Morgunblaðið - 01.11.2008, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 01.11.2008, Qupperneq 33
Umræðan 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 2008 HINN 1. nóvember markar tíu ára starfs- afmæli Barnahúss. Húsið var stofnað í því skyni að tryggja barnvænlegt umhverfi við rannsókn kynferð- isbrota gegn börnum, fjölþætta aðstoð við börnin og foreldra þeirra ásamt hámarks sérhæfingu og faglegri þekkingu í þessum viðkvæmu málum. Að stofnun Barnahúss komu embætti Ríkissaksóknara, Ríkislög- reglustjóra, Landspítalans – há- skólasjúkrahúss, Lögreglunnar í Reykjavík, Barnaverndar Reykja- víkur, Samtaka félagsmálastjóra á Íslandi auk Barnaverndarstofu sem átti frumkvæði að málinu og ber ábyrgð á rekstri þess. Frá- sögn barns er oftast forsenda þess að unnt sé að upplýsa meint kynferðisbrot gegn því og veita barninu þá meðferð og hjálp sem það þarfnast. Lögregla, ákæru- vald og dómstólar byggja máls- meðferð sína yfirleitt á framburði barnsins þar sem önnur sönn- unargögn eru oft af skornum skammti. Læknar þurfa á frásögn barnsins að halda til að tryggja markvissa læknisskoðun og lækn- ishjálp ef þörf krefur. Loks er frásögn barnsins lykilatriði í ákvörðunum barnaverndaryf- irvalda sem miða að því að tryggja öryggi barnsins og sjá til þess að barnið, og eftir atvikum aðrir nákomnir því, fái viðeigandi stuðning og sálfræðimeðferð. Í Barnasáttmála Sameinuðu þjóð- anna er kveðið á um að „það sem barni er fyrir bestu“ skuli jafnan hafa forgang þegar opinberar stofnanir hafa mál barna til með- ferðar. Þetta markmið liggur Barnahúsi til grundvallar þar sem meginhugsunin að baki því er að kalla fram frjálsa frásögn barns- ins af því áfalli sem það hefur orðið fyrir, af kunnáttumanni sem er til þess þjálfaður og í umhverfi sem er barninu hag- fellt. Þannig er því ætlað að tryggja að barninu sé ekki íþyngt með end- urteknum viðtölum á mörgum stofn- unum, sem rann- sóknir hafa leitt í ljós að geta gengið nærri sálarheill barnsins. Í þau tíu ár sem Barnahúsið hefur starfað hefur alls 2001 barn komið til skýrslutöku, í könnunarviðtal, læknisskoðun, greiningu og meðferð. Af þessum stóra hópi barna hafa 930 þurft á meðferð að halda sem hefur verið veitt af sérfræðingum Barnahúss í kjölfar ofbeldisins. Þá hafa 216 börn á þessu tímabili verið skoð- uð af læknum Landspítalans í sérútbúinni aðstöðu í Barnahús- inu. Barnahúsið vakti fljótlega al- þjóðlega athygli. Árið 2002 var það valið besta fyrirkomulagið Evrópu í tengslum við rannsókn Save the Children Europe um börn og réttarkerfið sem tók til tíu Evrópuríkja. Árið 2006 hlaut Barnahúsið svonefnd Interdicipl- inary Award hinna virtu alþjóða- samtaka The International So- ciety for the Prevention of Child Abuse and Neglect, ISPCAN, en samtökin eru samstarfsvett- vangur fagfólks úr ólíkum grein- um sem starfar að barnavernd víðs vegar um heim. Árið 2007 var fyrsti bindandi samningur Evrópuráðsins um vernd barna gegn kynferðisofbeldi lagður fram til undirritunar aðildarríkj- anna. Barnahúsið var fyrirmynd margra ákvæða samningsins og er sérstaklega vísað til þess í at- hugasemdum með samningnum. Árið 2005 var fyrsta Barna- húsið opnað í Linköping í Svíþjóð að íslenskri fyrirmynd. Við vígsluathöfnina flutti hennar há- tign Silvía drottning ávarp þar sem fram kom að heimsókn hennar í íslenska Barnahúsið hefði orðið henni hvatning til dáða, en frumkvæði hennar há- tignar réð úrslitum um stofnun hússins. Nú eru