Morgunblaðið - 01.11.2008, Side 43
43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 2008
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÞÚ VERÐUR AÐ AFSAKA
MIG... STUNDUM SEGI
ÉG HLUTI ALGJÖRLEGA
ÁN ÞESS AÐ HUGSA
...LJÓTI
FITUHLUNKUR
NÁKVÆMLEGA
SVONA
FYRIRGEFÐU... ÉG
SKAL LAGA ÞETTA... ER ÞETTABETRA NÚNA?
ÉG GLEYMI ALLTAF
STEINSELJUNNI
HOBBES,
HVAÐ ERTU
AÐ GERA?
EKKERT
ALLS
EKKI
NEITT?
NEIBB
VILTU
HJÁLP?
ÞAÐ
VÆRI
FÍNT
HVAÐ ER
Í MATINN Í
KVÖLD, HELGA?
ÉG ÆTLA AÐ FÁ
MÉR OFNBAKAÐA
ÖND MEÐ
KARTÖFLUM,
BAUNUM OG
HUNANGSSÓSU...
ÞÚ FÆRÐ
KALDAN
HAFRA-
GRAUT
ÉG GLEYMDI BRÚÐKAUPSAFMÆLINU
OKKAR AFTUR, ER ÞAÐ EKKI?
KANNSKI ER
HANN AÐ REYNA
AÐ HÆTTA AÐ
REYKJA
AF HVERJU
ÞURFUM VIÐ
AÐ DREPA
MÚSINA? ERU
EKKI TIL
GILDRUR SEM
DREPA EKKI?
JÚ, ÉG SÁ
SVOLEIÐIS
GILDRUR...
EN ÞÆR KOSTA MIKLU
MEIRA... ÉG VEIT EKKI HVORT
ÉG VIL BORGA MEIRI PENING
BARA SVO MÚSIN FÁI AÐ LIFA
BJARGIÐ
MÚSINNI
OKKAR!
KÓNGULÓARMAÐURINN NÁÐI
KORDOK! ÞVÍLÍK FRÉTT!
ÞETTA ER
FRÉTT
ÁRSINS!
OG ÞAÐ VAR MYNDA-
TÖKUMAÐURINN MINN
SEM NÁÐI ÞVÍ Á FILMU
ÞANNIG AÐ ÞÚ
GETUR BARA SÉÐ
FRÉTT ÁRSINS...
Í ÞÆTT-
INUM
MÍNUM
Velvakandi
VIÐ Melaskóla voru kátir krakkar í fjörugum leik á skólalóðinni. Enda fal-
legt veður með glaðasólskini og ómögulegt að hanga inni við.
Morgunblaðið/Frikki
Fjör í Melaskóla
Bleikur iPod-Nano
tónlistarspilari
BLEIKUR iPod-Nano
tónlistarspilari tap-
aðist í Þjóðleikhúsinu
síðastliðið fimmtu-
dagskvöld. IPodinn er
bleikur og í glæru
hulstri með svörtu
mynstri. Áhangandi
voru bleik heyrnartól.
Finnandi vinsamlega
hafi samband við
Hólmfríði í síma 823
1682.
Þakklæti til
Sigrúnar
MIG langar að þakka þjónustufull-
trúa Tryggingastofnunar ríkisins
fyrir einstök almennilegheit og
mættu fleiri þjónustufulltrúar taka
hana Sigrúnu sér til fyrirmyndar.
Með kærri þökk til þín, Sigrún.
Ingveldur Guðmundsdóttir.
Áskorun til Háskóla Íslands
ÞAÐ eru breyttir tímar í íslensku
þjóðlífi og Háskóli Íslands þarf að
bregðast við. Nauðsynlegt er að
Háskólinn opni dyr sínar fyrir nýj-
um stúdentum og taki við eins
mörgum skráningum og unnt er
strax um næstu áramót. Fólk sem
hefur verið lengi á vinnumark-
aðnum sér fram á breytta tíma
vegna aukins atvinnuleysis. Þetta
fólk vill bæta við þekkingu sína og
við því þarf að bregðast. Fastlega
má gera ráð fyrir því að umsóknir
um að hefja nýtt nám á vorönn
verði fleiri en vanalega í ljósi að-
stæðna. Háskólinn verður að vera
opinn fyrir því að bregðast við
þessari aukningu og taka inn fleiri
nýnema en ella, í stað þess að vísa
fólki frá. Háskólinn á nú að nýta
tækifærið og auglýsa það nám sem
er í boði. Hann á að sýna almenn-
ingi að þótt á móti blási séu tæki-
færi til staðar sem fela í sér bjart-
ari framtíð. Nú á Háskólinn að
sanna að hann sé það flaggskip
menntastofnana sem honum ber að
vera.
