Morgunblaðið - 01.11.2008, Side 56
LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 306. DAGUR ÁRSINS 2008 Þjóðleikhúsinu
Hart í
bak
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 250 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1700
ÞETTA HELST»
Um 13–14 þúsund verða
atvinnulaus í janúar
Vinnumálastofnun spáir nú enn
meira atvinnuleysi en áður og telur
líklegt að það verði komið yfir 7% í
lok janúar. Uppsagnir hafa farið
stigvaxandi um allt land undanfarið.
Á Norðurlandi er áberandi hversu
mörgum karlmönnum er sagt upp,
hingað til hafa konur verið þar mun
fleiri á atvinnuleysisskrá. » 6 og 16
Kvótinn ekki aukinn
Hafrannsóknastofnun telur ekki
tilefni til að mæla með aukningu
þorskkvótans að nýju. Lang-
tímaáhrif gætu orðið mikil. » 16
Þeistareykir í biðstöðu
Rannsóknarboranir á Þeista-
reykjum frestast fram yfir næsta
sumar þar sem Alcoa heldur að sér
höndum við fjárfestingar í nýjum
verkefnum. » 2
SKOÐANIR»
Staksteinar: Endurnýjun stefnunnar
Forystugreinar: Forðumst
þjóðarvoða | Neytendavaktin aldrei
brýnni
Ljósvaki: Höfðingjar
UMRÆÐAN»
Mesta kreppa lýðveldistímans
Útgerðarmenn einir á báti
Tvö þúsund börn í 10 ár
Breytingar á reglum LÍN
Börn: Bestu barnabækurnar
Kínverskt púsluspil
Lesbók: Fram í sviðsljósið
Bláa höndin í fatla
BÖRN | LESBÓK »
%3%
$3%
%3 3$%
3 3%
3
3%
4 !5"&
.
"+
!
6
""#"
."%%
%3 $ %3 3$ 3 $3 %3 - 7
)1 &
%3 $ %3
3%%
3%
%3$
3
$3 3$
89::;<=
&>?<:=@6&AB@8
7;@;8;89::;<=
8C@&7"7<D@;
@9<&7"7<D@;
&E@&7"7<D@;
&2=&&@#"F<;@7=
G;A;@&7>"G?@
&8<
?2<;
6?@6=&2+&=>;:;
Heitast 6°C | Kaldast 1°C
Vestan 8-18 m/s,
hvassast á annesjum
norðanlands. Lægir er
líður á daginn. Þurrt
og bjart vestan til » 10
Jóhann Bjarni
Kolbeinsson telur að
listamenn blómstri á
tímum sem þessum
og skapi sín allra
bestu verk. » 49
AF LISTUM»
Kreppan er
ekki alslæm
TÓNLIST»
Lay Low fær fjórar
stjörnur. » 53
Brúðguminn fékk
flestar tilnefningar
til Edduverðlaun-
anna, alls 14.
Reykjavík Rotter-
dam fékk 8. » 51
KVIKMYNDIR»
Brúðguminn
fékk fjórtán
FÓLK»
Beckham-hjónin verða
að ofurhetjum. » 49
KVIKMYNDIR»
Hvaða myndir hæfa
hrekkjavöku? » 48
Menning
VEÐUR»
1. Íslensku fjórburarnir tvítugir
2. Ásdís Rán fékk 10 síður í Max
3. Óbarinn seðlabankastjóri
4. Sara: Þær vældu út í eitt
Íslenska krónan veiktist um 1,1%
„IN GENERAL, the place is rather
bleak,“ yrkir nóbelsskáldið Joseph
Brodsky í ljóði um Ísland frá árinu
1978 sem birt er í Lesbók í dag.
Ljóðið hefur aldrei birst áður.
Vorið 1978 heimsótti Brodsky Ís-
land í boði Ólafs Gunnarssonar rit-
höfundar. Að lokinni dvöl sinni orti
hann ljóðið, sem heitir Postcard
from Iceland, og gaf Ólafi.
Ólafi er umhugað um að ljóðið
varðveitist og birtir það því í Les-
bók nú. Í ljóðinu lýsir Brodsky
landi og þjóð. Ýmislegt virðist
koma hinu rússneska útlagaskáldi
spánskt fyrir sjónir. Sólin sest
aldrei og þjóðin hefur aldrei lært
að búa til múrsteina og byggir hús
úr bárujárni. Að auki flytur hún
alla hluti inn, segir skáldið, meira
að segja fiskurinn er eins konar
innflutningur.