starfandi Barna- hús í tíu borgum í Svíþjóð og fleiri eru í undirbúningi. Norð- menn opnuðu fyrsta Barnahúsið í Bergen árið 2007, annað fyrr á þessu ári og fyrir áramót er fyr- irhugað að opna slík hús í þrem- ur borgum Noregs til viðbótar. Unnið er að undirbúningi að stofnun Barnahúsa í fleiri lönd- um, t.a.m. í Danmörku og Lithá- en. Loks má geta þess að árlega koma erlendir gestir frá fjöl- mörgum löndum í heimsókn til Íslands sérstaklega til þess að heimsækja Barnahús og margar beiðnir berast um kynningu á starfseminni víða utan úr heimi. Í tilefni þessara tímamóta heimsækja okkur nú sérfræð- ingar frá Barnahúsunum í Nor- egi, Svíþjóð og Bandaríkjunnum til að bera saman bækur sínar, leggja drög að samstarfi, m.a. á sviði rannsókna, menntunar og þjálfunar. Það lofar góðu um að þekking okkar og hæfni muni taka framförum við meðferð þessara viðkvæmu og erfiðu mála í framtíðinni. Þegar erfiðleikar steðja að eins og nú á við í ís- lensku samfélagi er mikilvægt að gæta vel að þeim verðmætum sem okkur eru dýrmætust. Við hljótum að vera einhuga um að velferð barna, þ.m.t. vernd gegn illri meðferð, vanrækslu og of- beldi, verði forgangsmál við þær aðstæður. Á þessu sviði höfum við náð árangri en það verður áfram áskorun að gera enn bet- ur. Bragi Guðbrands- son skrifar um starf- semi Barnahúss » Í þau tíu ár sem Barnahúsið hefur starfað hefur alls 2001 barn komið til skýrslu- töku, í könnunarviðtal, læknisskoðun, grein- ingu og meðferð. Bragi Guðbrandsson Höfundur er forstjóri Barnaverndarstofu. Tvö þúsund börn í 10 ár LANDBÚN- AÐARSKÓLI sem ekki leggur neina áherslu á þá sjálfsögðu staðreynd að landnot verði að vera í sátt milli manns og náttúru og það sé glæp- ur gagnvart framtíðinni að stunda rányrkju, hlýtur að vera í öng- stræti. Það vantar að styrkja grunninn, landið sjálft sem öll landnýting byggist á. Okkar búskaparhættir hafa eytt stærstum hluta gróðurlendisins og við erum orðin þekkt fyrir að státa af verst farna landi af búsetu sem þekk- ist og það í aðeins 1100 ár. Þrátt fyrir þessa staðreynd höldum við áfram rányrkjubúskapnum þó í óefni sé kom- ið fyrir löngu. Hvers vegna? Fræðingar í öllum þessum nátt- úrufræðistofnunum dunda sér við eilíf- ar rannsóknir innan sinna veggja eða girðinga en gera enga kröfu um að þær verði að einhverju gagni. Komið verði á ræktunarbúskap með skepnur í vörslu sinna eigenda. Því þá fyrst er hægt að nýta rannsóknirnar landinu til góða, fyrr ekki. Hvaða gagn er að rannsóknum ef ekki fylgja aðgerðir til úrbóta. Landgræðslan veit vel við hvaða fáránlegu skilyrði hún þarf að vinna, í stöðugu kapphlaupi við ofbeit- ina. Peningana okkar á að nota í að græða upp friðað landið, en bændur sæju um sínar skepnur og sjálfbæra nýtingu á sínum jörðum, í stað þess að beita þeim stjórnlaust á landið. Á aðra milljón fjár rífur í sig allt það viðkvæm- asta og fallegasta sem það nær til svo sem nýgræðinginn og blómplönturnar allt sumarið. Í dag borgum við þeim jafnvel fyrir að rækta upp skemmdir á sínum eigin jörðum, með áburði, fræj- um og jafnvel skógarplöntum í skjól- veggi. Það er með eindæmum hvað þessi úrelti sauðfjárbúskapur kostar okkur skattborgarana, ekki síst vegna þess að bændur eru of margir að fram- leiða of mikið. Samt fá þeir sínar bein- greiðslur frá ríkinu og rétt fyrir kosn- ingarnar bónus upp á 16 milljarða næstu 6 árin (Landgræðslan fékk 14 milljarða í 100 ár) til að styrkja meiri offram- leiðslu landinu til skaða. Dýr