Morgunblaðið - 01.11.2008, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 01.11.2008, Qupperneq 36
36 Minningar MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 2008 ✝ SigurlaugMagnúsdóttir fæddist í Hafn- arnesi við Fá- skrúðsfjörð 1. nóv- ember 1908. Hún lést 30. ágúst 1998 eftir erfið veikindi. Kristján Stef- ánsson fæddist á Búðum við Fá- skrúðsfjörð 1. september 1908 . Hann lést 28. ágúst 1963, aðeins 54 ára gamall. Börn þeirra eru: 1) Anna, maki Bjarni Guðjón Bjarnason. Börn þeirra eru: A) Sigurlaug Kristín Bjarna- dóttir, maki Þröstur Eyvinds Har- aldsson, börn þeirra eru a) Har- aldur Eyvinds Þrastarson, maki Ásta Sigvaldadóttir, börn Ragn- heiður Kristín og Þröstur Már; og b) Bjarni Eyvinds Þrastarson, maki Brynja Guðmundsdóttir. B) Guðrún Bjarney Bjarnadóttir, maki Viðar Halldórsson. Börn þeirra eru: a) Arnar Þór Við- Stefán, maki Kolbrún Birgitta Guðmundsdóttir. Börn þeirra eru: A) Arna Stefánsdóttir, maki Skafti Guðbergsson. B) Kristján Stef- ánsson, d. 2008, maki Þorbjörg Friðbertsdóttir, börn a) Friðbert Elí Kristjánsson, maki Áslaug Ragnarsdóttir Thorarensen, dótt- ir Viktoría Friðbertsdóttir; og b) Karolína Birgitta Kristjánsdóttir, unnusti Elvar Hákon Már Jó- hannsson. 4) Karen, maki Daníel Stefánsson. Börn þeirra eru: A) Drífa Daníelsdóttir, maki Kristinn Skúlason, börn a) Anna Kristín Kristinsdóttir; b) Íris Thelma Kristinsdóttir, unnusti Grettir Jónasson; og c) Arnór Dan Krist- insson. B) Mjöll Daníelsdóttir, maki Guðmundur Viðarsson, börn Karen Guðmundsdóttir, Daníel Guðmundsson og Jóhanna Guð- mundsdóttir. C) Anna Kristín Daníelsdóttir, d. 1986. D) Kristján Daníelsson, maki Sigríður Hall- dórsdóttir, dætur Klara Emilía Kristjánsdóttir og Karen Krist- jánsdóttir. 5) Friðrik Rafn, maki Margrét Brynjólfsdóttir, d. 1995. Börn A) Brynjar Þór Friðriksson, maki María Rabadca, börn Sara Margrét Brynjarsdóttir og Aron Freyr Brynjarsson. B) Bjarney Friðriksdóttir. Friðrik eignaðist síðar dóttur, Sesselju Friðriks- dóttur. arsson, maki Saskia Bracke, börn Sunna Líf og Viktor Mói; b) Davíð Þór Viðarsson; og c) Bjarni Þór Viðarsson, unnusta Dóra Sif Inga- dóttir. C) Bjarni Guðjón Bjarna- son, maki Helga Ingólfsdóttir. Börn þeirra eru a) Anna Brá Bjarnadóttir; b) Ingólfur Halldór Bjarnason, unnusta Bryndís Snorradóttir; c) Birna Ragnheiður Bjarnadóttir; og d) Anna María Bjarnadóttir, maki Kristbjörn Óskarsson. 2) Rafn, d. 1937. 3) Mig langar að minnast tengdafor- eldra minna í tilefni þess að 100 ár eru liðin frá fæðingu þeirra. Þeim varð fimm barna auðið; eitt lést á unga aldri, en hin fjögur búa öll vítt og breitt um höfuðborgarsvæðið. Frá Fáskrúðsfirði flytja þau til Akureyrar upp úr 1930, Kristján stundaði þar sjómennsku að mestu og Sigurlaug ól upp sinn barnahóp og starfaði þar að auki við verk- smiðjustörf ásamt veitingastörfum. Þau fluttu svo til Reykjavíkur 1954 og bjuggu þar til æviloka. En hugsum nú aðeins til baka. Það var um 1959 að ég fór að eltast við yngri dóttur þeirra, sem var þá að- eins 19 ára en ég 25 ára. Tengdamóð- ir mín var í fyrstu ekki alveg sátt við að svona fullorðinn maður væri á höttunum eftir elsku litlu stelpunni sinni, þótti þetta of mikill aldurs- munur. Mér fannst það ekki, þó svo ég væri spurður af hverju ég væri að eltast við þessa smástelpu. Það er önnur saga að mér tókst að vinna hug þeirra hjóna og ég kvæntist svo litlu stelpunni þeirra hinn 30. maí 1964. Þetta var samt afrek að vinna hug Sigurlaugar, þótt það tæki sinn tíma, en Kristján tók mér vel næst- um strax. Við áttum margar góðar stundir saman, ásamt öðrum börn- um þeirra, og er það mér ógleym- anlegt að hafa kynnst Sigurlaugu og Kristjáni. Í tilefni aldarafmælisins ætlar öll fjölskyldan að koma saman hjá barnabarni þeirra hjóna, sem heitir