: Ör- myntin króna. Meira: loeve.blog.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.