atkvæðakaup það. Það verður að gera ráð- stafanir til að búa í þessu landi án þess að ganga stöðugt á rýrn- andi gróðurríkið og skila því í tætlum til af- komenda okkar, vegna stundarhagsmuna. Það er landníðsla og okkur ekki samboð- ið.Vaknið af þessum rænu- leysisdoða og stöðvið ósómann. Hann á eftir að leggjast þungt á herðar kom- andi kynslóða. Skáldið Bólu-Hjálmar orti kvæði í tilefni konungskomu hingað til lands á 19. öld. Hann fékk ekki að flytja það. Það þótti níð um landið og hefst á þessum orðum: Sjá nú hvað eg er beinaber, brjóstin visin og fölar kinnar. Er ekki sami feluleikurinn enn í gangi til að þurfa ekki að roðna af skömm yfir ástandinu? Landbún- aðarháskólinn býður hingað á nám- skeið fólki frá löndum sem eiga við uppblástur í löndum sínum að stríða, til að kenna þeim að rækta það upp. Vissulega hefur Landgræðslan öðlast mikla reynslu í sinni vonlausu baráttu við eyðingaröflin, þó sígur enn á ógæfuhliðina vegna þess að aðalskaðvaldurinn fornaldar- rányrkjubúskapurinn er enn stund- aður. Skyldi námsmönnum vera sagt frá því að þeir séu að læra hjá þjóð sem vinnur eins og Bakkabræður forðum og eys í botnlausa tunnu? Lbh gerir engar athugasemdir við rányrkju á landinu Herdís Þorvalds- dóttir skrifar um landnýtingu » Á aðra milljón fjár rífur í sig allt það viðkvæmasta og falleg- asta sem það nær til svo sem nýgræðinginn og blómplönturnar allt sumarið. Höfundur er leikkona og fyrrverandi formaður Lífs og lands. Herdís Þorvaldsdóttir SÚ ókyrrð sem gengið hefur yfir ís- lenskt efnahagslíf síð- ustu misseri hefur ekki farið framhjá nokkrum manni. Ein sú stétt sem fundið hefur vel fyrir þeim efnahagsþrengingum sem við göngum í gegnum eru náms- menn. Námslánin sem í boði hafa verið eru nánast að engu orðin vegna hækkunar verðlags og slæms gengis krónunnar. Þá hefur sú staða sem upp er komin á at- vinnumarkaði bitnað á stúdentum þar sem nú þykir erfiðara að fá hlutastarf en það var, einmitt sú leið sem flestir notuðu til að drýgja tekjurnar þegar námslánin dugðu ekki til að ná endum saman. Sá hópur stúdenta sem hefur al- veg gleymst í umræðunni eru skiptinemar sem búsettir eru er- lendis þessa stundina. Í fyrsta lagi veldur lágt gengi íslensku krón- unnar því að verðlag erlendis hef- ur snarhækkað og er orðið veru- lega dýrt fyrir námsmenn erlendis að lifa. Allar nauðsynjar, s.s. húsa- leiga, matvara, skólabækur o.s.frv., hafa hækkað gríðarlega síðan í sumar. Það bætir síðan ekki ástandið að Lánasjóður íslenskra námsmanna miðar við gengi ís- lensku krónunnar hinn 1. júní 2008 þeg- ar hann reiknar út námslán fyrir skipti- nema. Sem dæmi má nefna að hinn 1. júní sl. var gengi dönsku krónunnar u.þ.b. 15,5, en nú stendur hún í tæplega 21. Að þessu leyti eru skiptinemar verr settir en þeir sem eru í fullu námi við erlenda háskóla því þá er miðað við gengi útborg- unarmyntarinnar á útborg- unardegi og þeir eru því lausir við gengisáhættu vegna námslána. En tilgangur þess að reikna námslán í erlendri mynt er einmitt að koma í veg fyrir að gengissveiflur bitni á lánþegum. Það sem hefur svo komið niður á báðum hópum er að gjaldeyr- isskiptimarkaður með íslensku krónuna hefur verið óvirkur í 2-3 vikur. Það þýðir að íslenskir nem- ar hafa í mörgum tilfellum ekki getað keypt sér gjaldeyri, ekki getað millifært pening að heiman, tekið pening út úr hraðbanka eða borgað með íslenskum debet- og kreditkortum sínum erlendis. Því hafa sumir lent í því að eiga eng- an