jú Sigurlaug. Daníel Stefánsson. Sigurlaug Magnúsdóttir og Kristján Stefánsson Með örfáum orðum langar mig að minn- ast Hrefnu mágkonu minnar. Mín fyrstu kynni af henni voru þegar Maggi bróðir minn kom með hana heim. Ég var mjög spennt að hitta hana, þurfti náttúrlega að horfa vel á hana og þótti mér hún bara mjög sæt. Okkur kom fljótt vel saman og var ég mikið í kringum hana. Hún var létt í skapi og jafnan ríkti glað- ✝ Jónína HrefnaMagnúsdóttir fæddist á Króki í Ketildalahreppi í V- Barðastrandarsýslu 7. maí 1921. Hún lést á Vífilsstöðum 15. ágúst síðastlið- inn og var kvödd frá Fíladelfíukirkjunni í Reykjavík 29. ágúst. værð í kringum hana. Eitt atvik er mér minnisstætt sem lýsir glaðværð og jafnaðar- geði Hrefnu. Við hús- ið okkar í sveitinni var lítill lækur. Hrefna fór gjarnan með þvott þegar vel viðraði til að skola úr honum. Ég bauðst eitt skiptið til að fara með henni og aðstoða hana. Hún var með stórt handklæði sem hún var að skola úr og stóð hún við það bogin úti í miðjum læknum. Ég stóð fyrir aft- an hana og þegar ég sá hana svona bogna fyrir framan mig kom lítill púki upp í mér og ég lagði renn- blautt handklæðið yfir bak hennar. Hún æpti upp yfir sig en þegar hún sá hvað ég hló mikið smitaðist hún af hlátri mínum og á endanum kom- um við báðar rennblautar og hlæj- andi saman í hús. Hrefna og Maggi byggðu sér hús við lækinn og bjuggu þar mestallan sinn búskap. Þau ólu börnin sín átta upp þar en þegar þau voru öll flogin úr hreiðrinu tóku þau sig upp og fluttu upp á Akranes þar sem þau bjuggu í nokkur ár. Það var alltaf gott að koma til þeirra og alltaf fékk maður jafn hlýjar mót- tökur. Hrefna og Maggi voru samstiga hjón, þau voru bæði einstaklega gestrisin og listræn. Maggi var list- málari og Hrefna var mjög listræn í sér. Nú eru þau bæði komin í faðm frelsarans sem þau elskuðu bæði. Ég votta börnum og barnabörnum og öllum ættingjum Hrefnu inni- lega samúð mína, ég bið Guð að vaka yfir ykkur öllum. Oddný Guðnadóttir. Jónína Hrefna Magnúsdóttir Við veltum því stundum fyrir okkur, spilafélagarnir, hvers vegna sumir fengju góð spil allt kvöldið, en aðrir lakari. Auðvitað fengum við engin svör. Þetta er bara svona. Matti fékk oft góð spil í spila- klúbbnum okkar, enda kallaði Himmi hann oft Matta punkt. Við stofnuðum þennan bridds- klúbb fyrir liðlega 20 árum og er spilaklúbburinn enn við lýði. Matti var lunkinn spilamaður og Marteinn Sverrisson ✝ MarteinnSverrisson fæddist í Reykjavík 15. mars 1947. Hann lést á Landspítalan- um 21. október síð- astliðinn og fór út- för hans fram frá Lágafellskirkju 29. október. spilaði vel úr sínum spilum, bæði við spilaborðið sem og í einkalífinu. Hann var góður námsmaður, aflaði sér góðrar menntun- ar, var lánsamur í einkalífinu og átti af- bragðs lífsförunaut í Hrefnu og yndisleg börn. Hann var virtur og vel liðinn sam- starfsmaður og átti marga nána vini. Auk briddsins spil- uðum við spilafélagarnir innan- hússfótbolta, fórum í utanlands- ferðir og nutum samverunnar. Þau Hrefna og Matti stunduðu vín- smökkunarklúbb, sem ég starf- rækti ásamt öðrum, og nutu þess í ríkum mæli. Án nokkurs fyrirvara urðu spilin lakari. Matti fékk alvarlegan sjúk- dóm en tókst að spila vel úr sínum spilum og var nálægt því að sigrast á sjúkdómnum. En þá gaus hann upp aftur. Enn hófst varnarspila- mennska. Með þrautseigju tókst að komast fyrir sjúkdóminn. En átökin höfðu kostað Matta mikið þrek og kraft og líkaminn var orðinn varnarlaus fyrir öðrum kvill- um. Matti og Hilmar komu í heim- sókn til okkar í sumar. Matti var kátur og hress og til alls líklegur. En skjótt skipast veður í lofti. Viðspyrnan minnkaði og Matta þvarr kraftur. Hvers vegna hann, spyrjum við? En ekkert kemur svarið. Það er nefnilega eins og með spil- in. Það