Morgunblaðið - 21.11.2008, Qupperneq 4
Morgunblaðið/Sverrir
Aðgerðir Borgarráð ætlar í sókn og
kortleggur tækifærin í kreppunni
BORGARRÁÐ hefur samþykkt að
skipa starfshóp til að fylgjast með
þróun og meta áhrif atvinnuleysis í
Reykjavík. Svandís Svavarsdóttir
borgarfulltrúi mun leiða hópinn en
hann starfar undir aðgerðarhópi
borgarráðs um fjármál borgarinnar.
Fram kemur í greinargerð að at-
vinnulausum á höfuðborgarsvæðinu
hafi fjölgað næstum um helming á
síðustu tveimur mánuðum og í októ-
ber verið 1,8% af vinnuafli. Viðbúið sé
að atvinnuleysi geti orðið meira á höf-
uðborgarsvæðinu en á landsbyggð-
inni miðað við vöxt undanfarinna
vikna og mánaða.
Einnig samþykkti borgarráð ein-
róma að sóknaráætlun fyrir Reykja-
vík yrði undirbúin vegna þeirra verk-
efna sem borgin stendur frammi fyrir
í ljósi efnahagsbreytinga. M.a. verður
skipaður starfshópur til að kortleggja
tækifæri borgarinnar til nýsköpunar
á næstu árum og vinna hugmyndir
um hvernig borgin hyggst mæta nýj-
um áskorunum.
Starfshópur fylgist með
áhrifum atvinnuleysis
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2008
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16
Patti húsgögn
landsins mesta úrval af sófasettum
Íslensk
framleiðsla
Roma
Bonn
Aspen-Lux
Verð kr. 89.900,-
Verð Kr. 140.900,-
Verð Kr. 176.900,-
Verðdæmi :
Yfir 200 tegundir af sófasettum
kr.89.900,-
verð frá
Nice 3ja sæta Verð Kr. 152.900,-
Smíðum eftir þínum þörfum
VERÐHRUN
Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur
gag@mbl.is
VERÐI gengisvísitalan um 230-240,
eins og hún var í gær, fimmtudag,
verða skuldir 70-80 prósenta inn-
flutningsfyrirtækja hærri en eigið fé
þeirra í árslok. Þessi fyrirtæki geta
ekki vonast til þess að erlendir
birgjar séu tilbúnir að lána þeim fyr-
ir vörum. Þetta segir Knútur Sign-
arsson, framkvæmdastjóri Félags
íslenskra stórkaupmanna. Félagið
er ekki aðeins hagsmunasamtök
stórra fyrirtækja í inn- og útflutn-
ingi, heildsölu og smásölu heldur
einnig lítilla.
Knútur telur að flest séu fyrir-
tækin með lán í japönskum jenum
og svissneskum frönkum. Lánin hafi
hækkað um 150 prósent á einu ári.
„Við viljum sjá ríkisstjórnina
móta stefnu fram í tímann og að fyr-
irtækjum verði leyft að gera upp um
áramót á þeirri gengisvísitölu sem
hún setur sér að ná.“ Gengis-
vísitalan mætti ekki vera hærri en
150 stig. Knútur segir þetta brenna
mjög á fyrirtækjunum núna. Það
dugi þeim ekki að fresta afborg-
unum, eins og einstaklingum býðst,
eða að slegið verði á vexti. Á árs-
reikningum fyrirtækjanna byggist
framtíð þeirra.
Nú sé því spáð að þegar krónan
verði sett á flot falli hún tímabundið.
Það íþyngi innflytjendum og kaup-
mönnum enn meir, því hvern dag
sem krónan sé lág fari fleiri í gjald-
þrot. Knútur segist óttast fyrir hönd
sinna félagsmanna að innflutningur
dragist nú verulega saman. „Ríkis-
stjórnin verður að bregðast við nú á
allra næstu dögum,“ segir hann.
Jón Helgi Guðmundsson, forstjóri
Norvikur, sem á Elkó, Byko, Nóa-
tún, Krónuna og 11-11-verslanirnar
ásamt fleirum, segir verslanirnar
standa í skilum við birgja sína en
mjög erfitt sé að eiga í viðskiptum
dag frá degi þegar óljóst sé hvað
varan muni kosta innflutt til lands-
ins.
