Skinfaxi - 01.12.1942, Side 39
SKINFAXI
87
Geir Sigurðsson:
Fallnir stofnar.
Fyrir nokkru létust tveir rosknir menn, sem báðir voru
á sínum tima áhrifamenn í ungmennafélagsskap hér i Dala-
sýslu, þeir Jóhannes Guðmundsson frá Teigi í Hvammssveit
og Guðmundur Gunnarsson frá Tindum á Skarðsströnd.
Finnst mér vel þess vert, að Skinfaxi geymi minningu þess-
ara ágætu ungmennafélaga.
I.
Jóhannes á Teigi — en svo var
hann jafnan nefndur af sveitung-
um sinum — var greindur mað-
ur og mjög víðlesinn. Var talið,
að enginn notaði betur bóksafn
sveitar sinnar en hann. Búhagur
var hann talinn, og mun hafa
smíðað flesta búshluti sína sjálf-
irn. Bú stundaði hann af árvekni
og dugnaði, svo sem heilsan frek-
ast leyfði. Snyrlimennsku hans
í umgengi var og við brugðið.
Hann stundaði harnakennslu ofl
að vetrinum fyrstu búskaparár
sín. Á sumrum var hann stund-
>im i ferðum með Helga Jónssyni grasafræðingi. Kom
hann á ferðum þessum í flest eða öll héruð landsins og fór
einkum víða um óbyggðir. Munu ferðir þessar hafa verið Jó-
hannesi til mikillar gleði og þroska. Allir, sem þekktu hann
vissu, að aðalhugðarmál hans var að hlú að gróðri jarðar.
Það hefir því óefað gefið þessu áhugamáli hans byr i segl-
in, að eiga kost á slíkum ferðuin. Og jafnan var hressandi
að hitta hann heimkominn úr ferðunum. Kunni hann þá
frá mörgu að segja og hvarf að búi sínu sem endurhresst-
ur úr heilnæmi fjallaloftsins og af árangri hinnar þögulu
þroskaleitar. Á þessum ferðum kom hann sér upp dálitlu jurta-
safni, er hann geymdi vandlega, sem helgan grip.
Þegar á fyrstu árum gerði Jóhannes skrúðgarð við bæ sinn.
Jóhannes Guðmundsson.