pening til að borga húsaleigu, kaupa sér mat eða aðrar nauð- synjar. Oft á tíðum fjölskyldufólk með ung börn. Vaka mun á næstu dögum skoða rétt námsmanna erlendis og kanna hvort LÍN sé heimilt að mismuna íslenskum nemendum er- lendis eftir því hvort þeir eru skiptinemar eða í föstu námi. Hvernig leyst verður úr þessari efnahagskreppu sem gengur yfir núna mun væntanlega skera úr um það hvort verulegur hluti okkar kynslóðar sjái sér hag í því að flytja frekar úr landi en að lifa í mjög skuldsettu þjóðfélagi, með atvinnulíf í molum. Veruleg hætta er á því að menntastéttir flytji úr landi þar sem þær telja hag sínum betur borgið annars staðar. Mun- um að menntun er besta fjárfest- ingin sem einstaklingar og stjórn- völd geta gert. Hún heldur ávallt verðmæti sínu og við skulum ekki hrekja þessa bestu fjárfestingu okkar úr landi með því að skuld- setja hana áður en hún fer að skila arði. Lærum af reynslunni og byggjum upp gott og vel menntað samfélag. Breytingar á reglum LÍN Ingólfur Birgir Sig- urgeirsson fjallar um vandræði náms- manna erlendis » Því hafa sumir lent í því að eiga engan pening til að borga húsaleigu, kaupa sér mat eða aðrar nauðsynj- ar. Ingólfur Birgir Sigurgeirsson Höfundur er fulltrúi Vöku í stúdentaráði Háskóla Íslands. Í EFNAHAGSÞRENGING- UNUM sem nú ganga yfir heims- byggðina leita menn að ljósinu í myrkrinu. Leiðtogar heimsins reyna að leysa skammtímavand- ann um leið og þeir horfa fram á við. Þótt loftslagsbreytingar hafi fallið í skuggann af lausfjárkrepp- unni er orkuvandinn einmitt lykill- inn að framtíðinni. Hátt orkuverð er aðalhvatinn og þó olían hafi lækkað talsvert er olíuverð samt sem áður hátt í sögulegu tilliti. Á Íslandi búa aðeins um 300 þúsund manns en orkuauðlind- irnar mælast í þúsundum MW. Þetta er verðmætur grunnur sem þarf að nýta skynsamlega og í sátt við náttúruna. Lengi vel hefur áherslan verið á álver en eitt verk- efni er þegar komið af stað sem kalla má „græna stóriðju“. Hér á ég við Becromal á Íslandi þar sem íslenska raforkan verður notuð í framleiðslu aflþynna úr áli sem nýtast í vindmyllur, sólarrafkerfi, rafbíla og fleira. Það skemmir ekki fyrir að framleiðsluferlið mengar ekki heldur skilar aðeins hituðum sjó út í Eyjafjörðinn. Þessi fyrsta „græna stóriðja“ er vonandi vísir að því sem koma skal. Ein eftirsóttasta hrávaran í græna orkugeiranum er sólarkísill. Nokkrir aðilar hafa sýnt áhuga á að setja upp slíka starfsemi á Ís- landi en mörg lönd keppast um að fá slíka starfsemi til sín. Þjóðirnar vilja taka þátt í vaxandi iðnaði sem talinn er einn helsti vaxtarbroddur 21. aldarinnar. Þá er vert að horfa til þess að þjóðhagslegur ávinn- ingur af þessari framleiðslu er mikill þegar horft er til raf- orkunýtingar. Útflutnings- verðmæti er mjög mikið hvort sem horft er til MW, starfa eða fjárfest- ingarkostnaðar. Ef Ísland kemst í sólarkísiliðnaðinn verður komin ný vídd í atvinnustarfsemi á landinu. Það gildir það sama um grænan orkuiðnað og aðra starfsemi; eitt vex af öðru. Í áliðnaði hefur eitt verkefni leitt til annars. Á sama hátt má ætla að fyrsta græna stór- iðjuverkefnið muni leiða af sér önnur. Nú sem aldrei fyrr er mik- ilvægt að auka gjaldeyristekjur þjóðarbúsins. Grænn orkuiðnaður er vaxtarbroddur í heiminum og Ísland myndi njóta þess lengi að vera með frá upphafi. Eyþór Arnalds Græna orkubyltingin Höfundur er bæjarfulltrúi í Árborg og framkvæmdastjóri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.