„Við sjáum fram á það að krónan
falli.“ Veikist krónan mjög mikið
muni þeir íhuga að stöðva innflutn-
ing á vörum. „Það er tilgangslaust
að kaupa vörur ef við getum ekki
verðlagt hana á þeim grunni sem við
kaupum hana inn á.“
Jón Helgi segir að fall krónunnar
hafi verið gríðarlegt og ekki hafi
verið hægt að koma gengisbreyting-
unum inn í verðlagið. Hann segir
mánaðamótin nú ekki erfiðari fyrir
verslanir Norvikur en síðustu mán-
aðamót. „Við höfum verið að segja
upp fólki eins og svo mörg fyrirtæki
og erfitt að segja hvort við höfum
séð fyrir endann á því; þetta er
kjarnorkuvetur,“ segir Jón Helgi.
„Við getum ekkert annað gert en
að taka því sem að höndum ber.“
Jón Helgi segist ekki sjá fyrir sér
hvernig ríkið geti komið innflutn-
ingsfyrirtækjum til aðstoðar. „Við
sem stundum innflutning verðum að
taka ákvarðanir um það hvernig við
erum staddir hver fyrir sig og reyna
að þreyja þorrann og góuna. Þetta
er ástand sem getur ekki varað
lengi. Það hlýtur með einhverjum
hætti að jafna sig, nema við lendum
á steinaldarstigi.“
Óttast gjaldþrot
Sívaxandi skuldir innflutningsfyrirtækja og verslana hamla
þeim ytra Innflutningur tilgangslaus lækki krónan meira
Eigandi fyrirtækis sem flytur inn ýmis atvinnutæki segir stöðu þess ekki
vænkast við lán Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Nú hefjist stífar kröfur er-
lendra birgja um að innflutningsfyrirtæki geri upp skuldir sínar. Hann sjái
því fram á að fyrirtækið tapi annarri hverri krónu vegna gengisþróunar-
innar. Sextíu störfuðu hjá fyrirtækinu í ársbyrjun. Nú eru starfsmenn þrjá-
tíu og laun þeirra hafa verið lækkuð um tíu prósent. Hann segir það ekki
nóg. Hann krefst aðgerða ríkisins eigi innflutningsfyrirtæki að lifa. Rík-
isstjórnin hafi tíma fram í næstu viku. Fyrirtækin megi engan tíma missa.
Stjórnendur innflutningsfyrirtækja vilji fara að reglum og þurfi að ákveða
fyrir mánaðamót og síðast nú í desember hvað þau geti gert: Hvort þau
lifa. Vara hafi tvöfaldast í verði og fyrirtækið gangi því á eigið fé sitt, sem
sé eins og svo víða lægra en skuldirnar. Það hafi orðið fyrir gríðarlegu tapi
og mikilli birgðasöfnun og strangt til tekið ætti nú að gera fyrirtækið upp.
Fyrirtæki á barmi gjaldþrots
Eftir Unu Sighvatsdóttur
una@mbl.is
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
breytingar á lóðaúthlutunarreglum í
ljósi breyttra aðstæðna á lóðamark-
aði. Margir þeirra sem fengu úthlut-
aðar íbúðarhúsalóðir við Úlfarsárdal
og Reynisvatnsás á árunum 2007 og
2008 hafa að undanförnu skilað lóð-
unum aftur til borgarinnar.
Tekið var fyrir slík skil í byrjun
mánaðarins á meðan aðgerðahópur á
vegum borgarinnar mótaði nýjar til-
lögur um lóðaskil og endurgreiðslu.
Niðurstaðan er sú að lóðarhafa, sem
úthlutað var lóð á föstu verði, verður
áfram heimilt að skila lóðinni og fá
endurgreiðslu, að því tilskildu að
framkvæmdir séu ekki hafnar á lóð-
inni.
