Skinfaxi - 01.12.1942, Page 44
92
SKINFAXI
Fylking íþróttamanna á allsherjarmóti U.M.F.Í. í Haukadal
22. júní 1940. Fánaberinn heilsar.
kenni þess þurfa að vera: Glœsileg fimleikasýning, myndar-
leg þátttaka í frjálsum íþróttum og snjallir glímumenn. Þess-
ir hópar eiga að gera landsmótið i Borgarfirði glæsilegasta
mót U.M.F.Í. og verða öllum Umf. aukin hvatning til enn
meiri íþróttastarfa.
Allt hið markverðasta, sem fram fer á mótinu, verður kvik-
inyndað. .Þannig á það að lifa lengi í endurminningunum
og verða mörgum Umf. til ánægju víðsvegar um landið, sem
ekki geta sótt mótið.
Hæfilega tíð landsmót U.M.F.Í. munu, auk þess sem þau
glæða íþróttaáhugann, skapa heppilega kynningu unga fólks-
ins og auka jiekkingu þess á landinu, þar sem jafnan kæmu
á hvert mót hópar Umf. úr öllum landsfjórðungum, en mótin
haldin i þeim til skiptis, ef fært verður. Mótið í Borgarfirði
næsta vor leiðir í Ijós, livort þau áform Umf. rætast, sem að
er stefnt. Til þess þarf einbeittan vilja og mikla fórnfýsi
af hálfu allra félaganna í undirbúningi heima og þátttöku
í mótinu, svo djörfustu vonir um glæsilegt íþróttamót megi
rætast.