Skinfaxi - 01.12.1942, Qupperneq 47
SKINFAXI
95
3. Guttorniur Sigurbjðrnsson frá Gilsárteigi, á Austfjörðum.
4. Helgi Júlíusson frá Leirá, í Borgarfirði.
5. Jón Þórisson frá Reykholti, í Kjós og Eyjafirði eftir nýár.
6 . Kári Steinsson frá Neðra-Ási, í Suður-Þingeyjarsýslu.
7. Matthias Jónsson frá Kollafjarðarnesi, til áramóta á Eyr-
arbakka og Stokkseyri, eftir áramót í Dalasýslu og Vestur-
Húnavatnssýslu.
8. Sigríður Guðjónsáóttir á Eyrarbakka kennir þar stúlkum.
Auk þeirra námskeiða, er kennararnir halda, þá gangast
cinstök félög fyrir íþróttanámskeiðum, er njóta forystu heima-
manna, sem ýmist eru íþróttakennarar eða áhugamenn í þeirri
grein. Enn fremur stuðlar U.M.F.Í. að námskeiðum einstakra
félaga í sérgreinum t. d. skiðafari.
íþróttamót ungmennafélaganna
stóðu með engu minni blóma s.l. sumar en sumarið 1941.
Auk hinna venjulegu héraðsmóta voru haldin fjölda mörg
iþróttamót af tveimur nágrannafélögum við góðan árangur.
Þessi mót heima í hreppunum gefa ágætt tækifæri til undir-
búnings héraðsmótunum og verða góður þáttur í skemmtana-
lífinu, ef vel er á haldið.
Framkvæmdir einstakra ungmennafélaga.
Þrátt fyrir erfiðleika af völdum striðs og dýrtiðar, hafa
allmörg Umf. liafið* framkvæmdir ýmissa íþróttamannvirkja
eða undirbúning þeirra. Er U.M.F.Í. m. a. kunnugt um fram-
kvæmdir þessara félaga:
1. Umf. Snæfell, Stykkishólmi liefir nýlega lokið við hygg-
ingu gufubaðstofu i barnaskólahúsi kauptúnsins og vinnur að
iþróttavelli og inyndun sjóbaðstaðar i útjaðri þorpsins.
2. Umf. í Helgafellssveit undirbýr leikvallabyggingu, skanunt
frá samkomuhúsi sínu.
3. Ungmennasamband Norður-Breiðfirðinga vinnur að sund-
laugarbyggingu á Reykhólum, sem er upphaf meiri fram-
kvæmda á þeiin stað.
4. Ungmennasamband Vestur-Húnvetninga og Ungmenna-
félagið Grettir í Miðfirði vinna að byggingu sundlaugar að
Asbyrgi i Miðfirði.
5. Umf. Dagsbrún í Höfðahverfi hefir i undirbúningi sund-
laugarbyggingu við volga uppsprettu i sveitinni og myndun
iþróttavallar.
(i. Ungmennasamband Norður-Þingeyinga vinnur að iþrótta-
velli i Ásbyrgi, sem er aðalsamkomustaður sambandsins.