Háskólinn mætti í þessu sam-
bandi taka Háskólann í Reykjavík
sér til fyrirmyndar. Háskólinn í
Reykjavík hefur með fréttatilkynn-
ingu lýst yfir að hann muni aðstoða
nýnema strax um áramótin, sem og
íslenska stúdenta er-
lendis sem hafa áhuga
á að koma heim og
halda námi sínu áfram
hér á Íslandi. Sterkt
væri fyrir Háskóla Ís-
lands að gera slíkt hið
sama og það sem
fyrst.
Vaka hefur talað öt-
ullega fyrir þessum
málstað á þessum erf-
iðu tímum, enda hefur
félagið ávallt talað fyr-
ir mikilvægi þess að
fjárfesta í menntun.
Félagið hefur til að
mynda birt greinar í
Morgunblaðinu, á vis-
ir.is og sent bréf til rektors þar
sem ítrekuð er afstaða félagsins um
að breytinga sé þörf. Vaka, félag
lýðræðissinnaðra stúdenta, skorar
hér enn og aftur á Háskólann að
koma með skýra yfirlýsingu um að
breytinga sé að vænta. Nú þegar
erfiðir tímar eru í vændum verða
stúdentar að geta treyst því að Há-
skóli Íslands standi þeim opinn og
vonar Vaka að Háskólinn bregðist
ekki trausti stúdenta.
Kristján Freyr Kristjánsson,
oddviti Vöku.
Forsætisráðherra
og seðlabankastjóri
GEIR Haarde forsætisráðherra
getur ekki þráast við öllu lengur að
skýra út fyrir alþjóð hvers vegna
hann heldur hlífiskildi yfir Davíð.
Það er ekki aðeins almenningur
sem krefst þess að Davíð víki, held-
ur allir sérfræðingar innlendir sem
erlendir, margir hverjir heims-
þekktir menn á sviði hagfræði og
fjármála. Forsætisráðherra er að
missa það góða álit sem hann hefur
haft í þeirri erfiðu stöðu sem þjóð
okkar er nú í og sem leiðtogi á
þessum erfiða tíma. Hver er sú
valdablokk innan Sjálfstæðisflokks-
ins sem veldur þessu? Er það
Kjartan Gunnars, Styrmir og aðrir
kafbátar sem vinna allt í bakher-
bergjum? Ég vil skora á Geir að
láta Davíð fara og halda með því
óskertu góðu áliti alþjóðar á störf-
um hans.
Hafsteinn Sigurbjörnsson.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Félag eldri borgara í Kópavogi | Skrif-
stofan í Gullsmára er opin mánudaga og
miðvikudaga kl. 10-11.30, í Gjábakka á
miðvikudögum kl. 15-16. Opið hús laug-
ardaginn 1. nóv. kl. 14 og Arngrímur Ís-
berg les Egilssögu á miðvikud. kl. 16.
Félag kennara á eftirlaunum | Fræðslu-
og skemmtifundur í Stangarhyl 4 kl.
13.30-16.
Félagsheimilið Gjábakki | Krummakaffi
kl. 9 og Hana nú-ganga kl. 10.
Félagsstarf Gerðubergs | Birna Bjarn-
leifsdóttir er gestur í pottakaffi í Breið-
holtslaug kl. 9 í dag. Alla mánud. kl. 9 og
föstud. kl. 13 er leikfimi (frítt) o.fl. og
kaffi í ÍR-heimilinu v/Skógarsel. Umsj.
Júlíus Arnarson íþróttakennari.
Hæðargarður 31 | Dagskrá til heiðurs
Jónasi Hallgrímssyni verður þriðjud. 4.
nóv. kl. 15. Sögumaður: Þórður Helga-
son. Stefán Helgi Stefánsson tenór og
Davíð Ólafsson bassi syngja, Helgi Hann-
esson spilar á píanóið. Flytjendur eru
höfundar ljóðabókarinnar Í sumardal.
Aðgangseyrir kr. 500. Uppl. s. 411-2790.
Hæðargarður 31 | Fjölskylduganga alla
laugardaga kl. 10. Teygjuæfingar, spjall
og vatn á eftir. Uppl. s.411-2790.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Harm-
onikkuhljómsveit Sigríðar Norðkvist leik-
ur fyrir dansi, mánud. 3. nóv. kl. 14.
Lífeyrisþegadeild Landssambands
lögreglumanna | Fundur á morgun,
sunnud. 2. nóv. kl. 10 á Grettisgötu 89.
Sunnuhlíð Kópavogi | Basar og kaffi-
sala Dagdvalar í Sunnuhlíð Kópavogs-
braut 1c verður haldinn í dag, laugardag
og hefst kl. 14. Einnig verður kaffisala í
matsal þjónustukjarna. Ágóði fer til
starfsemi Dagdvalar í Sunnuhlíð.