Morgunblaðið - 01.11.2008, Side 48
48 Menning
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 2008
í samstarfi við Borg
arleikhúsið kynnir:
Höfundar og flytjendur: Margrét Sara Guðjónsdóttir
Sveinbjörg Þórhallsdóttir, Jared Gradinger
Sýnt á Stóra sviði
Borgarleikhússins
Tryggðu þér miða núna!
568 8000 / midi.is
PRIVATE DANCER
www.panicproductions.is
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
2. sýning - í dag kl. 15
3. sýning - á morgun kl. 20
Aðeins þessar 2 sýningar!
Miðasala
S. 545 2500
www.sinfonia.is
Í dag kl. 17.00 - nokkur sæti laus
Kristján Jóhannson og Sinfóníuhljómsveitin
Stórsöngvarinn Kristján Jóhannsson syngur með
Sinfóníuhljómsveitinni í fyrsta sinn í átta ár. Íslensk sönglög og
aríur eftir Puccini og Leoncavallo. Að auki verk eftir Grieg og
Dvorák að ógleymdri fimmtu sinfóníu Beethovens.
Hljómsveitarstjóri: Petri Sakari
Einsöngvari: Kristján Jóhannsson
Ath. Miðaverð aðeins 1.000 kr.
Þriðjudaginn 4. nóvember kl. 20.00
Tónleikar í íþróttahúsi Síðuskóla á Akureyri
Kristján Jóhannson og Sinfóníuhljómsveitin endurtaka leikinn á
heimavelli Kristjáns. Forsala aðgöngumiða í Eymundsson, Akureyri
og á sinfonia.is.
Ath. Miðaverð aðeins 1.000 kr.
STOÐIR ERU AÐALSTYRKTARAÐILI
SINFÓNÍUHLJÓMSVEITAR ÍSLANDS
A
f einhverjum ástæðum
njótum við þess að
láta hræða úr okkur
líftóruna. Í Banda-
ríkjunum hefur mynd-
ast hefð fyrir því að gefa út hroll-
vekjur á Hrekkjavöku, sem var í
gær, en íslenskir skemmtistaðir
kjósa að halda upp á hana í kvöld.
Fyrir þá sem kjósa frekar að
hanga heima er tilvalið að mæla
með nokkrum frábærum myndum
sem fá hárin til þess að rísa aftan
á hálsinum. Athugið að myndirnar
á þessum lista eru alls ekki fyrir
viðkvæma.
The Exorcist (1973)
Vakti óhug og miklar deilur inn-
an kaþólsku kirkjunnar þegar hún
kom út og lifir enn sem ein besta
hrollvekja allra tíma. Fékk Ósk-
arsverðlaunin fyrir handrit sem
skrifað var eftir bók sem studdist
við blaðagrein um raunverulega at-
burði.
Texas Chainsaw
Massacre (1974)
Vestur-Íslendingurinn Gunnar
Hansen fer á kostum sem Leðurfés
í þessari flugbeittu mynd sem fylgt
var eftir með fjölda slappra fram-
haldsmynda. Engin þeirra hefur
náð frumgerðinni í hrottaleik og
óhugnaði.
Halloween (1978)
Þó svo að söguþráður mynd-
arinnar tengist ekki Hrekkjavöku
mikið lifir Jamie Lee Curtis í
minnum manna sem ein af betri
öskudrottningum áttunda áratug-
arins.
The Shining (1980)
Uppbyggingin í þessu tímalausa
meistarastykki Stanley Kubrick er
stórkostleg. Tónlistin ein og sér er
nóg til þess að gefa áhorfandanum
gæsahúð. Þegar persóna Jack Nic-
holson missir loks vitið er ekki
annað hægt en að spennast allur
upp.
Evil Dead (1981)
Áður en Sam Raimi snéri sér
nær alfarið að því að gera myndir
um Köngulóarmanninn var hann
þekktastur fyrir hryllingsmyndir
sínar. Evil Dead er tímalaus klass-
ík sem blandar andsetningu eins
og í The Exorcist saman við Zom-
bie-heima Night of the Living
Dead eftir George A. Romero.
Scream (1996)
Hrollvekjumeistarinn Wes Cra-
ven komst aftur á kortið á tíunda
áratugnum með því að endurvekja
unglingahrollvekjuna. Tókst það
vel upp að þær hafa verið vinsælar
æ síðan.
Event Horizon (1997)
Ótrúlega óþægileg áhorfs en hér
lokast áhöfn persóna Laurence
Fishburne og Sam Neill í geim-
flaug á sporbaug um Júpíter, fjarri
öllu lífi. Hljómar kannski ekki
mjög ógnvekjandi en það sem gerir
myndina svo óþægilega er hversu
óáþreifanlegt hið illa afl sem hefur
sest að í flauginni er. Það ræðst á
áhöfnina á sálrænan hátt og truflar
hana á geði. Vonleysið er algjört.
The Sixth Sense (1999)
Frumraun leikstjórans M. Night
Shyamalan situr enn í mörgum.
Ekki bara vegna þess hversu trú-
verðug Micha Barton var sem æl-
andi smástúlka heldur vegna frá-
bærrar fléttu ógnvekjandi atriða.
Sönnun þess að það þarf ekki
tölvubrellur til þess að gera góða
hryllingsmynd.
The Ring (2002)
Frábær endurgerð Gore Veb-
inski á samnefndri japanskri hryll-
ingsmynd. Ein af fáum bandarísk-
um endurgerðum sem geta talist
betri en upprunalega útgáfan.
Saw (2004)
Fyrsta myndin í þessari vinsæl-
ustu hrollvekjuseríu allra tíma er
einnig sú besta. Einfaldur sögu-
þráður með frábærri fléttu sem
skoðar siðgæði manna á ögur-
stundu. biggi@mbl.is
10 bestu hroll-
vekjurnar fyrir
Hrekkjavöku
Evil Dead Myndin sem gerði Bruce Campbell að költ-hetju.
The Shining Kubrick breytti sögu Stephen King á réttum stöðum.
The Ring Þú deyrð sjö dögum eftir að hafa horft á myndina.
The Exorcist Faðir Merrin hugsar sig um stuttu áður en hann kemst augliti
til auglitis við sjálfan djöfulinn. Ein magnaðasta mynd sögunnar.
Texas Chainsaw Massacre Frem-
ur snyrtilegt veggspjald við afar
blóðuga og ógeðslega kvikmynd.
Event Horizon Sam Neill fer á kostum sem hinn skuggalegi Dr. Weir.