er engin skýring á því. Það er bara svona. Sorgin nístir. Söknuðurinn verð- ur yfirþyrmandi. Við kveðjum ljúfan og góðan dreng, einstakan vin. Guð blessi og styrki Hrefnu og fjölskylduna, sem og aðra vini og frændur. Pétur Björn. Mér er sagt að ég hafi verið fyrsta barnið sem afi ýtti í barnavagni þrátt fyrir að eiga fjóra syni með ömmu og líka Sverri frænda. Sem barn átti ég skjól í húsi ömmu og afa á Akureyri. Húsi sem afi byggði sjálfur og stendur við Byggðaveg á Akureyri. Þetta er stórt og reisulegt hús og í minning- unni var það enn stærra. Þar var alltaf fullt af fólki og mikið líf. Þar voru amma og afi, yngri bræður pabba, þeir Haddú og Kobbi, langamma Kristín og Kalli, fyrrum vinnumaður á Möðruvöllum sem fylgdi afa og oftar en ekki Denni líka. Og Bokki. Afi hló oft mikið þegar hann sagði söguna af því þegar ég sá Bokka í fyrsta skipti og var komin upp á borð í einu stökki þrátt fyrir ungan aldur, af tómri hræðslu við þennan ógnarskelfi. Síðar urðum við Bokki miklir vinir og í dag heit- ir hundurinn minn í höfuðið á mín- um gamla félaga. Afi hafði gaman af því að segja sögur. Hann var hrókur alls fagnaðar og mikill fé- lagsmálafrömuður á Akureyri. Afi Haraldur M. Sigurðsson ✝ Haraldur AxelMöller Sigurðs- son, íþróttakennari á Akureyri, fæddist á Hjalteyri við Eyja- fjörð 19. maí 1923. Hann lést á hjúkr- unarheimilinu Seli á Akureyri 14. októ- ber síðastliðinn og var útför hans gerð frá Akureyrar- kirkju 24. október. var svo fallegur og yfir honum mikil reisn. Hann var íþróttakennari og kenndi mér að synda í Akureyrarlauginni. Afi fæddist og dó í kreppu. Hann varð munaðarlaus ungur drengur og honum og systkinum hans var dreift á bæi í sveit- inni. Afi var 8 ára þegar honum var komið fyrir á Möðru- völlum í Hörgárdal en harðduglegum og nautsterkum tókst honum að vinna sig upp til nokkurra efna. Ég reiknaði alla- vega alltaf dæmið svo að afi og amma hlytu að vera mjög rík því þau voru svo rausnarleg og gjaf- mild gagnvart öllum sínum. Síðar á lífsleiðinni urðu þau fyrir fjárhags- legu áfalli, líkt og margir standa frammi fyrir í dag. Áfallið hafði vissulega mikil áhrif á líf þeirra en þó að þau yrðu bæði sjúklingar undir lokin var yfir þeim reisn og stolt sem gerði þau að glæsilegum hjónum. Eftir að amma dó fyrir þremur árum hrakaði heilsu afa og hann missti málið. Það var erfitt til þess að vita að hann gæti ekki tjáð sig þegar maður fann fyrir því að neistinn brann í brjósti hans og hann hafði svo margt til málanna að leggja. Þrátt fyrir málleysi gat afi brugðið á leik og sagt brandara með látbragði ef því var að skipta. Það var oft glampi í augunum hans, sérstaklega þegar hann fylgdist með barnabarnabörnunum. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug vegna fráfalls KATRÍNAR ÁRNADÓTTUR, Hlíð, Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Páll Ragnar Steinarsson, Sigfríður Lárusdóttir, Tryggvi Steinarsson, Anna María Flygenring, Elín Erna Steinarsdóttir, Indriði Birgisson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur vináttu og samúð við fráfall SVAVARS FANNDAL TORFASONAR meistara í rafvélavirkjun, Grenilundi 12, Garðabæ. Sólbjört Gestsdóttir, Hólmfríður Fanndal Svavarsdóttir, Ingólfur Arnarson, Sigríður Guðjónsdóttir, Guðrún Björg Sigurbjörnsdóttir, Jóhanna Rósa Arnardóttir, Jón Vilhjálmsson og fjölskyldur. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, SIGRÍÐAR GUÐMUNDSDÓTTUR frá Einarsnesi. Þórarinn Sigþórsson, Ragnheiður Jónsdóttir, Guðmundur Sigþórsson, Herborg Árnadóttir, Helga Sigþórsdóttir, Þórður S. Gunnarsson, Jóhanna S. Sigþórsdóttir, Þór Sigþórsson, Guðný Björg Þorgeirsdóttir, Óðinn Sigþórsson, Björg Karítas Jónsdóttir, Sigríður Sigþórsdóttir, Hallmar Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.