Skinfaxi - 01.12.1942, Page 17
SKINFAXI
65
ii mikla hneigð til dulsæis, og þess vegna kann hún að
meta Einar Jónsson og finnur til skyldleika síns við
hann.
Jakob Jónsson.
Guðmundur Böðvarsson:
Kveðja til hlutlauss vinar.
i.
Þú áttir í hlutleysi athvarfs að leita,
er eldraun við dyr þínar beið.
Var nolekuð svo auðvelt þér umkomulausum,
svo einfalt og sjálfsagt um leið?
Þér átti að lærast að fara í felur
og finna þér afdrep og hlíf
við feiknum þess leiks þar sem fylkingar berjast
um framtíð og mannlegt líf.
Þií áttir að leita þíns láns með þeim hætti,
að leggja ekki í áhættuspil.
— Sá sleppur þó máske með höfuð á hálsi,
sem hættir ei neinu til.
11.
Hver veit hvernig úrslitin verða að lokum?
Hver veit hvað í djúpunum býr?
Hvort hrósar sá sigri, er húminu fylgir,
eða liinn, sem að deginum snýr?
Sem dulráður sfinxinn með váglott á vörum
í víðlendum auðnar og húms
rís andsvaralaus sú hin óráðna gáta
í ósæi tíma og rúms.
i