Skinfaxi - 01.12.1942, Blaðsíða 31
SKINFAXl
79
sama hraða). Nú þarf að fylgja hreyfingunni vel
eftir og vera mjúkur og fjaðurmagnaður. Um leið
og likamsþimginn færðist yfir á vinstri fótinn er
mjöðmin undin fram og lil vinstri, einnig er hné hægri
fótar snúið mjög inn á við tii vinstri og rétt úr hné
beygjunni, sem við það veitir bolnum lyftingu upp og
fram. Þetta viðbragð eykur enn liraða kastsins. Það
er vinda mjaðmarinnar, sem veldur þvi að vinstri
armurinn sígur, höfuðið liallast aftur og brjóstið snýr
þvert fram. Við þella réttist úr bogastöðu hins hliðhalla
likama, sem verkar á framkastið eins og fjöður, seih
réttir úr sveig sinum. Ifægri öxlin lyftist upp og' áfram.
Öll þessi viðbrögð og hraðaaukningin leggst nú á eitt
með dróttarafli kastarmsins, að skila spjótinu út í loft-
hafið. Við lyflingu axlarinnar er olnhogi kaslarmsins
næstum því undir spjótinu eða dálítið til hægri við spjót-
ið. Spjótsoddurinn,sem hefir vitað upp á við siðanundir-
búningsskrefin liófust er nú lcominn i meir en liöfuð-
hæð og spjótið liggur í gripi handarinnar, sem snýr
lófanum upp (sjá 1. mynd C, og D). Olnboginn leið-
ir spjótsdrátt kastarmsins í örskotshraða fram. vfir öxl-
ina. Nú má ekki vikja undan kastinu til vinstri, heldur
spyrna undir með teygju og lyftingu allrar kasthliðar-
innar frá tám, upp i gegnum hné, mjöðm, bol, öxl,
Iiandlegg og fram í löngutöng, sem að siðustu með
gripi sínu um rönd vafningsins eykur á liraða og orku
kastsins.
Likaminn, sem vill fylgja á eftir er hamlað að fara
fram yfir kastbrúnina með því að hægri fæti er stigið
til jarðar þvert á kaststefnuna.
Æfing spjótkasts:
Spjótkastið er erfið íþrótt, og eins og er um allar
íþróttir, verður að æfa það, til þess að ná leikni i því og
afreki. Mundu að höfuðskilyrðið er að leitast við að