Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.04.1938, Side 21

Skinfaxi - 01.04.1938, Side 21
SKINFAXl 21 út dalinn, en flugvélar þurfa, eins og kunnugt er, alltaf að lenda á móti vindinum. 2. ) Til greina koma sléttir melar, árbakkar, slétt- ir sandar, valllendisengi, slétt tún o. fl. o. fl. Svæð- in mega ekki vera of gljúp, og ekki óslétt. 3. ) Lega svæðisins þarf að vera sem fjærst mis- hæðum og öðru því, er getur truflað innflug vél- arinnar. Þeir, sem vita af svæðum, sem samkvæmt þess- um upplýsingum geta komið til greina, ættu að til- kynna stærð þeirra og legu hið bráðasta. Ungmennafélagar! Stofnið flugmáladeildir innan vébanda yklcar, og tilkynnið það Flugmálafélugi Is- lands. — Gerið flugmálin að ykkar málum, og hefj- ið merki þeirra hátt og öruggt. Ég veit, að úr hönd- um hinnar íslenzku æsku mun það aldrei falla. Kristján Sigurðsson: í dögun (Síðsumarstef). Drjúpa börð við dvalans fætur. Dreymir jörðina. Fagran svörð að fórn hún lætur, fyrir hjörðina. Bíður gríma á báðum áttum, býst við glímunni. Skuggar hýma í gljúfragáttum, gramir skímunni. Næturstoðir fúnar falla, fyrir roðanum. Sendiboðar blómin kalla, burt frá voðanum.

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.