Joseph Brodsky hlaut bók-
menntaverðlaun Nóbels 1987. | 10
Ísland með augum
Josephs Brodsky
HALLDÓR Björn Runólfsson, for-
stöðumaður Listasafns Íslands, seg-
ir að þá, sem kenna íslenska mynd-
list, vanti banka til að sækja myndir
í. Verk safnsins hafa verið mynduð
fyrir netið, en ekki hefur verið
gengið frá samningi um greiðslur.
„Við hjá Myndstefi viljum sýna
fulla sanngirni en yfirvöld verða
einnig að viðurkenna að þetta efni
er háð eignarrétti,“ segir Knútur
Bruun. | 45
Vantar að-
gang að list
Morgunblaðið/ÞÖK
Í Listasafninu Gestir geta skoðað
verk í safninu en ekki á netinu.
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur
ben@mbl.is
ÞÆR eru jafn misjafnar og þær eru
margar, einu fjórburar landsins,
sem fagna tvítugsafmæli sínu í dag.
Alexandra, Brynhildur, Diljá og Elín
Guðjónsdætur segjast ekki líkari en
gengur og gerist um önnur systkini
þótt margir hafi gengið út frá öðru.
„Þegar við vorum yngri gat verið
hundleiðinlegt þegar það var hringt
og spurt hvort fjórburarnir væru
heima,“ segir Diljá og hinar kinka
kolli. „Svarið gat þá verið: „Nei, en
ég er heima.“ Og ef einhver var fúll
út í eina okkar fannst honum fjór-
burarnir ömurlegir … eða öfugt.“
Eftir að hafa verið í sama bekk í
tíu ár ákváðu þær því að fara hver
sína leið og völdu hver sinn fram-
haldsskólann. Í dag starfa tvær
þeirra sem verslunarstjórar í Zöru,
en hvor í sínu landinu, Brynhildur í
Bretlandi og Elín hér heima. Diljá er
gjaldkeri í Landsbankanum en Alex-
andra útskrifast úr MR í vor. „Mig
langar að fara í lögfræði eða endur-
skoðun, en það getur margt breyst á
hálfu ári,“ segir hún íbyggin.
Í dag stendur mikið til því afmæl-
inu verður fagnað með stæl enda
ekki á hverjum degi sem kornungar
konur halda upp á áttatíu ára af-
mæli. „Við ætlum að eyða öllum deg-
inum saman, byrja í hárgreiðslu og
snyrtingu og förum út að borða. Um
kvöldið verður svo partý.“
Elskuðu aldrei Geirmund
Fyrstu æviárin vöktu þær systur
heilmikla eftirtekt enda iðulega
klæddar í eins föt. „Svo gerðum við
uppreisn!“ Þær útskýra að þær hafi
þó gengið í klæðaskápa hver ann-
arar og að stundum hafi verið slegist
um uppáhaldsflíkurnar. Og frá unga
aldri komu þær í fjölmiðla, enda
þótti fæðing þeirra mikill viðburður
á sínum tíma. „Viðtölin gátu verið
svolítið pínleg,“ segir Diljá og Alex-
andra uppsker hlátur systra sinna
þegar hún botnar: „Sérstaklega þeg-
ar þau komu vitlaust út, sem þau
gerðu nú yfirleitt!“ Þær rifja upp
síðasta viðtalið sem þær fóru allar
saman í. „Þá vorum við 10 ára og það
var forsíða sem var grátið yfir í lang-
an tíma,“ segir Elín. „Fyrirsögnin
var: „Allar elska þær Geirmund“
[Valtýsson] sem okkur þótti mjög
niðurlægjandi.“ Og áður en blaða-
maður kveður lofar hann að leiðrétta
þann misskilning í eitt skipti fyrir
öll.
Morgunblaðið/Ómar
Áttburar? Systurnar fengu nóg af samanburðinum á unglingsárunum og ákváðu þá að fara hver í sinn framhaldsskóla og völdu ólíkar leiðir eftir það.
Fjórburar fagna tvítugu
Alexandra, Brynhildur, Diljá og Elín
Guðjónsdætur hafa farið ólíkar leiðir Í HNOTSKURN»Fjórburasysturnar fengunöfn eftir fyrstu bók-
stöfum stafrófsins, en síðust
kom Diljá. „Elín er eiginlega
C,“ segja þær hlæjandi.
»31. október 1957 fæddustfjórburar hér á landi en
aðeins þrír þeirra lifðu og
annar lést á fyrsta ári.
Íslensku fjórburarnir tvítugir
mbl.is | Sjónvarp