Skinfaxi - 01.12.1942, Blaðsíða 26
7!
SKINFAXI
hæfa að þetta grip geri þá færa að halda nær þunga-
miðju spjótsins. Margif spjótkastarar leggja vísifing-
ur undir spjótið, en það er álitið þvinga kastið,
vegna þess, að hendin bindist. Þeir kastarar, sem ná
beztum árangri með þessu gripi, teygja visifingur
undir og aflur með spjótinu til hægri hliðar. Fingur-
inn verður þá i framlengingu af framhandleggnum.
(Athugaðu gripmyndirnar á 2. mynd nákvæmlega).
Spjótburðurinn: B og Bb í 2. mynd, sýna hvernig
spjótið er horið frá byrjun atrennunnar og þar ti)
færsla spjótsins til seilistöðunnar liefst. Spjótið er
borið nær lóðrétt yfir axlarbrúninni og hærra en hvirf-
ill. Olnboginn aðeins hærri en öxlin og veit beint fram,
en úlnliðurinn beinn. Oddurinn veil niður, þannig að
lílill munur er á þeim hornum, sem spjótið myndar