Útboðslóðum fæst ekki skilað
Fram kemur í greinargerð borg-
arráðs að alls séu nú 100 slíkar lóðir í
hverfunum tveimur, fyrir um 260
íbúðir, sem ekki hefur verið skilað.
Þeir lóðarhafar sem fengu lóð á
grundvelli útboðs, geta hins vegar
ekki skilað lóðinni til borgarinnar
enda var slíkt ekki í upphaflegum
skilmálum. Ekki verður heldur
heimilt að skila lóðum fyrir atvinnu-
húsnæði nema með sérstakri heimild
borgarráðs.
Einnig kemur fram að búast megi
við að verulega hægi á uppbyggingu
hjá þeim sem halda sínum lóðum
næstu misserin vegna gjörbreytts
ástands á lána- og fasteignamarkaði.
Borgarráð bregst við því með því að
framlengja alla framkvæmdafresti,
sem vísað er til í skilmálum, um tvö
ár.
Að síðustu heimilar borgarráð
lengingu á lánstíma í allt að 8 ár frá
útgáfudegi skuldabréfs hafi lóða-
gjöld verið greidd með skuldabréfi.
Einnig að leggja gjaldfallnar afborg-
anir og vexti við höfuðstól og breyta
óverðtryggðum lánum í verðtryggð.
Lóðahöfum er
áfram heimilt
að skila lóðum
Brugðist við breyttum fasteignamarkaði
Morgunblaðið/RAX
Lóðir Langflestar lóðaúthlutanir
voru í Úlfarsárdal og Reynisvatnsási
Í HNOTSKURN
»41 einbýlishúsalóð, 16 rað-húsalóðum og 2 fjölbýlis-
húsalóðum hefur verið skilað
á árinu, þar af 21 í október.
»Borgin hefur endurgreittlóðir fyrir 2,5 milljarða.
»Lóðarhöfum sem úthlutaðvar lóð á föstu verði verð-
ur áfram heimilt að skila lóð-
inni og fá endurgreiðslu.
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
FISKISKIPIÐ Grímsnes GK-555 var dregið til hafnar í
Njarðvík í gærkvöldi, eftir að vél þess bilaði um 2,5 sjó-
mílur frá Stóru-Sandvík á Reykjanesskaga á fimmta
tímanum í gær. Mikill viðbúnaður var vegna atviksins en
björgunarskip voru send af stað, bæði frá Grindavík og
Sandgerði. Það var björgunarskipið Oddur V. Gíslason
sem dró Grímsnes til hafnar. Sjö voru í áhöfn og sakaði
þá ekki. Þetta er annað óhappið í þessari sjóferð skipsins
en það strandaði á sandrifi við Meðalland í fyrradag og
fylgdi varðskip því þá til Vestmannaeyja. Grímsnes GK
er 180 brúttólesta og 33 metra stálskip.
Vindur var 8-12 metrar á sekúndu við Stóru-Sandvík í
gær og rak skipið hægt í átt til lands. Líklega var það um
tvær sjómílur frá landi þegar dráttartaug var komið í
það á sjötta tímanum. Skipverjar voru tilbúnir með
spotta þegar björgunarskipið kom að svo aðgerðin gekk
fljótt fyrir sig. Að sögn Birgis Reynissonar, formanns
Björgunarbátasjóðs, hafði vél skipsins misst olíu-
þrýsting. Einnig voru sendir á vettvang harðbotna
björgunarbátar og björgunarsveitir á landi voru í við-
bragðsstöðu ef skipið myndi reka upp í fjöru.
Lenti aftur í hremmingum
Ljómynd/Hilmar Bragi
Grímsnes Strandaði nálægt Skarðsfjöruvita í fyrradag.
ÞEGAR snjókorn falla á grund verða fáir kátari en
börnin. Því ættu börnin á vestanverðu landinu svo
sannarlega að kætast í kvöld þar sem spáð er lítilli snjó-
komu. Spáð er talsverðum vindi í dag, 5-13 m/s, hvass-
ast við austurströndina. Þá verður heldur kalt úti eða á
bilinu 2-10 stiga frost, kaldast á NA-landi.
Morgunblaðið/RAX
Börnin kætast þegar snjóa tekur