Morgunblaðið - 21.11.2008, Qupperneq 15
Fréttir 15INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2008
SAMFYLKINGARFÉLAGIÐ í
Skagafirði krefst endurmats gilda
í íslensku þjóðfélagi og að þau
samræðustjórnmál sem Samfylk-
ingin stendur fyrir verði ástunduð.
„Tafarlaust þarf að hreinsa til í
stjórn- og fjármálakerfi þjóðar-
innar svo þau verði hafin yfir grun
um spillingu. Efnahags- og at-
vinnustefnu verður að endurskoða
og hleypa í hana nýju blóði með
jafnræði, nýsköpun og frum-
kvæði.“
Hreinsað verði
til tafarlaust
STÍGAMÓT standa fyrir málþingi í
dag, föstudag, um baráttuna gegn
kynferðislegu ofbeldi í Evrópu og er
það haldið í samstarfi við European
Women’s Lobby. Málþingið verður í
Iðnó við Tjörnina milli kl. 13 og 16.
Kynferðisofbeldi
FRÉTTASKÝRING
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@mbl.is
HUGMYNDIR um að danski bank-
inn FIH yfirtaki Kaupþing með
þátttöku erlendra kröfuhafa bank-
ans hafa verið ræddar af töluverðri
alvöru að undanförnu samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins. Sömu
heimildir herma að hugmyndunum
hafi verið vel tekið í stjórnkerfinu.
FIH-bankinn var lagður að veði
fyrir 500 milljóna evra láni sem
Seðlabankinn veitti Kaupþingi
skömmu áður en íslenskt banka-
kerfi hrundi. FIH er því í eigu ís-
lenskra stjórnvalda. Íslenska ríkið
yrði væntanlega á meðal eigenda
hins nýja banka ef af yrði.
Nafnbreyting nauðsynleg
Útfærslan sem verið er að ræða
um þessar mundir er sú að FIH
myndi taka yfir nýja Kaupþing og
mögulega einhverjar eignir úr búi
þess gamla undir merkjum FIH.
Nafnbreyting þykir nauðsynleg
þar sem vörumerki allra gömlu
bankanna þriggja hafi beðið veru-
legan skaða á alþjóðavettvangi í
kjölfar bankahrunsins.
Erlendum kröfuhöfum Kaup-
þings yrði síðan boðið að koma að
eignarhaldi með því að breyta
skuldum að einhverju leyti í
hlutafé. Hópur þeirra, sem margir
hverjir eru með stærstu bönkum í
Evrópu, hefur þegar lýst yfir vilja
til þess að eiga aðild að nýju bönk-
unum í stað þess að sækja skuldir
sínar í þrotabú þeirra gömlu.
Kröfuhafarnir telja að með því eigi
þeir meiri möguleika á að hámarka
virði eigna sinna, sem í þessu til-
felli eru skuldir gamla Kaupþings.
Vonir standa til að sú verðmæta-
aukning yrði hjá nýju bönkunum
þegar þeim hefur tekist að koma
undir sig fótunum á ný.
Hugmyndinni vel tekið
Heimildir Morgunblaðsins
herma að stjórnvöld, kröfuhafar og
núverandi stjórnendur bankans
séu hrifnir af lausn sem þessari.
Með henni myndi erlendur banki
starfa hérlendis, eignaraðild yrði
dreifð og auðveldara yrði fyrir hinn
nýja banka að komast í banka-
viðskipti erlendis. Búið er að opna
fyrir umræður um þessa hugmynd
gagnvart erlendum kröfuhöfum þó
að lokaútfærsla liggi ekki fyrir.
Morgunblaðið greindi frá því um
liðna helgi að fulltrúar margra af
stærstu kröfuhöfum Glitnis, Kaup-
þings og Landsbanka hefðu lýst yf-
ir vilja til þess að eignarhaldsfélög
yrðu stofnuð um eignir gömlu
bankanna eins og þær voru og að
kröfum þeirra á hendur bönkunum
yrði breytt í hlutafé. Þannig
myndu nokkrir af stærstu bönkum
heims taka þátt í bankarekstri á
Íslandi sem eigendur í íslenskum
bönkum.
Ræða yfirtöku Kaupþings
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kaupþing Ef af hugmyndinni yrði myndi nafnið Kaupþing leggjast af. Nafnbreyting þykir nauðsynleg.
Rætt er um að danski bankinn FIH yfirtaki Kaupþing og að erlendir kröfuhafar komi að eignarhaldi
hins nýja banka Hugmyndinni vel tekið í stjórnkerfinu FIH nú þegar í eigu íslenskra stjórnvalda
Í HNOTSKURN
» Danski bankinn FIH varlagður að veði fyrir 500
milljóna evra láni Seðlabanka
Íslands til Kaupþings
skömmu áður en bankinn féll.
» FIH er því í eigu ís-lenskra stjórnvalda sem
stendur.
» Fulltrúar erlendra kröfu-hafa íslensku viðskipta-
bankanna þriggja hafa lýst
yfir áhuga á að eignum
þeirra, skuldum bankanna,
verði breytt í hlutafé í þeim.
Í kröfuhafahópnum eru
margir af stærstu bönkum
heims.
» Þannig eigi þeir semmestan möguleika á að
hámarka virði eigna sinna.
Bókaútgáfan Opna - Skipholti 50b - 105 Reykjavík - sími 578 9080 - www.opna.is
Arnhild Lauveng greindist með geðklofasýki á unglingsaldri, dvaldi á
geðdeildum í áratug – en sigraðist á sjúkdómnum og menntaði sig síðan
sem sálfræðingur. Saga hennar er firnasterk og oft á tíðum lyginni líkust.
„Þessi áhrifamikla og einstæða bók lætur engan
ósnortinn sem les hana af athygli.“
Sigurjón Björnsson, sálfræðingur
„Vekjandi reynslusögur af þessu tagi eru ómetanlegar.“
Sveinn Magnússon, framkvæmdastjóri Geðhjálpar
Áhrifarík og
makalaus
reynslusaga
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
VESTURRjúpnaskot í VesturröstRemington og Winchester
Samið við
Hitaveitu
Suðurnesja um
kjarasamninga
STARFSMANNAFÉLÖG Suður-
nesja, Hafnarfjarðar og Vest-
mannaeyja hafa náð samkomulagi
við Samtök atvinnulífsins fyrir
hönd Hitaveitu Suðurnesja hf. um
breytingar og framlengingu kjara-
samnings aðila til sex mánaða, eða
til 30. apríl nk.
Félagsmenn fá tveggja launa-
flokka hækkun frá 1. nóvember sl.
og 21.000 króna eingreiðslu. Þá
hækkar desemberuppbót í 67.500
krónur.
Samkomulagið var samþykkt af
félagsmönnum með miklum meiri-
hluta atkvæða.