Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.1942, Blaðsíða 12

Skinfaxi - 01.12.1942, Blaðsíða 12
60 SKINFAXI hann hafði verið. Stundum gerði ég ýmsar tilraunir með sjálfan mig — í huganum. Ég setti mig t. d. í huganum niður í flösku, og horfði upp um stútinn, o. s. frv. Mikið yndi hafði ég af þvi að reika út um hagann. Smali var ég lengi, en leiddist það. Þó þótti mér vænt bæði um kindur og hunda. Hundarnir vildu helzt ekki fylgja mér í smalamennskuna. Þeir fundu vist, hvað ég var lítill smali. Stjórnmálum og öðru slíku hefi ég alltaf verið frá- bitinn, og er þakklátur öðrum fyrir að taka að sér þau störf. Auðvitað verða einhverjir að hafa þau á hendi. Ég hefi alltaf átt erfitt með að skipa mér í flokka, einnig á sviði listanna. Listflokkar, stefnur, „ismar“ og tizka hafa alltaf verið mér mjög fjar- læg. Ég geri heldur enga kröfu til þess, að allir séu eins og ég er sjálfur. Þegar einhver getur ekici þolað mig sem listamann, þá finn ég stundum til gleði, þótt undarlegt sé. Orsökin er sú, að ég tel það ávinning fyrir heildina, að ekki séu allir steyptir i sama mótið. Ég vil undirstrika andlegt sjálfstæði mannsins. Það sjálfstæði er ekki fullkomið, nema maður unni öðrum sama réttar og sjálfum sér. Nú getur sjálfstæði mannsins að vísu ekki verið tak- markalaust. Setjum svo, að tveir menn vilji sjálf- stæði til hins ýtrasta. Annar vill sjálfstæði á ljóssins vegi; hinn krefst með sama rétti sjálfstæðis á mót- settum vegi. Raunverulega hafa þeir ekki sama rétt, þvi að í tilverunnar ríki er ákveðinn réttur, sem hver einstaklingur hlýtur að lúta. En hver maður verður að krefjast sjálfstæðis til að nota sinn rétt, svo langt sem mannfélagsheill og siðferðislögmál tilvetrunnar leyfir. Einstaklingamir verða lika að hafa sinn rétt, sökum þess, að ekki hæfir öllum það sama, fremur en í sögunni um karlinn, sem gaf skósmiðnum meðal,

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.